Nýja dagblaðið - 12.12.1936, Page 1

Nýja dagblaðið - 12.12.1936, Page 1
Ber er hver að baki * * er ein af beztu bókum haustsins Fœst í bókabúðum! rwji a ID/^GrlBIL^IÐIHÐ 4. ár. Reykjavík, laugardaginn 12. des. 1936. 287. blað Jáivarður VIII. er ekki lengur konungur Tíllaga um að gera Bretland að lýð- veldí Selld með 401 gegn 5 atkvæðum LONDON: Klukkan 1,52 síðdegis í gær eftir brezkum tíma lauk kon- ungdómi Játvarðar konungs VIII. með því að hann undirritaði Iög, er kváðu á um afsögn hans og svifta alla niðja hans rétti til konungdóms í Englandi. Ennfremur mæla þessi lög svo fyrir, að Játvarður og allir hans niðjar séu undanþegnir ákvæðum hinnar konunglegu hjónabandslöggjafar frá 1772, — þ. e. a. s. að hvorki hann né niðjar hans þurfi samþykki ríkjandi konungs til fyrirhugaðs ráðahags. Mrs. Simpson. 1 fyrrakvöld hafði þetta frum- varp verið samþykkt við fyrstu umræðu. í gærmorgun var það sam- þykkt viö 2. og 3. umræðu á rúm- um tveimur timum og skömmu síðar undirritað af konungi. Attlee hafði lýst yflr því, er frumvarpið var lagt fram, a3 verjcamannaflokkurinn myndi stýðja það, með því að hann teldi sig á þann hátt bezt geta orðið við þeirri ósk konungs, að mál þetta fengi sem skjótasta af- greiðslu, og mcð því að flokkur- inn viðurkenndi að vilji fjöldans œtti að ráða 1 lýðræðislandi. En Attlee sagðist jafnframt vilja leiða athygli að því, hversu lærdóms- ríkur sá atburöur væri, sem nú lvefði gerzt. Hiii mikla viðhöfn, auðlegð og hlunnindi, sem tengd væru brezku krúnunní og hinni konunglegu fjölskyldu hefðu skap- að henni óeðlilegan sess í meðvit- und hinnar .brezku þjóðar. Maxton, þingmaður úr flokki verkamanna, lýsti því yfir, að liann teldi þetta hentugt tækifæri til þess að leggja niður konungs- stjórn og stofna brezkt lýðveldi og lagði hann fram tillögu þaraðlút- andi. Tillögu þessa studdi Camp- bcll Stephen, en Sir John Simon svaraði ræðum þeirra f. h. stjórn- arílokkanna. Hélt hann því fram, að atburðir undanfarinna daga væru ljósasti vottur þess, hversu föstum fótum krúnan stæði í hug- um þeirra þjóða, er skipuðu brezka heimsveldið. Hann hélt því einnig fram, að reynslan hefði sýnt að lýðvcldi stæðu engu fast- ari fótum en konungdæmi, ef á móti blési. Tillaga Maxton var felld meö 403 atkvæðum gegn 5. Dómsmálaráðherra lýsti yfir því, að allar tekjur konungsins myndu ganga til hins nýja konungs. All- ar nafnbætur núverandi konungs (þ. e. Játvarðar) myndu einnig ganga til hins nýja konungs. þá var hann spurður hver myndi framvegis verða tign hins fráfarandi konungs og var því svarað á þann hátt, að hinn nýi konungur yrði að ákveða það. Ennfremur var því lýst yfir, að engin fyrirmæli væru til um það, að konungur, sem af frjálsum vilja leggur niður völd, yfirgefi land sitt. í umræðunum tóku þátt auk þeirra, sem áður ;er getið, Sir Austin Chamberlain og Gallagher. Chamberlain sagði, að fátækling- amir í kjördæmi sínu litu til kon- ungsins, sem vemdara síns og vinar. Gallagher kallaði þetta „húmbug", nema því aðeins, að telja ætti konunginn vemdara fá- tæktar og volæðis. Buchanan, þingmaður óháða írjálslynda flokksins lýsti því yfir, að jafnvel þótt þingmenn flokks- ins ekki settu sig upp á móti frumvarpinu áskyldu þeir sér rétt- indi til þess að gagnrýna frekari ráðstafanir, sem kynnu að verða gerðar í sambandi við þetta mál. í lávarðadeildinni var frumvarp- ið afgreitt á 5 minútum, en alls tók afgreiðsla þess í báðum deild- um 2 klst., 47 mínútur. Játvarður dvaldi í gær á Fort Belvedere. þar heimsótti Churchill hann í gær, meðal ýmsra annara, og dvaldi hann þar í 3 klukku- stundir í allan gærdag var mikill mann- fjöldi utan við bústað hins nýja konungs í Piccadilly. Hann hefir tekið á móti fjölda heimsókna, m. a. fór Baldwin forsætisráðherra á fund hans og hyllti mannfjöldinn forsætisráðherrann, er hann ók upp að bústað hins nýja konungs. Greifafrúin af Stratlimore, móðir hinnar nýju drottningar, var með- al þeirra, sem heimsóttu konungs- hjónin í gær. Valdataka hins nýja konungs verður tilkynnt kl. 3 í dag, frá St. James höllinni, og við Charing Cross Temple Bar og við Kaup- höllina, samkvæmt venju. Valdataka konungs verður (til- kynnt í Nýja Sjálandi á mánu- daginn 14. des., en það er afmæl- isdagur hans, og verður það al- mennur frídagur þar í landi. í Englandi verður ekki haldið upp á afmæli hins nýja konungs eins og venja er til, að þessu sinni. Heimsblöðin voru venju fremur samhljóða í gær, um atburði þá, er gerzt