Nýja dagblaðið - 29.06.1937, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 29.06.1937, Blaðsíða 1
Geríst kaupendur Nýja dagblaðsíns strax í dag! EW^EIÆflC) 5. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 29. júní 1937. 147. blað fluttír í þúsunda- taM tíl Spánar LONDON: Frá Gibraltar kemur símfregn um það að undanfarna claga hafi þúsundir máriskra hermanna verið fluttir yfir Miðjarðarfiafið og settir á land í Gibraltar. Að því er ráðið verður af síðustu fregnum frá Spáni er nú hvergi barist að ráði nema á Baskavíg- stöðvunum. Uppreisnarmenn segj- ast lial'a unnið sigur á Baskahern- um í fyrradag og tekið mikið af iöngum og vopnum. Iiershöfðingi Norður-Baslcahersins ber ekki á móti þessari fregn öðru vísi en svo, að þeir hafi gert harðvítuga gagnárás. Hræðsla við blaðamenn Brezkum blaðamönnum á Ítalíu iiefir nú með öllu verið bannað að dveljast í Neapel eða gera nokkr- ar athuganir þar. Orsökin er talin vera sú, að ítalskir liermenn, sem sœrst hafa á Spáni, eru fluttir til Neapel, og er litið á þetta bann stjórnarinnar sem vott þess að stjómin óski ekki að brezkir blaðamenn séu að hnýsast í á- stand þeirrá. Ný stjórn í Kataloniu Stjórnin í Cataloníu sagði af sér í gœr, en það var búist við að önnur stjórn verði skipuð í liennar stað, þegar í gærkvöldi. Companys forseti Cataloníu flutti ræðú í gær, þar sem hann sagði, að Catalonía þyrfti sterkt og öfl— ugt stríðsráðuneyti, sem gæti hjáipað til þess að vinna borgara- styrjöldina á Spáni. — FÚ. Karlakór Reykjavíkur undirbýr utanSör Karlakór Beykjavíkur er þessa (iagana að hleypa af stokkunum liappdrætti vegna fyrirhugaðrar söngfarar til útlanda. í happdrættinu verður margt af góðum vinningum, svo sem ferð með kórnum til útlanda, 600 kr. málvork eftir Kjarval, 40 úrvals bækur á islenzku, ferðalög, hús- ínunir o. fl. o. fl. Kórinn fór fyrir skömmu söng- för iil Noregs, Svíþjóðar og Dan- merkur og gat sér þar ágætan orðstír, svo að fyllsta ástæða er til að ókka þess, að söngför sú, sem nú er fyrirhuguð, geti náð fram að ganga. Slíkar ferðir eru menningarmál, scm stuðla að auk- inni kynningu iands og þjóðar, og geta orðið þjóðinni að miklu gagni. þess er að vænta að bæjarbúar sýni máli þessu fullan skilning og liðsinni kórnum með því að kaupa happdrættismiðana. Alls 97 þús. hektolitrar komnir í bræðslu Slæmt veiðíveður var um helgína Versta veður gerði norðanlands á laugardagskvöldið og var norð- vestan snjóhríð á sildveiðasvæð- inu mestalla aðfaranótt sunnu- I Uagsins. Leituðu skipin sér skjóls undir Grímsey og voru þar um nóttina um 200 skip. Síld óð mik- ið, þrátt fyrir illviðrið, en ákaflega 1 gisið. Á sunnudaginn batnaði veðrið og var sæmilogt veiðiveður í gær. Síðastl. lauyardagskvöld var bú- iö að leggja á land í bræðslu 97.359 hektólítra af síld, en 98.122 hl. á sama tima í fyrra. Skiptist veiðin þannig miUi skipanna (talið í málum): Botnvörpuskip: Mótorskip: Baldur 147 Belgaum 726 Bragi 224 Gai’ðar 744 Gyliir 177 Gulltoppur 852 Gullfoss 248 Hannes í’áðherra 943 Haukanes 