Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 22.10.1937, Qupperneq 1

Nýja dagblaðið - 22.10.1937, Qupperneq 1
AÐAL Astasaga ársíns er MELEESA rv*i/\ ID/\G»IBIL/\OIHÐ 5. ár. Reykjavík, föstudaginn 22. október 1937. 245. blað ANN ÁLL Úrslitasígur uppreisnar- Ihaldíð ielldí þær tíl- lögur að raímagn tíl suðu yrðí á 8 aura og rafmagn tíl hítun- ar á 3 aura 295. dagur ársins. Sólarupprás kl. 7.34. Sólarlag kl. 4.42. Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 6.55. Veðrið. Allhvasst horðaustan, úrkomulaust. Kaldara. Ljósatími bifreiða er frá kl. 5.15 að kvöldi til kl. 5.10 að morgni. Næturlæknir er í nótt Kristín Ólafsdóttir, Ingólfs- stræti 14, sími 2161. — Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunn og Reykjavíkur Apóteki. Útvarpið. 19.20 Þingfréttir. 19.50 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpssagan. 20.55 Tónleikar Tónlistarskólans. 21.35 Hljómplötur: íslenzk lög. 22.00 Dag- skrárlok. Skipafréttir. Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn í gærmorgun. Goðafoss kom að vestan og norðan í gærmorgun. Brúarfoss fór frá London í gær. Dettifoss er á leið til Vestmannaeyja frá Hull. Lagarfoss fór frá Djúpavogi í gærmorgun áleiðis til Bergen. Selfoss kom frá útlöndum í gærkvöldi. — Esja var á Djúpavogi kl. 5 í gær. Súðin var á Reykhólum á sama tíma. Guðspekifélagið. Sameiginlegan fund halda Reykja- víkurstúkan og Septíma, föstudaginn 22. þ. m. kl. 8%. Fundarefni: Rætt um breytingu á fundardegi. Bifreiðarstjórinn á RE. 1228 kom í gærkvöldi á lög- reglustöðina og tilkynnti að drengur á hjóli hefði orðið fyrir bifreið sinni og hefði drengurinn verið fluttur á Lands- spítalann. Málið er í rannsókn. Höfnin. Kári kom frá Englandi í fyrrinótt og fór aftur á veiðar í gær. Brimir var væntanlegur frá Norðfirði í nótt. Vetrarstarfsemi íþróttaSélaganna íþróttafélög bæjarins hafa nú hafiö vetrarstarfsemi sína og verða íþróttir og leikfimi iðkaðar af miklu kappi í ár, ekki síður en í fyrra. Ármenningar munu stunda leikfimi sína í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar og fimleikasal Menntaskólans, í 8 flokkum alls. Auk leikfiminnar verða á vegum Ármanns iðkuð glíma, frjálsar íþróttir, handknattleikur, sund, róður, hnefaleikar og loks skíðaferðir, þegar snjóa tekur og skíðafæri kemur. Skíða- kennari félagsins í vetur verður Ketill Qlafsson frá Siglufirði. Alls munu hátt á 6. hundrað manns stunda leikfimi og íþróttir á vegum Ármanns í vetur. íþróttafélag Reykjavíkur æfir 9 leik- fimisflokka í húsi sínu og verða um 30 í hverjum flokki. Sömuleiðis æfir það Badminton og senn verður byrjað á handknattleik. Ennfremur er lögð stund á sund og skíðaferðir verða að sjálfsögðu teknar upp þegar færi gefst. Á vegum Knattspyrnufélags Reykja- víkur æfa 9 flokkar leikfimi í húsi þess, alls um 200 manns. 