Nýja dagblaðið - 16.06.1938, Síða 4
REYKJAVÍK, 16. JÚNÍ 1938
NYJA DAGBLAÐIÐ
6. ÁRGANGUR — 135. BLAÐ
SsXí’Gamla Bíó3£R%
í
I
Framhald
,granna mannsins4
(Efter den tynde Mand)
Afar fjörug og spennandi
leynilögreglu-gamanmynd.
Aðalhlutverkin leika
af framúrskarandi snilld
MYRNA LOY
og
WILLIAM POWELL
ásamt hundinum ASTA.
Börn fá ekki aðgang.
I
Eitirlit m. útlendingum
(Framhald af 3. síöu.)
herra heimild til að vísa útlend-
ingum úr landi. Fyrst og fremst
er skylt að vísa útlendingi úr
landi, ef hann verður hér fram-
færsluþurfi, eða verður sekur að
lagadómi um verk, sem svívirði-
legt er að almenningsáliti, enda
hafi hann ekki dvalizt hér í full
5 ár. Heimilt er ráðherra að vísa
útlendingi úr landi, ef hann gef-
ur rangar skýrslur um sig og til-
gang dvalar sirrnar héT, vanræk-
ir tilkynningaskyldu sína eða
„ef hegðun hans eða hagir að
öðru leyti gefa tilefni til brott-
vísunar". Ráðherra hefir því
mjög ríkt vald til þess að visa
útlendingum úr landi.
Útlendingar sem hér dvelja,
njóta að sjálfsögðu sama réttar
hér og landsmenn sjálfir, þar
sem löggjöfin ekki sérstaklega
mælir á annan veg fyrir. Svo
hefír verið gert að nokkru, að
því er snertir rétt útlendra
manna til að stunda hér at-
vinnu. Lög um það efni voru sett
31. maí 1927. Samkvæmt þeim
lögum er einstaklingum og fyrir-
tækjum er reka atvinnu hér á
landi, bannað að ráða í þjónustu
sína útlenda menn, gegn ann-
arri kaupgreiðslu en fæði og
húsnæði. Atvinnumálaráðherra
er þó heímilað að veita undan-
þágu frá þessu banni. Einnig eru
i lögunum sjálfum víðtækar
undantekningar frá því. Mönn-
um er heimilt að ráða í þjónustu
sína útlenda sérfræðinga og
kunnáttumenn, svo og útlenda
frændur sína, og loks er bænd-
um heimilt að ráða til sín erlend
vinnuhjú.
Lögin taka aðeins til þehra
starfa, sem útlendir menn vinna
hér í annarra þjónustu. Þau taka
ekki til þeirra manna útlendra,
er hér starfa sjálfstætt eða setja
upp fyrirtæki. Það er útlendum
mönnum því heimilt með sama
hætti og innlendum. Þeir geta
því sett hér upp verzlun, útgerð,
iðnaðarfyrirtæki og búskap, ef
þeir uppfylla sömu skilyrði og
íslenzkum mönnum eru sett. Til
þess að reka verzlun, iðju, iðnað
og veitingar hér á landi, þarf að
leysa sérstakt ieyfi, sem ekki má
veita mönnum nema þeir hafi
verið búsettir hér á landi síðasta
árið áður en leyfi er veitt og
hindrar það ákvæði útlendinga
frá því að setja sig niður í þeim
starfsgreinum fyrr en þeir hafa
dvalið hér þann tíma. Frh.
104 fulltrúar sóttu
stofnfund Sambands
ungra Framsóknarm.
(Framhald af 1. síðu.)
Jörundsson, Hvanneyri. Vara-
maður: Kláus Eggertsson, Leir-
árgörðum.
Mýrasýsla: Daníel Kristjáns-
son, Gljúfurá. Varamaður:
Leifur Finnbogason, Hítardal.
Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýsla: Daníel Ágústinusson,
Stykkishólmi. V ar amaður:
Gunnar Guðbjartsson, Hjart-
arfelli.
