Nýja dagblaðið - 06.04.1937, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 06.04.1937, Blaðsíða 3
N * J A DAGBLAÐIÐ 8 ' ^ ....................... NÝJA DAGBLAÐH) Útgeíandi: BlaÖaútgáfan h.f. Ritstjóri: JJórarinn pórarinsson. Rilstjórnai'skrifstofumar: Tr"iínarst.r. 16. Sími 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa Hafnarstr. 16. Sími 2323. Áskriftargjald kr. 2,00 á mán. f lausasölu 10 aura ednt. Prentsm. Edda h.f. Sími 3948. Síldarverðíð og ríkísverksmíðjurnar Ólafur Thors og bræður hans hafa stjómað Kveldúlfi og’ gert það með þeim endem- um að meiri þekkjast ekki í sögu íslenzkra fjármála. Þeir liafa ausið úr fyrirtækinu stór- fé bæði til eigin þarfa og ann- ara, án þess að fyrirtækinu væri það kleift og afleiðingin hefir orðið sú, að það skuldar orðið margar mlljónir króna. En Ólafi og fylgismönnum lians nægir ekki að hafa fylgt þessari stefnu í fjárreiðum Kveldúlfs. Þeir vilja gera hana að ófrávíkjanlegu boðorði í öllu fjármálalífi landsins. Glöggt dæmi þess er barátt- an um síldarverð ríkisverk- smiðjanna. Framsóknarmenn vilja fylgja þeirri reglu að síld- arverksmiðjurnar séu reknar eins og þær væru eign útvegs- rnanna. Verksmiðjurnar fengu þá það fyrir störf sín, sem rekstur þeirra kostaði að með- töldum endurbótum á tækjum þeirra og fyrningar- og vara- sjóðsgjaldi. Útgerðarmenn fengu allan afrakstur þeirra að öðru leyti. Socialistar og íhaldsmenn standa sameinaðir á móti þessu. Þeir vilja gera verk- smiðjurnar að áhættufyrirtæki fyrir ríkissjóð og láta þeir borga fast verð, ákveðið fyrir- íram. í góðum árum geta verk- smiðjumar hagnast á þessu, í vondum árum aftur á móti tapað miklu meiru en því, sem gróði góðu áranna nemur. En ólafur Thors og félagar hans geta ekki sætt sig við, að verksmiðjurnar græði á góðu árunum. Það skilur stefnu íhaldsins og socialista og að því leyti eru þeir síðarnefndu skárri. 1 áframhaldi af síldar- verkfallinu í sumar flytja íhaldsmenn í sam. þingi tillögu um að ríkisverksmiðjurnar greiði kr. 0,70 í uppbót á hvert síldarmál, sem þær tóku á móti síðastl. sumar. Afleiðing af slíkri ráðstöfun yrði sú, sam- kvæmt Reykjavíkurbréfi Morg- unblaðsins 4. þ. m., að rekstr- arhalli verksmiðjanna á síðastl. ári yrði alltaf 30 þús. kr. Stefna íhaldsins um rekstur síidarverksmiðjanna er því samkvæmt ofangreindri þings- ályktunartillögu þessi: Ríkis- verksmiðjurnar borgi hátt fyr- iifram ákveðið verð fyrir síld- ina. 1 erfiðum árum tapa verk- smiðjumar á þessu. I góðu ár- unum græða þær, en þá eiga þær að greiða í uppbót meira en það, sem gróðinn nemur. Með þessu er alltaí tryggður taprekstur á verksmiðjunum. Þannig yrði ríkisverksmiðj- unum stjórnað, ef íhaldið fengi að ráða, Endurtekin taprekstr- arsaga Kveldúlfs, í þetta sinn á ábyrgð ríkissjóðs. Stefna flokkanna um rekstur síldarverksmiðjanna er glöggt dæmi fyrir kjósendur landsins til að átta sig á því, hvaða fJokknum sé bez't treystandi til gætni og hagsýni í fjármálum og atvinnurekstri þjóðarinnar. Socialistar