hafa í Englandi. þau lýsa almennt yfir fenginleik yfir þvi liverja lausn mál þetta hefir feng- ið, votta hinum fráfarandi konungi samúð sína, óska hinum nýja Konungi til hamingju, og dást að Baldvin fyrir framkomu hans í Kl. 9 í gærkveldi flutti hinn frá- farandi konungur ávarp til fyr- verandi þegna sinna í brezka út- varpið. Hann talaði í rúmar 5 minútur. Rödd hans var þreytu- leg, og bar vott um nokkra geðs- hræringu. Útvarpið kynnti hann hlustendum sem „Játvarð prins“. Honum fórust orð á þessa leið: RÆÐAN: Loksins er komið að því, að ég megi mœla nokkur orð frá sjálf- um mér. Ég hefi ekkert viljað dylja, en þar til nú hefir mér ekkl verið frjálst að tala. Fyrir nokkr- um klukkustundnm leystl ég af hendi siðustu skyldu mína sem konungur og keisari. Nú hefir bróðir minn, hertoginn af York, tekið við af mér, og mín fyrstu orð hljóta að verða yflrlýslng um hollustu mina við hann. pá yfir- lýsingu geri ég af hellum hug. Yður er öllum kunnugt um á- stæðuna fyrir þvi, að ég hefi af- salað mér konungdómi. Ég vil, að yður sé öllum ljóst, að þann tima, som ég hefi verið að ákveða mig, hefi ég aldrei gleymt landinu eða rikjunum, sem ég hefi i 25 ár xeynt að þjóna, fyrst sem prins af Wales og siðustu mánuði sem konnngur. Ég bið yður að trúa þessu máli. New York Times seg- ’ ir, að málið hafi reynt á sam- heldni hins brezka heimsveldis, og hafi það staðizt raunina. Hinn nýi konungur hlýtur nafn- bótina Georg VI. írland fær nýja sffórnarskrá LONDON: De V7alera stjórnarforseti írlands, lagði l’ram á þingi írska Frírík- isins í gær frumvarp að hinni nýju stjórnarskrá Fríríkisins. I frumvarpinu er falin viðurkenn- ing á konungdómi hertogans af York. Embætti ríkisstjórans or lagt niður og tekur forseti þings- ins við skyldum hans. Skyldur konungs eru mjög takmarkaðar frá því, sem áður var, og er niður- staðan sú, að þær ná hvergi til innanrikismála í Friríklnu, þar sem forseti þingsins undlrritar ný lög o. s. frv., en okkl konungur eða fuiltrúi hans. mér, þegar ég segi yður, að mér sé ómögulegt að bera þá þungu ábyrgð né gegna þeim þungu skyldum, er hvíla á konunginum, á þann hátt, sem ég vlldl geta gert það, án þess að hafa við hlið mór þá konu, sem ég elska. Ég vil að þér vitið, að þessa ákvörðun hefl ég tekið einn, aleinn. pað var nokkuð, sem ég varð að dæma um sjálfur. Sá aðili, sem þetta mál snertir, næst mér, hefir allt til þess síðasta gert sitt itrasta til þess að fá mig til þess að taka aðra ákvörðun. Ég hefi byggt ákvörðun mina einungis á hugs- uninni um það, hvað myndi vera öllum fyrir beztu. Mór varð léttara um ákvörðunina vegna þeirrar fullvissu, að bróðir minn, sem hefir langa reynslu f opinberum mál- um, og er gæddur hinum mestu mannkostum, myndi geta tekið við af mér, án þess að á þvi yrði nokkur dráttur og af þvi hlytist nokkurt tjón. Hann hefir hlotið, eins og svo mörg yðar, þá ómetan- legu hamingju, sem mér hefir ekki hlotnast, að njóta heimilis- sælu, með konu sinni og bömum. Á þessum erfiðu stundum hefi ég notið huggunar hennar hátign ar, móður minnar, og fjölskyldu minnar. Ráðherramir, og einkan- lega Mr. Baldwin, forsætisráð- Játvarður. herra, hafa ætíð sýnt mér hina mestu nærgætnl. pað hefir aldrei komið til neins ósamkomulags milli min og þeirra, né milli min og þingsins. Með því uppeldi, sem faðir minn veitti mér, var slíkt fyrirbyggt. Ég hefði aldrei látið tii þess koma. Á meðan ég var prins af Wales, og síðar sem konungur, hefi ég ætíð notið hinnar mestu vináttu, hjá öllum stéttum fóiks, í öllum löndum hins brezka helmsveidis, þar sem ég hefi dvalið, eða ferð- ast um. Fyrir það er ég þakklátur. Framh. á 4. síðu. Innbrotsþjófar staðnir að verki í fyrrinótt handtók lögreglan tvo menn, sem brotizt höíðu inn í brauðgerð i kjallara hússins Frakkastíg 12. Kl. 2—3 um nóttina veitt.i liig- rogluþjónn, sem var á verði á Fj okkastíg, því athygli, að ljósi \ar brugðið upp í brauðgerðarhús- inu. Við nánari athugun varð liann þess var, að ekki myndi aht meö felldu. Kallaði hann því nokkra félaga sína til aöstcðar. Fóru þeir inn i brauðgerðarhúsið og handtóku tvo menn, sem brot- izt höfðu þar inn með því að stinga upp lás i bakdyrum. Innbrotsþjófarnir höfðu stolið dálitlu af smápeningum, sem voru í opinni skúffu og ennfremur ’iokkru af súkkulaði. Lögreglan tók sökudólgana þeg- ar höndum og fór með þá i stein- inn. Kl. 9 í gærkveldi talaði »Játvarður príns« í brezka útvarpið

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.