40—50 menn leggja stund á frjálsar íþróttir og innanhúss-knattspyrnuæf- ingar verða teknar upp eftir nýár. Sund iðka um 30 manns úr K.R. Skíða- göngur hefjast þegar snjór fellur. íþróttafélag kvenna, hefir leikfimi og Badminton og er hvorttveggja vel sótt og mikill áhugi. Úr Fram munu 35—45 iðka leikfimi og innanhúss-knattspyrnuæfingar og um 40 manns úr Val. Alls leggja því um 1300 manns úr þessum sex félögum stund á leikfimi og íþróttir hér í bænum í vetur, en vit- anlega iðkar fjöldi fólks leikfimi í skólum. matma á Norður- Spáiti Háttsettir menn í stjórnarhernum ásakaðir Syrir samsæri LONDON: Uppreisnarmenn á Spáni segjast nú vera komnir inn í úthverfi Gijon-borg- ar og muni hún falla fljótlega. Innan borgarinnar er sagt að ríki hið mesta stjórnleysi, og að hvítir fánar blakti þar víðsvegar við hún. í Madrid er einnig búizt við falli Gi- jon-borgar á hverri stundu. Munu þá uppreisnarmenn hafa náð á sitt vald öllum hafnai'borgum á Norður-Spáni, sem nokkra þýðingu hafa, og má því gera ráð fyrir að þeir sendi þann her- afla, sem þar hefir barizt, til annarra vígstöðva. í frétt frá Valencia er sagt, að þar hafi verið handteknir þrír háttsettir embættismenn innan hersins, og er þeim gefið að sök, að hafa tekið þátt í samsæri gegn stjórninni og bera á- byrgð á því, að Malaga féll í hendur uppreisnarmönnum. Einn þessara manna er Ascensio hershöfðingi, sá er var aðstoöar-hermálaráöherra í stjórn Caballeros og veitti forustu suðurher stjórnarinnar. Annar hinna handteknu er fyrrverandi forseti hei'foringjaráðs- ins, og sá þriðji herforingi úr her spönsku stjörnarinnar á Suður-Spáni. — FÚ. Umrædur í enska þmgínu um utan- ríkísmál Stjjórnarandstœð- infiur tortryfifíja ítali. LONDON: Fundir hófust í báðum deildum enska þingsins í gær og voru utanríkis- málin þegar tekin á dagskrá. í framsöguræðu sinni sagði Eden m. a. að ítalir hefðu á fundi hlutleysis- nefndarinnar í fyrradag lagt fram góð- an skerf til að fá samkomulag um brottflutning sjálfboðaliðanna. Attlee, foringi 'Verkamannaflokksins, taldi samkomulagið í hlutleysisnefnd- inni gagnslaust, ef ítalir 'hættu ekki alveg afskiptum af Spánarstríðinu. Hvað ætlar stjónin sér að gera? spurði hann, ef ítalir halda áfram að flytja liðsauka til Spánar meðan hinar fyrir- huguðu rannsóknir fara fram? A. Sinclair, foringi frjálslynda flokksins, tók í sama streng. Hann kvaðst ekki trúa öðru, en að ítalir ætl- uðu sér ekkert annað með þessari málamiðlun, en að tefja málið, meðan þeir væru að flytja aukið lið til Spán- ar. Hann lagði til, að landamæri Frakk- lands og Spánar yrðu þegar opnuð, ef ítalir hættu ekki öllum hersendingum til Spánar. — FÚ. Gunnar Gunnarsson fasr JifízU bóUmennta- verðlaun. EINKASKEYTI FRÁ KAUPMANN AHÖFN í gær voru Gunnari Gunnarssyni skáldi afhent á háskólanum í Hamborg hin svonefndu Henrik Steffens verð- laun, 10 þúsund krónur að upphæð. FÚ. Aðalmálið á bæjarstjórnar- fundinum í gær var að taka endanlega ákvörðun um raf- magnsverðið. Fyrri umræða um frumvarp undirnefndarinnar sem bæjarráðið kaus til að at- huga málið, fór fram á