Nýja dagblaðið - 14.08.1936, Blaðsíða 4
4
N Ý J A
D AGBLAÐI Ð
— GamlaBíóHBSOHB
Þér æffuð
að giftast
Afar skemmtilegur gaman-
leikur í 12 þáttum.
Aðalhlutverk leika;
Illone Wieselmann
°g
Henrik Bentzon.
Ajtwáúl
Veðurspá íyrir Reykjavík og ná-
grenni: Stinnings norðvestan- eða
norðan kaldi. Skúrir, en bjart á
ínilli.
Næturlæknir er í nótt Kristinn
Björnsson, Stýrimannastíg 7, sírni
4604.
Næturvörður er í Reykjavíkur
apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Útvarpað í dag: kl. 10,00 Veður-
fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir.
(9,20 Hljómplötur: Lög eftir Rich.
Strauss. 20,00 Erindi: Sigurður
slembidjákn og Sverrir prestur
(Björn Sigfússon magister). 20,25
Auglýsingar. 20,30 Fréttir. 21.00
Hljómplötur: a) Lög við íslenzka
texta; b) Lög, leikin á píanó.
Aflasölur. Gyllir seldi 113 tonn
al' ísfiski í Cuxhaven í fyrradag
fyrir 19109 ríkismörk. — í gær
seldu ísfisk í Wesermúnde: Haf-
steinn 92 tonn fyrir 16700 ríkis-
mörk og ^Baldur 87 tonn fyrir
12700 rikismörk. Bragi seldi í gær
i Grimsby 1249 vættir fyrri 1004
sterlingspund.
Nýstárleg sýning. Sýning á ís-
lenzkum og norskum skipulags-
uppdráttum verður opnuð í Mið-
bæjarskólanum. Sýning þessi er
all-umfangsmikil og er í þremur
skólastofum. Aðgangur er ókeypis.
Hötnin. Dronning Alexandrine
kom frá útlöndum síðdegis í gær.
Dettifoss og Lyra fóru á leið til
útlanda síðdegis í gær. — Flutn-
ingaskipið Katla kom í gær-
kvöldi.
Hr. Gjerlöff hagfræðingur hélt
fyrsta fyrirlestur sinn um skipu-
lag bæja í Kaupþingssalnum í
gærkvöldi við húsfylli. Nokkurra
atriða úr fyrirlestrinum verður
getið hér i blaðinu á morgun.
Knattspyrnufélagið Fram sendi
ílokk manna til Vestmannaeyja í
gærkvöldi, til að keppa við knatt-
spyrnumenn þar á þjóðhátíð Vest-
rnannaeyinga, sem hefst í dag.
Brakandi þerrir norðanlands í
gær. i gær var stinnings kaldi á
suðvestan, skúrir og 8 stiga hiti
á Suðvesturlandi. Á Vestfjörðum
var allhvöss austanátt og rigning.
En á Norðaustur- og Austurlandi
var hæg sunnanátt, bjartviðri og
12—15 stiga hiti. Var heyþerrir þar
því ágætur í gær.
Gefjun lækkar verð á lopum. —
Klæðaverksmiðjan Gefjun á Ak-
ureyri hefir löngum undanfarið
selt mikið af lopum og er það
mjög handhægt húsmæðrum, sem
vilja og geta sjálfar unnið úr ís-
lenzkri ull. Slíkur heimilisiðnað-
ur er þó næsta fágætur nú hjá
því sem áður var og er það illa
íarið. þó má vænta þess að með
vaxandi áhuga landsmanna fyrir
ínnlendri framleiðslu kunni tó-
vinna aftur að færast í vöxt. Er
því vel farið, að Gefjun hefir
iækkað verð á lopum til þess að
hvetja fólk til að notfæra tóm-
stundir sínar við tóvinnu.
Kvikmyndahúsin. Nýja Bíó sýnir
nú hinn alkunna skopleik Frænka
9 menn farast
í bílslysi
í Tékkóslóvakiu
London í gær. FÚ.
I dag fór fólksbifreið með
16 manns út af veginum í
fjallahéraði í Tékkóslóvakíu, og
valt hún niður í djúpt gil. Níu
manns biðu bana. Orsökin til
slyssins er talin sú, að hemlur
bifreiðarinnar hafi verið í ó-
lagi.
Skógrækfarrnál
Eyfirðinga
Skógræktarfélag Eyfirðinga
hefir fengið heimild fyrir rúm-
lega 200 hektara landi á Sval-
barðsströnd til skóggræðslu og
girt það í sumar með 3 kíló-
metra langri girðingu. Landið
er nánast rétthymingur að
lögun og liggur gegnt Akur-
eyri með sjó fram, í löndum
Varðgjáa beggja, Veigastaða
og Halllands. Girðingunni er
nú að mestu lokið, er hún úr
vírneti með gaddavír að ofan
cg neðan og steyptum stöplum
í horaum og hliðum.
