Nýja dagblaðið - 18.09.1936, Page 1
4. ár.
Reykjavík, föstudaginn 1S. sept. 1936.
214. blað.
Slysið vekur djúpa hryggd meðal margra erlendra
Þjóða. - Dr. Jean Charcot talín einhver göiugasti
heimskauiakönnuður, sem uppi hefir verið
í
Tuttugu og tvö lík lundín og verða
þau flutt híngað í dag
Tuttugu og tvö lík voru í gærkveldi fundin í fjörununi
fyrir Álftaness- og Straumfjarðarlandi. Þar af eru 18 lík
skipverja og 4 lík vísindamanna, m. a. lík dr. Charcots, eins
og áður hefir verið frá skýrt.
Eru líkin flest ósködduð, enda voru í fyriadag 20—30
menn viðbúnir í fjörunum til að bjarga þeim og sum voru
tekin á floti.
Unv birtingu í gærmorgun var gengið um fjörurnar og
fannst þá eitt lík.
Líkin voru fyrst flutt að Straumfirði, en vélbáturinn
Ægir frá Akranesi flytur þau hingað árdegis í dag. Verða
þau síðan flutt með viðhöfn á Landakotsspítalann og látin
standa þar uppi þar til ákveðið verður um greftrun þeirra.
Mikið af lausu braki úr skipinu hefir rekið á fjörumar
við Straumf jörð.
Aiíír bátar, sem lentu í fár-
viðrinu eru komnir fram
nema einn, en ekki talið 6-
sennilegt að hann liggi við
Grímsey
Nýja dagblaðið átti tal við
Straumfjörð í gærkveldi og
fékk þar frásögn stýrimanns-
ins á Pourquoi pas? um þetta
hörmulega sjóslys og hrakn-
inga hans sjálfs. Hann var sem
kunnugt er eini maðurinn, er
komst lífs af.
Þegar skipið var komið fyrir
Skaga um kl. 6 á þriðjudags-
kvöldið, var gefin skipun um að
snúa við vegna óveðurs og mun
Hálftíma seinna tók skipið
aftur niðri á öðru skeri
(Hnokka). Sennilega hefir þá
brotnað stefni skipsins. Voru
'ojörgunarbátar settir út og
mönnum, sem kvaddir höfðu
verið á þilfar og fengið höfðu
björgunarbelti, sagt að bjarga
sér eins og bezt þeir gætu. En
vegna þess hve sjógangur var
mikill, brotnuðu bátamir við
skipshliðina.
Stýrimaðurinn reyndi eftir
megni að halda sér í stigann.
Mun hann hafa verið meðvit-
undarlaus mestan tímann með-
an hann hraktist þannig, senni-
lega á þriðju klukkustund.
Stýrimanninn bar þar að
landi, er nefnist Helluver,
skammt frá bænum Straum-
firði. Er fjaran þar stórgrýtt
mjög, og aftaka brim. Er því
hafa verið ætlunin að halda til
Reykjavíkur.
Um kl. 4 um nóttina fór
stýrimaðurinn frá störfum og
lagðist til svefns og vissi eigi
fyrri til en að um kl. 5 um
rnorguninn var skiþið komið í
skerjaklasann. Tók það litlu
síðar niðri, sjór reið yfir það
og í ljós kom, að skipsvélin var
biluð.
Það vissi stýrimaður síðast,
að dr. Charcot og skipstjórinn
stóðu á stjórnpalli og höfðu þá
staðið þar vörð frá því er skip-
ið sneri við eða um dægur.
Stýrimaðurinn kastaði sér í
flatbytnu ásamt tveim félögum
sínum, en báturinn eyðilagðist
strax. Náði hann þá í „land-
ganginn“, bjargaði öðrum fé-
laga sínum á hann með sér, en
hann fór í sjóinn áður en langt
um leið.
engin von að skipbrotsmaður-
inn hefði bjargast hjálparlaust.
En svo vel vildi til, að nær-
staddur var 18 ára piltur,
Kristján Þórólfsson í Straum-
firði, og tókst honu'm að bjarga
hinum sjóhrakta manni. Hélt
hann þá svo fast um „landgang-
inn“, að beita varð afli til að
losa hann.
Eftir þetta var farið með
stýrimanninn, sem var að þfot-
um kominn, heim að Straum-
firði og honum hjúkrað sem
bezt. Náði hann sér furðu fljótt
eftir hrakningana og tekur
kringumstæðum sínum, og hin-
um hörmulega atburði, með
karlmennsku.
Frakkneski konsúllinn hér
kom að Straumfirði í gær og
ræddi við skipbrotsmanninn.
Héldu þeir áleiðis hingað í gær
og eru væntanlegir í dag.
Ingólíur Gíslason læknir í
Borgarnesi, sem athugaði hin
sjóreknu lík, skýrir frá því, að
líkin hafi öll verið flutt í gras-
brekku hjá Straumfirði og er
tjaldað yfir þau.
Enn hafi eigi fundizt 17 lík.
Ennfremur segir IngólCur að
fjörumar hjá ÁHtanesi, hafi
allar verið þaktar rekaldi, er
hann kom þangað. Mun þá
skipið þegar hafa verið allmjög
brotið.
