Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 17.06.1938, Qupperneq 3

Nýja dagblaðið - 17.06.1938, Qupperneq 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 Eftirlit með útlendingum Eftir RAGNAR JÓNSSON fulltrúa lögreglustjóra t>>MOM^MITTOMOMÐ^a^B — B«WI I \ÝJA DAÍfllLAÐIÐ Útgefandl: Blaðaútgáfan h.f. Rltstjórf: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. Ritstj órnarskrlfstofumar: Lindarg. 1 D. Símar 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskriístofa: Llndargötu 1D. Simi 2323. Eftir kl. 5: Sími 3948. Áskriítarverð kr. 2,00 á mánuði. í lausasölu 10 aura eintakið. Prentsmiðjan Edda h.f. Simar 3948 og 3720. < i«.0 — 0»o — IT0~n — <m —o —OT<n»> Samþykktír S. U. F. í áíengísmálunum Eitt af þeim . málum, sem stofnþing S. U. F. tók til athug- unar, var bindindismálið. Voru gerðar um það tvær merkar á- lyktanir, báðar samþykktar með öllum greiddum atkvæð- um og án þess að nokkrum at- hugasemdum væri hreyft. Fyrri ályktunin var á þá leið, að skora á unga Framsóknar- menn að afstýra ölvun og á- fengisnautn á skemmtunum sínum og vera öðrum til fyrir- myndar um bindindi og reglu- semi. Siðan hálfbannið var afnum- ið og aðstaðan til áfengiskaupa gerð auðveldari hefir skemmt- anabragur víða í landinu breyzt stórum til hins verra. Mjög oft hefir það komið fyrir,að ölóðir menn hafi gert friðsömu fólki óvært á skemmtunum með drykkjulátum sínum. Gegn þessari ómenningu vilja ungir Framsóknarmenn hefja bar- áttu með því að gera vínið út- lægt af skemmtunum sínum og láta þær þannig verða til fyr- irmyndar. Þeir vilja að á skemmtunum þeirra riki sönn og einlæg gleði og állta að hún verði ekki þvinguð fram með aðstoð eiturlyfja. Þeir vilja að áhrifin af skemmtunum þeirra verði þau, að mönnum þyki gott að minnast þeirra, en það vill sjaldnast verða, þegar vín er haft um hönd. Þeir vilja hafa skemmtanir sinar full- komlega í anda þeirrar menn- ingar, sem flokkurinn berst fyr- ir, og vilja leggja á sig starf og baráttu til að geta fullnægt þeirri sjálfsögðu kröfu. Jafnframt eru ungir . Fram- sóknarmenn hvattir til að sýna bindindi og reglusemi, ekki að- eins á skemmtunum sínum, heldur í hvívetna. Þessi sam- þykkt er ekki gerð vegna þess að meíri ástæða sé til að hvetja unga Framsóknarmenn til slíks en aðra æskumenn. Án nokkurs yfirlætis má fullyrða, að engir hafa siður þörf fyrir slíka hvatningu en ungir Fram- sóknarmenn. En þeir verða líka að hafa það hugfast, að þeir hafa sett sér það mark að auka menningu og þroska þjóðarinn- ar, bæði í sambúðarháttum og á öðrum sviðum, og þeir hafa enga heimtingu á því að orðum þeirra og boðum sé fylgt, ef þeir fylgja þeim ekki sjálfir. Þess vegna gera ungir Fram- sóknarmenn þessar kröfur til sjálfra sín áður en þeir beina þeim til annara. í síðari tillögunni er skorað á Alþingi að láta fara fram ijóðaratkvæðagreiðslu um inn- flutningsbann og sölubann á áfengi og jafnframt skorað á alla Framsóknarmenn að vinna að útrýmingu áfengisnautnar- innar eftir megni. Tjónið, sem áfengisneyzlan veldur, er svo stórfellt og aug- ljóst, að öllum hugsandi mönn- um hlýtur að koma saman um það, að nauðsynlegt sé