Nýja dagblaðið - 02.04.1936, Qupperneq 1
4. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 2. aprO 1936 . 78. blað
Aukin framleiðsla mjólkur
Hiller býður fjögra mán«
aða frið!
og aukiu páttlaka í starfrækslu
mjólkurbúa, stóreykur mjólkurmagn
Samsölunnar
Hvað &r fraimindan ef sama heldur fram?
Samkvæmt skýrslum frá
þeim mjólkurbúum, sem nú
hafa sent Mjólkursamsölunni
skýrslur, hefir mjólkuraukning-
in hjá þeim á síðasta ári verið
frá 30—50%.
Þrátt fyrir þessa miklu mjólk-
uraukningu hefir verðið sem
búin borga fyrir mjólkina til
framleiðenda, hækkað hjá þeim
öllum.
En mjólkin, sem til búanna
berst, heldur áfram að aukast.
Samkvæmt heimiidum frá
Mjólkursamsölunni hefir inn-
vegin mjólk hjá vinnslubúun-
um, þ. e. mjólkurbúum Borg-
firðinga, ölfusinga og Flóa-
manna í janúar og febrúar
þessa árs, aukizt um
252,569 kg.,
miðað við sömu mánuði í fyrra.
Mjólkuraukningin v e s t a n
h e i ð a r frá 15. janúar tii 28.
febrúar hefir verið
95,565 lítrar,
miðað við sama tímabil á fyrra
Mjólkursala vinnslubúana hef-
ir þannig minnkað úr 60 þús.
lítrum niður í 10 þús. lítra á
þessum 6 vikna tíma.
En jafnframt því, sem þau
missa þannig markaðinn fyrir
vörur sínar, hefir mjólkuraukn-
ingin hjá þeim það í för með
ári. Samanburðurinn nær aðeins
yfir hálfan annan mánuð vegna
þess, að Samsalan hefir ekki
skýrslu um mjólkurmagnið
vestan heiðar frá 1.—15. jan.
í fyrra.
Aukningin öll er því 348.124
lítrar.
Verði aukningin hlutfallslega
hin sama yfir árið, nemur hún
alls um 3 milljónum Lítra á ár-
inu.
Mjólkursalan
Þótt mjólkursalan í heiid
hafi vaxið að mun frá í fyrra,
hefir hin mikla framleiðslu-
aukning á mjólk vestan Hellis-
heiðar haft það í för með sér,
að vinnslubúin hafa svo að
segja alveg orðið að þoka burt
af markaðinum með þá mjólk-
ursölu, sem þau höfðu í fyrra.
Samkv. heimild Mjólkursam-
sölunnar seldu vinnslubúin
injólk til Reykjavíkur:
samtals 60.545 lítra
samtals 10.148 lítra
sér, að verðjöfnunarsjóður
hrekkur miklu ver til að verð-
uppbæta vinnsluvörur þeirra,
eins og sézt á eftirfarandi yf-
irliti Samsölunnar um tekjur
hans og kröfur til verðuppbót-
ar í janúar og febrúar bæði
árin:
Verðjöfinunarsjóður
1. Tekjur sjóðsins námu í jan og febr. 1935 samt. 25.193,89
Kröfur til verðuppbóta úr sjóðnum námu á sama
tímabili samtals............19.018,21
15/1. til 28/2. 1935
15/1 til 28/2. 1936
Umfram kr. 6.175,18
*
2. Tekjur sjóðsins námu í jan. og febr. 1936 samt. 30.276,55
Kröfur til verðuppbótar úr sjóðnum námu á sama
tímabili samtals.................................. 38.638,11
Á vantar kr. 8.361,56
Tekjur sjóðsins eru aðeins 5 an heiðar missa þau markað
þús. kr. meiri en á sama tíma fyrir vörur sínar, og vegna
í fyrra, en kröfur til verðupp- aukningarinnar hjá þeim sjálf-
bóta á vinnslumjólk 19'/2 þús. um, lækka verðuppbætumar á
kr. meiri. Þær hafa því vaxið | vörur þeirra að miklum mun.
um röskan helming. j Þrátt fyrir þessar tölur, sem
Vinnslubúin eru því hér í i tala sínu ákveðna máli, eru til
tvennskonar hættu vegna ! þeir menn meðal mjólkurfram-
mjólkuraukningarinnar. j leiðenda vestan heiðar, sem
Vegna aukningarinnar vest- finnst það óverjandi ráðstöfun,
Íhaldíð úrlllt
Gengur al þingíundii
íhaldsmeim í efri delld slepptu
sér og gengu af fundl í gœr, i (
sambandi við umræður og at-
kvæðagreiðslu um þingsköpin.
peir vildu fá máUð tekið út af
dagskrá til að tefja það, en þvi
var neitað. þá fundu þeir sér j
það til, að þau Pétur Magnús-,
son og Guðrúnu i Ási vantaði
við atkvæðagreiðsluna og vildu :
fá frest til kvölds til að leita ,
að þeim; forseti veitti 10 mín. (
frest i von um að Ouðrún og
Pétur kynnu að finnast, en þá
ruddust ihaidsmenn út úr deUd-,
inni og tóku porst. Briem með
sér og voru þeir ekki við at-
kvæðagreiðsluna.
aó ætla eitthvað af hagnaði
af rekstri Samsölunnar, ef
nokkur verður, til að draga úr
þessari hættu vinnslubúanna,
sem vofir yfir þeim, bæði um
verð og markað.
