Nýja dagblaðið - 24.09.1937, Qupperneq 1
Geríst kaupendur
Nýja dagblaðsins
strax í dag!
ár.
Reykjavík, föstudaginn 24. sept. 1937.
221. blað
Norræna
garðyrkjusýning-
in var opnuð í gær
íslemzka deildín vek-
ur mikla athyglí
EINKASKEYTI FRÁ KBH.
Við opnun garðyrkjusýningar-
innar i Kaupmannahöfn í gœr
voru viðstaddir allir sendiherrar
Norðurlanda í Kaupmánnahöfn, og
þúsundir áhorfenda.
Blöðin í Kaupmannahöfn tala af
mikilli hrifningu um islenzku
deildina. Politiken segir, að ís-
lenzka sýningin sé stórmerkileg
og fögur, og muni draga að sér
fiesta áhorfendui’.
Sérfrœðingar, sem skoðað liafa
sýninguna, fara líka mjög lofsam-
logum orðum um íslenzku deild-
ina og telja hana einna fegursta.
Er þar byggt uþp íslenzkt lands-
iag með gróðurhúsi, þar sem
sjó má meðal annars vínber og
pálmajurtir og annan suðrœnan
gróður. Goshver hefir verið komið
fyrir á sýningarsvæðinu. Var hann
reyndur í fyrradag og gaus ágæt-
lega.
í gærkvöldi átti að verða fjöl-
menn samkoma í Moltkes Palm
og átti Bjarni Ásgeirsson að tala
þar af hálfu íslendinga, en í dag
flytur Ragnar Ásgeirsson erindi
um íslenzka garðyrkju á fjöl-
mennu móti Norrænna garð-
yrkjumanna. — FÚ.
Kin verfar
munu ekki láta
hugSallast
LONDON:
Sendiherra Bandaríkjanna í Kína
skýrir frá því, að Kínverjar muni
ekki láta hugfallast þrátt fyrir á-
rásirnar á Nanking.
I einni kínverskri fregn er á-
œtlað að 50 kínverskir menn hafi
farizt, i árásunum á Nanking í
gær, fyrir utan þá 100, sem fór-
ust, oi' ráðizt var á flóttamanna-
luoli utan borgarinnar.
I Norður Kína ráðast Japanir á
varnarlínu Kínverja, og beina
höfuðárás sinni á Paotingfu. Telja
þci r sig- liafa rofið þessa varnar-
línu, og séu nú komnir í örfárra
kílómetra fjarlægð frá Paotingfu,
og goti borgin fallið hvenær sem
er.
Kínverjar segja, að aðal vamar-
lína þeirra liggi sunnan við Pao-
tingfu, og- sé því ekki í beinni
hættu.
1 dögun í gærmorgun hættu
Japanir í 10 mínútur skothríðinni
á Shanghai, i tilefni af því, að í
gœr var hausthátíðin fyrir for-
foður keisarans. Snéru hermenn-
irnir andlitum sínum í átt til
Tokio, í virðingarskyni við keis-
arunn, en því næst var aftur tekið
til bardagans. — FÚ.
Stjórnmálabaráttan í næstu löndum
Bretar eru helsta stoð lýðræðisíns og smápjóðirnar
líta á þá sem vini sína og verndara
Víðtal víð Jónas Jónsson
Nýja dagblaðið hefir hitt Jónas Jónsson að máli og spurt
liann tíðinda úr utanför hans.
— Eg var á tveim fundum, öðrum í Kaupmannahöfn og hin-
unr í París. Auk þess kom ég víða við í Englandi og kynnti
mér ýmislegar nýjungar i samgöngumálum. Á síðustu 30 ár-
um hafa Englendingar breytt öllum gömlu malbornu vegunum
í steinSteypu- eða asfaltvegi. Með lrinni gífurlegu bifreiðaum-
ferð er óhjókvæmilegt að hafa vegina svo vandaða, þó að það
sé dýrt.
í Svíþjóð og Noregi er meginhluti þjóðveganna malborinn enn-
þá, en miklu meira vandað til heldur en við getunr gert.
Bretar hafa fundið upp ýmislegar nýjungar til að varna slvs-
um, ekki sízt á fjölförnum vegamótum. Sumt af því getur vel
átt við hér á landi. í Skotlandi sá ég bílferju við fjörð einn,
sem ég hygg að geti verið fvrirmynd fyrir okkur, þegar gerð
verður bílferja yfir Hvalfjörð, sem ekki má dragast lengi. Skil-
yrðin í Skotlandi eru að því leyti lík og hér, að munur flóðs
og fjöru er mjög mikill, en í því liggja einna mestir erfið-
leikar við Hvalfjörð.