að út- rýma henni. Hitt getur valdið nokkrum ágreiningi, hvaða leið muni heppilegust að þvl marki. Reynslan virðist sýna, að bind- indisboðun ein saman sé ekki einhlít í þessum efnum. Hálf- bann (t. d. bann á sterkum vín- um en ekki léttum) og héraða- bönn virðast jafnvel verri en ekkert bann, því í skjóli þeirra eiga smygl og bruggun auðvelt uppdráttar. Algert bann virðist því líklegasta leiðin til árang- urs. Ýmsir munu telja atkvæða- greiðslu óþarfa nú vegna at- kvæðagreiðslunnar 1933. Því verður einnig haldið fram, að nýtt bann muni auka heima- bruggun, ekki tjái að setja lög, sem verði brotin o. s. frv. En þessu er öllu auðvelt að svara. Þjóðin fékk ekki að velja um algert bann 1933, heldur um einskonar hálfbann. Andbann- ingar notuðu þá fiskmarkaðinn á Spáni sem aðalvopn sitt, en sú ástæða er nú fallin úr sög- unni og gjaldeyrisörðugleik- arnir styðja sókn bannmanna. Heimabruggið dafnaði I skjóli Spánar-undanþágunnar, en væri algert bann, ætti að vera auðvelt að halda því í skefjum. Það er heimskuleg firra að þora ekki að setja lög, þó einhverjir kunni að brjóta þau. Til hvers er t. d. verið að hafa landhelg- islög, sem árlega eru brotin 1 stórum stil með fullrl vitund og vilja hundraða fiskimanna? Vegna þess, að þjóðin telur þau samt til gagns, enda þó þau kostl hana árlega hundruð þús. kr. Vafalaust myndi þjóðin ekki hafa minni fjárhagslegan hagnað af því, auk alls annars, að verja landið fyrir vininu en að verja landhelgina fyrir veiði- þjófunum. Slíkt gæzlustarf myndi þó sennilega lítið þurfa að auka þann kostnað, sem nú er, við lög- og tollgæzluna. En hvort, sem menn eru bannmenn eða andbanningar, ættu þeir ekkert að hafa við slíka atkvæðagreiðslu að at- huga, svo framarlega sem þeir eru lýðræðismenn og viður- kenna rétt þjóðarmeirlhlutans til að ráða. Bindindlsmenn mega heldur ekki láta ótta við ósigur í atkvæðagreiðslunni draga úr kröfum sínum fyrir henni. Undir öllum kringum- stæðum yrði hún gróði fyrir bindindisstefnuna, þó hann yrði ekki annar en sá, að auka athygli og umræður um þetta stóra vandamál. Ungir Framsóknarmenn vænta þess vegna góðrar sam- vinnu við alla bindindismenn í þessu máli, án tillits til póli- tískra skoðana, og að Alþingi verði við þeirrl ósk, sem þeir hafa borlð fram. Þ. Þ. IV. Löggjöfin um eftirlit með út- lendingum hér á landi er í samræmi við löggjöf nágranna- ríkjanna, Norðurlanda og Bret- lands. Það er eðlilegt, að svo sé og óhjákvæmilegt að fram- kvæmd eftirlitsins sé með svip- uðum hætti og hjá þeim þjóð- um, sem við höfum nánust skipti við. f skiptum okkar við útlendinga þá, er hingað koma, er ástæðulaust og skaðlegt að sýna nokkra meinsemi eða yfir- leitt að gjöra útlendum mönn- um örðugra fyrir um komur hingað eða dvöl hér á landi, en íslenzkum mönnum er gjört í löndum vinsamlegra þjóða. En það er öllum kunnugt, að íslenzkir menn fara til og dvelja við nám og störf í flest- um þeim ríkjum, sem hingað koma menn úr. Yfirleitt er umferð ríkja á milli frjáls og lögð áhersla á að gjöra mönnum ferðalög eins greið og óþvinguð og unnt er. Menn telja sér allmikinn hag að komu erlendra ferðamanna og dvöl