Nýja dagblaðið - 22.01.1938, Blaðsíða 1
B-lístinn
Símar:
1529 og 1629.
rNTj/\
ID/\Q>IBIli\OIHÐ
6. ár. P Reykjavík, laugardaginn 22. janúar 1938. 17. blað
ANN ÁLL
22. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 9.40. Sólarlag kl. 3.45.
Árdegisháflæður 1 Reykjavík kl. 9.30.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 4 síðdegis til kl. 9.15 árdegis.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson, Ránar-
götu 12, sími 2234. Næturvörður er í
Ingólfs Apóteki og Laugavegs Apóteki.
Útvarpið.
8.30 Dönskukennsla. 10.00 Veðurfr.
12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfr.
18.45 Þýzkukennsla. 19.10 Veðurfr. 19.20
Hljómpl.: Endurtekin lög. 19.40 Aug-
lýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Leikrit:
„Happið", eftir Pál J. Árdal (Leikstj.:
Þorst. Ö. Stephensen). 21.45 Danslög.
Skíðafélag Reykjavíkur
fer í skíðaferð á sunnudagsmorgmi,
ef veður og færi leyfir. Lagt af stað frá
Austurvelli kl. 9.
Messa
i Laugarnesskóla kl. 5 á morgun.
Ragnar Benediktsson stud. theol. pré-
dikar. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd.
Dómur í lögreglurétti.
í gær var kveðinn upp dómur yíir
Kristvin Guðbrandssyni, sem rændi
mág sinn fyrir nokkru síðan og faldi
peningana í Flosaporti. Var hann
dæmdur til 8 mánaða betrunarhúss-
vinnu.
Ragnar Jónsson,
fulltrúi lögreglustjóra, hefir verið
sklpaður setudómari í máli, sem risið
hefir út af sölu Kolbeins unga frá
Akureyri. Málavextir eru á þá leið, aö
fyrir nokkru síðan keypti H.f. Vest-
fjarðabátur Kolbein unga af Sigurði
Bjamasyni útgerðarmanni á Akureyrí,
í því skyni að nota hann sem flutn-
inga- og póstskip við Vestfirði. Fór
fram aukaskoðun á skipinu á Akureyri
í sumar vegna þessa, og var vottorð
gefið af skipaskoðunarmanni. En þeg-
ar til ísafjarðar kom, var skipið dæmt
ósjófært og hefir legið þar aðgerðalaust
síðan. Ragnar Jónsson fulltrúi fór í
fyrrakvöld áleiðis til ísafjarðar og Ak-
ureyrar.
Charlie Chan í óperunni,
heitir myndin, sem nú er sýnd í
Nýja Bíó. Charlie Chan er frægasti
leynilögreglumaður heimsins, að Sher-
lock Holmes undanteknum. Warner
Oland hefir skapað frægð hans í kvik-
myndum. Charlie Chan er fyrst og
fremst Kínverji að hugsunarhætti, eins
og hin mörgu, snjöllu, kínversku orða-
tiltæki hans sýna. Nákvæmni og rólyndi
Austurlandabúans hafa gert hann að
hinum óskeikanlega lögreglumanni.
Hann grípur sjaldan til skammbyss-
unnar, lætur samstarfsmenn sína hafa
sínar skoðanir á drýgðum glæp, eða
gerir góðlátlegt en meinlegt grín að
þeim. En lausnin kemur, rökrétt hugs-
uð og öllum á óvænt, meðstarfsmönn-
um, glæpamanninum, hinum grunaða
og ekki sízt áhorfendum frammi í saln-
um — öllum nema Charlie Chan sjálf-
um. —
Bændafundir
stóðu yfir í Árnessýslu og Gull-
bringu- og Kjósarsýslu fyrir áramótin,
og munu slíkir fundir hefjast í öðrum
sýslum áður en langt um líður. Þessir
fundír eru haldnir til fræðslu bændum
um ýms mál er varða atvinnuveg
þeirra, með tilstyrk Búnaðarfélags ís-
lands, hvað snertir leiðbeiningar og
samkvæmt óskum hlutaðeigandi bún-
aðarfélaga og búnaðarsambanda.
Einkasímar í sveitum.
í fjárlögum þessa árs eru veittar 20
þúsundir króna til einkasima í sveit-
um. Styrkur sá, sem veittur er til slikra
einkasíma, er % kostnaöar, og háður
því skilyrði, að einkasímafélag hafi
verið myndað í hlutaðeigandi byggð-
arlagi og félagssamþykkt fengizt stað-
fest. Umsóknlr um styrk skal senda til
póst- og símamálastjórnarinnar fyrir
1. maí.
Árshátíð Samvinnuskólans
verður haldin i Oddfellow-húsinu á
sunnudagskvöldið kemur og hefst kl.
Hvernig efnír íhaldið
loforð sín?
ISvafa Jónasdóttír
á Syðra-Fjalli
Það loíaði að hækka ekki
skuldir bæjarins fyrir seín-
ustu bæj arstjórnarkosníngar,
en heíir hækkað þær um
þriðjung
Hún andaðist að heimili sínu,
Syðra-Fjalli í Aðaldal 11. þ. m.
og er til moldar borin þaðan í
dag eftir 45 ára dvöl.