síðasta bæj arstj órnarf undi. Urðu um málið talsverðar umræður, en endanleg niður- staða varð sú, að frumvarpið var samþykkt óbreytt og allar breytingartillögur felldar. Samkvæmt því verður verð á ljósarafmagni 40 aurar á kwst., suðurafmagni 10 aurar og hit- unarrafmagni 4 aurar. Til eru þó nokkrar sértaxtar, sem menn geta valið um, en verðið getur þó samkvæmt þeim varla orðið lægra en þetta. Aðalbj. Sigurðardóttir hafði, samkvæmt tillögum fulltrúa- ráðs Framsóknarfélaganna bor- ið fram tillögu um það að verðið á suðurafmagni yrði 8 aurar og verðið á hitunarrafmagni 3 aur- ar. í ræðu, sem frú Aðalbjörg hélt, sýndi hún fram á að þrátt fyrir hækkað verð á ljósaraf- magni, mætti ekki búast við neitt verulega aukinni notkun rafmagns til lýsingar. Notkun rafmagns til suðu og hitunar myndi hinsvegar aukast veru- lega, ef verðið yrði hagstætt fyrir kaupendur. í þeim efnum mætti ekki eingöngu miða við verð á kolum. Þá myndi notk- unin ekki aukast verulega, því stofnkostnaðurinn við að taka upp rafmagnssuðu væri það mikill, að menn leggja ekki í að fá sér tækin, án þess að hafa einhverja von um hagnað í framtíðinni. Sama mætti segja um hitunina. Þess vegna væri það óhjákvæmilegt, að hafa verðið á suðurafmagninu og hit- unarrafmagninu það lágt, að neytendum væri það tvímæla- laust hagkvæmara að nota raf- magn heldur en kol og gas. Báðar þessar tillögur voru felldar. Jafnaðarmenn greiddu atkvæði með þeim, en íhaldið allt á móti. í sambandi við þetta mál urðu talsverðar umræður um verðið á rafsuðutækjunum og komu ýmsar tillögur fram í sambandi við það. Verður þeirra nánar getið síðar. Hitaveitan. Sú fyrirspurn var lögð fyrir borgarstjóra, hvernig boranirn- Anthony Eden. Utanríkismálastefna ensku stjórnarinnar varð fyrir hörðum árásum frá stjórnarandstæð- ingum í enska þinginu í gær. Sjá á öðrum stað. ar á Reykjum hefðu heppnazt í sumar. Sagði borgarstjóri að ekki hefði verið grafin nema ein hola og væri hún nú orðin 240 m. djúp. Þegar komið var ofan í 50 m. dýpi, var vatnsmagnið orðið 10 lítrar, en síðan hefir það ekki orðið meira. Borgar- { stjóri sagði að verkfræðingarnir : gerðu sér góðar vonir um, að ] vatnið yrði meira, þegar komið væri lengra niður, en holan ætti að vera 350 m. djúp. Þá sagði hann að nú ætti líka að fara að grafa með gamla bornum og þá mætti búast við að meira vatn fyndist! Borgarstjóri sagði að alls væri vatnsmagnið á Reykjum orðið 160 lítrar á sek. og væri það helmingur þess vatnsmagns, er áætlað væri a§ þyrfti til að hita upp Reykjavíkurbæ eins og hann er nú. Atvinnubótavinnan. Borgarstjóri skýrði frá því á fundinum, að 100 manns hefðu byrjað í atvinnubótavinnu í gærmorgun. í tilefni af fram- kominni fyrirspurn skýrði hann frá því, að af þeim 450 þús. kr. (Vá frá ríkinu), sem áætlað hefði verið að verja til atvinnu- bóta á árinu, væru ekki nema 50 þús. kr. eftir. Bærinn hefði heimild í fjárhagsáætlun til að taka 100 þús. kr. að láni í þessu skyni og