Nýja dagblaðið - 01.07.1937, Side 2
2
N t J A
DAGBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Keppní míllí Norðmanna
og Dana í frjálsum
íþróttum
Íslendíngar myndu hafa unnið Dani
í spjótkasti og hástökki
Dagana 20. og 21. þ. m. fór
fram landskeppni í frjálsum
íþróttum milli Norðmanna og
Dana í Oslo. tírslitin urðu þau,
að Norðmenn unnu með 322,36
stigum. Danir fengu 298,45
stig.
Til fróðleiks fyrir íslenzka
íþróttamenn verður hér á eftir
tilgreindur bezti árangurinn
hjá keppendum hvorrar þjóðar-
innar um sig. Má síðan bera
það saman við árangurinn á
íþróttamótinu hér 17. júní síð-
astl., ef menn vilja gera sam-
anburð á íþróttaafrekum okkar
og beztu manna í Noregi og
Danmörku um þessar mundir.
í 100 m. lilaupi var fyrs'tur
Vagn Rasmussen (D) á 11 sek.,
annar Brandvold (N) á 11,1
sek. og þriðji Skrydstrup (D)
á 11,2 sek. — Á íþróttamótinu
hér varð Sveinn Ingvarsson
(K.R.) fyrstur á 11,4 sek.
I 800 m. hlaupi varð fyrstur
Per Lie (N) á 1 mín. 55,2 sek.,
annar Lehne (N) á 1 mín. 55,4
sek. og þriðji Rose (D) á 1
mín. 56,4 sek. Á íþróttamótinu
hér varð Guðmundur Sveins-
son (Í.R.) fyrstur á 2 mín. 9,8
sek.
í langstökki varð fremstur
Hougland (N) með 6,94 m.,
annar Fr. Ilansen (N) með
6,85 m. og þriðji Gunnar
Christensen með 6,64 m. Á
íþróttamótinu hér varð fremst-
ur Sigurður Sigurðsson (K.V.)
með 6,55 m.
í stangarstökki sigraði
Ernst Larsen (D) með 4,00 m.
Næstir voru Norðmennimir
Vold og Kaas, báðir með 3,75
m. — Á íþróttamótinu hér var
elcki keppt í stangarstökki.
í 10. km. hlaupi varð fyrst-
ur Rollnes (N) á 32 mín. 21,2
sek., annar Gundhus (N) á 32
mín. 22 sek., og þriðji H. An-.
dersen (D) 32 mín. 56,8 sek.
Á íþróttamótinu hér var ekki
keppt í þessu hlaupi.
í 1000 m. boðhlaupi sigruðu
Danir á 1 mín. 59 sek. Norð-
menn voru 2 mín. 00,2 sek. —
Hér sigraði sveit K. R. á 2 mín.
11,6 sek.
I 110 m. grindahlaupi urðu
fyrstir tveir Norðmenn (See-
berg og Albrechtsen) á
15,3 sek., þriðji Schjelderup
(N) á 16,1 sek. og fjórði Pre-
ben Nielsen (D) á 17 sek. Hér
varð fyrstur Ólafur Guðmunds
son (K.R.) á 18,1 sek.
í 400 m. hlaupi varð fyrstur
Vagn Rasmussen (D) á 50,2
sek., annar Nesset (N) á 50,4
sek. og þriðji Gunnar Christen-
sen (D) á 50,6 sek. Ilér var
ekki keppt í þessu hlaupi.
í 1500 m. hlaupi varð fyrst-
ur Lehne (N) á 4 mín. 03 sek.
og annar Per Lie (N) á 4 mín.
04,4 sek. Bezti maður Dana,
Klysner, var 4 mín. 07,4 sek.
— Hér var ekki keppt í þessu
hlaupi.
í kringlukasti varð beztur
Sörlie (N) með 46,65 m., ann-
ar Sollid (N) með 41,62 m. og
þriðji Einar Jensen (D) með
39,96 m. Næstbezti maður
Dana kastaði 37,83 m. Hér varð
fremstur Kristján Vattnes (K.
R.) á 37,34 m.
í hástökki urðu jafnir Norð-
mennirnir Stai og Harbitz Ras-
mussen, stukku báðir 1,90 m.
Bezti maður Dana, Ernst Lar-
sen, stökk 1,75 m. Hér stökk
Sigurður Sigurðsson (K.V.)
l, 79 m. og er það 4 cm. betra
en stökk bezta Dana í þessari
landskeppni.
í 5000 m. hlaupi varð fyrst-
ur Rasdahl (N) á 14 mín. 59,4
sek og annar Rolf Hansen (N)
á 15 mín. 24,4 sek. Bezti mað-
ur Dana, Hemming Larsen,
var 15 mín. 54.8 sek. Hér varð
fyrstur Haraldur Þórðarson (U.
