Nýja dagblaðið - 24.09.1937, Page 4

Nýja dagblaðið - 24.09.1937, Page 4
REYKJAVlK, 24. SEPT. 1937 |Gamla Bió| ,Aðeíns eína nótíÉ Listavel leikin amerísk talmynd, gerð eftir leik- ritinu „ONLY YESTERDAY Aðalhlutverkin leika, hin fagra leikkona Mai’garet Sullavan og hlaut hún heimsfrægð fyrir leik sinn í þessu hlutverki, JOHN BOLES og drengurinn JIMMY BUTTLER. NYI Ai D AGBLAÐIÐ aðeins Loftur* ,Lo!tárás( á Gautaborg Framh. af 2. síðu. gegn friðsömum borgurum, kvenfólki og börnum, jafnt sem fullorðnum karlmönnum. jÞess vegna er það, að mjög mikil á- herzla er nú á það lögð að kenna almenningi að verjast og bjarga sér í stríði. Mér þótti, að vonum mjög merkilegt að sjá þessar stóru varnaræfingar, ég gat ekki annað en dáðst að hugdirfsku og leikni flugmannanna, snar- leilc brunaliðsmannanna og skipulagi lögreglunnar. Bak við þennan „leik“, ef svo mætti kalla það, er því miður kaldur veruleikinn. Svo sem ólgan er nú í heiminum, veit raunar enginn, hvenær ófriðareldurinn getur brotist út, svo sá „leik- ur“ sem fram fór þarna í Gautaborg getur orðið bitur veruleiki, jafnvel á hinum frið- sælu og fögru Norðurlöndum. Guðl. Rósinkranz. AimáJl Veðurspá fyrir Reykjavík og ná- grenni: Suðvestan átt fyrrihluta dags, en léttir til með norðanátt er á daginn. líður. Næturlæknir er í nótt Alfred Gíslason, Ljósvallagötu 10, sími 3894. — Næturvörður er í Reykja- víkur apóteki og lyfjabúðinni Ið- un. ÚtvarpaS í kvöld: 19,20 Hljóm- plötur: Harmoníkulög. 19,55 Aug- lýsingar. 20,00 Fréttir. 20,30 Út- varpssagan. 21,00 Hljómplötur: a) íslenzk lög; b) Valsar (til kl. 22). Trúlofun. Opinberað hafa trúlof- un sína ungfrú Sigrún Ingólfsdótt- ii frá Fjósatungu og Kristján Karlsson skólastjóri á Hólum. pýzkubók eftir Dr. Max Keil er nýlega komin út. Útgefandi er Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar. pað mun tilætlunin að ann- að bindi komi síðar og þessi bók sé aðeins notuð til kennslu li/2—2 fyrstu námsárin. Stefán Guðmundsson söng í Gamla Bíó i gærkvöldi fyrir fullu húsi. Seldust aðgöngumiðarnir á örskömmum tíma á laugardags- kvöldið. ísfisksalan. Nýlega hafa selt Geir í Wesermunde 72 tonn fyrir 17.100 mörk og Hafsteinn í Cux- i haven 95 tonn fyrir 18.900 mörk. ] Nokkrir togarar eru nú á leið til j þýzkalands. j Siglfirðinyar töpuðu. í fyrradag kom hingað til bæjarins knatt- spyrnuflokkur frá Siglufirði, og eru þeir gestir K. R. þetta er 2. aldursflokkur. Kepptu þeir í gær við 2. flokk K. R. og lauk þeim leik með sigri K. R.-inga með 2:1. í dag keppa Siglfirðingamir við 2. flokk Víkings. Hraðkeppni í knattspyrnu. — Knattspyrnuráð Reykjavíkur hefir ákveðið að stofna til hraðkeppni í knattspyrnu fyrir alla aldursflokka uú næstu sunnudaga. Hafa verið gefnir bikarar til að keppa um. Á sunnudaginn kemur keppa I. flokkur og III. flokkpr. Hefst III. flokks keppnin kl. 10 f. h. og I. flokks keppnin kl. 2 e. li. Keppni í II. flokki fer fram sunnudaginn 3. október. — Knattspyrnufélögin í bænum taka öll þátt í þessari keppni. Hver leikur er aðeins 30 Stjórnmálabaráttan í næstu löndum F'ramh. ní 1. slðu. mennskunni og fjármálaráðherr- ann að hverfa frá sínu starfi. Ráðir voru viðurkcnndir hæfileika- menn. En atvinnulífið þoldi ekki kröfur kommúnista í framkvæmd. Vinnuvikan var orðin 40 stundir, •öng- frí með fullu kaupi, og al- menn kauphækkun. Frjálslyndi flokkurinn tók nú við forustunni, breði í ráðuneyt- inu og fjármálastjórninni. Alþýðu- flokkurinn og kommúnistar styðja þessa stjórn ennþá. Vita, að ef hún fellur, þá er stutt yfir í of- 1 >o 1 d i auðmannastéttarinnar. - Og hvað er að segja af Leon Blum? — Hann játar hreinskilnislega, að margar af þeim umbótum, sem hann kom ái, liafi komið 20 árum of fljótt. Hann veit, að ófram— kvæmanlegar kröfur kommúnista hafo orðið honum að falli. En hann styrkir frjálslyndu leiðtog- ana, sem nú stýra landinu. Fjár- málaráðherrann er