vilja reka verk- smiðjurnar eins og algeng áhættufyrirtæki braskara, í- haldsmenn vilja hafa s'töðugan taprekstur, Framsóknai*menn vilja láta reksturinn vera hallalausan og láta viðskipta- menn verksmiðjanna fá það á hverjum tíma, sem þeim rétt- látlega ber, og það sama, sem þeir myndu fá, ef þeir ynnu úr síldinni hjá sjálfum sér. Landsbankaneindín og eltírgjafirnar Á öðrum stað í blaðinu er getið frv. Framsóknarflokksins um breytingar á Landsbanka- lögunum. Fylgir frv. rökstudd greinargerð og fer hér á eftir sá hluti hennar, sem fjallar um eftirgjafir bankans og hið aukna vald Landsbankanefnd- ar í þeim efnum: „Samkvæmt 3. gr. laga nr. 10 15. apríl 1928, um Lands- banka Islands, er yfirstjórn bankans í höndum Landsbanka- nefndar og ráðherra þess, sem fer með bankamál. Bankaráð og framkvæmdarstjórar fara þó með hina daglegu fram- kvæmd, og er starfsvið þeirra nánar ákveðið í lögunum. 1 41. gr. c-lið nefndra laga er ákveð- ið, eftir að sérverkefni lands- bankanefndar hafa verið skýrð, að nefndinni beri að taka álykt- un um önnur mál. sem lögð verða fyrir nefndina sam- kvæmt lögum þessum eða eftir ósk bankaráðs eða ráðherra. Samkvæmt þessu er það ljóst, að Landsbankanefndin ræður úrsli'tum þeiri’a mála, sem þannig er til hennar vísað, og það enda þótt þau séu meðal þeirra mála, sem bankaráði og framkvæmdarstjórunum er ann ars ætlað að ráða fram úr. Nefnd sú, sem undirbjó þessi ákvæði Landsbankalaganna, skýrir afstöðu Landsbanka- nefndarinnar þannig, að hún sé nánast hliðstæð hluthafafundi í hlutafélögum, þar sem hún sé í raun réttri fulltrúi Alþing- is 'um stjórn bankans, en bank- inn sé ríkiseign (sbr. nál. banlcanefndar 1925, bls. 30 og bls. 59). Nú verður það hinsvegar að viðurkennast, að þessi ákvæði gefa ekki næga 'tryggingu fyrir eðlilegri íhlutun Lands- bankanefndarinnar um hin stærstu mál. Þetta hefir reynsl- an sýnt áþreifanlega, málum Framh. á 4. síðu. Á að veita áfengfi án takmarkana ? Eftir Guðlaug Rósinkranz yfirkennara. Fyrir nokkru skrifaði ég giein í Nýja dagblaðið um drykkjumannahæli og þörf á stofnun slíks hælis. Út af þess- ari grein hefir einn af forvígis- mönnum templara, Helgi Sveinsson æðstitemplar, ritað grein í Alþýðublaðið, þar sem hann er mér sammála um þörf- ina á drykkjumannahæli og um flest þau atriði, er ég benti á í grein minni. Á einu 'telur hann þó mikil vandkvæði, en það er á því, að templarar geti nokkuð af mörkum látið til þess að koma upp þessari þörfu stofnun. Þykir mér það heldur ótrúlegt, um svo gamlan og fjölmennan félagsskap, þar sem um áhugamál þessa félagsskap- ar er hér að ræða. Hinsvegar er það að vísu gleðjandi, sem H. S. segir að tillögur mínar, ásamt fleiri ‘tillögum muni verða teknar til rækilegrar at- liugunar á næsta Stórstúku- þingi. Vonandi geta bindindis- mennimir komið þessu góða málefn í framkvæmd áður en allt of langt líður. Skal svo ekki meira rætt um þetta mál að sinni. Það var annað áfengismál, sem ég vildi gera að umræðu- efni hér, en