M. F. S. Dölum) á 17 mín. 4,3
sek.
I spjótkasti varð fremstur
Olav Sunde (N) með 63,16 m.,
annar Soma (N) með 60,30 m.
og þriðji Ib Andersen (D) 51,08
m. Hér sigraði Kristján Vatt-
nes (K.R.) með 55,67 m. og
Jens Magnússon (Á.) kastaði
52,74 m. Er kast þeirra beggja
mun betra en bezta Danans i
landskeppninni.
Með tilliti til frammistöðu
Dana í þessari landskeppni
geta íslendingar verið ánægðir
með íþróttamótið, sem háð var
hér 17. júní. í tveim íþróttum,
hástökki og spjótkasti, ná okk-
ar beztu menn betri árangri en
beztu menn Dana, og í 100 m.
hlaupi, 110 m. grindahlaupi,
langstökki og kringlukasti kom-
ast okkar menn talsvert nálægt
þeim.
íþróttamenn okkar vantar
vitanlega bæði kennslu og aðra
aðstöðu til að geta staðið félög-
um sínum á Norðurlöndum
jafnfætis. Þeir verða því að
leggja þeim mun meiri rækt við
íþróttaiðkanir sínar, þegar
tíminn er hentugur, eða um
hásumarið. Nú er því sá rétti
tími til þess og vonandi sjást
merkin um áhuga þeirra og
dugnað á íþró'ttamótinu, sem
háð verður seint 1 sumar.
Verður gaman að sjá, hvemig
þeir standa sig þá, samanborið
við Dani og Norðmenn.
aðeíns Loftur.
M o r 8 ö
Míðstöðvar-eldavél
er bezfa áhaldið til
suðu og upphitunar.
Verzlunin
Guðm. H. Þorvarðss.
Óðinsgötu 12
Sími 4132.
M. L.
Vatnsdælur
og
Varahlutir
Útvegum
V atnshrúta.
Verzlunin
Guðm. H. Þorvarðss.
Óðinsgötu 12
Sími 4132.
REYKJAVÍK «
Borgarffördur.
Frá Borgarnesi til Reykja-
víkur föstudaga.
Frá Reykjavík til Borgar-
fjarðar laugavdag*,.
Afgreiðsla í Reykjavík hjá
Nýjubílastöðinni, Sími 1216
Finnbogi Guðlaugsson
Borgarnesi.
Sjálfbiekungasett 1,50
Sjálfblekungar m. glerpenna 2,00
Sjálfblekungarm. gullpenna 5,00
Litakassar barna 0,35
Teiknibólukassar 0,15
Vasahnífar, drengja, 0,50
Skæri, margar stærðir, frá 1,25
Skeiðar og gafflar frá 0,25
Smíðatól frá 0,50
Barnafötur frá 0,25
Barnaskóflur frá 0.25
Kúlukassar barna frá 0,25
Kubbakassar, bygginga 2,25
Bílar, margar teg., frá 0,85
Shyrley Temple myndir 0,10
K. Einarssora
& Björxisson9
Bankastræti 11.
Hraðferðír Akranes - Akureyri
fimmtudaga.
Hægferðir Reykjavík - Akureyri
mánudaga.
Bífreíðastöð Steíndórs
Sími 1580 (4 línur) ___
Kjötverzlanir
Seljum hreinsaðar kindagarnir.
Garnastöðin, Reykjavík.
Sími 4241.
Þrastalundur
Laugarvatn
FERÐIR ALLA DAGfA ÚR
REYKJAVÍK KL 10. — FRA
LAUGARVATNI KL. 6. —
FRÁ ÞRASTALUNDI KL. 7.
BIFREIÐASTÖÐÍSLANDS
Sími 1540 prjár línur
Tilkynniné.
Vegna langvarandi og mikiilar
liækkunar á innkaupsverði erlendis
á olíum og* á farmgjöldum verðum
vér að hækka verðlag á olíum vor-
um frá og með 1. julí n.k., hvarvetna
á landinu, eius og hér segír:
Á benzín 2 aura lítrann
- Ijósaolíu 1% eyri kílóið
- hráolíu 2 aura kílóið
Oll hráolía verður framvegis ein>
göngu seld gegn staðgreiðslu, en
staðgreíðsluafsláttur fellur níður.
Afslættír af árskaupmagni af olíum
og benzíni haldast óbreyttir.
Olíuverzlun Islands h.f.
H.S. Shell á Islandi.
<4 ÚTBREIDID NÝJA DAGBLAÐID