Nýja dagblaðið - 12.12.1936, Síða 2

Nýja dagblaðið - 12.12.1936, Síða 2
2 N Ý J A DAGBLAS IS Hárvötn A.Y.R. Eau de Portugal Eau de Cologne Eau de Quinine Bay Rhum Isvatn. Reynið pað og sannlærist um gæðin. Smekklegar umbúðir. Sanngjarnt verð. Afengisverzlun r í k i si n s. Athngið! »Nýja pvottahúsið», Símí4898, hefir fullkomnustu þvottavélar, hitaðar með gufu — (ekki með gasi) — þvotturinn guln- ar því ekki við að liggja og lyktar sem útiþurkaður. Þið sem þvoið heima, látið okkur þurka og rulla þvottinn, — Spyrjist fyrir um verð. »Nýja |>vottahúsið“, Grettisgötu 46* Norðlenzkt dilkakjöt Saltkjöt, Svið og Rjúpur. K j ötverzlunin HERÐUBREIÐ Frikirkjuveg 7, Sími 4565. Jóla- hangikjötið er komið. Norðlenzkt dilkakjöt, Svínakotelettur Rjúpur Svið Margskonar grænmeti Kjötbúð Reykjavíkur Vesturgötu 16, Sími 4769. Kynslóðir koma! Til verndar augunum skal ávalt nota OSRAM-D-ljóskúlur, þær eru bezti ljósgjafinn þegar um vanalega raflýs- ingu er að ræða. Hver Ijósnotandi get- ur nú reiknað sjálfur hversu ódýrt rafljós OSRAM-D-ljóskúlurnar gefa, því á hverri kúlu og umbúðum hennar, er áletrun, sem sýnir ljósmagnið í „Dekalumen“ (DLm, ljóseiningum) og hina sérstaklega litlu straumeyðsiu í watt (W). yiRCtNIA CIGAREHIJR fUSlk Pákkínn í^ostar óllum verzfufwm. ,,Hvað gerir ftil þö ég verði skoftinn”, sagði hann á sftríðs- árunum. „Ég á nógu marga bræður^. Konunrarínn, sem gerðí uppreisn gegn kreddum og vildi hafa sama freisi og aðrir menn I. Það er einkennilegt, að Ját- varður VIII., sem naut svo ó- venju mikla vinsælda meðan hann var prinsinn af Wales, skuli hafa lent í árekstr- um við þjóð sína og stjórn, þing og kirkju. En þeir, sem skrifa sögu hans, munu segja, að þetta hefði hlotið að fara þannig; fyr eða síðar myndi mannréttindaþrá hans hafa rekizt á. konungsskyldumar, því lífsskoðun hans var ekki í samræmi við erfðakenning- arnar um heilagleika konungs- embættisins. Það er ekki af tilviljun, að „Times“ í forystugrein um vináttu konungs við Mrs. Simpson og þau vandræði, sem ut áf því hafa spunnizt, vitnar í nokkur orð, sem birtust í blaðinu fyrir 45 árum: „Per- sóna konungs er ímynd kon- ungdæmisins, klædd holdi og blóði, og sérhver galli hjá hon- um er bæði sltaðlegur og hættu- legur konungsveldinu". Því þessi orð voru skrifuð um Ját- varð VII., afa hans, þegar hann var prinsinn af Wales. Það var árið 1891. Prinsinn var kallað- úr sem vitni í máli, sem reis út af fjárhættuspili. Einn af nánustu vinum hans varð sannur að sök, að hafa beitt brögðum í Baccarat-spili, sem prinsinn hafði spilað með í, þar sem þeir voru gestkomandi. Hjá Játvarði VIII. finnur maður margt, sem minnir á afa hans, þar á meðal hina sterku sjálfstæðiskennd og ósveigjan- legan vilja til að lifa sínu einkalífi ásamt konungsskyld- unum. Þessi skyldleiki þeirra á rætur sínar í uppvextinum. Játvarður VII. var alinn upp af manni Viktoríu drottningar, sem ekki skildi hið frjálsa eðli hans, og kom í veg fyrir að það fengi að njóta sín. Eftir fráfall hans hélt drottningin áfram í sama horfinu, því hún hélt að sinn ástkæri eiginmað- ur myndi einmitt hafa gert það sama. Hið einstrengingslega og dauðleiðinlega hirðlíf á dögum móður hans varð aðeins til þess, að hann þverskallaðist og sneri sér að fjolbreyttara og skemmtilegra lífi. Heimilisbragur og hirðlíf Georgs V. minnti að mörgu leyti á hirð ekkjudrottningar- innar gömlu, og átti Mary drottning sinn þátt í því með hinni stoltu og grafalvarlegu framkomu sinni. Allt gekk eft- ir nótum og trú og dyggðir voru settar efst á baug. Engin fráskilin kona fékk aðgang að vinahópi Mary drottningar. Hún barðist vægðarlausri bar- áttu við þá léttúðugu tízku, sem réði eftir stríðið. Hún mælti svo fyrir við hirðdöm- urnar, að þær skyldu hafa upp- háa hanzka, fyrst þær endilega vildu ganga í ermalausum kjól- um. Sem „æðsta kona lands- ins“ barðist drottningin fyrir betri siðum við hirð sína og einkalíf hennar var og er bund- ið góðgerðastarfsemi. En sonur hennar gerði eins og afi hans „uppreisn æskunnar“ gegn þessu þvingaða lífi. H. Menn vilja segja, að heims- styrjöldin hafi mótað hugarfar konungsins. Hann var þá um tvítugt og vildi ekkert fremur en að verða að sem mestu gagni á vígstöðvunum. Það er gagnstæ'tt eðli hans að draga sig í hlé, þegar á liggur. Frá æskuárum hefir hann stundað íþróttir af miklu kappi og ætíð verið djarfur. Hann datt oft &f liestbaki, ekki vegna ódugnað- a'r, heldur vegna þess, að hest- arnír voru ekki alltáf sem þæg- astir. Það kvað svo rriikið að þessu, að það kom til umræðu í neðri málstofunni, að kon- ungsefnið yrði lands síns vegnn að hafa gætur á lífi og limum. Hann er líka duglegur flug- maður, þótt hann fengi ekki leyfi til þess að koma fljúg- andi á vígstöðvamar. „Hvað gerir til, þótt ég verði skot- inn“? sagði hann við Kitchener lávarð. „Ég á nógu marga bræður“. „Ef ég bara væri viss um að yðar hátign yrði -skot- inn“, svaraði Kitchener. „En það er líka hætta á að þér yrðuð tekinn til fanga, og ég þori ekki að taka á mig ábyrgðina af þvi“. Ýmsir hafa reynt að varpa dýrðarljóma um Prinsinn af Wales frá stríðsárunum, en sannleikurinn er sá, að hann var sjaldan í mikilli hættu. En hann var oft í Frakklandi og sýndi þá, hve honum var lagið að tala við fólk af öllum stétt- um. Það var sá hæfileiki, sem Játvarður VII. átti í ríkum mæli, en bæði Viktoríu drottn- ingu og Georg V. vantaði. Það er eins og sá hæfileiki fylgi .þeirri einföldu reglu að koma fram í öðrumhvorum lið brezku konungsættarinnar. — Eftir stríðið sneri hann aftur til Englands, þar sem ættfólk hans reyndi að má úr huga Framh. á 4. síðu.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.