erlendra manna í land- inu er mikilsverður liður í að halda uppi menningar- og við- skiptasambandi við önnur lönd. Nokkuð sérstöku máli gegnir um þá menn, er hingað koma, beint með það fyrir aug- um, að setjast hér að. Þess, sem fyrst og fremst þarf að gæta, þegar útlending- ur tekur hér land, er það, að hann sé ríkisborgari i einhverju riki og geti sannað það með löglegu vegabréfi. Ef hann á hvergi þegnrétt, getur ríkið átt það á hættu, að sitja uppi með hann, hver vandræði sem af honum kynnu að hljótast. Flest ríki munu þess vegna undan- tekningarlltið neita slíkum mönnum um landgöngu. Það er gjört hér undantekningarlaust. Hingað til lands munu hafa borizt, áður en skoðun vega- bréfa var tekin upp, 3—4 menn, sem ekkert ríkisfang eiga. Er ekki enn sýnt hvernig fara muni um það fólk. Þá þykir og sjálfsagt hér, sem annarsstað- ar, að bægja frá landgöngu fólki, sem sýnt er að verða muni bjargþrota og fólki, sem þekkt er að glæpsemi. Yfirleitt verða að vera einhverjir sér- stakir hankar á högum út- lendinga til þess, að ástæða sé til að meina þeim landgöngu, en koma manna hingað annars gerð sem greiðust og frjálsleg- ust, eins og hvervetna er ann- arsstaðar. Um útlendinga þá, er hingað koma til þess að taka dvöl verður hið sama að gilda. Á sama hátt og íslendingar leita sér dvalar erlendis, verðum við að taka við útlendingum, sem hingað koma frá vinsamlegum þjóðum og í friðsömum og lög- legum tilgangi. Það er síður en svo ástæða til að amast við fólki, sem hér vill dveljast sér til skemmtunar eða hressingar, í viðskiptaerindum, við fræði- störf eða nám, eða er fengið hingað sem sérfræðingar eða kunnáttumenn. En sérstakt eft- irlit verður þetta fólk að þola, á sama hátt og tíðkast í ná- grannaríkjum. Og ráðherra hefir alltaf í hendi sér, að vísa því úr landi ef háttalag þess gefur tilefní til. Um útlendinga þá er hingað leita í þeim tilgangi að setjast hér að, gegnir sérstöku máli. Sumir munu telja kynblöndun þá, er af því leiðir, miður æski- lega. Flestir munu vera þeirrar skoðunar, að eins og nú horfir við um atvinnulíf landsins, sé full ástæða til að takmarka slíkan innflutning fólks. Allir munu vera sammála um það, að gæta þess, að óvalið fólk streymi ekki hingað eftirlits- laust til að setjast að í land- inu. Það er einnig í samræmi við stefnu flestra þjóða, að reisa rönd við slikum innflutn- ingi. Löggjöfin um atvinnurétt- indi útlendinga, hlýtur mestu að ráða um það, hvort þeim er kleyft, að setjast hér að fyrir fullt og allt. Þá löggjöf er rétt- mætt og nauðsynlegt að skerpa í ýmsu frá þvi sem nú er. Eins og áður er sagt, tekur hún ekki til fólks, er rekur sjálfstæða atvinnu, og er full ástæða til að taka hana til endurskoðunar að því leyti. Lögin banna að visu að ráða útlent fólk i þjónustu sína hér á landi, en frá þvi eru veiga- miklar undantekningar, og á- kvæði þeirra þar að auki ekki ótvíræð. Það væri sjálfsagt heppileg regla, að hafa slíkt bann undantekningarlaust, en láta atvinnumálaráðherra um að veita nauðsynlegar undan- þágur. Þá er og bxýn nauðsyn til að fá lögtekin ákvæði, er heimill sérstakt eftirlit með skemmtunum, sýningum og