Nýja dagblaðið - 16.06.1938, Side 3

Nýja dagblaðið - 16.06.1938, Side 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 Eftírlit með útlendingum Ellír RAGNAR JÓNSSON iulltrúa lögreglustjóra I \ÝJA DAGBLAMÐ Útgefandl: Blaðaútgáfan h.f. Rltstjórl: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. Rltstj ómarskrlf stof umar: Llndarg. 1 D. Síraar 4373 og 2353. Afgr. og auglýslngaskrifstofa: Lindargötu 1D. Sími 2323. Eftir kl. 5: Slmi 3948. Áskrlftarverð kr. 2,00 á. raánuðl. í lausasölu 10 aura eintakið. Prentsmlðjan Eklda h.f. Simar 3948 og 3720. Þing S. U. F. Nú er nýlokið 1. þingi Sam- bands ungra Framsóknar- manna. Framsóknarmenn munu yfirleitt hafa verið bjartsýnir um þetta þing, en þó leikur ekki á tveim tungum, að það mun hafa tekizt enn betur en þeir bjartsýnustu gerðu sér vonir um. Þingið var fjölsótt úr nálega öllum kjördæmum landsins. Ungt fólk úr sveit og frá sjó sendi fulltrúa sína þang- að til þess að eiga með því hlut að stofnun S. U. F. og hylla umbótastefnu og raunhæfar að- gerðir Framsóknarflokksins. Yfir þingheimi og störfum þingsins hvíldi sú yfirlætis- lausa festa, sá hávaðalausi kjarkur og hikleysi, sem ávallt hefir verið einkennandi fyrir samtök Framsóknarmanna. Það Var ánægjulegt að líta yfir full- trúahópinn, því að þar var sam- an komið myndarlegt fólk og gervilegt. En þó var enn á- nægjulegra að kynnast þessu fólki. Framkoma þess var rhjög látlaus og blátt áfram. Það var fremur fámælt að fyrra bragði, en tæki maður það tali, duldist ekki, að hjá því fór yfirleitt saman rik athyglisgáfa og góð greind, einmitt þeir kostir, sem eru höfuð máttarstoðiT þing- ræðisskipulagsins og stefnu- fastra umbótaflokka eins og Framsóknarflokksins. Þingið var í alla staði hið á- nægjulegasta. Þar fór saman hófleg glaðværð og alvara starfsins, svo að á hvorugt hall- aði. Það mun þó engum dyljast, að ýmsir annmarkar hafi verið á því að halda þetta þing. Sam- tök unga fólksins i Framsókn- arflokknum eru enn lltt skipu- lögð, og aldrei hafði áður verið boðað til landsmóts sem þessa. Auk þess er öllum ljóst, að fólk- ið i dreifbýlinu á mjög erfitt með að sækja samkomur 1 öðr- um landshlutum, bæði sökum annrikis heima fyiir og kostn- aðar við ferðina. En þetta stóð ekki teljandi í vegi fyrir þvi, að ungir Framsóknarmenn gætu haldið sitt fyrsta Sam- bandsþing með þeim myndar- skap, sem lengi mun í minnum hafður. Orðstír þingsins mun uppi verða fyrlr það, að þetta þing er tvímælalaust merkileg- asta og glæsilegasta pólitíska mótið, sem ungir menn hafa gengizt fyrir. En þingsins mun ekki siður verða minnzt fyrir þær sakir, að það sýnir betur en nokkuð annað, hversu traustum fótum Framsóknarflokkurinn stendur. Flokkur, sem haldið getur slíkt æskulýðsmót, þarf engu að kviða um framtíðina, honum er tryggt gengi og áhrif um langan tíma. En það er ekki einasta fylgi æskunnar, sem. tryggir þetta, heldur líka það, hversu flokkurinn stendur ó- skiptur um stefnu sina, hversu samheldni og samstarf flokks- mannanna er gott. Andstæðing- arnir hafa látið sér tíðrætt um það undanfarið, að sundrung væri innan Framsóknarflokks- ins, að formaður hans væri að missa traust flokksmanna sinna, og þá einkum unga fólksins, o. s. frv. Þing