Annars er þessi mjólkur-
aukning svo gífurleg, að hún
hlýtur að hafa sín áhrif. Fer
það að verða óverjandi, að sum-
um framleiðendum séu veitt
þau forréttindi, að vera bæði
tryggðir með verð og markað
fyrir alla framleiðslu sína og
j iramleiðsluaukningu, og jafn-
framt að fá greiðslur strax, —
samtímis því, sem aðrir eru
bæði í bersýnilegri hættu um
lækkandi verð og minnkandi
markað, og fá ekki greiðslur
fyrir vinnsluvörur sínar fyrr,
en ef til vill, seint og síðar-
meir.
Mjólkuraukningin er nú mesta
hættan, sem yfir mjólkurfram-
leiðendum vofir.
Togari tekinn
Varðskipið Ægir kom í gær
! til Vestmannaeyja með fransk-
I
j an togara, Cape Fagnet frá
! Fecamp. Ægir tók togarann ná-
lægt Einidrang, en talið er að
aðeins verði um hlerasekt að
ræða. Málið er í rannsókn. FÚ.
London í gær FÚ.
Von Ribbentrop, afhenti Ant-
hony Eden og Halifax lávarði
svör þýzku stjómarinnar við
Lundúnasantþykktunum, í ut-
anríkismálaráðuneytinu brezka
fyrir hádegi í dag.
Svörin verða ekki birt fyr en
á morgun. Þó er nokkumvegin
víst, hvað snertir hina nánustu
framtíð, að Hitler leggur til,
að friður sé haldinn í fjóra
mánuði. Á þessu tímabili ráð-
gerir hann, að hvorki Frakk-
; land, Belgía eða Þýzkaland
breyti að neinu leyti herstyrk
sínum á landamærunum, og að
þessi ríki noti tímann til þess
að komast að ýmsum hag-
kvæmum niðurstöðum um
framtíðina.
! Það er álit blaðamanna, að
svar þýzku stjómarinnar sé að
öðru leyti nánari útfærsla á
þeim sjö meginatriðum, sem
Flitler lagði áherzlu á í ræðu
| sinni 7. marz.
Abessiniukeisari t a p a r
fyrstu stórorustunni sem
hann stjórnar
Maunfali mikið hjá Abessiniumönnum
og fjöldi tekinn til fanga
London í gær. FÚ.
Seinustu fregnir benda til, að
þýðingarmesta orustan í öllu
Abessiníustríðinu hafi verið
háð frá því kl. 6 í gærmorgun
til kl. 6 í gærkvöldi, miðja vega
milli Amba Alagi og Ashangi-
vatns. Svo lítur út, sem abes-
sinskar hersveitir hafi upphaf-
lega gert ítrekaðar árásir á ít-
alska liðið, en að hver árás
þeirra hafi verið rekin aftur.
Þegar á leið, hófu Italir gagn-
sókn, og hröktu óvinina til
baka, og studdust við flugvélar
í árásum sínum. Er sagt, að It-
alir hafi tekið þúsundir abes-
sinskra hermanna til fanga.
Það fylgir þessari fregn, að A-
bessiníukeisari sjálfur hafi
stjómað her sínum í þessari
orustu.
I opinberri tilkynningu frá
Badoglio marskálki segir, að 12
ítalskir herforingjar hafi fallið.
en 44 særst, 51 hvítur heraiað-
ur hafi fallið, oð 152 særst, en
af innfæddum mönnum í liði
Itala hafi 800 manns særst og
Mjólkurbú
mm
Olvesinga
Innvegin mjólk árið 1934 hjá
Mjólkurbúi ölvesinga var 749.
510 kg. og útborgun til bænda
161/2 eyrir á lítra.
Innvegin mjólk árið 1935 var
995.383 kg., en útborgun til
bænda 18,12 aurar á lítra.
Samkvæmt þessu hefir mjólk-
urmagnið hjá ölfusbúinu auk-
izt um 33% á síðastliðnu ári.
/
fallið. Badoglio telur að 7000
manns af Abessiníumönnum
hafi fallið, en fjöldi hermanna
hafi verið tekinn til fanga og
auk þess hafi Italir tekið her-
fangi miklar birgðir af her-
gögnum. Orustan stóð 12
klukkutíma, og var háð á aust-
urhluta vígstöðvanna, en vest-
urarmur ítalska hersins á norð-
urvígstöðvunum heldur áfram
að sækja fram. Margir höfð-
ingjar innfæddra manna hafa
gengið Itölum á hönd á þeim
slóðum.
M j ólkur samlag
BorgSírðínga
Nánari fregnir eru nú fyrir
hendi frá Mjólkursamlagi Borg-
firðinga.
Árið 1934 nam innvegið
mjólkurmagn til búsins 655.078
kg. og þá var útborgað meðal-
verð á kg. I8V10 eyris.
Árið 1935 var innvegið mjólk-
urmagn 951.146 kg. en útborg-
að meðalverð 189/10 eyris kg.
Samkvæmt þessu hefir
mjólkuraukningin hjá búinu á
árinu numið 45%, og úbtorgað
meðalverð fyrir mjólkina, þrátt
fyrir þessa miklu aukningu,
hækkað um tæpan eyri.
TOLLSVIK
Við leit í Brúarfossi, er skip-
ið kom frá útlöndum í gær-
morgun, fundu tollverðir 11/2
flösku af whisky og 1 flösku
Framh. á 4. síðu.