Nýja dagblaðið - 04.08.1938, Side 1
6. ár
(»
(>
(»
(»
(»
(»
o
(»
ID/^GilBIL^OIHÐ
Reykjavík, fimmtudaginn 4. ágúst 1938.
176. blað
ANNALL
Bardagar Rússa og Japana
halda áíram víð Changku-
íeng
Japanír bjöða Kínverjum sáttaumleítanír
LONDON:
Ákafar árásir hafa verið gerð-
ar af beggja hálfu, Rússa og Ja-
pana, í nánd við Chanku-feng,
á landamærum Manchukuo, Si-
biriu og Koreu, þar sem að kalla
látlausir bardagar hafa staðið
yfir frá því á laugardag. Báðir
aðilar hafa teflt fram fótgöngu-
liði og skriðdrekum og flugmenn
beggja haft sig mjög í frammi.
Frá Manchukuo berst fregn um það,
áð nokkur hundruð japanskar flug-
vélar hafi flogið eftir endilöngum
landamœrum Manchukuo og Sibiriu
án þess að nokkur þeirri flygi yfir
landamæri Sibiriu og segjast Japanir
hafa gert þetta til þess að sýna hvers
þeir séu megnugir í lofti þar nyrðra,
þrátt fyrir styrjöldina í Kína.
Loftárásir Rússa.
í fregnum frá Japan og Koreu er
mjög mikið rætt um loftárásir Rússa á
borgir í Koreu, nálægt landamærunum.
Flugvélaflokkar hafa flogið langt inn
yfir Koreu og hefir það vakið mikla
gremju í Japan og þó enn meiri loft-
árásir þær, sem Japanir segja Rússa
hafa gert á nokkra bæi Koreu við
landamærin. í einni slíkri árás tóku
þátt 90 flugvélar. Stórskotalið hélt
einnig uppi skothríð á þennan bæ og
annan bæ til skammt frá, og eru íbú-
arnir nú að flýja þaðan. Þá segja Jap-
anir, að Rússar hafi sótt fram með 9
fallbyssur og 30 skriðdreka í áttina til
varnarstöðva Japana, en þegar þeir
voru svo sem 150 metra frá yztu varn-
arlínustöövunum, hafi þeir hörfað til
baka og tekið til að treysta sínar eig-
in víggirðingar.
Mótmæli Rússa.
í Rússlandi er því haldið fram, að
loftárásirnar á borgir í Koreu séu upp-
spuni japanskra hernaðarsinna, sem
vilji stríð við Rússa, en loftárásirnar
eigi að réttlæta það í augum heimsins,
að þeir segi Rússum stríð á hendur.
Fjölmennir verkamannafundir halda
áfram um gervallt Rússland og þess
krafizt að stjórnin taki á þessum mál-
um með festu og djörfung og geri allar
Franco rænír norsku
skípí með fullfermí
af íslenzkum saltfískí
nauðsynlegar ráðstafanir til þess að
vernda landið. í áskorun verkamanna
í skipasmíðastöð flotans í Leningrad,
segir m. a. að öll þjóðin sé undir her-
væðingu búin og kröfðust verkamenn-
irnir að sjálfstæði landsins væri varið.
Vilja hvorugir stríð?
Evrópublöðin líta svo, að þótt mikil
hætta sé á ferðum, að bæði í Moskva
og Tokio vilji menn raunverulega forð-
ast stríð. Hallast blöðin að því, að
nefnd verði skipuð þegar i stað til þess
að finna varanlega lausn á deilum Ja-
pana og Rússa um landamæri Sibiriu
og Manchukuo. Sum blöðin ætla Rússa
ekki fráhverfa skipun slíkrar nefndar.
Öll blöðin leggja áherzlu á mikilvægi
þess, að málið verði leyst friðsamlega.
Seinustu fregnir herma, að fyrirskip-
anir hafi verið gerðar um takmarkaða
noktun rafmagns til lýsingar á götum
og í húsum í Manchukuo og Koreu og
einnig í Norður-Japan. Er þetta gert
af ótta við loftárásir Rússa. — FÚ.
OSLO:
Japanir liafa lýst yfir því, að
þeir séu fúsir til að kunngera
opinberlega hvaða skilyrði þeir
vilji setja til þess að umræður
fari fram um frið við Kínverja.
— FÚ.
Runciman
komínn tíl Prag
Víðræður stjórnar-
innar við minni-
hlutafulltrúana
eru byrjaðar
LONDON:
Runciman lávarður kom til Prag í
gær síðdegis og voru fulltrúar ýmsra
helztu ráðherranna mættir til þess að
taka á móti honum. Ennfremur full-
trúar Sudeten-þýzka flokksins. Við-
ræður Pragstjórnarinnar við fulltrúa
þjóðernislegra minnihluta, byrjuðu í
gær.
Þing Tékkoslóvakíu kom saman í
fyrradag, en þingstörfum var frestað
að þingsetningu lokinni og mun þing-
ið ekki koma saman fyrr en samkomu-
lagsumleitunum við þjóðernislega
minnihluta er svo langt komið, að hægt
verði að leggja málið fyrir þingið. FÚ.