talinn mjög mikilhæfur maður. Hann hefir mín. í I. og II. flokki og 20 mín. í III. flokki. Með því að hafa leik- ann svona stutt má ljúka keppn- inni innan hvers flokks í einni lotu. í fyrradag löyðu á land síldar- afla sinn á Akranesi 5 bátar. Voru 344 mál lögð í bræðslu, 200 tunn- ur frystar og 25 saltaðar. Mestan afla hafði Bára eða 127 mál. f gær komu til Akraness af rek- netaveiðum fyrir Norðurlandi vél- bátarnir Óskar og Álftin, og eru þá allir síldveiðibátamir komnir til Akraness. — FÚ. Jónas Thoroddsen cand. jur. hefir verið settur af dómsmála- ráðuneytinu til þess að þjóna bæjarfógetaembættinu í Neskaup- stað fyrst um sinn. Nokkur síld og millisíld hefir aflazt í Mjóafirði í þessari viku. I-Iafa bátar frá Seyðisfirði lagt í Iiræðsluna þar 443 mál og bátar frá Mjóafirði 200 mál. — Frá síðast- liðnum áramótum lil dagsins í dag hafa síldarbræðslunni í Seyð- isfirði borizt alls 46000 má). Er dálítið af því óbrætt enn. — FÚ. tekið upp gamla lagið, að spara, sýna ráðdeild og- útsjón og reynir að hlynna að framleiðslunni. Stjórnin gerir nú sitt til að ldifra niður stigann aftur. Ráðuneytið hefir snúið sér til verkamanna og beðið þá að lengja vinnuvikuna aftur úr 40 tímum. Frakkar gætu ebki keppt við nábúaþjóðirnar, nema með samræmi í kaupi og starfstíma. Ekki er auðvelt að spá liversu þeim málum lýkur, en í’eynsla Frakka sýnir hvílík eyðilegging það er, að láta stjórnmálablöð og flokka vera handbendi útlendra þjóðhöfðingja. Hvað er að frétta af nazist- um í þessum löndum? — A Norðurlöndum eru þeir á- litnar broslegar gerfifígúrur. í Englandi reyndi æfintýramaður að nafni Sir Mosley, að efla slíkan ofbeldisflokk, en verður ekki á- gengt. Helzta draumsjón lians er að fá áð halda æsingaræður og kröfugöngur móti Gyðingum í fátækrahverfi Lundúnaborgar. En hann fær ekki að leika þar listir sínar. — Hver .er helzta stoð lýðfrels- isins í heiminum? Vitaskuld Bretland. þangað hta nllar hinar frjálsu smáþjóðir oftir forustu og vernd. Svissar, Belgar, Hollendingar, Norðui'- landabúar, Finnar og jafnvel hin- ar litlu þjóðir, sem búa milli Rússa og Eystrasalts, líta á Breta sem vini sína og vemdara. En þetta á þó alveg sérstaklega við um okkur íslendinga. Bæði í Napoleons-styrjöldinni og heims- strfðinu mikla lifði íslenzka þjóðin í skjóli brezka flotans. Og það verður íslendingum sjálfum að kenna, en ekki Bretum, ef sú vörn verður ekki nægileg frelsi landsins og sjálfstæði á ókomn- um öldum. Hin mikla hervæðing Breta er að vísu sorgleg nauðsyn en óhjákvæmileg til þess, að sú hin mikla forgönguþjóð frelsis og lýðstjórnar geti enn sem fyrr lagt þyngsta lóðið á metaskál- arnar, þar sem skipað er örlög- um þjóðanna. — Eru flokkadeilur um hinar miklu hervarnir Breta? 5. ÁRGANGUR — 221. BLAÐ Nýja Bíó Svarta herbergið Efnismikil og óvenju- lega áhrifarik ameríak kvikmynd, er gerist í gömlu sloti í Auaturríki á tímpbilinu frá 1740 til 1775. Tvö aðalhlut- verkin De Berghman- bræðurna leikur: Borís KarlofS. Aukamynd: Gullgraíarínn amerísk skopmynd. Böm fá ekki aögang. TtlkpUBÍBfAf nm Menn teknir í þjónuptu á á Lokastíg 20 A, niðri. — Nei. Ihaldsflokkurinn gengst fyrir hervæðingunni, en verka- menn fylgja stefnunni í öllum að- alatriðum. Englendingar auka nú hæði flota sinn og' loftflota alveg gífurloga. Á hverri nóttu eru flugvélar og Ieitarljós í nánd við stóvhorgir Englands að búa þjóð- ina undir að hrinda sókn aðkom- andi fjandmanna. — Hverju sætir slík samstilling flokkanna? í því liggur yfirburður Eng- londinga. íhaldsmennirnir verja liina fornu menningu, en þeir eru jafnframt hugsýnir framfaramenn. Verkamennirnir sækja fram til að fá bætt kjör sín. En þeir vilja lika vernda heimsveldið, flotann, Parlamentið og kónginn. þeir eru ílialdsmenn að hálfu leyti. Ef nokkuð ibjargar menningu vest- rænna þjóða, verður það hin sterka forusta Englendinga. ÖRI.AGAFJÖTRAR 49 gott