Hún fæddist að Hraunkoti í
sömu sveit 28. ágúst 1874. For-
eldrar hennar voru Jónas bóndi
Kristjánsson í Hraunkoti Þor-
grímssonar (er síðar bjó í Leir-
höfn á Sléttu) og kona hans
Guðrún Þorsteinsdóttir. Flutt-
ust þau hjón Jónas og Guðrún
með 4 börn sín til Vesturheims
vorið 1892, en Svafa varð eftir
ein systkina sinna.
Það vor giftist hún Jóhannesi
Þorkelssyni og reistu þau þá bú
á Syðra-Fjalli, og var þar heim-
ili þeirra beggja til dauðadags.
Voru þeir næstu nágrannar,
bræðurnir, Jóhannes á Syðra-
Fjalli og Indriði skáld á Ytra-
Fjalli, báðir fræðimenn og um
margt líkir, og má óhætt full-
yrða, að ekki hafi önnur heimili
verið ánægjulegri vottar þrótt-
mikillar og ómengaðrar islenzkr-
ar menningar.
Þeim Syðra-Fjalls-hjónum
varð fjögurra barna auðið. Þau
voru: Ása (nú látin), gift Oddi
Ólafssyni framkvæmdastjóra í
Reykjavík, Signý gift Þrándi
Indriðasyni bónda á Aðalbóli,
Helga gift Högna Indriðasyni
bónda á Syðra-Fjalli og dr. Þor-
kell bókavörður í Reykjavik. Jó-
hannes á Syðra-Fjalli lézt árið
1928, þá 68 ára aö aldri. Þau hjón
höfðu hætt búskap það sama ár,
en Svafa átti þó heima á Syðra-
Fjalli til æfiloka og undi sér þar
bezt í nálægð frænda og vina og
minningum starfsamrar æfi.
Nú er hún til moldar hnigin í
æskudalnum sínum,þar sem æfi-
saga hennar gerðist og þar sem
hún bjó börnum sinum vega-
nesti. Ein bezta og merkasta
kona í Þingeyjarsýslum er þar
sjónum horfin. Vel sé hún
kvödd, og góð er minning henn-
ar.
G. G.
9. Til skemmtunar verða ræðuhöld,
söngur karlakórs, kvennakórs og
kvartetts, eftirhermur og dans.
Barnavinafélagið Sumargjöf.
Reikningar yfir viðskipti við dag-
heimili félagsins í Grænuborg og Vest-
urborg 1937 fást greiddir hjá gjald-
kera Sumargjafar, Ingólfsstræti 14, frá
kl. 4,30—5,30 í dag.
Félag róttækra stúdenta
heldur dansleik í Iðnó í kvöld, til
ágóða fyrir blað sitt, Nýja Stúdenta-
blaðið.
Eitt af þeim loforðum,
sem íhaldið gaf í seinustu
bæj arst j órnarkosningum,
var það, að sýnd skyldi var-
kárni í útgjöldum bæjar-
sjóðs og kappkostað að reka
bæinn tekjuhallalaust og
láta hann ekki safna skuld-
um.
Það er holt fyrir kjósendurna,
að rifja það upp fyrir þessar
kosningar, hvernig íhaldið hefir
efnt þetta loforð sitt. Á því geta
þeir bezt séð, hversu mikið mark
er takandi á þeim loforðum, sem
það gefur fyrir kosningarnar nú.
Bæjarreikningar undanfarinna
ára skýra frá því, að íhaldið
hafi efnt þetta loforð sitt eins
og hér segir:
Skuldir bæjarsjjóðs
við árslok 1933—36.
1933 3.366.213 kr.
1934 3.909.030 kr.
1935 4.801.729 kr.
1936 5.174.175 kr.
Það er vitanlegt að skuldir
bæjarsjóðs hafa enn aukizt að
mun á síðastl. ári vegna þess að
tekjur bæjarins hafa ekki
hrokkið fyrir útgjöldum. Skulda-
söfnunin öll á kjörtímabilinu er
því talsvert meiri en framan-
greindar tölur sýna.
Öll þessi skuldaaukning hefir
orðið til á þann hátt, aff eyðsla
bæjarins vegna hinna föstu út-
gjaldaliffa hafa orðið þetta hærri
en útsvörin, þó þau hafi stór-
hækkað á ári hverju. Ekki einn
eyrir af skuldahækkuninni hefir
fariff til nytsamra verklegra
framkvæmda í bænum eða til
þess að styrkja atvinnuvegi
bæjarmanna.
Þannig hefir íhaldið efnt lof-
orð sitt.
Þannig mun það efna loforð
þau, sem það gefur nú, ef það
heldur áfram meirihluta sínum í
bæjarstjórninni.
Vilja kjósendurnir láta ihald-
inu haldast það uppi framvegis
að gefa falleg loforð og svíkja
þau?