listaflutningi útlendra manna hér, en um það eru ekki ákvæði í lögum nú, þótt önnur riki hafi strangt eftirlit með slíku. V. Meðal almennings er uppi allmikil umræða um útlendinga þá, er hér hafa tekið sér að- setur eða dvöl. Mörgum mikl- ast í augum fjöldi þeirra og starfsemi. Að nokkru leyti mun þetta byggt á eðlilegum mis- skilningi. Kemur þar tvennt til. í fyrsta lagi er hér allmargt danskra rikisborgara, en þeir njóta samkvæmt sambandslög- unum jafnréttis við íslendinga hér á landi. Útlendingalög- gjöfin tekur þvi ekki til þeirra. í öðru lagi er hér fjöldi manna í áberandi stöðum, af erlend- um ættum, og með erlend nöfn og af almenningi kallaðir út- lendingar, en hafa fyrr eða siðar öðlazt Islenzkt rikisfang. En á þvi hefÍT borið, að út- lendingum hafi verið gjört furðu auðvelt fyrir með að öðlast íslenzkan ríkisborg- ararétt, og það jafnvel orðið efni i skopsögur. Jafnhliða hinni nýju útlendingalöggjöf voru þó sett ný ákvæði i ríkis- borgaralögin, er ættu að fyrir- byggja að nokkru, að slíkt tak- ist framvegis. Um áramótin síðustu voru gjörðar skýrslur um þá útlend- inga, sem þá dvöldu hér á landi. Tölurnar eru þessar: Reykjavik: karlar 117 konur 78 ---------------------- 195 Utan Rvíkur: karlar 71 konur 35 ------------------------ 106 Á öllu landinu samtals 301 útlendingar eldri en 16 ára. Börn yngri en 16 ára: 82. Þess verður að gæta, að í töl- um þessum er talið fólk, sem dvalið hefir um áratugi í landinu, ef það ekki hefir öðlazt ríkisborgararétt. Sumt af því hefir komið til landsins fjrrir aldamót. Einnig eru taldir með nokkrir menn af íslenzkum ætt- um, sem hafa mist íslenzks rik- isfangs, svo sem nokkrir Vest- ur-íslendingar. Þessar þjóðir eru hér fjöl- mennastar: Þýzkir (og austurrískir) ríkisborgarar 101 Norskir ríkisborgarar 83 Sænskir rikisborgarar 15 Brezklr ríkisborgarar 7 Það er eftirtektarvert að Þjóðverjar eru hér fjölmenn- astir. Margt þeirra hefir flutt hingað á siðustu árum. Eftir starfsemi skiptast út- lendingar þannig: Sjálfstæða atvinnu reka 42 í annara þjónustu eru 192 Nám stunda 15 Allmargt útlendinga þeirra, sem eru í annara þjónustu, er íengið hingað til lands, sem sérfræðingar og kunnáttumenn í iðnaði og nýjum atvinnugrein- um. Þannig komu t. d. á síðast- liðnu hausti 10—15 norskir refahirðar hingað. Oft er það gert að skilyrði fyrir atvinnu- leyfi, að útlendingur kenni frá sér sérgrein sina og er það sjálfsagt. Sumt þessa fólks leggur þó kapp á að ílendast hér og nýtur oft til þess full- tingis atvinnuveitenda sinna. Er nauðsyn á því, að stjórnar- völd og fagfélög taki ákveðna afstöðu til slíks, strax og at- vinnuleyfi er veitt I byrjun. Hér með er einnig talið fólk, er starfar hér á landi 1 þjónustu erlendra stofnana, svo sem ka- þólska trúboðsins og Hjálpræð- ishersins. Allmargt stundar landbúnaðarstörf og töluvert af stúlkum dvelur hér í vistum. VI. í sambandi við þetta mál hefír verið alveg sérstaklega rætt um aðsteðjandi hættu, er okkur stafaði af erlendum flóttamönnum, svokölluðum. Við los það, er kom á ýms ríki upp úr heimsstríðinu og (Framhald d 4. siöu.)

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.