Dalasýsla: Jón Emil Guð-
jónsson, Kýrunnarstöðum. —
Varamaður: Gísli BTynjólfsson
Hvalgröfum.
Barðastrandarsýsla: Grímur
Arnórsson, Tindum. Varamað-
ur: Sæmundur Björnsson, Hrís-
hóli.
Vestur-ísafjarðarsýsla: Hall-
dór Kristjánsson, Kirkjubóli.
Varamaður: Hjörtur Hjartar,
Þingeyri.
N.-ísafjarðarsýsla: Kjartan
Ólafsson, Strandseli. Varamað-
ur: Ásgeir Höskuldsson, Tungu.
Strandasýsla: Ingólfur Jóns-
son, Prestsbakka. Varamaður:
Torfi Jónsson, Prestsbakka.
Vestur-Húnavatnssýsla: Vig-
fús Vigfússon, Fallandastöðum.
Varamaður: Árni Sigfússon,
Hvammstanga.
A. -Húna vatnssýsla: Þórður
Þorsteinsson, Grund. Varamað-
ur: Torfi Sigurðsson, Mánaskál.
Skagaf j arðarsýsla: Magnús
Gíslason, Eyhildarholti. Vara-
maðúr: Anton Tómasson,
Hofsós.
Siglufjörður: Þorst. Hannes-
son, Siglufirði. Varamaður: Jón
Kjartansson, Siglufirði.
Eyjafjarðarsýsla: Jóhann
Valdimarsson, Möðruvöllum. —
Varamaður: Hreiðar Eirlksson,
Reykhúsum.
Akureyri: Ásgeir Halldórsson,
Akureyri. VaramaðuT: Harald-
ur Sigurðsson, Akureyri.
S. -Þingey j arsýsla: Finnur
Kristjánsson, Halidórsstöðum.
Varamaður: Kristján Karlsson,
Húsavík.
N.-Þingeyjarsýsla: Sigurður
Björnsson, Grjótnesi. Varamað-
ur: Björn Pétursson, Þórshöfh.
N.-Múlasýsla: Baldvin Tr.
Stefánsson, Stakkahlíð. Vara-
maður: Vilhjálmur Ámason,
Háeyri.
S.-Múlasýsla: Vilhjálmur
Hjálmarsson, Brekku. Vara-
maður: Guttormur Sigbjörns-
son, Gilsárteigi.
A.-Skaftafellssýsla: Jón Ó-
feigsson, Hafnarnesi. Varamað-
ur: Halldór Sæmundsson, Bóli.
V.-Skaftafellssýsla: Haukur
Magnússon, Reynisdal. Vara-
maður: Sigurj. Pálsson, Söndum.
Vestmannaeyjar: Bjami G.
Magnússon, Vestmannaeyjum.
Varamaður: Helgi Sæmunds-
son, Vestmannaeyjum.
Rangárvallasýsla: Þorsteinn
Jónsson, Stórólfshvoli. Vara-
maður: Ólafur Sveinsson,
Stóru-Mörk.
Árnessýsla: Guðmundur Böð-
varsson, Selfossi. Varamaður:
Ingimar Sigurðsson, Fagra-
hvammi.
SnæbjörníHergílscy
látinn
Snæbjörn Kristjánsson, fyrrum
bóndi í Hergilsey, andaðist í Sjúkra-
húsinu í Stykkishólmi í gær, kl. 15 —
83 óra að aldrei. Hann var yfir 50 ár
hreppstjóri i Flateyjarhreppi og lengst
af bjó hann I Hergilsey, en síðustu ár-
in dvaldi hann hjá tengdasyni sínum,
séra Jóni Þorvarðssyni á Stað á
Reykjanesi.
Snæbjörn 1 Hergilsey var einn hinna
merkustu Breiðfirðinga, allt í senn,
búhöldur góður, sægarpur mikill og
héraðshöfðingi.