Hvaða stjórnmála-
Slokkum farnast bezt?
— Hvað er að frétta af stjóm-
málaástandinu í þessum löndum?
— Mér virðist að ef litið er á
lýðræðislöndin, sem okkur skiptir
mestu, þá komi það í ljós, að
þjóðmálastarfið gangi bezt fyrir
þeiin flokkum, sem í mestri ein-
lægni vinna að því að atvinnulífið
blómgist, án þess að setja banka
oða ríki á höfuðið.
Tíðindamaðurinn óskaði eftir til-
teknum dæmum þessu til skýr-
ingar.
— Ef litið er á Norðurlönd, Eng-
land og Fralckland, þá sést þessi
munur glögglega. Á Norðurlönd-
um, í Noregi, Svíþjóð og Dan-
mörku, eru verkamannaflokkamir
mest skapandi. Enginn þeirra
lítur við kommúnistum nema með
góðlátlegu meðaumkvunarbrosi.
Allir þessir flokkar fordæma
mannslátrunina í Rússlandi. Eng-
inn af þessum flokkum leggur
meiri stund á að efla þjóðnýtingu
hcldur en borgaraflokkar annara
landa. En þessir þrír verkamanna-
ílokkar em sterlcustu umbóta-
flokkarnir 1 þessum löndum, en
gæta þó hófs í hverri grein. Er
þess skammt að minnast að
Stauning felldi krónuna um 20%,
án þess að kaup liækkaði, af því
hann só, að með því eina móti
gat hann tryggt almenna atvinnu-
aukningu. Dagana sem ég var í
Kaupmannahöfn, liöfðu nokkur
hundruð smiðir í stærstu skipa- !
smiðju landsins brotið löglega
gerðan starfssamning. Ekkert blað
tók harðara á þessu lieldur en j
stjórnarblað Staunings, og allir ]
leiðtogar verkamanna utan þess- :
arar verksmiðju lögðu hina mestu j
áherzlu á að fá félaga sína til að
hlýða lögum landsins og standa
við gerða sanminga. Bar sú við-
leitni tilætlaðan árangur, en
nokkra sekt urðu verkamenn að
borga fyrir frumhlaup sitt.
Ef komið er til Englands, er í-
haldsflokkurinn lang sterkasti og
afhafnamesti flokkurinn. Leiðtog-
ar hans líta að vísu á málin fró
sjónarmiði efnastéttanna, en þeir
eru vel menntir og framsýnir
menn. þeir taka hin sjálfsögð-
ustu umbóta- og mannúðamiál á
dagskró og framkvæma þau.
Verkamannaflokkurinn situr eftir
með sárt ennið og sinnir helzt
kaupstreitumálum. Blaðakostur
enska verkamannaflokksins er
lítill og lélegur, og um ófyrirsjá-
anlegan tíma verður flokkurinn í
vonlausum minnihluta.
En í Frakklandi veltur allt nú
sem stondur á frjálslynda flokkn-
um, en liann er í stjórnarsam-
vinnu við jaínaðarmenn og kom-
múnista. í andófi eru þar ihalds-
flokkarnir, sem mjög eru gegn-
sýrðir af ofbeldisstefnu nazista.
Hversvegna iéll
Leon Blum?
— Hversvegna misstu jafnaðar-
menn tök á stjórninni, sem þeir
höfðu átt svo mikinn þátt í að
mynda, eftir kosningasigurinn í
fvrra?
— því er fljótsvarað, Kommún-
istar eyðilögðu forsætisi’áðherrann
Leon Blum og flokksbróður hans,
fjármálaráðherrann. Frakkland er
eina land í heimi, utan Austur-
Evrópu, þar sem flokkur kom-
múnista hefir nokkur áhrif á
stjórn þjóðmála. Ber þar tvennt
til. Fyrst það, að skömmu eftir
heimsstríðið tókst Rússum að
kaupa stærsta og áhrifamesta blað
íranskra verkamanna og eiga það
síðan. Með áróðri þess hafa þeir
snúið mörgum verkamanni til
öfgastefnunnar. Á hinn bóginn eru
Frakkar örlyndir og gæta oft lítils
hófs í félagsmálum, þó að þeir
séu allra þjóða fremstir í mörgu,
sem snertir listræni og smekkvísi.
