Nýja dagblaðið - 03.01.1937, Qupperneq 2
2
G B L A Ð 1 »
Ð A
N f J A
Gulasbandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
1 heildsölu hjá
Sambandi ísl. samvínnufélaga
Símí 1080.
1 - Reyh id i
c oi ■ ÍHl mmk i PER
VII mwA .< tmmB IIUH fjL
20 S'lk.
Pakkínn
I^oslar
kr. I
TE
* Allt með íslenskmn skipum! í
Gód barnabók
L. Gottfríed Sjöholm:
Andri litli á snmarferðalagi
Isak Jónsson þýddi. —
Reykjavík 1936.
Árlega kemur út hér á landi
í'jöldi bóka, sem ætlaður er
bömum. En þegar frá eru tekn-
ar námsbækur ýmsar, eru
barnabókmenntir okkar næsta
sundurleitar. Er það með nokk-
uð öðrum blæ en holt er og
talið er heppilegt meðal annara
menningarþjóða. Þar er keppt
að því, að um leið og bækurn-
ar eru bömunum skemmti-
legar aflestrar, styðji þær
skólastarfið. Þannig hafa Sví-
ar t. d. gefið út allstórann
bókaflokk, sem fjallar um við-
fangsefni átthagafræðinnar,
sem er ein meginnámsgreinin
í yngri bekkjum barnaskól-
anna. Tvær bækur í þessum
bókaflokki eru eftir hinn á-
gæta, sænska skólamann, L.
Gottfried Sjöholm, kennara,
sem hér dvaldi síðastliðið vor.
Nú hafa báðar þessar bækur
verið þýddar á íslenzku af ís-
ak Jónssyni kennara. Andri
litli á vetrarferðalagi kom út í
fyrra. Síðari bókin, Andri litli
á sumarferðalagi, er nýkomin
út. Frh. á 4. síðu.
Miðstjórn
Fr am s óknarf lokksíns
heldur fund á morgun (mánndag)
kl. 5 e. h. í Sambandshúsznu.
Jónas Jónsson. Eysteínn Jónsson.
Tilkynniné.
l
Að gefrm tilefni tilkynnum vér
hérmeð, að daggjald fyrir sjúklinga á
St. Jósefs spítala, Landakoti,
Sjúkrahúsi Hvítabandsins og
Sjúkrahúsi Sólheimar
verður framvegis kr. 6,00 á sambýlis-
stotu, auk sérgreiðslu fyrir lyf, umbúð'
ir, röntgenmyndir, Ijósameðferð og
læknishjálp.
Fyrirframgreiðslu og ábyrgðar á
siúkrahúskostnaði verður krafist eins
og áður.
Fyrir 84 árum kom ungur !
maður inn á skrifstofu land-
mælingaráðs Indlands. „Herra
forstjóri“, sagði hann og var
mikið niðri fyrir, „ég hefi !
íundið hæsta fjall jarðarinn-
ar“. í
Hann hafði á réttu að
standa. Eftir mælingum hans
var fjall þetta 29002 ensk fet
að hæð, en síðari og nákvæm-
ari mælingar bættu við þá tölu
139 fetum. Fjall þetta var
nefnt Everest, eftir fyrverandi
fors'tjóra landmælingaráðsins,
og það var ekki fyr en löngu
seinna, að menn komust að
hinu rétta og foma nafni þess;
Chomolungma, eða fjallagyðj-
an.
Everest er á landamærum
hins lokaða Tibet, og það var
ekki fyr en árið 1920, að hinn
kirkjulegi stjórnandi landsins
„Grand Lama“ veitti ferða-
leyfi til fjallsins. Það var
enskur stjórnmáiaerindrek.,
sem fékk „passann", sem var á
þessa leið: — „Ves'tan hinna
„Fimm fjársjóða snævarins“ .
í héraði Hvítaglersvígis, nálægt '
Innra-klaustri í Klettadal — og
síðan til Fuglalands í suðri“.
Fuglalandið átti víst að vera
Jndland.
Þegar leyfið var fengið, stóð
ekki á vísindamönnum og æf-
intýramönnum til þess að
kanna hin ókunnu lönd vestan
við „Fimm fjársjóði snævar-
ins“, en hér er ekki rúm til að
segja frá þeirri för, og ekki
heldur hinum tveimur, sem
farnar voru 1922 og 1924. Þó
má geta þess að í þeim ferðum
’-'oru beztu og frægustu fjall-
göngumenn Bretlands; eins og
Bruce hershöfðingi, Norton,
Somerwell, Finch, Odell og
margir fleiri. Meðal fjallgöngu-
CHOMOLUNGMA
— eda fjallagyðjaa
manna hafa þessi nöfn æfin-
iýraljóma hetjusagna, og þó
hafa þeir allir beðið ósigur í
baráttunni við það, að komast
upp á hæsta tind jarðarinnar.
