Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 12.04.1938, Qupperneq 2

Nýja dagblaðið - 12.04.1938, Qupperneq 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ „Þjóðhetjan“ Planetta Hafa aðalvitnm í málínu gcgn Schussnígg verið myrt? Þýzku nazistarnir hafa á- kveðið að hefja sakamál gegn fyrv. kanzlara Austurríkis, Schussnigg, og eru sakarefnin þau, að hann hafi ætlað að falsa atkvæðagreiðsluna í Aust- urríki og að hann beri ábyrgð á aftöku Planetta, en það var nazistinn, sem myrti Dolíuss. Þessi málaferli eiga jafn- framt að vera til þess að hreinsa nafn Planetta af öllum vanheiðri og gera hann að frelsishetju og þjóðardýrðlingi eins og Horst Wessel. Lík Plan- etta hefir þegar verið grafið upp og lagt í „heiðursgröf*. Planetta var undixforingi 1 austurríska hernum 1 heim#- styrjöldinni, en var síðan lengstum atvinnulaus. Hann var pólskur í aðra ættina og tékk- neskur í hina. Hann var orð- lagður æfintýramaður og æst- ur nazisti. Hann var hengdur fyrir morðið á Dolfuss og hróp- aði „Heil Hitler“ i gálganum. Það var þá m. a. talin ein sönn- un þess, að Þjóðverjar mjmdu ekki vera algerlega saklausir um morð Dolfuss. Dolfuss var myrtur á þann hátt, að nokkrir tugir nazista klæddu sig eins og lögreglumenn og komust þannig inn 1 stjórn- arráðsbygginguna. Fey major var á fundi með Dolfuss, þegar nazistarnir brutust inn til hans. Töldu margir að Fey myndi hafa verið I vitorði með nazist- um, þar sem honum var þyrmt. Hann átti einnig að gæta þess að lögregluvörðurinn væri nægilega sterkur. Þegar fréttirnar um tiltæki nazista bárust út, var herdeild send á vettvang og handsam- aði hún morðingjanna. Fyrir- liði hennar var Neustádter- Sturmer. Tap á rússneskn riklsbúnnum. í „Udenrigsministeriets Tids- skrift“ birtist fyrir nokkru yf- irlit um atvinnuvegina í Rúss- landi á síðastl. ári. Þar er m. a. vitnað 1 grein, sem yfirmaður ríkisbúanna skrifaði í „Izvestia" skömmu eftir áramótin. Þar segir, að rekstrarkostnaður bú- anna hafi lækkað á árinu, en flest búin séu þó enn rekin með tapi. Þess er ennfremur getið að verkfærakosti búanna og kynbótarækt sé enn mjög á- bótavant. Þá er kvartað undan því, að aðbúnaður verkamanna sé ekki eins góður og skyldi á mörgum búunum og stundum verði þeir að bíða í 5—6 mán- uði eftir því að fá kaup sitt greitt. Þar sem slík gagnrýni kemur fram i opinberu málgagni stjórnarinnar, er ljóst, að á- standinu er meira en lítið áfátt. Greinin mun líka skrifuð í þeim tilgangi að róa geðsmuni þeirra óánægðu með fyrirheiti um nýjar umbætur og bættan að- búnað. Þessir tveir menn, Fey major og Neustádter-Sturmer, ásamt Kreisler málafærslumanni, höfðu þá aðstöðu, að þeir hlutu að verða aðalvitni í þeim hluta málaferlanna gegn Schussnigg, sem fjölluðu um aftöku Pla- netta. En samkvæmt fregnum frá Austurríki hafa allir þessir menn framið sjálfsmorð, Kreisler með því að kasta sér út um glugga, en hinir eiga að hafa skotið sig. Fjölmörg erlend blöð telja þessar fréttir mjög grunsamleg- ar og ýms þeirra fullyrða, að Fey og Neustádter-Sturmer hafi verið myrtir og færa fyrir því rök, er fréttaritarar þeirra hafa orðið áskynja um. Þau telja að vitnisburður þessara manna hefði getað orðið nazistum óþægilegur og þeir hafi þess vegna talið heppilegra að losna við þá. Það er ekki nýtt í sögu þýzka nazismans, að reynt sé að gera morðingja að þjóðhetjum. Þann 17. júlí 1934 var af- hjúpað í Þýzkalandi minnis- merki, sem á var letrað: „Hinn 27. júlí 1922 dóu hér hetjudauða liðsforingjarnir Er- win