við Blanche, ef maður hefir bara rétt lag’ á henni. — Heldur þú að þessi Courtney muni hafa það lag’? — Nei, hann er of þreklaus. Auk þess virðist hon- um vera ánægja að því að vera þjónn hennar, en það er röng aðferð við jafn hégómlega stúlku. — Ég býst við því. — Mér hefir stundum dottið í hug, hvílíkt óhapp það muni hafa verið, að Frank Farfax lifði það ekki að erfa móður sína. — Frank Farfax, tók ,Kit upp eftir henni. Hver var það? — Hefir þú ekkert heyrt um það ? Frank var son- ur síðari konu bróður míns. 1 erfðaskrá sinni eftir- lét hún honum allar eignir sínar; en hann dó áður an hann gat gert kröfu til eignanna, og þá var Luke næsti erfingi. Systkinin hafa aldrei getað fyrirgéfið stjúpmóður sinni að hún skyldi ætla að setja þau hjá, en hvað sem því líður, þá var hún einhver sú allra bezta kona, sem ég hefi kynnzt. Hún vissi jafn- vel og ég, að Bluehayes þurfti að fá áreiðanlegri um- ráðamann heldur en Luke, ef allt átti ekki að fara út í veður og vind. I bréfinu sem fylgdi erfða- skránni, sézt hver ætlun hennar var. Hún biður son sinn að vera örlátan við stjúpsystkini sín, og láta þeim í té það sem þau þurfi. Ilún biður hann jafn-. framt íið stjórna búskapnum, felur honum umráð eignarinnar, og segist treysta því, að honum takist að lifa í sátt og samlyndi við þau, og sýna þeim fram á, að þetta verði þeim öllum fyrir beztu. Þann- ig hafði hún hugsað sér það. — Jæja, ég er farin að segja þér af einkamálum fjölskyldunnar, en það er víst alltaf svo með þessar gömlu konur, að þær þurfa að leysa frá skjóðunni við einhvern sem vill hlusta á þær. Kit var henni þakklátur fyrir trúnað þann, er hún sýndi honum, en honum varð, að hugsa hvernig henni yrði við, ef hún vissi undirferli og sviksemi bróðursonar síns, og hitt, hve kunnugur hann vav þessum málum öllum. — Hvernig er það með yngrí bróðurinn, Cyril? Er hann ekki trúlofaður Rose Delany? spurði Kit. — Það álitum við að væri einusinni, en það er víst búið að vera, því miður. Margaret horfði yfir til Blanche. Courtney sat við hlið hennar, og virtist vera við því búinn að gleypa hvert orð er kom frá vörum hennar. Litlu síðar stóðu þau upp, og komu þangað, er Kit og Margaret sátu. Kit var í fersku minni skilnaður þeirra fyrir fá- um dögum, þá er hún hafði verið gestur hans, og átti hann fastlega von á að mæta frá hennar hálfu drembilegu fálæti. En honum til mikillar undrunar, leit hún til hans með vingjarnlegu brosi, eins og þau væru beztu kunningjar, og fas hennar var alúðlegt, er hún settist hjá honum og ávarpaði hann. — Veturinn er að koma, mælti hún og horfði út um gluggann á gulnað trjálaufið úti fyrir. — Vetrarveðráttan hér á Englandi er fjarska þreytandi. Ég geri ráð fyrir að herra Springville muni taka sig upp og yfirgefa þessar slóðir, eins og svo margir aðrir, og flytja til hlýrri og betri landa. — Ég hefi ekki tekið neina ákvörðun um það enn- þá. — Það fer ekki að verða seinna vænna að ákveða það. Annars átt þú á hættu að verða einn eftir. Courtney gerði sitt ýtrasta til að bæla niður geispa. — Hvenær búist þið við að fara? spurði Kit. — Eftir þrjár vikur. Luke hefir leigt smáslot í Cannes, en við verðum í París til nýárs. — En hvaða ákvörðun hefir lierra Courtney tek- ið, — mælti Kit. Courtney leit fyrst á Margareti og síðan á Blanche, eins og hann væri að leita álits þeirra um hvort hann þyrfti að svara spurningunni. — Ja, — ég hef--------ég er satt að segja alveg óráðinn í því, hvert ég fer. Ég hugsa að ég fari til Cannes. Það er skemmtilegur staður. Margaret hleypti í brýrnar án þess að mikið bæri á. Henni hafði ekki tekizt að fella sig viö Courtney. Henni virtist hann vera jafn veiklyndur, — en þó sjálfbyrgingslegur, — og bróðursystkin hennar. Hún óttaðist að Blanche kynni að taka hon- um, út úr leiðindum, þegar minnst vonum varði, og

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.