Frakkar senda her-
skip eflir líkum hinna
drukknuðu
Þar sem til hefir frétzt í ná-
lægum löndum, hefir strand
Pourquoi pas? og hið mikla
manntjón, er þar varð, vakið
djúpa samhygð og sorg. Minn-
ast stórblöðin í ítarlegum
greinum þeirra mörgu vísinda-
leiðangra og rannsóknarstarfa,-
er skipið, undir ágætri forystu
dr. Charcots, hafði farið norð-
ur í höf.
Fer sorfarathöfn fram í
Kaupmannahöfn í tilefni af
slysinu og hefir sendiherra
Frakka borizt f jöldi samúðar-
skeyta.
Stauning forsætisráðherra
hefir látið svo um mælt, að
Danmörk muni ávalt varðveita
minninguna um hið mikla starf
dr. Charcot. Þeir Ejnar Mikkel-
sen skipstjóri, dr. Niels Niel-
sen, Amdrup varasjóliðsforingi
og fjöldi annara vísindamanna
og landkönnuða, harma mjög
þann mikla missi, sem vísindin
liafa hér orðið fyrir.
Forseti enska landfræðifé-
Fraxnh. á 4. síðu.
Frá fréttaritara blaðsins
á Siglufirði.
Fimm báta vantaði frá ver-
stöðvunum á Norðurlandi í
gær, en þeir voru allir komnir
fram í gærkveldi, nema Þor-
kell máni, sem verið getur
að sé í Grímsey.
Um hádegi í gær vantaði
eftirtalda báta fyrir Norður-
landi: Þorkel mána frá Ólafs-
firði, önnu og Val frá Akur-
eyri, Höskuld frá Siglufirði og
Kristbjörgu frá Vestmanna-
eyjum.
Þrír menn drukknuðu af
skipum fyrir Norðurlandi í
fyrradag.
Tók tvo menn út af vélbátn-
um Gróttu frá Vestmannaeyj-
um í fyrrinótt. Var báturinn þá
úti íyrir Siglufirði og sjór mik-
511. Náðist annar maðurinn tölu-
vert meiddur, en hinn drukkn-
aði. Hét hann Sveinn Bjöms-
son, maður innan við tvítugt
og ókvæntur.
í fyrradag var togarinn
Garðar með tvo báta, Einar og
Brúna ,við Siglunes.
Kom Dronning Alexandrine
Arás á Madrid
i undirbúningi
Upprelsnarmenn
telja sig hafa
, unnið á víða um
Spán
Oslo kl. 17,20 17./9. FÚ.
Útlendur blaðamaður í Mad-
rid skýrir frá því, að árás á
borgina muni nú standa fyrir
dyrum. Segir hann, að stjómin
hafi mikinn viðbúnað til þess
að mæta árásinrd, og hafi m. a.
flutt til sín mikið herlið frá
öðrum vígstöðvum. Þá segir
sami maður, að það hafi
heyrzt, að stjómin hefði í
hyggju að flytja til Valencia,
en að Þjóðvamarliðið megi
ekki heyra það nefnt, og kveðst
treysta sér til þess að verja
borgina, ef til kemur.
Valur og Höskuldur komu til
Siglufjarðar síðdegis í gær.
Togarinn Garðar varð var við
Önnu alllangt frá Siglufirði og
var báturinn þá að fara í land.
Kristbjörg hafði legið undir
Ólafsvíkurenni í fyrrinótt.
Þá hafa borizt óljósar fregn-
ir um að bátur hafi komið til
Grímseyjar og geti þar verið
um að ræða Þorkel mána.
Snorri goði, sem var á leið
hingað frá Grænlandi, var
væntanlegur í nótt og er
ástæðulaust að óttast um hann.
þar að og, mun hafa ætlað að
aðstoða bátana, en stefni skips-
ins lenti á Brúna, gekk inn í
hann og sökk báturinn nær
samstundis.
Bátsverjar voru sjö og tókst
að bjarga þeim öllum nema
tveimur.
Drukknuðu þar Edvard Sol-
næs frá Akureyri, kvæntur og
átti uppkomin böm og Júlíus
Sigurðsson, ókvæntur.
Fréttaritari blaðsins á Siglu-
firði sagði í gærkveldi, að sjó-
próf stæðu yfir út af slysi
þessu.
Kona hvevfuv
Eskifirði 17./9. FÚ.
Aðfaranótt síðastliðins mið-
vikudags hvarf stúlka frá
Grund í Eskifirði, heimiii Jóns
Erlendssonar bílstjóra. Kvöldið
áður var stúlkan að búa sig
undir væntanlega ferð til
Reykjavíkur innan fárra dag. Á
miðvikudagsmorgun kom í ljós
að hún var horfin. Sást að hún
hafði farið út um glugga, því
að húsið var lokað. Hennar
hefir verið leitað en árangurs-
laust. Stúlkan heitir Halldóra
Bjarnadóttir og er á fertugs-
aldri.
London kl. 17 17./9. FÚ.
í flestum þeim viðureignum,
sem hafa átt sér stað á Spáni í
dag, telja uppreisnarmenn sér
sigurinn. Þeir segjast hafa tek-
ið Ronda, á leiðinni til Malaga,
Framh. á 4. síðu.
Björgunarbáfarnir brofnuðu eða þeim
hvolfdi í hafrófinu
Sfýrimaðurinn velkfisf í brimgarðin
um klukkusfundum saman
l»rír mexm drukkna
xrið Norðurland