Tíðindamaður útvarpsins á
Akureyri fór í gær ásamt
stjórn félagsins að skoða land-
ið og girðinguna. Lega lands-
ins er ágæt og þar virðast
vera góð skilyrði til skógrækt-
ar, enda finnast í því viltar
smá-birkiplöntur á stöku stað.
Ráðgert er að byrja í haust
að undirbúa landið og ef til vill
að sá í einhvern hluta þess.
Að lokinni skoðun bauð for-
maður félagsins, Jón Rögn-
valdsson, gestunum heim að
Fífilgerði og veitti þeim góðan
beina. Sama félag hefir einn-
ig í sumar byrjað að girða
skóglendið í Leiningshólum. Fé-
lagið var stofnað 11. maí 1930
og hét þá Skógræktarfélag ís-
lands. Girti það sama ár um 2
dagsláttur lands við Garðsár-
gil, og gerði þar tilraunir til
sjálfsáningar á skógi. Ári síð-
ar girti félagið 5 ha. land til
skógræktar í skóglandi á Þela-
mörk.
Félagsmenn eru 52, þar af
22 æfifélagar. Stjórn félagsins
skipa: Jón Rögnvaldsson garð-
yrkjumaður, formaður, Jónas
Þór verksmiðjustjóri og Berg-
steinn Kolbeinsson bóndi Leifs-
stöðum. — FÚ.
Charleys. Myndin er þýzk og
leikur Paul Kemp aðalhlutverkið,
frænkuna. — þér ættuð að gift-
ast, nefnist dönsk gleðimynd, sem
nú cr sýnd í Gamla Bíó og nýtur
mikilla vinsælda. — Báðar þess-
ar myndir eru sýndar við mikla
aðsókn.
V öruf lutning abiireiðin HF. 27
valt á hliðina í Kömbum við
neðsta vetrarafleggjara frá aðal-
veginum, í gær síðdegis. Tals-
verður halli er þar og mun hann
hafa orsakað slysið. Á bifreiðinni
voru 18 hestar af heyi og sátu 2
rnenn ofan á ækinu, en þar eð bif-
j-eiðin var alveg stöðvuð, gátu
þeir rent sér aftur af henni, áður
en liún fór um. Stýrishús bifreið-
arinnar brotnaði nokkuð, en bif-
reiðarstjórann sakaði ekki. — FU.
6O°|0 lygi
Framh. af 1. síðu.
og tollar til ríkissjóðs sam-
tals 12,2 millj. kr.
Og árið 1936 eru allir skatt-
ar og tollar til ríkissjóðs áætl-
aðir í fjárlögum samtals 12,1
millj. kr.
Morgunblaðið lýgur um
meira en 60 % !
45 Umsókmr
Framh. af 1. síðu.
Benedikt Jakobsson, Lauf-
ásveg 46.
Gísli Hjálmarsson, Laug. 49.
Helgi Tryggvason, Hring-
braut 150.
Guðm. Fr. Einarsson, Baugs-
vegi 3 A.
Jóhannes Kr. Jóhannesson,
Ásvallag. 75.
Sigurgeir Jóhannsson, Bar-
cnsstíg 27.
Gestur Hannesson, Þverv. 10.
Sæmundur Ólafsson, bifreið-
arstjóri.
Einar Einarsson, Nýl. 18.
Sigurður Guðmunds., Norð-
urstíg 4.
Hallus Þorleifsson, Baróns-
stíg 65.
Pétur Breiðfjörð, Hörp. 13.
Þórður Flygenring, Hafnar-
firði.
Jón Árnason, Vest. 54.
Stefán Stefánsson, Þingh.
28.
Ellert Magnússon, Freyj. 42.
Filippus Ámundason, Braut-
arholti, Reykjavík.
Friedrich Fahning, Vegamót-
um, Kaplaskjóli.
Ásgeir Ólafsson, Von. 12.
Jochum M. Eggertsson.
Einar Skúlason, Amt. 2.
Sigurður Jónsson, rafvirkja-
meistari.
Hannes M. Þórðarson, Berg-
þórug. 23.
Ingvar Þórðarson, Vit. 11.
Erlingur Pálsson, Bjargi,
Sundlaugav.
Loftur Bjarnason, Lauf. 55.
Marteinn Steindórsson, öldu-
götu 55.
Guðm. H. Þorláksson, Hverf-
isgötu 112.
Þorsteinn Jónsson, áður
bankaritari.
