Nýja dagblaðið - 21.01.1937, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 21.01.1937, Blaðsíða 4
REYKJAVIK, 21. JAN. 1937. 5. ÁRGANGUR — 16. BLAÐ NYJA DAGBLAÐIÐ / IQamla Bió! Leynilögreglan Afarspennandi, fjörug og viðburðarík mynd, 8em sýnir vel hina atöðugu og miskunnar- lausu baráttu amerísku leynilögreglunnar (Gr.- Men) fið bófaflokkana þar í landi. Aðalhlutverkin leika: Fred Mac Murray og Madge Evaus. Böm fá ekki aðgang. UULFJEIlt EEIUlf IBI „Kvenlæknirinn" Gamanleikur í 3 þáttum eftir P. G. WODEHOUSE. Sýning í kvöld kl. 8. Lægsta verð Aðgöngumiðar á l.&O, 2.00, 2.50 og 3.00 á svölum eru seld- ir eftir kl. 1 í dag. Simi 3191. Annáll Veðurspó fyrir Reykjavik og nd- grenni: — Suðaustanhvassviðri. Slydda eða rigning. Nœturlæknir er í nótt Axei Blöndal, D-götu 1, sími 3951. NæturvörSur er í Laugavegs- og lugólfs Apóteki. Dagskrá útvarpsins: Kl. 8,00 Morgunleikfimi. 8,15 Enskukensla. 8,40 Dönskukennsla. '12,00 Hádegis- útvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Hljómplötur: Píanó-konsert í e-moll, eftir Chopin. 19,55 Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20,30 Erindi: Mannflokkar, VI (Einar Magnússon mennta- skólakennari). 20,55 Einleikur á píanó (ungfrú Helga Laxness). 21.15 Frá útlöndum. 21,30 Lesin dagskrá næstu viku. 21,45 Útvarps- hljómsveitin leikur. 22,15 Hljóm- plötur: Danslög (til kl. 22,30). Togaramir. Geir kom í gær frá Englandi. Einnig kom inn enskur iogari með veikan mann. Andlátsfregnir. Soffía Einars- sonar bónda á Neistastöðum í Flóa, lézt í fyrramorgun í Landa- kotsspítala. Hún var rúmlega þrí- tug að aldri. Einnig hefir andast þorvaldur Magnússon, sem lengi dvaldist á Eyrarbakka, háaldrað- ur maður, Helgi Jósefsson, Hverf- isgötu 80 og frú Rut Friðfinns- dóttir, Frakkastíg 12, ung kona. Snjóalög cru nú orðin svo mikil að ckki er lengur bílfært til Hafn- arfjarðar og umferð tálmuð í út- hverfum bæjarins. Aflasala. Maí seldi 1700 vættir á 1858 pund. Gulltoppur 1942 vættir í.vrir 1718 pund. Skallagrímur 1503 vættir fyrir 1588 pund. Sakir veðurútlits fóru engir bát- ar á sjó við Faxaflóa í fyrrinótt og heldur ekki í nótt. Línuveiðar- inn Sigríður er væntanlegur í kvöld með á að giska 20—25 smál. afla, sem fer til flökunar. Aflafregn. Úr Keflavík réru í íyrradag 6 bátar og öfluðu frá 9— 12 skp. á bát. Telst það ágætur afli um þetta leyti árs og sjómenn telja óvenju gott útlit um afla. j Alpjóölegt menntasetur Framh. if 2. síðu. ný opnar sín breiðu hlið og- býður velkominn hvem sem vera skal, án tiilits til þjóð- flokka og stétta. Nú er liðinn aldarfjórðung- ur síðan prófessor Paul Desjar- dins fékk til umráða klaustrið Pontigny í nánd við París og breytti því í námsheimili, þar sem menn, frá fjarlægum lönd- um fá tækifæri til að „hlusta hver á annan“, eins og hann sjálfur kemst að orði. Þangað hafa komið lista- menn, kennimenn, hagfræðing- ar, námsfólk o. m. fl. Námið er margþætt og sjálfvalið. Og þar er fjöldi bóka á ýmsum málum. Það er sérstaklega tekið fram, að fræðslan sébæði miðuð við kröfur þeirra, sem hafa „praktisk" áhugamál og hinna, sem fást við andleg (íntellektueli“) störf. Námskeiðið, sem hefst 1. apríl næstkomandi, er að því leyti frábrugðið þeim fyrri, að Norðurlandabúum er sérstak- lega boðin þátttaka og verður séð fyrir túlkun á norræn mál. Franska verður kennd, en þó er nauðsynlegt að kunna nokkuð 1 málinu