436 Hávarður Isfirðingur 272 Hilmir 499 Júpiter 173 Kári 345 Maí 386 Ólafur 529 Otur 256 Rán 224 Sindri 634 Tryggvi gamli 1341 Brimir 264 Surprise 523 Línuguluskíp: Alden, Stykkishólmi 116 Arinann, BcykjaVík 204 Bjarki, Siglufirði 194 Drangey, Akureyri 146 Andey, Hrísey 685 Bjarnai’ey, Hafnarfirði 511 Frcyja, Reykjavík 833 Fróði, þingeyri 813 Ilringur, Siglufii’ði 1456 Jarlinn, Akureyri 1287 Jökull, Hafnai'firði 836 Málmey, Hafnarfirði 138 Olaf, Akureyi’i 218 Ólafur Bjai'nason, Akranesi 2612 Pétursey, Hafnarfii’ði 35 Rifsnes, Reykjavík 1123 Rúna, Akureyi’i 775 Sigi’íðui’, Reykjavik 1379 Súlan, Akui-eyri 656 Svanur, Akranesi 388 Sæboi’g, Hrísey 1293 Sæfari, Reykjavík 461 Venus, þingeyri 207 M.s. Eldboi’g, Borgarnesi 1749 Anna, Akureyri Agústa, Vestmannaeyjum Árni Árnason, Gerðum Aithur & Fanney, Akureyri Ásbjörn, Isafirði Auðbjörn, Isafirði Bára, Akureyri Birkir, Eskifirði Björn, Akureyri Bris, Akureyri Drífa, Neskaupstað Freyja, Súgandafirði Frigg, Akranesi Fylkir, Akranesi Garðai', Vestmannaeyjum Geir goði, Reykjavík Gotta, Vestmannaeyjum Grótta, Akureyri Gulltoppur, Hólmavik Gunnbjöm, ísafirði Haraldur, Akranesi Harpa, ísafirði Helga, Hjalteyri Hilmir, Vestmannaeyjum Hrefna, Akranesi Hrönn, Akureyri Huginn I, ísafirði Huginn II, ísafiröi Iluginn III, ísafirði 311 222 130 72 151 246 959 403 344 92 532 256 18 326 634 106 92 609 77 930 318 11 484 26 84 564 1662 933 1428 Höfrungur, Réykjavík 18 Höskuldur, Sigluíirði 496 h-björn, ísafirði 614 .Tón Jiorláksson, Reýkjavík 665 Kari, Akureyri 464 Ivolbeinn ungi, Akureyri 260 Kolbrún, Akureyri 324 I.iv, Akureyri 136 Már, Reykjavík 381 Marz, Hjalteyri 157 Minnic, Akureyri 1500 Nanna, Akureyri 595 Njáll, Hafnarfirði 209 Olivette, Stykkishólmi 200 Pilot, Innri-Njarðvik 65 Síldin, Hafnarfirði 383 Sjöfn, Akranesi 181 Sjöstjarnan, Akureyri 347 Skúli fógeti, Vestmannacyjum 91 Sleipnir, Neskaupstað 357 Snorri, Siglufirði 299 Stella, Neskaupstað 1332 Svalan, ísafirði 111 Sæbjörn, ísafirði 167 Sæhrímnir, Siglufirði 753 Valur, Akranesi 132 Valur, Akureyri 18 Valbjörn, ísafirði 312 Vébjörn, ísafirði 381 þingey, Akureyri 25 þorgeir goði, Vestmannaeyjum 140 þórir, Reykjavík 38 þorsteinn, Reykjavík 694 RAGNHILD HVEGER, hin hcimsfræga kornunga sund- kona. Sjá nánar grein á 2. sfðu. Mótorbátar tveir nm nót: Draupnir/Veiga, Sigluf./Vm. 541 Erl. I./Erl. II., Vestm. 613 Erlingur/Villi, Siglufirði 932 F ylkir/Gyllir, Norðxirði 39 Kornólfur/Aldan, Seyðisf. 340 Hafþór/Rán, Akranesi 350 Ileimir/Úðafoss, Akranesi 99 Magni/þi’áinn, Neskaupst. 51 Muninn/Ægir, Sandg./Gerðum 121 Óðinn/Víðir, Garði 47 Reynir/Víðir, Eskifirði 110 DAGHEIMILIÐ VESTURB ORG Merkilegum áfanga náð í uppeldísmálum bæjarins Nú eru iiðin nálega tólf ár síð- an Isak Jónsson hóf sitt mark- vissa starf í þágu bernskunnar hér í bænum. Um langt skeið hef- ir hann og nánustu samstarfs- menn hans lagt fram krafta sína án þoss að njóta nokkurs opinbei's fjárstyrks. Á sumardaginn fyrsta bcfir fólkið í bænum safnazt saman við Austurvöll, hlýtt á ræður og