Nýja dagblaðið - 26.05.1938, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 26.05.1938, Blaðsíða 4
6. ÁRGANGUR — 119. BLAÐ NYJA DAGBLAÐIÐ REYKJAVÍK, 26. MAÍ 1938. WWiVrami0 hí/. V.W.V iríllllla IHO ■AW.V ! PARNELLI I* Stórfengleg og áhrifa- I; mikil söguleg kvikmynd ^ frá Metro Goldwyn Mayer f; um samtíðarmann Glad- ;í stones, írsku frelsishetj- í una Parnell, sem kallaður :■ var »hinn ókrýndi kon- í; ungur íra«. Aðalhlutverkin leika hinir vinsælu leikarar: Clark Gable og Myrna Loy. Sýnd kl. 6yz og kl. 9. í Barnasýning kl. 4yz: ■ Aumíngja míll- í jónamænngarnír ji V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V Hvar erum vift staddir (Framhald af 3. síðu.) og að það er þjóðarnauðsyn að notast geti allir möguleikar til þess að afla þjóðinni raun- verulegra tekna. Það verður að hafa vakandi auga á því, að ekki skapist hér það ástand til frambúðar, að það „borgi sig ekki“ að stunda þá bjargræðisvegi, sem frá öndverðu hafa verið undir- staða fjárhagslegrar afkomu þjóðarinnar, eða aðra, sem nýrri geta talizt, og líklegir eru til þess að bæta afkomu henn- ar. Aldrei hefir verið lagt fram meira fé en undanfarin ár til styrktar atvinnuvegum landsmanna beinlínis, enda þörfin meiri en oft áður. Pram- sóknarflokkurinn hefir ávalt haft glöggt auga fyrir þörfum framleiðslunnar. Mun svo verða hér eftir sem hingað til. Eysteinn Jónsson. Þjóðeroiskennd ungra Vestur-Íslendínga þeirra i þjóðrækishreyfingunni hefir aldrei verið eins virk og i vetur. Þá stofnuðu þeir sín eigin félagssamtök til þess að vinna að þessum málum. Fé- lag þeirra er deild í Þjóðræknis- félaginu, hefir sama markmið og það. og lýtur sömu lögum. Þetta tel ég stórt spor í rétta átt. Þeir eldri og yngri eiga sjaldnast algera samleið, þó að markið sé hið sama. Þeir ungu eiga því að hafa sitt félag með sinni sérstöku stjórn og þeir eldri sitt, og síðan eiga þessi félög að starfa eftir sömu meginreglum. — Hverju þakkið þér þennan vaxandi áhuga unga fólksins? — Það þakka ég Þjóðræknis- félaginu hiklaust. — Hvernig getum við hér heima létt ykkur þjóðernisbar- áttuna? Með meiri afskiptum af þjóð- arbrotinu vestxa, segir Ásmund- ur brosandi. Vestan hafs býr nú líklega fjórði hluti íslenzku þjóðarinnar, og þeim hluta ætt- uð þið að gefa gaum. — Teljið þér mannaskipti æskileg? — Tvímælalaust. Prá ykkur hafa komið til okkar ýmsir góð- ir gestir. Ungfrú Halldóra Bjarnadóttir nú siðast. Hún var mér samskipa til Englands, eftir að hafa dvalið nálega ár vestra. Ungfrú Halldóra ferðaðist um flestar byggðir íslendinga vestra, allt vestur að hafi og suður til Seattle. Hún flutti fjölda erinda og sýndi íslenzkan heimilisiðnað. — Fylgjast íslendnigar vestra vel með íslenzkum málum?' — Já, þeir gera það. íslenzk blöð eru nokkuð lesin, og blöðin okkar birta allar almennar, ís- lenzkar fréttir úr ykkar blöðum. Og það er óhætt að fullyrða, að fréttirnar héðan eru okkur ein- hverj ar hinar kærkomnustu fréttir, sem við fáum. Við gleðj- umst yfir góðum fréttum héð- an að heiman, en hryggjumst yfir þeim lakari. — Hvað er að segja um bóka- útgáfu ykkar? (Framhald af 1. síðu.) mikils hagnaðar fyrir þá báða. Það er sannfæring mín, að tengja þyrfti enn sterkari bönd samhuga og bræðraþels milli íslendinga vestra og íslendinga hér heima. Sambandið milli þeirra þyrfti að vera öflugra, kynni þeirra hvors af öðrum meiri. — Hvernig tekst ykkur að halda við íslenzkri tungu og þj óðernistilfinningu? — Þjóðernishreyfingin er blómleg eftir vonum. Úti um byggðirnar, er íslenzkan í mikl- um heiðri höfð enn þann dag í dag, og það má óhætt segja, að þær séu rammíslenzkar enn. Um bæina er aftur á móti ekki hið sama að segja. Þar er málið í mun meiri hættu, en Þjóð- ræknisfélagið gerir allt, sem 1 þess valdi stendur, til þess að draga úr þeirri hættu. — Hver er afstaða unga fólksins í þessum efnum? — Þjóðerniskennd þess er tví- mælalaust vaxandi. Þátttaka — Hún er enn nokkur. Auk blaðanna tveggja, Lögbergs og Heimskringlu, sem bæði hafa komið út samfellt um hálfrar aldar skeið, og Tímarits Þjóð- ræknisfélagsins, kemur út nokk uð af öðrum bókum, einkum ljóðabókum. — Hvað er að segja um tíðar- farið vestra? — Síðastl. vetur hefir tíðar- far verið einmuna gott. Fram til jóla var snjólaust og jörð orðin alauð um 10. marz. Síðan hefir tíð verið góð. — NokkraT sérstakar fréttir? — .Engar merkilegar, að ég man, aðrar en þær, að nýlátnir eru tveir merkir fslendingar vestanhafs, þeir dr. Björn B. J.