Nýja dagblaðið - 09.08.1936, Side 3

Nýja dagblaðið - 09.08.1936, Side 3
N Ý J A ' DAGBLAÐIÐ 3 NÝJA DAGBLAÐIÐ Útgefandi: Blaðaútgáfan h.f. Ritnefnd: Guðbrandur Magnúaaon, Gísli Gufimundseon, Guöm. Kr. Guðmundason. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: JJórarinn pórarinaaon. Ritstjómarskrifatofur: Hafn. 16. Símar 4S73 og Ö5S. Afgr. og auglýsingaskrifstofa Hafnarstr. 16. Sími 2323. Áskriftargjald kr. 2,00 á mán. p| í lausasölu 10 aura eint. g;, Prentsm. Aeta. Simi 3948. Eínsog hvífurláni á ræníngjaskípí í Mbl. í gær er því hátíðlega lýst yfir, að íhaldsflokkurinn hafi fyrir löngu ákveðið: „Að vinna að því og undirbúa það, að ísland taki að fullu öll sín mál í sínar eigin hendur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina . . Svona hljóða þau, heit í- haldsmanna. „gæði landsins fyrir lands- menn eina.“ En hvernig hefir fram- kvæmdin orðið? Sumir æðstu menn hinnar pólitísku starfsemi íhalds- flokksins hafa fylgt þessu há- tíðlega heiti eftir á þann hátt, að gerast keyptir þjónar er- lendra lögbrotamanna, til þess að þeir — útlendingarnir — gætu hagnýtt sér „gæði lands- ins“, þ. e. fiskimið landhelg- innar, „til afnota fyrir“ þá út- lendingana, en að sama skapi til tjóns fyrir íslenzku þjóðina. Það er ekki einungis að sum- ir fyrverandi formenn í „sjálf- stæðisfélögum“ íhaldsmanna hafi setið á svikráðum við sín eigin gjallandi heit og málstað þjóðarinnar allrar, heldur hafa þessi landráð verið framin um langt skeið og einmitt á þeim stöðum þar sem samborg- urum hins „sjálfstæða“ njósn- ara hlaut að verða til ómetan- legs tjóns eins og líka hefir oft orðið raunin á. Þessi ömurlega og smánar- fulla staðreynd liggur fyrir um það, hve alvarlega sumir hátt settir menn innan íhaldsflokks- ins taka „sjálfstæðis“-heitin og fullyrðingarnar, oghvemig unn- ið er að þeim í framkvæntd Hingað kemur naumast svo erlendur atvinnurekandi til dvalar, að málgagn íhaldsins haldi ekki fram hans málstað, gegn hagsmunum verkamanna í landinu ef til ágreinings hefir komið á milli þessara aðila. Meðan vel séðir íhaldsmenn í tignarstöðum innan flokksins standa vörð fyrir erlenda þjófa og veiðiræningja, meðan hrópar íhaldið sín hátíðlegu loforð út yfir þjóðina: „Gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina“. Hin fögru, fölsku, sjálfstæð- isheit eiga að dylja svívirðing landráðayðjunnar. Það minnir á hvítan friðarfána yfir dulbúnu ræningjaskipi. Skýr sla frá. SjötTerdlAgsBeind Um miðjan ágúst síðastlið- inn var endurskipað í kjötverð- lagsnefnd til eins árs. Þá varð ekki önnur breyting ánefndinni verði slátrað, því þá er hægara að skipta kjötmagninu milli innlenda og erlenda markaðsins og láta skiptinguna verða rétt- láta milli þeii-ra er slátrunar- leyfin fá. Á innlendum markaði var leyft að selja það kjötmagn, sem talið var líklegt að þar mundi seljast. Söluelyfin voru fyrst og fremst miðuð við það, að markaðurinn á hverjum stað yrði notaður af þeim sem þar slátruðu. Því voru innanlands- söluleyfin misjöfn í slátrunar- stöðunum eða frá 100 til 20% af kjötþunga alls sláturfjárins. Þar sem innanlandssala á slátr- unarstað var lítil eða engin voru innanlandssöluleyfin mið- uð við það tvennt, að nægjan- legt kjöt yrði til sölu í landinu til viðbótar við það, sem slátr- að var á þeim stöðum sem markaður er fyrir meira kjöt en þar er slátrað og að innan- landssalan gengi sem jafnast yf ir. Hinsvegar var ekki tekið neitt fram um það í slátrunar- og söluleyfunum í hveniig verkuðu ástandi menn seldu kjötið sem leyft var að selja innanlands, og máttu leyfishaf- ar því sjálfir ráða því. Þeim sem fengu slátrunar- leyfi má skifta í tvo hópa: 40 samvinnufélög, sem eru í SÍS, 9 önnur samvinnufélög og’ 77 káupmenn. Auk