íslandsmótið
(Framhald af 1. síðu.)
tekið er tillit til þess, hve veðrið var
leiðinlegt. Vikingar léku nú betur en
þeir hafa gert hina leikina. Þeir eru
mjög duglegir hver einstakur maður,
og náðu þeir nú góðum samleik á
stimdum. Þeim hættir þó við að falla
fyrir þeirri freistingu að gefa stór
hæðarspörk fram. Slík spörk koma
sjaldnast að tilætluðum notum. Vals-
menn ná oft ágætum samleik, þessum
stuttu, léttu jarðarspörkum, sem jafn-
an reynast happadrýgst. Þeir tapa
samt oft illa valdi yfir böltanum, þegar
komið er undir mark mótherjanna.
Svíakonungur
áttrædur í dag
EINKASKEYTI frá KHÖFN:
Um 100.000 manns eru nú komnir til
Stokkhólms í tilefnl af hátíðahöldun-
um í sambandi við áttræðisafmæll Gu-
stavs Svíakonungs. Var borgin öll fán-
um skreytt í gær og undirbúningur
undir hátíðahöld í öllum borgum
og bæjum Sviþjóðar. Þegar tekið var
á mótl konungum Noregs og Dan-
merkur og forseta Finnlands, blakti
íslenzki fáninn á stöng með fánum
hinna Norðurlandaríkjanna.
Sjálfur afmælisdagurinn er í dag og
hefjast hátíðarhöldin með guðsþjón-
ustu i Storkyrkan i Stokkhólmi. Síðan
tekur Gustav konungur á móti fuUtrú-
um frá öllum héruðum Sviþjóðar. FÚ.
A N N Á L L
(FramhaXd af 1. síðu.)
Bændafundur,
mjög fjölmennur, var haldinn í Oslo
nú nýlega. í skrúðgöngu um götur
Osloborgar tóku þátt um 30 þús.
bændur. Hákon konungur fluttl ræðu
á fundinum og fór miklum viðurkenn-
ingarorðum um þýðingu bændastéttar-
innar fyrir atvinnuvegi og menningu
landsins.
Elsa Sigfúss
heldur síðustu mikrofonhljómleika
sína í kvöld í Iðnó.
Norræna verkfræðingamótið
var sett á mánudaginn var 1 Oslo.
Taka þátt í því um 1600 manns. ís-
lendingar, sem þar láta til stn heyra,
eru þeir Finnbogi Rútur Þorvaldsson,
Valgeir BJörnsson, Trausti Ólafsson og
Geir Zoéga.
Sr. Hermann Hjartarson
á Skútustöðum i Mývatnssveit, er
staddur hér i bænum um þessar mund-
ir. —
Misritazt
hefir í frásögn Nýja dagblaðsins af
störfum Landsþings Sambands ungra
Framsóknarmanna á sunnudaginn,
nafn Vilhjálms HJálmarssonar frá
Brekku í Mjóafirði.
Skólasel Menntaskólans
Dregið verður í happdrætti skóla-
selsins á morgun. Enn eru fáeinir
miðar eítir, og geta menn íengið þá í
skólanum. Þeir, sem tekið hafa miða
til sölu, og ekki skilað ennþá, eru
beðnir að gera skil fyrir föstudags-
kvöld.
Menntaskólanum
verður sagt upp i dag kl. 1.
Elsa Sigfúss:
MIKBOFON -.p.p.pp.
ULJÓMLEIKAR
í 1 . ..:5 kl. 8i/2
í kvöld.
C. BILLICH VIÐ HLJÓÐFÆRIÐ.
Aðgöngumiðar i Hljóðfærahús-
inu, hjá K. Viðar og Eymundsen.
= = Síðasta simi! = =
Eldsvoðí
Kona og barn
brenna til bana.
Kona og barn í Borgarfirði eystra
fórust í húsbruna í gær. Fréttaritari
útvarpsins að Hallormsstað lýsir at-
burðinum þannig:
í gær kl. 8 kviknaði í húsinu Bakka-
gerðiseyri í Borgarfirði. íkvikmmin
varð mjög skyndilega. Eldurinn læsti
sig í föt aldraðrar konu og stóðu þau
í ljósum loga er hún kom út úr eldin-
um, og var hún þá næstum meðvit-
undarlaus. Hafðl hún reynt að bjarga
ársgömlu barni, en misst það. Barnið
og konan brunnu til bana. Konan hét
Ragnheiður Sigurbjörg ísaksdóttir frá
Seljamýri. En barnið átti Sigurður
sonur liennar. Húsinu varð bjargað.
