Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 12.04.1938, Qupperneq 4

Nýja dagblaðið - 12.04.1938, Qupperneq 4
REYKJAVÍK, 12. APRÍL 1938. NYJA DAGBLAÐIÐ 6. ÁRGANGUR — 85. BLAÐ /w.v.v «Jim 1 a Ifiio ".v.v.v 5 í I STÚLKAIV frá SALEM Áhrifamikil og vel leikin mynd, um galdrabrennur miðaldanna. Aðalhlutverkin leika Claudette Colbert Og Fred McMurray Bönnuð börnum innan 12 ára. v.v.v.v.v.v.v.w.wv.w.v XX atfeinx hoftur. M.s. Dronníng Alexandríne ► fer til vestur og nord- urlandsíns í kvöld Sókn Kínverja (Frh. af 1. síðu.) stöðvum, og að 5—6 þús. japansklr her- menn hafi fallið í orustunni um borgina. í frétt frá Hankow segir, að fregnin um að Kínverjar væru búnir að taka Fsi-nan-fu, höfuðborg Shangtung- fylkis, sé ótímabær, en að barizt sé i borginni. Ennfremur segir að kín- verski hershöfðinginn, sem stjórnar hernum í grennd við Nanking, sími að gera megi ráð fyrir að Kínverjar nái Nanking og Hangchow aftur úr höndum Japana áður en langt líð- ur. FÚ. Gamla verðið ennþá Matarstell 6 m. 19.50 Matardiskar dj. og grunnir 0.50 Desertdiskar 0.30 Bollapör 0.65 Vatnsglös 0.45 Skálasett 5 st. 4.00 Ávaxtasett 6 m. 4.50 Ölsett 6 m. 8.50 Vínsett 6 m. 6.50 Kaktuspottar meS skál 1.75 Áleggsföt 0.45 Undirskálar stakar 0.15 Matskeiðar og gafflar 0.35 Teskeiðar 0.15 K. EIMRSSOA & BJÖMSSON Bankastræti 11. Útbod Hérmeð gefst múrarameisturum kostur á að gera tilboð í utanhúðun Háskólans. Upplýs- ingar á teiknistofu húsameistara ríkisins. Reykjavík 12. apríl 1938. Guðjón Samúelsson. Sparísjóður Reykjavíkur og nágrennis verður opínn Iaugardagínn fyrír páska kl 10-12 f. h. og kl- 3-4 e. h. íþróttafélag kvenna heldur skemmtifu.nd í Oddiellowhúsinu, föstudaginn 22. apríl. Áskriftarlisti liggur frammi í Hattaverzl. Hadda I dag, á morgun og eftir páska. Kjarnar — (Essensar) Höfum birgðir af ýmiskonar kjörnum til iðnaðar Áfengisverzlun ríkísíns. kl. 6. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen Tryggvag. Sími 3025. LITLA ÍBÚÐ með öllum þæg- indum vantar mig 14. maí. SIGFÚS JÓNSSON, sími 2336. iiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiuiiiiitiiiiiiiiiniiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiM ► Borgið Nýja dagblaðíð! ■".WAV mj' n'' .V.V.W .waw Alyja «10 .V.v/.v í Grímumennírnír ;j Spennandi og æfintýra- £ ;■ rík Cowboy-mynd. í; í Aðalhlutverkið leikur kon- £ ungur allra Cowboykappa í ;■ Ken Maynard og :■ í undrahesturinn «; j; TARZAN. j; :■ AUKAMYND: jj ■; Jegersvogleyminn ■: amerísk skopmynd leíkin af: Harry Landon. •; ■; Bönnuð fyrir börn. ■; V.v.w.w.w.v.w.w.w.v LEGUBEKKIR, mest úrval á Vatnsstíg 3. Húsgagnaverzlun Reykjavíkur. PRENTMYNDASTOFAN LEIFTUR Hafnarstræti 17, (uppi), býr iil 1. floUks prentmyndir. Sími 3334 K AV P M » FESTARMEY FORSTJÓRANS 58 — „með í samningnum“, var ég næstum búin að segja. „Það er þessi bölvaður samningur, sem eyðileggur allt!“ tautaði forstjórinn gremjulega og, þar sem Cariad var ekki viðstaddur, þá sparkaði hann í möl- ina. „Getið þér ekki gleymt honum, a. m. k. augna- blik? Það myndi verða miklu auðveldara------“ „Ef til vill fyrir yður, já, því trúi ég“, svaraði ég, „en ekki fyrir mig. Ég get ekki fundið til vináttu við neinn eftir skipun“. Hann svaraði ekki strax. En eftir nokkra stund þyrjaði hann rólega á ný: „Með öðrum orðum, að þér viljið ekki vingast við mig?“ „Ég hvorki vii né vil ekki. Ég þekki yður ekki nóg til þess“, sagði ég kuldalega. „Og hvað höfum við tvö — þér og ég — sameiginlegt, svo að við gætum búizt við, að eitthvað ynnist með slíkri vináttu?