Nýja dagblaðið - 08.05.1936, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 08.05.1936, Blaðsíða 1
4. ár. Reykjavík, föstudaginn 8. maí 1936. 104. blað Tflrlit Stofnun kennaradeildar við Háskólann Jónas Jónsson flytur þingsályktunartillögu um að skora á stjórnina að undirbúa raálið vel fyrir næsta aíjjmgi Jónas Jónsson hefir lag-t fram í efri deild eftirfarandi þings- ályktunartillögu um menntun kennara við Háskóla Islands: „Eí'ri deild Alþingis skorar á ríkisstjórnina að láta fara fram athugun á því, hversu breyta mætti uppeldi kennai’a með því að hafa tveggja vetra sérnám í Háskóla íslands í sálarfræði, upp- eldisfræði og kennsluvísindum fyrir kennaraefni, sem hefðu tekið stvidentspróf, með nokkrum öðrum sérstökum undirbúningi fyrir kennarastarfið, og leggja niðurstöðuna fyrir næsta Alþingi“. t greinargerð fyrir tillögunni segir m. a.: „I lögum um byggingu Há- skóla Islands, sem voru til með- ferðar á Alþingi árin 1930, 1931 og 1932 og náðu þá sam- þykki Alþingis, er ákveðið, að í væntanlegri háskólabyggingu skuli vera ætlað rúm fyrir kennslu í uppeldisvísindum. Auk þess var tryggt, að á há- skólalóðinni yrði rúm fyriv fleiri byggingar vegna kenn- araefna, er stunduðu þar nám. Stjórn háskólans hefir nú falið húsamiestara ríkisins að gera uppdrátt að væntanlegri háskólabyggingu, og starfar hann að því verki. Mun þar gert ráð fyrir nokkru húsrúmi vegna kennslu í uppeldisvísind- um, en þó myndi málinu betra, að glögg ákvörðun yrði tekin um málið áður en lokið er við teikningu af húsinu. Er það ein af ástæðum til þess, að ég hreyfi nú málinu á Alþingi. Þá hefir kennaraþingið á fundi sínum fyrir ári síðan samþykt að óska þess, að farin yrði þessi leið. Hefir kennara- stéttin þar fyrir sitt leyti geng- ið inn á þann grundvöll, er ég lagði í háskólafrv. 1930, og sem endanlega var ákveðin með há- skólalögunum 1932. Kennaraþingið byggir á því, sem rétt er, að námið í Kenn- araskólanum sé of stutt, og þeim stutta tíma verður að skipta á milli gagnfræðanáms og sérmenntunar. Tillaga kenn- aranna er því sú, að setja á stofn í háskólanum tveggja vetra nám í sálarfræði, uppeld- isvísindum og verklegum æfing- um, en að komið sé á fót sér- stakri deild til að undirbúa kennaraefnin í 4 ár að því er snertir alla almenna menntun. ATel má vera, að þetta væri heppilegt. En þar sem nú er völ á mjög mörgum stúdentum úr báðum menntaskólunum, sem hafa fengið þennan al- menna undirbúning, og vita ekki nærri allir hvað þeir eiga að taka fyrir að loknu námi þá virðist einsætt, að uppeldis- vísindadeild háskólans fengi nemendur sína í framtíðinni úr menntaskólunum, ef til vill með nokkrum sérkröfum. Að því er snertir laun kenn- ara við barna- og unglinga- skóla, þá munu þau smátt og smátt ekki verða lægri en laun margra háskólagenginna Framh. á 2. síðu. um fiskaflann' frá því er Fiskifélag Islands tók að safna aflaskýrslum miðað við 1. maí og 31. des., öll árin, miðað við smálestir af þurkuðum fiski. Veiðin Ar 1. mai’ 31. des. eftir 1. mai 1925 20.267 51.085 30.818 1926 19.082 38.153 19.071 1927 22.461 50.584 28.123 1928 27.476 65.596 38.120 1929 36.630 66.764 30.134 1930 40.301 70.574 30.273 1931 35.072 64.654 29.582 1932 31.985 56.372 24.387 1933 41.870 68.630 26.760 1934 43.441 61.880 18.439 1935 1936 33.565 17.666 50.002 16.640 Sjá grein á þriðju síðu. Austen Chamberlain vill afnema refsí- aögerðirnar London 6./5. FÚ. Sir Austin Chamberlain lét þá skoðun í ljós í umræðunum um utanríkismál í neðri mál- stofu brezka þingsins í dag, að bæði mundi hættulegt og gagnslaust að halda áfram refsiaðgerðum gegn Italíu úr því sem komið væri. 10 lög afgreidd frá Al- þingi í gær Umræðum um f járlögin lauk I gærkvöldi. ítalir ætla að leggja