ónsson, prestur fyrsta lúth- erska safnaðarins í Winnipeg, og fyrv. kirkjufélagsforseti um margra ára skeið, stórmerkur maður og áhrifaríkur, og Albert C. Johnson, konsúll Dana og fslendinga I Winnipeg. Lát þess- ara manna var mér tjáð með Jarðarför manasíns míns Einars Hjörleifssonar Kvaran rithöfundar fer fram frá Fríkirkjunni, laugardaginn 25. maí, er hefst með bæn frá heimilinu, Sólvallagötu 3, kl. 1 e. h. Gíslína Kvaran. Kveðjuathöfn yfir Guðrúnu Bjarnadótt- ur frá Laugardælum, fer fram laugar- daginn 28. p. m. kl. 3,10 e. m. frá Dóm- kirkjunni. Líkið verður flutt út til bál- farar með e. s. »Brúarfoss« sama dag. Athöfninni verður útvarpað. Vandamenn. .".V.V.V wr'. AV.V.V .".v.vw Ayja isio .v.vv.v :■ Tunglskins- •: :[ sónafan ■: í Unaðsleg ensk tónlistar- ■: kvikmynd, þar sem fólki J; gefst kostur á að sjá og ;■ ;í heyra frægasta píanósnill- ■: !; ing veraldarinnar, / IGNAZ PADEREWSKI, í spila Tunglskinssónötuna eftir Beethoven, As-dur- Polonaise .. eftir .. Chopin, Ungverska Rhapsodi eftir Liszt og Menuet eftir Pa- derewski. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Lækkað verð kl. 5. V.W/.VWW.V.V/.V.V.V.V: Sólríkt herbergí til leigu á Bergstaðastræti 82. Föstudaginn 27. maí verður skrifstofu vorri og verksmiðju lokað frá kl. 12 á hádegí vegna jarðarfarar. Vínnufatagerð Islands. Laugarholt við Laugarásveg er til sölu. Magnús Stefánsson, sími 2429. (á éröbréfsibanKinn (_ ^.cisturstr. ð si'mi 5652.Opió kl.11-12cíjb-íii annast kaup og sölu alískonar verðbréfa. símskeyti til Kaupmannahafnar 16. þ. m. — Þér vitið auðvitað, að ung- frú Pearl Pálmason er nýkomin til bæjarins og hyggst að halda hér hljómleika? — Já. Og mér þykir vænt um, að Reykvíkingum skuli gefast kostur á að hlýða á fiðluleik hennar. Ungfrú Pálmason er tvímælalaust mjög efnilegur fiðluleikari. Við Vestur-íslend- ingar styrkjum hana til náms- ins í þeirri öruggu vissu, að hún veki alheimsathygli sem fiðlu- leikari. Hæfileikar hennar eru frábærir og ástundunarsemi við námið eftir því. Strax og hún hafði lokið námi við tónlistar- skólann í Toronto, sem er fremst ur slíkra skóla í Canada, var henni boðin kennarastaða við skólann, og lagt fast að henni að taka hana. En ungfrúin heldur áfram námi — sem betur fer. Vestan hafsins bíðum við þess með eftirvæntingu, að hún ljúki námi, því að við væntum mikils af henni í framtíðinni. Viðræðum okkar Ásmundar er lokið. Ég kveð hann með þakklæti fyrir greinagóðar upplýsingar og óska honum og öllum Vestur-íslendingar heilla í baráttu þeirra fyrir verndun íslenzkrar tungu og þjóðernis. V. J. Skeiðará (Framhald af 1. síðu.) „Skeiðará hefir fjarað mikið í dag nokkurn spöl fyrir vestan Jökulfell, en vaxið meira en því nemur austur við Fellið. Vatnið, sem fram rennur einum kílómetra austan við sæluhúsið hefir mikið vaxíð 1 dag og hefir þar komið fram töluverð jökulhrönn. Sælu- húsinu virðist ekki vera hætta búin. Vatnið er enn lítið komið austur fyrir Ingólfshöfða.. PR E NTM YN DASTO FAN LEIFTUR Hafnaritræti 17, (uppi), býr lil 1. íloUUs prenfmyndir. S í m i , 333 4__ aðcins Loftur. VERÐ VIÐTÆKJA ER LÆGRA HER A LANDI, EN I ÖÐRUM LÖNDUM ALF- UNNAR. Viðtækjaverzlunin veitlr kaupendum viOtækja meiri tryggingu um hagkvæm viOskipti en nokkur önnur verzlun mundl gera, þegar bilanlr koma fram í tækj- unum eOa óhöpp bera aO höndum. Ágóia VlOtækjaverzlunarinnar er lögum samkvæmt elngöngu varlO til reksturs útvarpslns, almennrar út- breiOtlu þess og tll hagsbóta útvarpsnotendum. Takmarkið er: Viðtækl inn i hvert belmili. Víðtækjaverzlun ríkisíns Lækjargötu 10 B. Sími 3823.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.