það er sala áfeng- isins. Síðan bannið var afnum- íð haustið 1934, er hverjum manni, sem kunnugt er, frjálst að kaupa eins mikið áfengi og hann vill og getur greitt. Þá um haustið, þegar rætt var um afn'ám bannlaganna, skrifaði ég grein í Nýja dagblaðið, þar sem ég benti á hættu þá, er af því stafaði, að allir gætu keypt ótakmarkað magn af áfengi, og myndi það vafalaust hafa aukinn drykkjuskap og cg launsölu i för með sér, og hefir þetta reynzt rétt. Jafn- framt benti ég á þá leið, sem Svíar hefðu farið í áfengismál- unum, með hinu svokallaða „Brattsystemi“ og sem hefði reynzt mjög vel. Þeir, sem leið eiga framhjá áfengisútsölunni hér í bænum, hafa tæpast komizt hjá því að taka eftir þeirri ös sem þar er, sérstaklega á laugardags- morgnana. Út úr búðinni koma menn með fullt fangið af „Svarta dauða“ og bera út í bíla, sem standa fyrir utan dyrnar. Sumir þurfa jafnvel að fara margar ferðir svo miklar eru birgðirnar, síðan fer bíllinn með farminn. Engum dettur í hug að sá, sem kaupir ætli að drekka þetta allt einn. Nei, þetta eru leynisalarnir að kaupa forðann fyrir laugar- dagskvöldið og sunnudaginn. Þá selja þeir þetta með mikilli álagningu og græða stórfé. Þetta er opinbert leyndarmál. Þá sér maður oft fátæka menn, sem ekki eiga garmana utan á sig, koma þarna út með eina og tvær flöskur. Þeir hafa kann- ske verið að kaupa fyrir síð- ustu aurana, en fjölskyldan líð- ui af skorti. Eiga þessir menn að fá að kaupa ótakmarkað áfengi? Nei, það er ekki vit í því. Hér verður að grípa í taumana. Skal ég hér í stuttu máli gera grein fyrir minni skoðun i þessu efni, og styðst ég þar nokkuð við reynslu Svía. Það á að vera takmarkað, hve mik- ið hver maður fær keypt af áíengi. Enginn ætti að fá keypt áfengi nema út á nafn, eða við- skiptabók, sem þarf að sýna „Má ég ekkí Svartíl Eínars Þegar ég las grein Einars í Lækjarhvammi um leið og ég var að ljúka við að lesa grein Eyjólfs Jóh., sem átti að vera svar til mín, — duttu mér í hug þessi orð gamallar konu, þegar hún fann í prófi, að bam- ið gat engu svarar! — Vitan- lega fer Einari álíka fimlega að svara fyrir „barnið“, þegai' hann fær leyfi til þess í Mbl., — eins og gömiu konunni fórst. Og víl ég aðeins benda á þetta, — ég þakka Einari í Lækjarhvammi „áréttinguna“, sem hann fann að þurfti að gera fyrir „bamið“. Ég var búinn að ákveða með sjálfum mér, að svara Eyj. Jóh. ekki oftar, því að ég fann að þess þurfti ekki. Og satt að segja er ég orðinn dauðleiður á, að vera að svara greinum, sem ég og allir, sem standa að þessum mjólkurmálum, vitum að eru vitandi vits byggðar á ósannindum. Nú skrifar Eyj. Jóh„ og byggir alla grein sína á því, að Flóabúið hafi gefið út „falska ávísun“. — Jafnvel lætur hann skína í gegn, að bændurnir eigi eftir að fá uppbótina, sem reikningarnir sýndu þar. Um leið og hann er að hlaupa á milli lögfræðinga til að fá ein- hvern til að taka að sér mál- sókn á hendur „Mjólkursamsöl- unni“, til að ná rekstursafgang- inum handa þeim, sem