unga fólksins að Laugarvatni sýnir ljóslega, að hér er um tilefnislausan þvætt- ing að ræða. Frá því er skýrt á öðrum stað hér í blaðinu, að þingið kaus farmann Framsókn- arflokksins, Jónas Jónssón, sem heiðursfélaga S. U. F. Slíkt sýnir betur en mörg orð, að formaður flokksins nýtur einhuga trausts meðal unga fólksins í flokkn- um, ekki síður en meðal þess eldra. Stofnun S. U. F. er ekki tak- mark i stjómmálastarfsemi ungra Framsóknarmanna, held- ur leið að takmarki, leið að þvi takmarki, að skapa Framsókn- arflokknum aukin áhrif í þjóð- lífinu, að gera hann að fjöl- mennasta stjórnmálaflokki í landinu. Stofnun S. U. F. er hinsvegar fyrirheit þess, að þetta muni takast. Ungra Fram- sóknarmanna um land allt biða ærin verkefni á næstu árum. Hin mikla þátttaka í fyrsta landsmóti þeirra lofar góðu um launsn þeirra verkefna. V. J. Fréttir um blndmdismál Frumvarp hefir komið fram 1 þinginu 1 Japan, er banni alger- lega ungum mönnum undir 25 ára að aldri að neyta áfengis. — Einn af stuðningsmönnum frumvarpsins er K. Miyaki, pró- fessor við háskólann 1 Tokyo, og segir hann að sálarsjúkdómar og úrkynjun sé 1 vexti meðal þjóðarinnar, og áfengisneyzlu sé þar mest um að kenna. * Nýlega talaðí skólastjóri einn frá Manchester um hina vax- andi áfengisneyzlu þjóðarinnar, sérstaklega æskunnar, sem þjóð- ar böl, og sagði: „Ef slíku böli verður ekki útrýmt, getur farið svo að ritað verði í sögu þjóð- anna: Áfengi eyðilagði merkustu þjóð heimsins.“ • Elzta bindindisfélagið, og móð- urfélag annarra slíkra samtaka, er tallð vera „The British Tem- perance League“. Það var stofn- að árið 1834, svo enn eTu ekki nema rúm 100 ár síðan fyrst hefjast samtök um þessi mál. Það er vart hægt að vænta þess, að nýr helmur skapist á einni öld. Áfengisbölið vofir að vísu enn yfir þjóðunum, en á- fengisnotkunin er þegar for- dæmd af allri heilbrigðri skyn- semi og hinum markverðustu og beztu öflum meðal allra siðáðra þjóða. Það er mikill sigur og framkvæmdin hlý.tur að koma á eftir. Pétur Sigurðsson. I. Haustið 1936 kom hingað til lands enskt kolaskip. Tveim dög- um eftir að það lét úr höfn héð- an gáfu sig fram á lögreglu- stöðinni tveir menn, sem höfðu orðið eftir af því, voru peninga- lausir og allslaúsir og báðust á- sjár. Þeir skýrðu frá þvl, að þeir væru rússneskir að ætt, hefðu flosnað upp 1 byltingunni 1917, þá börn að áldri, komizt til Stambul í Tyrklandi og flækzt síðan um heiminn án föður- lands, án þegnréttinda i nokkru landi. Saga þeirra var óslitin röð af felum og fangavistum. Hvar- vetna var þeim meinaður sama- staður. í allri víðáttu heimsins áttu þeir hvergi föðurland. Um stutta tíma tókst þeim við og við að ráða sig einhversstaðar, helzt á skip, siðan reik um hafnar- borgirnar, unz lögreglan tók þá til að koma þeim úr landi. Síðast voru þeir staddir í Hels- ingfors á Finnlandi og reikuðu þar um. Þar heyrðu þeir sagt frá Suður-Ameríku og að þar væri rúm fyrir menn. Þeir ákváðu að fara þangað, og ætluðu gegnum Rotterdam. Ætluðu þeir að læð- ast um borð i skip er þangað átti áætlun og leynast með þvi þang- að. En þeir fóru skipavillt og lentu i hinu enska kolaskipi. Þar földu þeir sig dögum saman, unz sulturinn svarf að þeim, svo