Frá Spáni
Framh. af 1. síðu.
vélar, með þýzkum flugmönn-
um, séu komnar til Sevilla.
Segist hann hafa séð þær með
eigin augum, og hafa talað við
flugmennina, og ennfremur
hafi þýzki konsúllinn í Sevilla
sagt sér, að Þjóðverjarnir ættu
að veita Spánverjum tilsögn í
flugi.
Útbreiðsluráðherra Þýzka-
lands, dr. Göbbels, segir í
þessu sambandi, að sér sé al-
gerlega ókunnugt um að nokkr-
ar þýzkar flugvélar hafi verið
sendar til Spánar og að orð
þau, sem höfð sé eftir konsúl
Þjóðverja í Seville, geti hann
alls ekki hafa mælt, heldur
hljóti þau að vera uppspuni
fréttamannsins.
Sami fréttamaður segir einn-
i ig frá því, að allmargar ítalsk-
ar flugvélar séu í Sevilla, Og
' flóttamenn, sem komið hafa til
Gibraltar frá Sevilla, segja
i frá því, að þar séu bæði þýzkar
! og ítalskar flugvélar og er-
I lendir flugmenn.
| O’Duffy, foringi írskra þjóð-
. ernissinna, hefir haft við orð,
I að safna írsku liði til aðstoðar
j uppreisnarmönnum á Spáni. O’
! Duffy er lagður af stað frá Ir-
landi til meginlandsins.
í fréttum frá frönsku landa-
mærunum er sagt, að skot-
! drunurnar frá fallbyssum upp-
; reisnarmanna, sem sækja fram
1 til San Sebastian, færist æ
1 nær, og er álitið, að þeir muni
j nú vera að nálgast San Se-
bastian. Landamærunum hefir
verið lokað, og umferð um
veginn, sem liggur frá Spáni
um Irun, hefir engin verið, síð-
asta sólarhringinn. Það er álit-
ið, að uppreisnarmenn hafi
notað sér það hlé, sem varð í
bardaganum á þessum slóðum í
gær, til þess að afla sér liðs-
auka og meiri hergagna frá
Pampalona.
Ólafur Jóhannsson, Freyj. 6.
Ólafur Kr. Þorvarðsson,
Brávallagötu 26.
Ámi Gíslason frá Miðdal.
Guðjón Jónsson, Óð. 10.
Ól. Marinó Jónsson, öldug.57.
Gísli ólafsson, Bræðr. 16.
Nýja Bíó
Fr æ n k a
Charleys
Þýzk skemmtimynd samkv.
hinu heimsfræga leikriti með
sama nafni
Aðalhlutverkin leika:
Paul Kemp
Ida Wíist
Max Giilsdorl
Vílma Bechendorf
í SÍÐASTA SINN.
Faateignastofan Hafnantr.
15. Annast kaup og tölu ía*t-
eigna í Reykjavík og úti um
land. Víðtalstími kl. 11—12 og
B—7 og á öðrum tíma eftir
samkomulagi. Simi 8827. Jónas.
Austur í Grímsnes í Bisk-
upstungum og Laugardal. Bif-
reiðarstöðin Bifröst, sími 1508.
prentar fyrir yð- |
ur fijótt og vel f
Sanngjarnt verð ■
KnntmBBmHmBamn
Fasteignaaala Helgm Sveina-
sonar er í Aðalstrcti 8. Inng.
frá Bröttugötu. Slmi 4180.
V mmimíðlunar-
skrifetolan
(í Alþýðuhúsinu) sími 1327, heíir
ágætar vistir fyrir stúlkur í lengri
og skemmri tíma.
E&upTö
F átækralvamlærid
Framh. af 3. síðu.
arskjalið, með undirrituðum 26
eiginhandarnöfnum manna,
sem hugðust að segja sig til
sveitar með þessum hætti. Er
fátækraframfærið orðið svo gíf-
urlegt í Reykjavík, að annað
aðalblað bæjarstjórnarmeiri-
hlutans hefir tekið undir kröf-
una um að hér eftir yrði fá-
tækraframfærið fyrri opnum
tjöldum.
Til þess að auðvelda fram-
kvæmd þessa nýmælis, mætti
haga því svo, að bæjarstjórn-
in samþykkti nú á næstunni, að
frá tilteknum tíma, t. d. 1.
nóvember eða 1. janúar n. k.,
yrði samin ýtarleg skýrsla um
þurfalingana og ástæður þeirra,
sem yrði birt, annaðhvort
prentuð eða lögð fram al-
menningi til athugunar. Það
er engin ávirðing að þurfa á
fátækrahjálp að halda, en hitt
er óþolandi, að menn setjist á
opinbert framfæri að nauða-
lausu.