áður. Gestunum verður gefinn kostur á að kynna sér franskt atvinnulíf, franska heimspeki og þjóðfélagskenningar nítj- ándu aldarinnar. Auk þess Tveir siglfirzkir bátar eru nýkomn- ir til Keflavíkur og stunda þeir sjó frá Ytri-Njarðvík á næstu ver- tið. — FÚ. Skipafréttir. Gullfoss var i Kaup- mannahöfn í gær. Goðafoss kom til Vestmannaeyja í gærkvöldi. Brú- arfoss fór til Breiðafjarðar og Vestfjarða í gærkvöldi. Dettifoss var í Kaupmannahöfn í gær. Lag- arfoss vár á Borgarfirði í gær- morgun. Selfoss er á leið til Ant- werpen. Frú Vílborg M. Audrésdótiir Framh. af 1. síðu. þeim fjölda ges'ta, er þar hefir að garði borið, að sliks mun ekki að ieita á hverju strái. Nú er það öldruðum eiginmanni hennar sælust von, að sam- fundanna verði skammt að bíða. Frú Vilborg verður til moldar borin í dag. Þess má hér geta, að þau Bjarni og Vilborg ólu upp 3 börn, en sjálfum varð þeim ekki barna auðið. Kjördóttur sína, Guðrúnu Ingibjörgu, misstu þaU á Akrueyri 14 ára gamla, frábærlega efnilega stúlku, er mjög varð hann- dauði fósturforeldrum sínum. Hin tvö eru Vigfús klæðskera- meistari Guðbrandsson, bróður- son Bjarna, og Vilborg Magn- úsdóttir, gift Vigfúsi Árnasyni, starfsmanni í Reykjavíkur- Apóteki. Kumtugur. verða fyrirlestrar og umræður um málefni dagsins m. a. alls- herjarverkföllin í Frakklandi i sumar, sem leið, o. fl. Námskeiðið stendur yfir í 3 mánuði. Samanlagður dvalar- kostnaður er 3000 frankar. Ferð verður farin til Norman- die og í París verður fjögra daga dvöl. Gefst þá tækifæri til að sjá heimssýninguna, sem þar verður í sumar. Einum degi verður varið til að skoða höfnina í Le Havre. f'rá París er tveggja stunda ferð með járnbrautarlest til Pontigny. Klaustrið sjálft, sem er um 700 ára gamalt, er rúm- góð og reisuleg bygging. Og umhverfið er hljóðlátt og fag- urt. Ég hefi aðeins haft stutta dvöl í Pontigny, en ég hygg, að fáum verði vonbrigði að koma þangað. S'tickholm í janúar 1937. Oddný Guðmundsdóttir. Nýja Bió Kvennaskóla- síúlkur (Girls Dormilory) ljómandi falleg amer- ísk kvikmynd frá Fox- fólaginu. Aðalhlutverkin leika: Ruth Chatterfon, Herbert Marchall og hin fræga franska leikkona Simone Simcn, er hér birtist í fyrsta sinni f amerískri kvik- mynd,fegurriennokkru sinni áður. Aukamynd: Kvenfólkið og fízkan amerísk kvikmynd er sýnir síðustu nýjungar í klæðaburði kvenna, Skriifarkeimsla. Námskeið byrjar næstu daga. Guörún Geirsdótfir Sími 3680. Daglega nýtt fiskiars í Pöntun- arfélagi verkamanna, Skólayörðu- stíg 12. Norðlenzkt ærkjöt, ódýrt og gott. Kjötverzl. Herðubreið, Fríkirkjuveg 7. Sími 4565. Ballkjólar seldir með miklum afslætti. Verð frá 39 krónum. — Saumastofan „Upsölum". — Aðalsfræti 18. — Sími 2744. Kildur Sivertsen. MELEESA 59 blóðið storkna í æðum sínum. Það var á þessa leið, sem hann las: t dag komu hingað til okkar eftir Churchill-slóð- inni, John Howland og sonur hans. Howland spratt á fætur, svo að stóllinn hentist um koll, og snéri sér að Croisset, eins og hami væri að hugsa um að stökkva á hann. Jean brosti. Hann benti með fingri á borðið og mælti lágri röddu. — Herra John Howland, villt þú ekki lesa það sem þarna er skrifað um endalok foreldra Mel- eesu fyrír sex'tán árum síðan. Eftir það ætti þér að skiljast hversvegna að sókst var eftir lífi þínu hjá Prins Albert, hvers vegna þú varst fjötraður ofan á sprengiefnið í Wekuso, og hversvegna núna klukk- an