alla Abessiniu undir sig og hlíta eigi afskiptum annararíkja ítaliukonungur heiðrar Mussolini fyrir hryðjuverkin Stórráð Fascistaflokksins heldur fund á laugardagskvöld. Búizt er við því, að Mussolini gefi mikilsvarðandi yfirlýsingar á þeim fundi. Síðar er búizt við að ráðherrafundur verði hald- inn, og að Mussolini tilkynni á þeim fundi, að öll Abessinía hafi verið tekin af ítölum, og sé þar með orðin ítölsk hjálenda, en Stórráð Fascistaflokksins skipar menn til stjórnar í hinu sigr- aða landi, og ræður öllu um tilhögun þess. Frönsk útvarpsfregn getur þess, að samkvæmt yfirlýsingu frá Róm sé ítalska stjórnin alráðin i því, að haga viðskiptuni sínum við Abessiníu eftir eigin geðþótta, og muni engum stoða að blanda sér í þau mál. Þó muni Ítalía fús til að veita Frakk- landi og Englandi nolckur réttindi í Abessiníu. Victor Emanuel, ttalíukon- ungur, kallaði Mussolini heim til sín í gær, og veitti honum Viktor Emanuel þar stórkross Savoy-orðunnar, fyrir það, að hafa unnið „hinn stórkostlegasta sigur í ný- lenduhernaði, sem sagan veit að greina frá“. t Addis Abeba var allt með kyrrum kjörum í gær. Útlend- ar sendisveitir vinna að því, hver um sig, að líta eftir þegn- um lands síns. Italir hafa ekki farið fram á það, við sendi- sveitir nokkurs lands, að hverfa úr borginni, þó að þeir samkvæmt gömlum hernaðar- lögum, hefðu rétt til að gera það. Abessiníukeisari kemur til Jerusalem snemma í dag. Engar viðhafnarviðtökur bíða hans þar, og ekkert verður gert til þess að láta í ljós að þar sé þjóðhöfðingi á ferð. Seinna er búizt við að hann fari til Ev- rópu. Italir náðu Djidjiga á vald sitt í gærkvöldi. Þeir hafa enn eki náð Harrar, vegna erfið- leika á því, að flytja her og matvæli til borgarinnar, vegna rigninganna. —FÚ. Eldsvoði í Vesturbænum í gærkvöldi Rotta var orsök eldsins! Amy Mollison næv íakmavkínu og setuv nýtt flugmet Um kl. 11 í gærkveldi var brunaliðið kvatt á Norður- stíg 5. Hafði eldur komið þar upp í neðstu hæð hússins, í herbergjum, sem sneru gegn norðri. Iiús þetta er allstórt, þrílyft og úr timbri. Þegar brunaliðið kom á vett- vang, var eldurinn orðinn tals- \ert magnaður og tókst því ekki að hefta útbreiðslu hans í bili, og komst hann upp á efri hæðirnar norðan megin í hús- inu. Brunaliðinu tókst þó von bráðar að vinna bug á honum og mátti heita að búið væri að slökkva hann að fullu um tólf- leytið. y öll norðurhlið hússins var þá brunnin að mestu og hús- gögn, sem voru í þeim her- Framh. á 4. síðu. I gær voru eftirfarandi lög afgreidd frá Alþingi (10 alls): Lög um samþykkt lands- reikn. 1934. Lög um viðauka við Lands- bankalögin. Lög um veiting ríkisborgara- réttar. Lög um br. á brúalögum. Lög um framlenging ýmsra laga um tekjuöflun fyrir ríkis- sjóö (viðskiptagjald, benzín- skattur). Lög um garðyrkjuskóla rík- isins. Lög um jaröakaup ríkisins. Lög um fræðslu bama. Lög um heimilisfang. Lög um brunamál. London kl. 16 7./5. FÚ. Frú Amy Mollison flugkona kom til Höfðaborgar síðdegis í dag, og hafði hún þá hnekkt meti því, sem Tommy Rose setti á þessari leið í flugi frá Englandi, um 11 klukkustundir og 12 mínútur. Þegar Mr. Rose frétti um af- rek frú Mollison, sagði hann: „Það gleður mig mjög. Hún hefir gert ljómandi vel, og ég dáist að hugrekki hennar". Frú Mollison sjólf virðist sú eina manneskja, sem ekki er únægð með þetta afrek. Hún sér eftir því, að hún skyldi hafa tafist um hálfa klukku- stund í Oran, og ekki geta fengið nógu mikið bensín í Niamey, til þess að geta farið eins langt þaðan eins og hún ætlaði sér. Telur hún sig þá hafa geta hnekkt meti Tommy Rose með ennþá meiri mun. Á allri leiðinni svaf Amy Mollison aðeins sex klukku- stundir.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.