Því eiga þeir að svara í kosn-
ingunum 30. jan. Þeir svara því
rétt með því að efla þann flokk,
sem einn er fær um að fara með
úrslitavaldið i bæjarstjórninni,
— og fylkja sér fast um lista
hans, B-listann.
Franska stjórnín
nýjalýsti stefnu sinni
í þinginu í gær
LONDON:
Chautemps og Daladíer lásu upp
yfirlýsingu um stefnu hinnar nýju
stjórnar i Frakklandí, í efri og neðri
málstofum þingsins í gær, og var yfir-
lýsingunni vel tekið í báðum deildum.
Fyrst voru rifjuð upp tildrögin að falli
fyrri stjórnar og skýrt frá því, undir
hvaða kringumstæðum hin nýja stjórn
var mynduð, og þvi næst var skorað á
þjóðina að sameinast í baráttunni fyr-
ir velmegun og friði á sviði atvinnu-
málanna.
Stjórnin telur það miklu máli
skipta, að 'fjárlögin séu tekjuhalla-
laus og að þriggjaveldasáttmálinn um
gjaideyrismál sé ekki rofinn. Stjórn-
in lýsir yfir stuðningi sínum við Þjóða-
bandalagið, og vináttu sinni við Breta,
en segist fús til þess að taka höndum
saman við sérhverja þjóð um eflingu
friðarins.
Þá er sagt, að landvarnamálin muni
verða endurskipulögð. Meðal nýrra
frumvarpa, sem minnst er á í stjórn-
aryfirlýsingunni er frumvarp það um
vinnulöggjöf sem Chautemps hefir
lagt sig fram til að semja, og sem
hann hafði boðið bæði atvinnurekend-
um og verklýðsfulltrúum að ræða við
sig áður en fyrri stjóni hans féll.
Gamelin hershöfðingi hefir með
stjórnartilskipun verið gerður að for-
manni landvarnaráðs. FÚ.
Fær Abessíníukeís-
ari Nobelsverðlaun?
EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN:
Sænsk blöð flytja nú hvert á fætur
öðru fregnir um það, að næst muni
verða stungið upp á Lindhagen, borg-
arstjóra í Stockholmi og Haile Sel-
assie Abessiníukeisara, til þess að
hljóta frlðarverðlaun Nobels. Er Lind-
hagen borgarstjóri víðkunnur maður í
Notkun þjóðiánans
á kjördegi
Framsóknarmenn hafa ákveff-
ið að láta íslenzka þjóðfánann
blakta á hverri bifreið, sem flyt-
ur kjósendur á þeirra vegum
um bæinn á kjördegi 30. jan.
n. k.
Ástæðan er ekki sú að flokk-
urinn telji þetta sjálfsagt eða
eðlilegt. — Framsóknarmenn
myndu þvert á móti vilja að
þjóðfáninn væri hvergi notaður
í baráttu flokkanna.- Þeir álíta
að fáninn eigi að vera tákn allr-
ar þjóðarinnar og allra íslend-
inga, en ekki einhvers hluta af
þjóðinni.
En þar sem einn af stjórn-
málaflokkunum hefir tekið upp
þann sið að nota þjóðfánann
sér til framdráttar á kjördegi,
þá hafa Framsóknarmenn
ákveðið að nota fánann fyrst um
sinn á sama hátt. Þeir myndu
óska þess, að samstarfsflokkur
þeirra, Alþýðuflokkurinn, tæki
upp sama sið, ef hann hefði
verið frjáls sinna aðgerða í
þessum efnum. Með því móti að
allir flokkar nota fánann á kjör-
degi mun sá flokkur sem tekið
hefir upp þennan sið í pólitlsku
áróðursskyni væntanlega verða
knúður til að hætta þessari
venju. Mun fáninn þá hætta að
vera innbyrðis baráttumerki.
J. J.
Til
mínnis
Til viðbótar útsvörunum
og öðrum tekjum hefir
bæjarsjóffurinn fengiff nú
og undanfarin ár um 360
þús. kr. af reksturshagn-
affi vatnsveitunnar, gas-
stöffvar og rafmagnsveitu.
Þessar tekjur eru fengnar
meff því aff selja þessar
nauffsynjavörur þriffj-
ungi dýraraen kostaff
hefir aff framleiffa þær, þó
tekiff sé tillit til alls kostn-
aðar og afskrifta. Hér er
því um að ræffa beinan
neyzluskatt eða nefskatt,
sem bitnar á öllum bæjar-
búum, jafnt fátækum sem
ríkum.
f'/'»/N/VV«WN/v/VVS/V»W>/'/V'WV'WVV'/>/V'/W>/Wv/'/W
hinu alþjóðlega íriðarmálastarfi, og
hefir árum saman unnið í alþjóða-
félagsskap friðarvina.
Ástæðan til þess að hugsanlegt er
talið, að stungið verði upp á Abessiníu-
keisara er sú, að með vörn sinni gegn
innrás ítala í Abessiníu hafi hann
öðrum fremur gerzt málsvarí alþjóða-
réttar og þeirra hugsjóna, sem Þjóða-
bandalagið byggir á. FÚ.