að þeir neyddust til að gefa sig fram við skipstjóra. Skipstjóri sigldi með þá til Englands. Enska lögreglan greip þá strax við komu skipsins, lét þá í fangelsi og geymdi þar unz skipið fór aftur. Þá voru þeir fiuttir um borð og skipstjóra til- kynnt að í Englandi fengju þeir ekki að vera, skipið yrði að sitja uppi með þá, þangað til það gæti komið þeim annarstaðar fyrir. Og hvenær sem skipið tæki land á Bretlandseyjum, með þá inn- anborðs, yrðu þeir geymdir 1 fangelsi unz skipið færi aftur; þá yrði það að taka við þeim. Skipið sigldi siðan hingað og hér urðu þeir eftir. Skipstjóri sagði að þeir hefðu strokið af skipinu, þeir sögðu, að skipstjóri hefði rekið sig 1 land. Örlög þessara manna sýna, hvaða þýðingu ríkisborgararétt- urinn hefir fyrir hvern mann. Menn hugsa sjaldan út í það. Menn skoða hann sem sjálfsagð- an hlut, sem ekki getur verið öðru visi, og gera sér ekki grein fyrir þvi, hvaða þýðingu það hefir að njóta borgararéttar ein- hvers rikis. í raun og veru er hann lífsskilyrði. Fyrir þá, sem ekki njóta hans, er hvergi pláss á allri jörðunni, nema i tugthús- um og þó illa þar. Ekkert ríki þarf að leyfa þeim landsvist, þeir eiga hvergi dvalarrétt. Á þeim tíma var eftirlit með útlendingum ekki tekið upp, og þessvegna var það fyrst eftir að skipið var farið, að lögregl- an varð þeirra vör. En hin nýju lög um eftirlit með út- lendingum voru þá gengin 1 gildi fyrir nokkrum dögum. Sam kvæmt þeim tókst að koma fram ábyrgð gagnvart útgerð skipsins út af komu þeirra hingað til lands og láta hana bera kostnað við dvöl þeirra hér á landi. Út- gerð skipsins mun hafa, með að- stoð stjórnar sinnar, gert ítrek- aðar tilraunir til að koma þeim af sér og fá eitthvert ríkl til að taka við þeim, en árangurslaust. Annar þeirra strauk síðan héðan sem laumufarþegi og frétti lög- reglan síðar til hans í Rotter- dam. Hinn dvaldi hér þangað til nú fyrir nokkrum vikum, að skipið sem hann flutti hingað, kom hér aftur. Þá var sklpstjóri knúður til að taka vlð honum aftur. Þetta dæmi hefir verið rakið hér til að sýna neyð þeirra manna, er hvergi eiga borgara- rétt og aðstöðu þeirra 1 öðrum löndum. En það sýnir líka, að hér á íslandi verður ekkl, frekar en annarsstaðar komizt hjá að hafa nákvæmt eftirlit með komum útlendinga, og hver er höfuðþýðing sliks eftirlits. n. Það var eitt af fyrstu verk'um Alþingis, eftir að landið fékk fullveldl, að semja löggjöf um eftirllt með útlendingum (Lög nr. 10, 1920). Var það sjálfsagt verk. Framkvæmdirnar fóru þó ekki eftir því, sem til var stofn- að, því segja má, að eiginlegu eftirliti hafi aldrei verið komið á samkvæmt þeim lögum. Vega- bréfa var ekki krafizt af útlend- ingum, sem til landsins komu og engar ráðstafanir gerðar til að fylgjast með ferli þeirra eftir að hingað kom. Þess varð líka vart, að hingað barst fólk, sem engir óskuðu eftir og starfaði hér og athafnaði sig á ýmsan hátt, sem almenningi þóttl óþarfur. Af al- þýðu manna var lögreglunni títt legið á hálsi fyrir afsklptaleysi um hagi og háttsemi þessa fólks en af stjórnarvöldum landsins var henni 1 raun og veru ekki ætluð afskipti af því, nema það kæmist undir hegningarlögin eða yrði bjargþrota. Núverandi forsætisráðherra gekkst