lúði’ablástur og annað, sem þar hefir fram fai’ið á vegum harnavinafélagsins Sumai'gjöf og' keypt m.ci’ki dagsins. það hefir til kamms tíma verið eini fjárhags- legi stuðningui’inn, sem þessir menn liafa notið. En nú hefir uokkuð úr þessu rætzt. og fær fé- lagið á þessu ári 3000 króna ríkis- styrk og hefir helmingur þess fjár þegar vei’ið inntur af höndum. í íyrra lét bæjai’sjóður 1200 krónur af hendi rakna og í ár var sú upp- hæð tvöfölduð, þótt að vísu hafi allt til þessa á því staðið að fá það fé útboi’gað. Daghoimilið Grænaborg og allur rckstur þess, er bæjarbúum kunnur. Nú um þessar mundir eru þar skráð 128 börn og voru 111 af þeim mætt í Grænuborg í gæi’. Sú endurbót hefir verið gerð á dagheimilinu í vor, að skýli hefir verið í’eist þar í einu homi lóðarinnar, þar sem börnin geta hafzt við, þegar svo ber undir og sofið cða hvílst þegar hlýtt er veður og' gott. Tiðindamaður N. dbl. kom snöggvast að Gi’ænuboi’g í gær og sátu þá öil börnin að máltíð á lítilli grasflöt í’étt hjá skýlinu. Sum sungu hástöfum. í vetur í’éðust áhugamenn þeir, sem fyrir þessari stai’fsemi standa, í það að koma upp nýju dag- heimili fyrir Vesturbæinn. Keyptu |xeir í því skyni gamla Elliheim- ilið við Kaplaskjólsveg og létu gera á því miklar bi’eytingar, og' cr það nú hið snotrasta útlits. þetta barnaheimili hefir hlotið nafnið Vesturborg. Fyrsta hand- takið var unnið við Vesturborg 24. febrúar í vetur, en til starfa tók lieimilið 12. júní. Húsið er 8,5X8 m. að stæi’ð, ein hæð og kjallai’i. Lóðin, som fvlgir, er eitthvað á aðra dagsláttu. Kostnaðurinn, sem þessar framkvæmdir hafa haft í för með sér, er nálægt 18 þúsund- nm króna. Tekjur þær, sem Sumargjöf hef- ir haft á sumardaginn fyrsta lxafa eingöngu verið notaðar til þess að standa straum af rekstri Grænu- boi'gar, og því ekkert fé verið fyr- ir hendi, sem nota mætti til að gi’eiða þá stóru fjárhæð, ' sem þessi aukning starfseminnar hefði i för með sér. Hefir því verið til jæss ráðs gripið, að efna til happ- drættis í fjáraflaskyni. Munir þeir, sem dregið verður um, eru all- margir og sumir eigulegii'. Ein- hvern mun t. d. fýsa að fá til um- í'áða einkabifreið að Geysi og Gullfossi eða ókevpis far til Ak- ureyrar og til haka. Happdrættis- miðar verða til sölu fram til 20. júlí. Tíðindamönnum blaða var í gær hoðið að koma og skoða Vestur- horg. vestui’ eftir kom, voru eldri börnin að leikjum úti. Sum 'róluðu, önnur vógu salt, nokkur ’.éku crocket, en öll voru þau glöð og sæl í sólskininu. Af hafinu lagði liressandi andblæ. Á hlaðinu stendur dálitið hús, skilið frá að- albyggingunni. þar inni léku nokkur börn sér að ýmsum leik- föngum, bílum, vögnum og kubb- um, on hæði þar og úti á gras- blettinum voru fallegar, ungar stúlkur, þíðar í viðmóti, sem hjálpuðu börnunum og leiðbeindu þeim í leikjum sínum og störfum. Ég gaf mig á tal við nokkur hörn og ein lítil stúlka, s.em mig minnir að héti Hildui’, kom með vönd af iokasjóði, peningablómi, Framh. á 4. síðu.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.