Nýja dagblaðið - 18.07.1936, Síða 4
4
N T 1 A DAGBLAÐIÐ
Eftírsólti
læknírínn
Guilfaileg og hrífandi tal
mynd gerð eftir sjónleik
Theodor Relyes.
Aðalhlutverk:
Mester Morris
Virginia Bruce
og Robert Taylor.
Anaáll
Veðnrspá fyrir Reykjavik og ná-
grenni: Hægviðri. Smáskúrir síð-
ilegis.
Nsturlæknir er í nótt Sveinn
Gunnarsson, Oðinsgötu 1, sími
^263.
Næturvörður er i fíeykjavíkur-
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Dagskrá útvarpsins: Ki. 10,00
\ eðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp.
ió,00 Veðurfregniz'. 19,10 Veður-
fregnir. 19,20 Hljómplötur: Lótt
lög. 19,40 Auglýsingar. 19,45 Frétt
ir. 20,15 Upplestur (Guðni Jóns3ori,
magister). 20,40 Útvarpstríóið: Létt.
itig. 21,05 Útvarpshljómsveitin:
Gömul danslög. 21,15 Upplestur:
Úr endurminningum Indriða Ein-
nrssonar. 21,35 Danslög (til kl. 24).
Léttir til Norðanlands. í gær (kl.
17) var hæg norðanátt norðan-
lands, veðúr gott og yfirleitt þurt.
Skygni var þar ágætt og 8—10
'tiga hiti. Sunnanlands voru smá-
-’kúrír á stöku stað og 10—16 stiga
hiti. ,
Hákon Bjamason skógræktar-
stjóri var meðal farþega með
Dettifossi til útlanda í fyrrakvöld.
Áheit á Strandarkirkju frá Á.
S. 10 kr. .
Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefir
óskað eftir, að athygli væri vakin
a því, að þeir sem greiða eiga ið-
gjöld til samlagsins fyrir aðra,
væru því viðbúnir að tilgreina
nöfn þeirra, heimili, atvinnu eða
stöðu, fæðingardag og ár, til þess
fið þessi atriði þyrftu sem minnst-
urn töfum að valda, er greiðsla ið-
gjalda fer l'ram á skrifstofu sam-
lagsins.
Ölvaður bilstjóri ekur út af veg-
inum við Rauðavatn. Klukkan 3,20
i fyrrinótt var lögreglunni til-
kynnt að bifreiðin RE. 752 væri
inni við Lækjarhvamm og ætti
bílstjórinn, sem væri ölvaður, þar
i einhverjum brösum. — þegar lög-
reglan kom á staðinn var bifreið-
in kyr þar, sem til hennar var
ságt, en enginn maður nærstadd-
ur. Bifreiðin vai- töluvert brengluð
og bensínlaus. þykir fullvíst, að
a leið til bæjarins hafi henni ver-
ið ekið út' af veginum við Rauða-
vatn, og oltið á hliðina, en tekizt
hafi að koma henni réttan kjöl
aftur. þegar bifreiðin hafi oltið,
muni mest af bensínforðanum hafa
iaiið til spillis og bifreiðin þvi
ekki komizt nema að Lækjar-
hvammi. Farþegar munu hafa
verið 4 eða 5 í bifreiðinni, en ekki
ei' vitað, að nema ein kona hafi
þu'rft læknis við vegna sára og
skarst hún á andliti, er bifreiðin
\alt. Bifreiðin er nú í vörslu
lögreglunnar og mál þetta í rann-
Frosíð dilkakjöt
Nýtt grænmetí
▼
Kjötverzlunin
HERÐUBREIÐ
Fríkírkjuveg 7
Sími 4565.
Nýr lax .
Nýtt nautakjðt
og margskonar
nýtt grœnmeti
Kjötbúð
Reykjavíkur
Vesturgötu 16
Sími 4769.