fengju 26—30 aura á líra írá hinum, sem fengu 18—19 aura, — læt- ur hann í greininni eins og hann viti ekki af, að þessi í ekstrarafgangur sé til, — eða honum hafi verið ráðstafað til öð bæta upp það, sem vantaði í \ e rð j öf nunars j óðinn. Vitanlega er það alveg rétt lijá Eyjólfi, að bændur, sem senda mjólk sína til vinnslu- búanna, — hefði vantað 2— 2i/o eyrir úr verðjöfnunarsjóði 'til að fá það verð, sem þeir fengu fyrir mjólk sína, ef „Samsalan“ hefði elcki verið rekin svo vel, eins og raun bar vitni um. Þær 165 þús., sem alveg eins og sparisjóðsbók um leið og áfengið er keypt. Slíka viðskiptabók ættu engir að fá fyr en þeir væru myndugir, eða 21 árs, en þó því aðeins að þeir Lafi á engann hátt orðið brot- legir við áfengislögin eða önn- ur lög. Ef eigandi slíkrar við- skiptabólcar misnotar rétt sinn annaðhvort með því að selja áfengið, lána bók sína, eða hegða sér ósæmilega eða verð- ur eitthvað á sökum áfengis- ‘ nautnar, missir hann bókina, og þar með réttinn til þess að kaupa áfengi. Hve mikið hver | fengi að kaupa, færi eftir á- stæðum hvers og eins og væri leyfið miðað við það, hvað telj- ast mætti að hann gæti leyft Frh. á 4. síðu. svara íyrír barníð?“ í Lækjarhvammí fengust af milliliðagróðanum, til að greiða þetta læzt Eyj. ekki vita um, — jafnframt því að hann er að undirbúa mál- sókn til að ná í þessa aura frá þeim aftur. j Aurasjúkir menn, eins og t Einar í Lækjarhvammi, sem hefir viðurkennt, að hann hafi aldrei haft eins góða mjólkur- sölu og nú, — láta blekkja sig al' slíkum tálvonum svindlar- anna.- — Þeir eru búnir að láta þá leiða sig allt of lengi áður með slíku tali, til þess, að þeir geti hætt að hugsa á þessa vísu. — T. d. er það ágætt dæmi um Einar þennan, þegar hann lét nota sig í sumar af Eyj. Jóh. til þess að svíkja fé- laga sína, sem hann var trún- aðarmaður fyrir í Nautgripa- i æktunarfélagi Reykjavíkur, .— og hækka stöðvarkostnaðinn um 0.8 aura á hvern mjólkurl. félaga sinna, sem landbúnaðar- ráðherra var búinn að vinna handa þeim, með miklu erfiði og dugnaði. Þetta hljóp Einar í og „hans nóta“, af því ein- hver persónuleg fjárgróðavon var dregin upp fyrir honum af „barninu“. — Vitanlega veit Einar í Lækj- arhvammi, ef hann horfir í gegnum spegil bóndans, að það lilýtur að draga að því, hver sem fer með völd í landinu, að allir fái sama verð fyrir sömu vöru á sama stað í mjólkursölu eins og öðru. Og það er aðeins þegar hann horfir undir hand- arjaðar fjársvindlaranna, — sem hann sér þær draumsýnir inn í framtíðina, að hann með um 20 kýr fái sem næst 2000 kr. á mánuði um leið og starfs- bróðir hans með sömu áhöfn úti á landsbyggðinni fær 5—600 eða minna. Þetta eru leifar gamallar ómenningar, sem hljóta að hverfa, — og hver sem gerist málsvan þess að halda slíku við hlýtur að fara sömu leiðina og „barnið“ í vit- und bændanna — sem sest í gleymsku skammarkróksins, ef drengskap og réttsýni er beitt. Sveinbjörn Högnason.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.