fyrir því að láta endur- skoða þessa löggjöf og koma upp þvi eftirliti, sem til þess tíma hafði orðið 1 undandrætti, að stofna til. Árið 1936 voru sett ný lög um éftirlit með útlendingum (nr. 59,1936). Voru ákvæði hinna eldri laga að ýmsu leyti skerpt og aukin. Vorið 1937 (24. maí), var síðan sett reglugjörð sam- kvæmt lögum þessum og þá um | haustið voru lögreglustjórum H landsins sett ákveðin og ítarleg | fyrirmæli um framkvæmd eftir- I litsins og komið á skoðun vega- | bréfa. Lögreglustjóranum í Rvík ( var falin framkvæmd eftirlitsins - yfirleitt og umsjón með því um land allt, en sýslumenn og bæj- arfógetar fara með það hver i sinu umdæmi. Yfirstjóm eftir- litsins hefir dómsmálaráðherr- ann. III. Höfuðatriði eftirlits þess, sem haldið er uppi með útlendingum, er að gæta þess, að hingað komi ekki til landsins erlendir menn, sem líklegt er að valdi vandræð- um eða íslenzk stjórnarvöld af einhverjum ástæðum ekki vilja fá inn í landið. Þótt unnt sé að visa slikum mönnum úr landi eftir á, er þó miklu sjálfsagðara og auðveldara að neita þeim um landgöngu, ef ástæða til þess er þá fyrir hendi. Þegar útlending- ur tekur hér land, verður hann þessvegna að gefa lögreglustjóra skýrslu um hagi sína og fyrir- ætlanir og sýna vegabréf sitt. Eftirlitsmaður vegabréfa getur í vissum tilfellum synjað útlend- ingi um landgöngu eða lagt mál hans íyrir dómsmálaráðherra og fengið úrskurð um það. Þrjú slík tilfelli hafa komið fyrir I vetur eftir að þetta eftirlit var tekið upp. í sambandi við þetta er lögð sú skylda á stjómendur skipa og loftfara, er flytja far- þega hingað, að leggja fram far- þegalista, og flytja þá menn af landi burtu aftur, sem ekki fá hér landgönguleyfi. Eftirlitið með útlendingum þeim, er hér fá landgöngu, fer nokkuð eftir því, 'hvort þeir eru hingað komnir til dvalar eða einungis í stutt ferðalag. Skipa- afgreiðslurnar eru skyldar til að gefa lögreglunni greinilegar upp lýsingar um útlendinga þá er ut- an fara, svo lögreglan hefir á hverjum tíma skrá um alla út- lendinga, sem í landinu dvelja. Skrá fyrir allt land er haldin hér í Reykjavik, en sýslumenn og bæjarfógetar halda skrá fyrir sín umdæmi. Ef útlendingur er hingað kom- inn í kynnisferð eða einhverjum erindisrekstri í snöggva ferð og ætlar ekki að dvelja hér lengur en 3 mánuði, er skýrsla sú, er hann gefur við komu sína, alla jafna látin nægja, og lögreglan þarf yfirleitt engin önnur af- skipti af honum að hafa. En ef útlendingur kemur hingað í þeim tilgangi að setjast hér að, eða starfa eða dvelst hér lengur en 3 mánuði, er hann skyldur að gefa sig fram hjá lögreglustjóra og gera þar nánari grein fyrir sér. Lögreglustjóri veitir honum dvalarskírteini, ef ástæður eru fyrir hendi, en leggur ella mál hans fyrir dómsmálaráðherra, sem þá tekur ákvörðun um hvort honum skuli leyfð landsvist eða vísað úr landi. Þessir útlending- ar hafa sérstaka skyldu til þess að tilkynna lögreglunni á- vallt þegar þeir skipta um heim- ilisfang. Þótt útlendingur hafi sezt hér að, geta alltaf komið fram slðar atvik, er geri það æskilegt, að vísa honum úr landi. Samkvæmt lögunum hefir dómsmálaráð- (Framhald á 4. síSu.)

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.