þessara slátrun arleyfa fengu ýmsir að láta kunningja sína og venzlamenn fá eina og eina tunnu. Hangi- kjötssala var frjáls manna á milli og verð á því aldrei ákveð- ið af nefndinni. Milli þessara aðila skiptist sláturfé og kjötmagn þannig: Páll Zophóníasson. en að Jón kaupfélagsstjóri I- varsson lét af formannsstarfi, eftir eigin ósk, en í stað hans var Páll ráðunautur Zóphónías- son skipaður formaður, en hann hafði verið varaformaður nefndarinnar frá byrjun og gegnt formannsstörfum í stað Jóns. Eins og skýrsla nefndarinnar Sambandsfélögin slátraðu 224782 fjár, 60,8% 3051568 kg. kjöt 60,9% Önnur samv.fél. slátruðu 77056 fjár, 20,9% 1011471,9 kg. kjöt 20,2% Kaupmenn slátruðu 67620 fjár, 18,3% 889355,5 kg. kjöt 17,7% Ivjöt milli manna 58523,0 lcg. kjöt 1,2% Alls 369458 fjár,100,0% 5010918,4 kg. kjöt 100 % Af slátnrfénu voru 345164 dilkar með 4463271,6 kg. kjöt 12144 geldfé með 275110,2 kg. kjöt. 12150 milkar ær 214012,7 kg. kjöt. Samtals 369458 4952394,5 kg. kjöt. Til enn frekari glöggvunar á því, hverjir seldu kjötið úr landi og hverjir notuðu innanlandsmarkaðinn, skal þetta yfir- frá 7. ágúst 1935 ber með sér, var 1. ág. 1935 talið óselt af lit gefið: Selt innanlands Selt úr landi kjöti í landinu 122 smálestir af Kg. % Kg. % freðkjöti og 95 tunnur af spað- Sambandsfélögin 883428,0 28,9 2168139,5 71,1 höggnu saltkjöti. Við þetta Önnur samv.félög 831771,9 82,3 179700,0 17,7 hefði þó verið rétt að bæta 25 Kaupmenn 620798,5 69,8 268557,0 30,2 smálestum af freðkjöti af Kjöt milli manna 58523,0 100,0 rosknu fé sem Sláturfélag Suð- urlands átti en ætlaði til vinslu og því ekki talið í birgðum þess til nefndarinnar. Raunverulega voru því freðkjötsbirgðimar 1. ág. 1935, 147 smál. Leyft var að byrja slátrun í Reykjavík 12. ágúst (þann dag eru sláturléyfin afgreidd) en út um land var leyft að byrja nokkru fyr, þar sem um kjöt- sölu var að ræða og þar sem ekki var hægt að koma við að selja freðkjöt. Við veitingu sláturleyfa var j þeirri reglu fylgt, að veita þeim slátrunarleyfi, sem áður höfðu haft slátrun, og hafa leyfin það rúm, að þeir sem þau fengu, gætu slátrað svipaðri fjártölu og þeir voru vanir. — Margir höfðu sótt um leyfi til að slátra miklu fleira fé, en nokkrar líkur voru til að þeir hefðu þörf fyrir og miklu meii’a en þeir höfðu slátrað 1933 og J 1934, og var þeim vitanlega ekki ^ veitt það. — Hinsvegar var þeim mönnum, sem fengu fleira sláturfé, en leyfi þeirra hljóðuðu upp á, veitt viðbóta- slátrunarleyfi, en langflestir slátruðu hvergi nærri þeirri sláturfjártölu er þeim var leyft í fyrstu. Samvinnufélögin sóttu flest um slátrunarleyfi fyrir svipaða fjártölu og þau slátr- uðu. Nefndin vill vekja athygli manna á því, að það er mikils virði að fá strax þegar sótt er um slátrunarleyfi sem gleggst- ar upplýsingar um hve mörgu 2394521,9 47,8 2616396,5 52,2 Af kjötinu sem selt var inn- anlands seldu sambandsfélögin 36,82%, önnur samvinnufélög 34,74%, kaupmenn 25,92% og einstaklingar 2,45%. Kjöt það, sem út var selt skiptist þannig að sambandsfélögin seldu 82,87 %, önnur samvinnufélög 6,87% og kaupmenn 10,26%. Af útflutningskjöti annara samvinnufélaga hefir SÍS flutt út 94,4% og því alls flutt og selt úr landi 89,4% af öllu því kjöti sem selt hefir verið úr landi. Af þessu sést það, að samb.