sex, þú verður að gjalda þessa — — þessa gömlu skuld. Croisset lauk við setninguna með erfiðismunum. Howland snéri, utan við sjálfan sig, að borðinu á ný, 'og laut yfir blöðin. Eftir örstutta stund leit hann upp. Andlit hans var snjófölt, og sett djúpum rákum. Hann fór með hendinni í gegnum hár sitt í hálfgerðu ósjálfræði. — Ég hefi lesið það allt. Og ég skil ykkur nú — — loksins nú. Ég heiti John Howland og faðir minn hét sama nafni. Ég skil. Það varð þögn og augu þeirra mættust. — Ég skil ykkur, mælti Howland að lokum, og færði sig nær Croisset. En þú, Jean Croisset, — trúir þú því að ég sé sá John Howland, sem-------- sá sem að þið eigið sökótt við? — Ilerra minn, það skiftir engu máli hverju ég trúi, eða trúi ekki, héðan af. Ég þarf aðeins áð segja þér eitt, að síðustu. Þessir ókunnu óvinir þín- ir eru bræður Meleesu. Við lifum eftir þeim lögum, er lífið hefir úthlutað okkur, en það eru hörð lög. Þeim er bíða þarna upp í húsinu, getur aldrei fundizt að bikar angistar þinnar og kvala, vera fylltur um of. Þau hafa dæmt þig 'til dauða klukkan sex, og á þeixri mínútu verður þú skotinn inn um einhverja glufuna hérna í veggnum. Þessi miði — — frá Meleesu--------er síðasti boðskapur minn til þín. Howland stóð eins og steingerfingur við borðið, eftir að Jean hafði fært honum liinn miskunnar- lausa boðskap um líflát hans. Hann sá miðann er Jean lét falla á borðið, og slétti úr honum með köldum fingrum. Það voru örfá orð á miðanum, auðsjáanlega skrifuð í miklum flýti. Ég hefi beðið fyrir þér í alla nólt. Ef Guð heyr- ir ekki bænir mínar, mun ég samt sem áður standa við orð mín og koma á eftir þér. Meleesa. Howland heyrði eitthvert þrusk, og leit upp. Jean var farinn. Dymar voru að falla að stöfum, og svo heyrði hann loku dregna fyrir. Það var dauða- þögn. Jafnvel hið mjúka loðskóaða fótatak Jeans Croissets, er hann læddist út í næturmyrkríð, barzt ekki inn í bjálkakofann til hins dauðadæmda, sárþrekaða manns. XV. KAFLI. Meleesa. Howland stóð þögull og hreyfingariaus í langa stund ef'tir að Jean fór. Augu hans voru fest á dyrnar, en hann sá þær ekki. Bréfmiðinn datt úr hendi hans á gólfið, án þess að hann tæki eftir því. Hann tók úrið úr vasa sínum og lagði það á borðið. Það var gengið fjórðung stundar í sex. Það voru eftir aðeins þrír stundarfjórðungar. Eftir þrjá stundarfjórðunga beið hans dauðinn. Hann var viss um það. Allur vonarneisti liafði ver- ið slökktur í brjósti hans. Jafnvel meðan hann var bundinn og fjötraður ofan á sprengiefnið, og inni byrgður í jarðgöngunum, — hafði hanr vonazt eftir undankomu og barizt til þess að frelsa sjálfan sig, en nú var hann vonlaus. Nú gat ekki verið um neina baráttu að ræða. Hann yrði skotinn í gegn um einhverja þessa opnu smugu, án þess að honum gæfist nokkur kostur á að verjast, eða sanna sak- leysi sitt. En hvernig var hug Meleesu farið? Áleit hún hann sekan eins og bræður hennar gerðu? Hann stundi við og rétti sig eftir bréfinu er lá á gólfinu. Hann las það aftur. „Ef Guð heyrir eltki bænir mínar, þá mun ég samt sem áður standa við orð mín, og koma á eftir þér“. — Þessi setning virtist setja innsiglið á dauðadómsvissu hans. Auð- séð var að Meleesa hafði gefið upp alla von, — en samt sem áður höfðu þessi orð annan boðskap til hans en það. Þá skal ég samt sem áður koma á eftir þér. I

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.