Sænsk hjúkrunarsveit, sem starf-
rði í Abessiníu á meðan á ófriðn-
um stóð, hefir horfið, og hefir ekk-
ert irá henni frétzt síðan í apríl-
lok. þó þóttust ítalskir flugmenn
hafa séð til hennar í Norður-Ab-
essiníu 23. júní, en ekki er sannað
að svo hafi verið. Sænska stjórn-
in hefir nú ákveðið að grípa til
neyðarráðstafana til þess að leita
að hjúkrunarsveitinni, en hefir
neitað að láta uppi í hver.ju þær
vænt fólgnar, að'svo stöddu. FÚ.
Danska blaðið Ugejournalen flyt-
ur viðtal við Caroiine Mathilde
piinsessu um för hennar til Is-
lands. Lætur hún ákaflega vel
yfi'r förinni og dáir mjög- hina ís-
lenzku náttúrufegurð. Viðtalinu
lylgja 14 ljósmyndir, sem prinsess-
an lók af frægum og fögrum stöð-
nm 'á Islandi. — FÚ
Austur í Veiðivötn ráðgerðir
Ferðafélag íslands skemmtiferð
fimmtudaginn 23. þ. m. Undanfar-
in sumur hafa svo margir félags-
menn spurt um ferð þangað, að
félagið vjll verða við almennuin
tilmælum um að ferð verði gerð
út í þennan fræga veiðistað, sem
.iafnfvamt. heíir að bjóða einkenni-
lega og stórfenglega náttúrufegurð.
Fer þeim fjölgandi með hverju ár-
inu, sem leggja leið sína til Veiði-
vatna. — Áætlunin er í semmstu
máli þessi: Lagt upp um miðjan
dag á fimmtudag og ekið með bíl-
um að Landmannahelli og gist þar
uvn nóttina. Daginn eftir verður
farið ríðandi inn yfir Tungná og
að Fiskivötnum. þar er ráðgert að
dvelja föstudag, laugardag, sunnu-
dag og fram á mánudag, en þá
verður haldið í I.andmannahelli
og íariö i bílum til Reykjavíkur á
þviðjudagsmorgun. Fólk þarf að
hafa með sér mat, tjöldog viðlegu-
útbúnað. — Farmiðar seldir í
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar ti) mánudagskvölds kl. 7 20.
júlí.
GLEYMIÐ EKKI
Iað hreínsa I
tennurnar
Sjafnar tannkrem hefir þægilegt
og hressandi bragð, pað hreinsar
tennurnar mjög vel og gerir pær
blæfagrar
Notið ávalt SJAFNAR TANNKREM
Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar hÚðÍP og
skinn, sem falla til á heimilum þeirra ættu þeir að
biðja kaupfélag sitt að koma þesisum vörum í verð. —
Samband ísl. samvinnufélaga seldi naulgripahúðir,
hposshúðíp, kálfskinn, lambskinn og selskinn síðast-
liðið ár til útlanda, fyrir fullar 100 þús. krónur. Nauí-
gpipahúðir, hposshúðip og kálfskinn er bezt að salta,
en gera verður það strax að lokinni slátrun. Pláningu
verður að vanda aem bezt og þvo okreinindi og blóð af
skinnunum, bæði úr holdrosa og hári, áður en saltað er.
Q-óð og hreinleg meðferð, á þessurn vörum sem öðrum,
borgar sig,
Fulltrúaping
barnakennara
Frh. af 1. síðu.
pólitíska flokka eða félög' sé
vítaverð.
Skorar fulltrúaþingið því á
lcennarástétt landsins að vera
\'el á verði og reyna eftir því,
sem í hennar valdi stendur, að
vinna á móti og koma í veg
fyrir þessháttar starfsemi“.
Samband mílli barna-
skóla og æðri skóla.
Um þetta segir í skýrslunni:
Það er mikið áhyggjuefni, að
þrátt fyrir hina sívaxandi að-
sókn að æðri skólum, einkum
menntaskólunum, er sáralítið
gert til þess að velja úr um-
sækjendahópnum þá, sem lík-
legir eru til þess að verða hinir
beztu nemendur. Inntökupróf
þau, sem tíðkuð eru, tryggja
þetta á engan hátt.