“ Ég vissi vel að ómögulegt var að svara þessari spurningu, um hvaða tvær manneskjur, sem væri að ræða. Hann sagði líka, alveg í vandræðum: „Nú hvern skrattann — hvað hafið þér sameiginlegt með------“ Ég fann, að nafnið Sidney Vandeleur hékk á milli okkar í myrkrinu, eins og kista Múhameðs milli hinna tveggja segulpóla. En forstjórinn hætti við að nefna nafn hans. Hann sagði: „Hvað hafið þér t. d. sameiginlegt með manni eins og Montresor? Þér eruð tuttugu og eins. Hann er — hvað gamall? — Fimtugur, sextugur? Og þó getið þér talað — þér getið komið yður svo ágætlega saman við hann“. „Já, náttúrlega“, svaraði ég. Forstjórinn þagði. Hann rétti upp hendina og þreif í eina grein rauð- beykitrésins, sem við stóðum undir. Hana nú. Það leit út fyrir að eiga að verða langar rökræður. Ég settist á garðbekk, nokkur fet frá og snéri mér undan og horfði á mjallhvít blóm tóbaksjurtarinnar, sem óx á bak við bekkinn. Alltaf er eitruð lykt af tó- baki nema þegar það er þannig. O, mörg voru tó- baksbeðin heima .... og ilmurinn dreifðist yfir allt á kveldin .... „Montresor majór þekkti mig heima, eins og hann sagði yður. Hann þekkti alla fjölskyldu mína“, hélt ég áfram, hægt. „Hann þekkti alla staði, sem ég kom á, áður en ég var slitin burt frá öllu, sem ég unni, og varð að vinna fyrir daglegu brauði í yðar andstyggi- legu borg“. „Þér talið eins og ég eigi borgina, eins og ég beri á- byrgð á, að þér neyddust til að vinna þar — eins og það væri allt mér að kenna. Er það réttlátt? Á ég að gjalda fyrir það allt? Hefði það nú ekki verið þar, sem þér hittuð mig í fyrsta skipti, Nancy?“ í fyrsta skipti nefndi unnusti minn nafnið alveg eðlilega. „Haldið þér ekki“, hélt hann áfram, „að við hefðum þá getað orðið beztu vinir?“ „Hvernig á ég að vita það?“ Á þá braut, sem hann var nú kominn inn á, vildi ég ekki fylgja honum. Ég fann, að það myndi svifta mig einhverju, án þess að gefa mér neitt í staðinn. „Reynið að hugsa yður“, hélt hann áfram, „að ég ég hefði þekkt yður heima hjá yður eins og þessi — hvað heitir hann nú aftur-------“ Nafnið — Vandeleur flögraði aftur á milli okkar. — „eins og Montresor. Hugsið yður, að ég hefði aldrei verið á skipamiðlunarskrifstofum Vestur-Asíu- félagsins — aldrei heyrt staðinn nefndan. Ég óska jafn vel oft sjálfur, að ég hefði aldrei þekkt hann‘,‘, heyrðist hrygg rödd forstjórans út úr myrkrinu. „í stað þessara sífelldu varnargarða-----“ „Mitt einasta athvarf“, hugsaði ég, „og nú reynir hann að svifta mig því“. „— gæti áreiðanlega komið eitthvað sem líktist vináttu okkar á milli. Haldið þér það ekki?“ Ég svaraði stutt í spuna: „Ef til vill. Ég veit ekki“. Hann færði sig til. Það var ekki nógu bjart til að sjá andlit hans. Aðeins flibbinn bar eins og 'nvítur blettur við greinina og breiðar herðar hans báru dökkar við rauðbláan himininn. „En ég veit“, mælti hann rólega, „að þér gætuð — að þér gætuð orðið-------“ Hann þagnaði. „Hvað“, spurði ég hálf kvíðin, „að ég gæti orðið hvað?“ „Reglulega góður vinur minn, ef þér vilduð“, sagði forstjórinn. — „Reglulega góður félagi“. Hélt hann það virki- lega um mig? Ég var fegin myrkrinu undir rauðbeyk- inu, því að ég vildi ógjarnan, að forstjórinn sæi, að orð hans hefðu engin minnstu áhrif á mig. Fjögur smáorð ættu sannarlega ekki að nægja til að fá mann til að gefast upp .... eða koma blóðinu upp í kinn- arnar. Ég ætlaði ekki .... En það varð stutt þögn, áður en ég gat ákveðið, hvað ég ætlaði að segja. Ég var fegin, að hann stóð dálítið frá mér .... í sömu svifum kom hann og settist á bekkinn hjá mér. „Jæja“, sagði hann eftirvæntingarfullur. „Jæja þá — já“, heyrði ég sjálfa mig segja og and- varpa. „Þér viljið það? Að friður sé okkar á milli?“ „Já“, sagði ég hikantíi. „Og að þér í staðinn fyrir að vera“, — hann brosti við, — „aðeins kærasta mín, samþykkið að vera vina mín — minn góði félagi?“ „Já, eins og þér vilj ið“, andvarpaði ég aftur. „Það er hægt að kalla það hækkun í tigninni, ha“, sagði ég. Ég vildi þó ekki vera of kurteis við hann. „Nancy, ég veit vel, að ég er stundum óttalega þrælslegur“, játaði hann hreinskilnislega. „Yður finnst, að ég sé hræðilega skapstirður, er ekki svo?“

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.