myndi það verða gert. Ríkisstjórnin myndi sennilega leggja fram jafn mikið fé á móti. Fulltrúi kommúnista bar fram þá tillögu að fjölga skyldi þegar • í atvinnubótavinnunni upp í 200 manns. Þegar sú til- laga kom fram, lagði Jón Axel fram þá tillögu að fjölgað skyldi upp í 250 manns. Báðum tillög- um var vísað til bæjarráðs. RefíUjaviUurbar. í tilefni af þeim úrskurði lög- manns, að eiganda Reykjavík- urbars væri heimilt að opna hann aftur, endurnýjaði bæjar- stjórnin þá samþykkt sína, að Barinn skyldi vera lokaður. T í Ð I N D I úr Vesim.eyjitm Netagerðin. Síðan í júníbyrjun hefir verið unnið með tveimur vöktum á sólarhring. Framleidd eru daglega um 50 þorska- 'net. Netin eru unnin úr ítölsku neta- ígarni, og eru að gæðum og verði sam- :bærileg erlendri framleiðslu. Olíusamlagið. Olíusamlag Vestmannaeyja er nú að láta reisa olíugeymi, sem á að taka 800 tonn af olíu. Verkinu miðar vel áfram og verður geymirinn tilbúinn í næsta mánuði og mun þá Samlagið fá olíu og hefja starfsemi sína. Almenn þátttaka er í félagsskap þessum, sem er með samvinnusniði, og gera útgerðarmenn sér vonir um að með þessu muni hvorttveggja takast, að lækka söluverð olíunnar og að koma í veg fyrir frekari verðhækkun hring- anna hér, en orðið er. Hraðfrystihús. Ráðagerðir eru frammi í Vestmanna- eyjum, um að bæta úr vöntun hrað- fystihúss þar, á þann hátt, að auka og endurbæta húsakynni ísfélags Vest- mannaeyja og koma þar upp hrað- frystitækjum í sambandi við aðrar end- urbætur. Gert er ráð fyrir, að Fiski- málanefnd veiti lán að einhverju leyti til þessara framkvæmda. Fisksölusamlagið. Aðalfundur Fisksölusamlags Vest- mannaeyja var nýlega haldinn. End- urkosnir voru í stjórn með 9 atkvæöum þeir Ársæll Sveinsson, Jóhann Þ. Jó- sefsson, Jónas Jónsson, Gunnar M. Jónsson og Guðlaugur Brynjólfsson. Endurkosnir voru með 5 atkvæðum til þess að mæta á aðalfundi Sölusam- bands íslenzkra fiskframleiðenda, þeir Ólafur Auðunnsson, Guðlaugur Bryn- jólfsson, Eiríkur Ásbjörnsson, Ársæll Sveinsson og Jónas Jónsson. Úrslit kosníng- airna í Noregí Nazistai* töpiiðu 51 fulltrúa kommiínistar 29 EINKASKEYTI FRÁ KAUPMANN AHÖFN. Úrslit bæjar- og sveitarstjórnarkosn- inganna í Noregi hafa orðið þau, að Verkamannaflokkurinn fékk 4224 full- trúa, en hafði áður 3882. Hægri flokk- urinn fékk 808 fulltrúa, en hafði áður 706. Borgaralegir listar minni flokka, sem slegið höfðu sér saman, fengu 1677 fulltrúa, en höfðu áður 1755. Þjóð- ernissinnaflokkurinn fékk 7 fulltrúa, hafði áður 58. Bændaflokkurinn 1043 fulltrúa, en hafði áður 1031. Vinstri flokkurinn fékk 1234 fulltrúa, hafði áð- ur 1230. Kirkjulegir flokkar 95 fulltrúa, höfðu áður 90. Kommúnistar 101, höfðu áður 130. Smábændur og fiskimenn fengu 61 fulltrúa, höfðu áður 65 og ó- pólitískir flokkar og flokksleysingjar 885 fulltrúa, höfðu áður 1139. Verka- mannaflokkurinn fékk 40% af öllum greiddum atkvæðum. — FÚ.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.