Var fulltrúaþingið á einu
máli um það, að heppilegra
væri að leggja til grundvallar
umsagnir kennara um nemend-
ur, að meira að minna leyti, og
ennfremur að við úrvalið sé
beitt hæfileikaprófum.
Framh.
AGTA
prentar fyrir yð- |
ur fljótt og vel T
Sanngjarnt verð *
Afbrot í Reykjavík
Framh. af 1. aí5u.
er vísað til Bamaverndunar-
nefndar vegna æsku sakbom-
inga, þ. e. málum þeirra, sem
yngri eru en 16 ára og upp-
vísir verða að þjófnaði.
732 þjófnaðir tilkynnt-
ir lögreglunni 1935.
Þjófnaðartilkynningar til lög-
reglunnar voru á undanföm-
um árum svo sem hér segir:
1931 alls 483, 1932 667, 1933
710, 1934 751 og 1935 732.
Árið 1935 eru peningaþjófnaðir
nokkru færri en tvö árin þar
á undan eða samtals 80. Fata-
þjófnaðir eru 80 og fleiri en
áður og eins innbrotsþjófnaðir,
sem eru 62 1935.
Reiðhjólaþjófnaðir
fara vaxandi.
Langstærsti liðurinn í þjófn-
aðartilkynningum til lögregl-
unnar öll árin 1931—35 eru
reiðhjólaþjófnaðir og fer þeim
stöðugt fjölgandi nema 1935.
Árið 1931 er stolið 219 reið-
hjólum, 1932 281, 1933 336,
1934 374 og 1935 354.
Rúmlega 500 þjófnað-
artilkynningar frá því
um síðustu áramót.
Það sem af er þessu ári, eða
til dagsins í gær, hafa lögregl-
unni borizt rúmlega 500 þjófn-
aðartilkyningar. Þár af eru um
| NTIA BIO |
Charlíe Chan
í Egyptalandí
Spennandi og æfintýrarík
amerísk leynilögreglutalmynd
£rá FOX-félaginu, er sýnir
hvernig hinn snjalli leynilög-
reglumaður Oharlie Ohan
með kænsku sinni ljóstraði
upp dularfullum viðburðum
er gerðust meðal vísinda-
manna í konungagröfunum í
Egyptalandi.
Aðalhlutverkið Charlie Chan
leikur
Warner Oland
Aðrir leikarar
Pat Paterson
James Eangles o.Sl.
A .u k a ui y n d :
Frá Istambul
til Bagdad.
Eræðimyud frá Tyrklandi.
Börn fá ekki aðgang.
Ms.Dronning
Alexandrine
fer í dag 18. þ. m. kl. 6
r
síðd, til Isafjarðar, Siglu-
fjarðar, Akureyrar — Það-
an sömu leið til baka.
Farþegar sæki farseðla
fyrir hádegi í dag,
Fylgibréf yfir vörur komi
fyrir hádegi í dag.
(xs. Primula
fer til Leith í dag 18. þ.
m, kl. 8 síðd.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. Sfmi 8025.
200 reiðhjólaþjófnaðir og 310
aðrir þjófnaðir. Virðist því að
eigi muni þjófnaðir vera minni
þetta ár en undanfarin nema
síður skyldi.
Viðvíkjandi framanrituðu
ber að geta þess, að eigi eru
svo margir menn dæmdir ár-
lega til fangelsisvistar fyrir
þjófnaði, sem dómar benda til,
því að nokkrir þjófar hafa ver-
ið dómfelldir oftar en einu
sinni sama árið. Ennfremur er
það ljóst, að þjófnaðir eru ái'-
lega fleiri en skýrslur lögregl-
unnar bera með sér, því að vit-
að er, að því fer fjarri að lög-
reglan sé látin vita um alla
þjófnaði, sem framdir eru.