- félögin, sem hafa 60,9% af öllu kjötmagninu, selja ekki nema 28,9% á innlendum markaði, en félögin sem ekki eru í SÍS og hafa ekki nema 20,2% af öllu kjötmagninu selja 82,3% af því í landinu. Kaupmenn sem ekki hafa nema 17,7% af öllu kjöt- magninu selja yfir 69% af því innanlands. í þessu sambandi er rétt og sjálfsagt að geta þess, að 32 kaupmenn hafa selt meira af kjöti innanlands en þeim var leyft af nefndinni og alls hafa þeir selt yfir 90 smál. meira innanlands en þeim var leyft. Þetta hefir vitanlega orðið til þess, að rugla allar áætlanir nefndarinnar. Þetta kjöt var á innanlandsmarkaðinum án henn ar vitundar og leyfis og það liefir gert það að verkum að á honum var meira kjöt en þar var hægt að selja. Meginið af þessu kjöti mun hafa verið selt strax í haust er leið og þrýst þá af markaðinum kjöti sem leyfilegt var að selja. Til allrar hamingju fyrir bændur landsins var nokkuð af freð- kjöti er Sláturfélag Suðurlands átti og ætlað var til sölu í Rvík verkað þannig að hægt var að flytja það út og selja á er- lendum markaði. Sláturfélag Suðurlands hefir nú flutt út nær 70 tonnum, sem því var leyft að' selja á innlendum markaði og á þann hátt hefir ! þetta að nokkru leyti bjargast. j Þó eru enn eftir óseldar kjöt- 1 birgðir, sem mundu nú að i mestu eða öllu leyti seldar ef i fyrirmælum nefndarinnar hefði j verið hlýtt. Nefndin hefir ekki tekið á- kvörðun um það, hvernig snú- j ist verður við brotum þessara j manna á fyrirmælum hennar. • En það verður gert áður en slátrunarleyfi verða veitt að nýju. 1. september 1935 voru til 95 spaðsaltaðar kjöttunnur. Nú er allt saltkjöt búið. Þetta stafar ekki af því að meira hafi selst af saltkjöti í landinu í ár en áður heldur af því að minna vat spaðsaltað. Af freðkjöti var nú 1. ágúst óselt mikið minna en í fyrra, eða 78,3 tonn á móti 147 í i fyrra. Frh. á 4. s. Dönsku Landsþíng-s- kosningarn- ar í hausl EINKASKEYTI TIL NÝJA DAGBLAÐSINS. Khöfn í júlí Um miðjan september n. k. fara fram í Danmörku kosning- ar til Landsþingsins. Væri hægt að dæma eftir síðustu kosningum til þjóð- þingsins í fyrra, virtust úrslit- in augljós, sem sé þau, að jafn- aðarmenn og frjálslyndi vinstri fiokkurinn næðu meirihluta. — En í kosningunum í fyrra unnu þessir flokkar mikið á og hafa nú í þjóðþinginu 82 full- trúa, gegn 66, er aðrir flokkar hafa samtals, auk þingm. Fær- eyinga. í landsþinginu eru hlutföllin þannig, að stjórnarflokkarnir eiga þar 34 fulltrúa á móti 41, er andstæðingarnir hafa auk eins þingm. úr Færeyjum. Kosningar til Landsþingsins fara fram fjórða hvert ár og eru þannig, að kosið er í helm- ing landsins hvert sinn. Við síðustu kosningar til Lands- þingsins 1932 hlutu stjórnar- flokkarnir rúm 500 þús. atkv., en andstæðingamir, þ. e. íhalds- menn og vinstrimenn, rúmlega 490 þús. En ástæðan til þess, að stjórnin er samt í minnihluta í Landsþinginu, er sú, að í stjórn- arskrá Dana er svo ákveðið, að viss tala þingmanna skuli valin í hverju kjördæmi. T. d. eru kosnir 10 þingnlenn í Kaupm.- höfn (aðalborginni) og 12 í öðrum hlutum Sjálands og eyj- anna, og svo loks 24 á Jót- landi. Þetta fyrirkomulag hefir reynst íhaldssinnuðu flokkun- um hagkvæmt og þessvegna halda þeir enn meirihluta í Landsþinginu, þrátt fyrir minna atkvæðamagn. Og ástæðurnar eru fyrst og fremst þessar; í fyrsta lagi að í þeim landshlutum sem næstu kosningar fara fram í eiga stjórnarandstæðingar — eink- um vinstrimenn — sterkt fylgi. í öðru lagi er aldurstakmark til Landsþingskjörs 35 ár í stað- inn fyrir 25 ár til þjóðþingsins. Og eldra fólkið er altaf íhalds- samara eins og kunnugt er. í þriðja lagi velur síðasta Landsþing einn fjórða hluta þingm. er þar taka sæti næsta kjörtímabil. Getur það íhalds- sinnaða þing því endurnýjað sjálft sig að nokkru leyti. Meira kemur og hér til, sem veldur því, að hinir smærri flokkar fá meiri álirif til kosn- inga, en þeim ber eftir hreinu atkvæðamagni. Og að síðustu má g’eta þess, og það getur haft áhrif á Lands þingskosningarnar, að bæði jafnaðarmenn og radikalir ganga til kosninganna með þá ætlun í framtíðinni að afnema Landsþingið. Frh. á 4. s.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.