Jónas Jónsson.
Franska þjóðin hefir þess vegna
orðið fyrir því óláni, að þar hefir
myndazt allstór þjóðmálaflokkur,
sem stendur beint undir stjórn
Slalins og hlýðir boðum og banni
frá Moskva. Samhliða því að
verkamenn Frakklands hneigðust
að rússnesku ofbeldi, urðu efna-
stéttir Frakka gegnsýrðar af ít-
ölsku og þýzku móteitri. Fyrir ári
síðan lá við borð að auðmannaof-
heldið yrði ofan á í Frakklandi.
Og þegar Leon Blum myndaði
róðuneyti í fyrra, þá þáði hann
stuðniug kommúnista, því að
Stalin vildi umfram allt ekki fá
nazistastjórn í Frakklandi.
—■ Og hversu gafst a lþýðuflokkn-
um franska samfylkingin við
kommúnista?
— Svo illa sem við mátti hú-
ast. Kommúnistar byrjuðu með
hamslausum verkföllum um leið
og Blum tók við völdum. Og þessi
verkföll voru með sérstökum upp-
reisnarblæ, því að verkamennirnir
settust að inni í verksmiðjunum,
svo sem væru þær vígi þeirra.
Fengu þeir framgengt með þessu
móti stórfelldum ívilnunum, sem
knúðar voru fram með valdi þings
og stjórnar. Ekki linnti upphlaups-
kenndum verkföílum fyrir þessu.
Reyndi Blum með hógværð og
fortölum að koma á friði, en varð
lítið ógengt. Só hann þó að stjórn
hans myndi fljótt falla í mola, ef
slík upplausn héldi áfram og lét
hart mæta hörðu. Sennilega hefir
Stalin skipað sínu liði að gæta
meira hófs um stund, því að
friður varð meiri er frá leið. En
fjórmólaráðherrann átti í hinni
mestu vök að verjast. Tekjurnar
voru hvergi nærri fyrir útgjöldum.
Verzlunarjöfnuðurinn varð óhag-
stæður og frankinn féll.
Nýja stjórnin
í Frakklandi
Hvað sögðu Frakkar þá?
— þeir sögðu að slíka stjórn
vildu þeir ekki hafa. Og Blum
varð að segja af sér stjórnarfor-
Frh. á 4. síðu.
Hryllileg loflárás
Japanir drepa púsundir manna i
fátækrahverfunum í Kanton með
stórfelldrí loftárás
LONDON:
Cahlon, stærsta horg í Suður
Kína, varð í gær fyrir hinni stór-
kostlegustu loftárás sem átt hefir
sér stað í Kína síðan styrjöldin
hófst. Hinir dauðu og særðu eru j
sagðir skipta þúsundum. Frétta-
ritari Reuters þar í borg lýsir ó- ;
rásinni og afleiðingum hennar ,
þannig: j
Tiu risavaxnar sprengjuflugvél- ,
ar flugu yfir þéttbýlasta liluta ;
Canton, þar sem hinir fátækustu
Kínverjar búa, og létu rigna yfir
hvcrfið sprengikúlum í 15 mínút-
ur viðstöðulaust. Kínverjar reyndu
að veita þeim viðnám með hern-
aðarflugvélum sínum og loftvarn-
arbyssum, en sú tilraun varð al-
gerlega árangurslaus. Árás þessi
olli engu tjóni í útlendingahverf-
inu.
Sprengikúlurnar tættu allt að
því fimmtíu metra skörð í húsa- '
raðirnar, og heil stræti eru alveg
í rústum. Lík lógu í hrönnum ó
götunum, og þegar árósinni létti,
sóust lconur og börn æðandi um
valinn, til þess að leita að ætt-
ingjum og vinum. Fólkið limlestist
þúsundum saman, þar á meðal
fjöldi barna.
í gær var ólitið, að tilgangur
Japana með árósunum á Canton
væri sá, að eyðileggja jórnbraut-
arlínuna, en nú er helzt haldið að
Japanar miði að því að brjóta nið-
ur viðnámsþrótt kínversku þjóð-
arinnar.
í gær réðust japanskar flugvél-
ar einnig á vígi, sem eru miðja
vegu milli Shanghai og Nanking.
Tóku 30 flugvélar þótt í þeirri
órás. En á þessum stað hafa Kín-
verjar lokað fljótinu til þess að
liindra óvinaherskip í að komast
til Nanking. Uni árangur þessarar
árósar hefir ekki frétzt. — FÚ