— FÚ.
Vatnsflóð hindrar
sókn Japana
Allur her Japana
I Aorður-Kína í
hættu.
LONDON:
Vatnsflóð Gulafljóts hefir 1 svipinn
bundið enda á framsókn Japana 1 Ho-
nan-héraðl. Á einum stað skilur fimm
mílna breitt vatnsflóð heri Kínverja
og Japana. Japanir telja sig hafa kom-
izt undan flóðinu án verulegs mann-
tjóns, eftir vonlausar tilraunlr til þess
að gera við flóðgarðana. Hinsvegar
segja þeir, að óhemju fjöldi manna,
sem ekki taki þátt í bardögunum, hafi
farizt á flóðasvæðinu, eða allt að 100
þúsund manns. Telja japönsku fregn-
imar að 900 enskra fermilna svæði só
undir vatni og að 2000 þorp hafi farið
á kaf. Vatnið beijar austur eftir frá
Cheng-Chow, í áttina til strandar,
með fimm mílna hraða á klukkustund.
Bændur af þessu svæði flýja í allar
áttir, til þess að forða sér undan ílóð-
inu.
Kínverjar segja aftur á móti að það
hafi ekki farizt mjög margir menn
meðal íbúanna, en 1200 japanskir her-
menn hafi drukknað og allur her Ja-
pana í Norður-Kína sé í allverulegri
liættu.
Nýjar sprungur eru sagðar vera að
koma í flóðgarðana neðar 1 ánni og er
þá hætt við vatnsflóði i Shantung-
héraði. Mest af landi því sam nú er
undir vatni, hefir verið á valdi Japana
síðan þeir tóku Su-chow fyrir þrem
vikum.
Eins og nú standa sakir, er vatns-
í'lóðið komið 65 mílur enskar til aust-
urs, þaðan sem flóðgarðarnir brotnuðu
j fyrst. Vatnið vex að magni og straum-
hraða, þar sem mjög miklar rigningar
hafa gengið og eru flóðin líkleg til þess
að fara vaxandi. Um þetta leyti árs
byrjar Gulafljót að vaxa og er venju-
lega mest í júlílok. Það er talið hugs-
anlegt, að Japanir megi með öllu
hverfa af þessu svæði. — FÚ.
rvýja BÍ6-£fZ$&
í * - 5
B !*
jj (Þættírúræfisögu ij
■:
5 EMILE Z0LA)
;! Þessi afburða góða ame-
ríska kvikmynd verður
vegna margítrekaðra
skorana sýnd í kvtíld.
'.•.V.V.W.V.V.V.WAV
4
- Kaup og sala -
SSifreiðar.
5 og 7 manna bifreiðar og
vörubifreiðar iy2 tonns, til sölu.
Stefán Jóhannsson, sími 2640.
Fallegt úrval af vorkápum og
sumarfrökkum kvenna. — Gott
snið. Lágt verð.
Verzl. Kristínar Sigurðardóttur,
Laugaveg 20 A.
Nýtízku silkiundirfatnaður
kvenna. Mikið úrval. Verð frá kr.
9.85 settið.
Verzl. Kristínar Sigurðardóttur,
Laugaveg 20 A.
Múrara-
verkfæri :
Múrskelðar,
Skelskeiðar,
Stálbelti,
Glattbretti,
Múrfilt.
Verzlunín BRYNJA.
Hjá
JÓNI & STEIAGIÚMI
fœst bœði
— -- NtR FIJGL -----
og
— IVÝR FISKIJR —-—
PRENTMYNDASTOFAN
LEIFTUR
Hafnarsfræti 17, (uppi),
býr til 1. íloUUs prentmyndir.
aðeins Loftur.
Ú TBRE3ÐIÐ
NÝJA DAGBLADID!