Kern og Hermann Fischer“. Kern og Fischer höfðu fram- ið sjálfsmorð á þessum stað eft- ir að hafa myrt mikilhæfasta stjórnmálamann Þýzkalands, Walther Rathenau. Við afhjúpun minnismerkis- ins flutti Himmler, yfirmaður leynilögreglunnar, aðalræðuna. Hann lýsti því yfir, að hið nýja Þýzkaland liti á verk þeirra Kerns og Fischers sem „þjóð- lega hetjudáð" og myndi halda minningu þeirra hátt á lofti. Berorður víð Hítler Hoover í heimsókn hjá einvaldanum Fyrv. forseti Bandaríkjanna, Hoover, hefir verið á ferð í Ev- rópu og m. a. hitt Hitler að máli. í viðtali við enska blaðið Sunday Referee segist Hoover hafa m. a. sagt við Hitler: — Ef þér haldið áfram þeirri stjórnmálastefnu, sem þér hafið haft, munuð þér steypa Evrópu og öllum heiminum í meiri ó- gæfu en þekkzt hefir hingað til. Hitler reyndi 1 samtalinu að sýna fram á árangurinn af sigri nazismans og talaði sam- fleytt í hálfa klukkustund eins og hans er vandi, þegar hann vill komast hjá að svara spum- ingum. Hoover segist hafa stöðvað þetta ræðuhald hans með þvl að grípa fram í og segja: — Þér hafið ef til vill fengið einhverju áorkað fyrir þýzku þjóðina, en þér hafið hvorki gefið henni brauð eða andlegt frelsi, sem mér og flestum öðr- um manneskjum þykir meira virði en allt annað. Hoover var svo gramur yfir Páskaraír nálgast — Gerið páskaínnkaupín í tíma. -- BÖKUNARVÖRUR: Hveiti, smjörlíki, súccat, möndlur, kókosmjöl, púðursykur, skrautsykur, sýróp ljóst og dökkt, marsípanmassi, yfirtrekks- súkkulaði, flórsykur, ávaxtasultur, svínafeiti, ísl. smjör, egg o. m. fl. HÁTÍÐAMATUR: Norðlenzkt dilkakjöt, svína- kotelettur, svínalæri, kjúklingar, buffkjöt, gul- lace-kjöt, nautakjöt í steik, hangið kjöt, lifur og hjörtu, nýsviðin dilkasvið, kálmeti og allskonar garðávextir, grænar baunir í dósum og lausri vigt, agúrkur, asíur, rauðrófur og pickles í glös- um og fjöldamargt fleira. PÁSKAEGG, mikið og gott úrval ,lágt verð. NESTIVÖRUR í páskafríið. GLEÐILEGA HÁTÍÐ. LÉREFTSTUSKUR hrelnar og heillegar, (mega vera mislitar), kaupir Prentsmiðjan EDDA h.f., Lindar- götu 1D. Tónlist og stjórnmál. Samkv. hinni nýju stjórnarskrá enska friríkisins á bráðlega að kjósa þar forseta. Írsk-ameríski söngvarinn, John McCormack, er talinn hafa mesta möguleika til þess að ná kosningu. McCormach er tvímælalaust vinsælasti söngvari hins ensku- mælandi heims og nái hann forsetakosningu, er það fyrst og fremst söngfrægð hans að þakka. Fyrsti forsætisráöherra Pól- lands, Paderevski, er heimsfræg- ur píanóleikari og hlaut ráð- herraembættið ekki hvað sízt fyrir þá athygli, sem hann hafði vakið á Póllandi með tónlistar- frægð sinni. Karlakórínn Fóstbræður syngur í Gamla Bíó miðvikudaginn 13. aprll kl. 7,15. AÐGÖNGUMIÐAR seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og Hljóðfæraverzlun Katrínar Viðar. Síðasta sinu. Kjóla- kápu- ogdragta- efni Verzlunio Snót Vesturgötu 17. Hangikjöt á ekki saraan neraa nafnið. þessu samtali vlð Hitler, að hann neitaði nokkrum dögum seinna að taka þátt í miðdegis- verði, sem Hitler bauð honum í, þrátt fyrir ýtrustu tilraunir sendiherrans til að fá hann til að þiggja boðið. í lok viðtalsins við Sunday Referee, segir Hoover að lokum: — Ég hefi aldrei verið jafn á- kveðinn fylgismaður lýðræðis- ins og eftir þessa för til Evrópu, sérstaklega þó eftir samtalið við Hitler. Munið pvl, pegar pér pantið I páskamatinn: Fæst I öllum helztu matvöru- verzlunum bæjarins. Samband isl. samvinnufélaga Síml 1080.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.