Sérstaklega má þó geta eins
manns, en það var enskur
skólakennari George Leigh
Mallory. Hann var hæglátur
maður og dulur í skapi, en öll-
um mönnum þrautseigari. Hið
mikla æfintýri hafði náð svo
sterkum tökum á honum, að
hami átti þar ekki afturkvæmt.
Ef til vill hvílir líkami hans á
á hátindi fjallsins, sem varð
honum að bana.
Engan grunaði þá, að það
væri slíkum erfiðleikum bundið
að klífa fjallið. Fyrst var það
kuldinn. Jafnvel á jöklinum við
rætur þess var 20 gráða frost
á næturnar. Fjallgöngumenn-
irnir lifðu heimskautalífi, — á
fætur á morgnana og baráttan
við frosin stígvél, síðan hið
seintekna verk við að breyta ís
og snjó í hei'tan drykk; frem-
ur hvimleitt í hæð, þar sem
vatnið sýður nýmjólkurvolgt.
Síðan erfiði dagsins.
Þá er það stormurinn. Ekk-
ert getur jafnast á við storm-
inn á Everest. Þegar hann er
í sínum versta ham, — og það
er hann æði oft, kemur ekki t:l
mála, að leggja á fjallið. Ferða-
’agið upp fjallseggjarnar, með
úfinn skriðjökul tíu þúsund
íet fyrir neðan, er nógu erfið,
þó í logni sé, en þó er það að-
-eins byrjunin og barnaleikur
einn hjá því, sem síðar kemur.
Það er ekkert smáræðis fé,
og enginn smáræðis tími, — að
ótöldum mannslífum, sem það
befir kostað að berjast við
þetta fjall. Þeir, sem að því
standa eru þó nógu hreinskilnir
að viðurkenna, að það er ekki
gert í þágu vísindanna, jafnvel
þó vísindin hafi verið fengin til
aðstoðar og vísindamenn tekið
þátt í leiðangrunum. Nei, gang-
an á Everest er ekki vísindi,
heldur æfintýri, „sport“, mesta
og hættulegasta „sport“ jarð-
arbúa.
Sá maður, sem á síðari árum
hefir staðið fyrir flestum Ev-
erest leiðangrum, heitir F, S.
Smythe. Hann er meðlimur
Alpine Club í London og Royal
Geographical Society ogstyrkt-
Leiðangur að klífa upp Chozuolungtna.
ur af báðum þessum félögum.
Brezkir auðmenn hafa einnig
lagt s'tórfé til leiðangra hans.
F. S. Smythe er talinn einn
mesti fjallgöngu- og kletta-
maður, sem nú er uppi. Hann
koms't eitt sinn í 25 þúsund
feta hæð í einum sínum leið-
angrum. I fyrra komst hann í
28 þúsund feta hæð og síðast í
sumar, sem leið fór hann í einn
leiðangurinn enn, en hve hátt
hann hefir komizt þá, er þeim,
sem þetta ritar ekki kunnugt.
Það er þó víst að hann varð að
snúa við, án þess að hafa náð
takmarkinu, eins og í báðum
hinum leiðangrunum.
Þessi síðasta för var þó und-
irbúin meira en dæmi eru til.
I heilt missiri urðu þátttak-
endumir að ganga undir hin
erfiðustu próf og raunir. Fyrsti
þáttur þeirra prófa fór fram í
London.Aðeins menn með sterk-
ustu og seigustu líkamsbygg-
ingu gátu komið til greina.
Brjóstþol og hjartastyrkur var
nákvæmlega mælt. Þá var þeim
kennt að fara með kaðla, ís-
haka, axir og önnur nauðsyn-
leg áhöld. Þeir urðu að iðka erf-
iðustu jafnvægisæfingar, t. d.
standa á öðrum fæti uppi á 6
metra hárri stöng með bundið
fyrir augun. Þeir urðu að „troða
hjól“ í 18 klukkutíma hvíldar-
laust. Hanga í köðlum og fara
á handvað. Þeir urðu að venj-
ast höggum og slögum og jafn-
vel æfa sig í því að detta. Að
öllu þessu loknu voru þeir tekn-
ir til Sviss og látnir ganga þar
á fjall og klifra í björgum. Á
meðan á þessu stóð var hið
mesta annríki austur í Ind-
landi og Tíbet. Veðurstöðvar
voru settar upp í nálægum
fjöllum við Everest til þess að
Framh. á 3. síðu.