Nýja dagblaðið - 09.07.1936, Síða 1

Nýja dagblaðið - 09.07.1936, Síða 1
Háskólinn verður reistur á næstu árum Guðjón Samúelsson prófessor hefír þegar lokið við uppdrætfi að háskólabyggíngunni og byggíngarnefnd Háskólans lagt á þær samþykki sitt. Jónas Jónsson. Nýja dagblaðið flytur hér myndir af þeim fjórum mönn- um, sem mest hafa hrundið á- fram málinu um háskólabygg- ingu. Jónas Jónsson tók að undir- búa löggjöf um háskólabygg- ingu eftir að íhaldið lét af stjórn 1927. Hann réð því að háskólinn fékk mikið land und- ir margar framtíðarbyggingar, svo að hér getur myndazt há- skólahverfi, Hann flutti frum- ræðu um háskólbygginguna 1930, er hann kom aftur til þings eftir hálsveiki þá, sem forkólfar læknastéttarinnar Irugðu að myndi næg til að ryðja honum úr vegi fyrir fullt og allt. Á þriðja þinginu 1932 fékk hann frv. enn samþ,. þrátt fyrir mótstöðu Jóns Jónssonar í Stóradal og nokkurra íhalds- manna. Guðjón Samúelsson hefir gert uppdráttinn að þessari Guðjón Samúelsson. Sigurður Nordal. glæsilegu byggingu, sem þykir jafn prýðileg, hvort heldur sem litið er á fegurð hússins eða hið innra skipulag. Hugmyndin um að afla fjár til háskóla- byggingar með happdtrætti, kom fram í samtölum milli Alexander Jóhannesson. Guðjóns Samúelssonar og Sig- urðar Nordal, og unnu þeir síðan að því hvor í sínu lagi og með Jónasi Jónssyni, að koma hugmyndinni á framfæri á Al- þingi og í háskólaráðinu. — í háskólanum tók Alexander Jó- hannesson málið að sér og beittist fyrir framgangi þess með miklum dugnaði. Án þessara manna hefði mál- ið sofið ennþá. Það var með öllu óundirbúið og gleymt, er íhaldið lét af stjórn 1927, og eini fulltrúi háskólans á Al- þingi, Magnús Jónsson, var mótfallinn því að happdrættis- málið yrði tekið upp á Alþingi vegna háskólans. Háskólinn var stofnaður á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar. Þau 25 ár, sem liðin eru síðan háskólinn var stofnaður, hafa verið erfið á margan hátt, en Frh. á 8. síÖu. Danska ríkisstjórnin hef- ir svarað mótmælum ísl. ríkisst j órnarinnar gegn fréttaburði Extrablaðsins í fyrradag sendi ríkisstjórnin aanska utanríkisráðuneytinu eftirfarandi mótmælaskeyti: „Blað hér í bænum sendi út fregnmiða með símskeyti um grein í „Ekstrabladet“, sem hefir inni að halda ummæli um fjárhag Islands, sem eru full af algerlega ósönnum staðhæf- ingum og verða að teljast ill- giraislegar og upplognar. | Þar sem svo fjandsamleg ! blaðaskrif geta verið mjög ; skaðleg fyrir ísland, ef þau ná meiri útbreiðslu, mælist stjóra- in til þess við utanríkisráðu- neytið, að það skerist í leikinn og hindrí slík blaðaskrif“. Danska ríkisstjórnin hefir í gær í alið sendiherra Dana hér að flytja íslenzku ríkisstjórninni orðsendingu þess efnis: Að danska ríkisstjórain harmi það mjög, ef grein sú í „Extrabladet“, sem mótmælt hefir verið af Islands hálíu, hafi valdið íslenzku ríkisstjórainni erfiðleikum. Danska stjórain skýrir frá því, að hún hafi í gær tjáð rit- stjóra Extrablaðsins, að henni þyki það mjög miður, að grein þessi hafi verið birt, og það því fremur, sem í greininni sé í mörgum atriðum rangt frá sagt. Umleitanir um lán í Danmörku af íslands hálfu hafi engar átt sér stað og heimsóknir konungs Og Staunings forsætisráðherra á íslandi standi ekki í neinu sambandi við neitt slíkt. Danska ríkisstjórnin lætur þess ennfremur getið, að hún hafi lagt áherzlu á það við rítstjórann, að upplýsingar Extra- blaðsins um viðskiptajöfnuð íslands síðustu mánuðina, séu rangar, því að viðskipti íslands séu nú stöðugt að færast í þá átt að skapa fullan jöfnuð út á við, og að verzlunarjöfnuðurinn sé nú mun hagstæðari en á sarna tíma í fyrra. Loks tekur danska ríkisstjórnin það fram, að greinin í „Extrabladet" hafi ekki haft áhrif á skrif annara danskra blaða. Aðeins eitt þeirra, Dagens Nyheder, hafi gert fyrirspura um það, hvort íslendingar væru að leita fyrír sér um danskt lán, og hafi fjármálaráðherrann svarað fyrirspuminni neitandi. Þannig hefir þá íhaldsrógurinn héðan að heirnan enn á ný verið kveðinn niður — af dönsku ríkisstjórninni. Vill ekki Mbl. gefa út „fregnmiða“ um það? Viðskiptin við útlönd Þau eru 2'/z milj. króna hagstæðari en á sama tíma í fyrra Samkvæmt bráðabirgða- skýrslum Hagstofunnar nam verðmæti innfluttrar vöru í júnímánuði 4 millj. 378 þús. kr. á móti 5 millj. 103 þús. kr. í sama mánuði í fyrra. Heildarverðmæti innflutn- ingsins fyrst-u -6 mánuði yfir- standandi árs, er samkvæmt bráðabirgðaskýrslunum, 19 millj. 707 þús. kr., en var 22 22 millj. 945 þús. kr. á sama tímabili árið 1935. I innflutningnum á þessu ári er meðtalið efni til Sogsvirkj- unar fyrir ca. 180 þús. kr. og til rafveitu á Siglufirði fyrir 54 þús. kr., en á sama tíma í Framh. á 4. síðu. ÍHryggð Valtýs Valtýr Steiánsson ritstjóri Morgunblaðsins heiir á nýaf- stöðnum fundi helztu ráða- manna íhalsins látið í ljós djúpa hryggð yfir því, að hann skuli ekki vera virtur þess að fá að vita um mikilsvarð- andi tillögur, sem bornar séu fram af fulltrúum flokksins. Nefndi hann það til, að sér hefði verið algerlega ókunnugt um það, að Magnús Guð- mundsson hefði i fyrra borið fram tillögu um að fá hingað danska flugvél til sildarleitar og Iandhelgisgœzlu. Að öðrum kosti myndi hann ekki hafa hleypt formanni flokksins í blaðið með árásir á þessa ráð- stöfun.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.