Samkomulag Frakka
og Þjóðvcrja iuii ausí-
216. dagur ársins.
Sólarupkoma kl. 3.45. Sólarlag kl.
9.20. Árdegisháflæður í Reykjavík kl.
11.40.
Næturlæknir
er í nótt Katrín Thoroddsen, Egils-
götu 12, sími 4561. Næturvörður er í
Ingólfs Apóteki og Laugavegs Aóteki.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfr. 12,00 Hádegisútv.
15,00 Veðurfr. 19,10 Veðurfr. 19,20
Lesin dagskrá næstu viku. 19.30 Hljóm-
plötur: Létt lög. 19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir. 20.15 Frá Ferðafélagi ís-
lands. 20.25 Frá útlöndum. 20.40 Hljóm-
plötur: Létt lög. 20.45 Garðyrkjutími
(Stefán Þorsteinsson ráðun.). 21.00
Hljómplötur: a) Fiðlukonsert, eftir Wi-
eniawsky. b) Hringdans, eftir Hummel.
c) 21.30 Andleg tónlist.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Mosfellssv.-, Kjalarness-,
Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar.
Hafnarfjörður. Seltjarnarnes. Þrasta-
lundur. Laugarvatn. Bílpóstur að norð-
an. Fagranes til Akraness Laxfoss til
Borgarness. Þingvellir. Breiðafjarðar-
Dala-, Barðastrandar- og Fljótshlíðar-
póstar. Gullfoss til ísafjarðar. Esja til
Glasgow.
Til Rvíkur: Mosfellssv.-, Kjalarness-,
Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar.
Hafnarfjörður. Seltjarnames. Þrasta-
lundur, Laugarvatn, Þingvellir, Fagra-
nes frá Akranesi, Laxfoss frá Borgar-
nesi. Norðanpóstur. Breiðafjarðarpóst-
ur. Þykkvabæjar-, Strandasýslu- og
Kirkj ubæj arklausturspóstar.
Skipafréttir.
Esja er í Reykjavík. Súðin kom til
Reykjavíkur um miðnætti í nótt. Gull-
foss er í Rvík. Goðafoss var væntan-
legur að vestan og norðan snemma í
morgun. Brúarfoss fór frá Grimsby í
gærkvöldi, áleiðis til Khafnar. Detti-
foss er á leið til Hull frá Hamborg.
Lagarfoss kom til Khafnar í gærmorg-
un. Selfoss er í London.
Drengjamót Ármanns.
Hið árlega drengjamót Ármanns
hefst á íþróttavellinum í kvöld klukkan
7.30. Verða keppendur alls um þrjátíu
frá þremur félögum, Ármanni, K. R.
og Fimleikafélagi Hafnarfjarðar. í
kvöld verður keppt í 80 metra hlaupi,
1500 metra hlaupi, langstökki og
kringlukasti. Drengjamótið heldur á-
fram á föstudagskvöldið og laugardags-
kvöldið. Aðgangur að vellinum verður
50 aurar fyrir fullorðna og 25 aurar
fyrir böm.
Keppendur og starfsmenn
á drengjamóti Ármanns eru áminnt-
ir um að mæta á réttum tíma.
Þátttakendur
í fyrri Mýmatnsferð Ferðafélagsins
eru beðnir að mæta 1 Oddfellow-húsinu
á föstudagskvöld.
Listsýningin
í Miðbæjarskólanum verður opin að-
eins í tvo daga enn.
Úr Skagafirði.
Tvo undanfarna daga hefir verið af-
bragðsþurrkur í Skagafirði, svo að
allir hafa hirt að ljánum. Víðast hvar
er þó eitthvað eftir að slá af túnum,
en þv íverður lokið á næstunni. Tún
hafa sprottið vel síðustu daga, en á
útengi er grasspretta léleg. — FÚ.
Héraðsmót
vestfirskra Góðtemplara var haldið
að Núpi í Dýrafirði síðastliðinn laugar-
dag og sunnudag. Umdæmisstúkan nr.
6 stóð fyrir mannfagnaði þessum. Full-
trúar á svæðinu frá Tálknafirði til
ísafjarðar sóttu samkomuna og auk
þess margir aðrir, eða um 150 manns.
Sama dag var haldin fjölmenn sam-
koma að Þingeyri. Er nú í smíðum
stórt samkomuhús fyrir kauptúnið og
var samkoma þessi til tekjuöflunar
fyrir húsbyggingarsjóð. — FÚ.
Til Seyðisfjarðar
kom i fyrradag færeyska skipið Kyr-
jasteinur og lagði á land 1133 mál
síldar, er veiddist sunnan Langaness.
Síldarbræðslan á staðnum hefir nú tek-
ið við nálægt 3000 málum sildar. — FÚ.
KAUPMANN AHÖFN:
Norska utanríkismálaráðuneytið til-
kynnir að flutningaskip frá Bergen,
sem fyrir nokkru lagði af stað frá ís-
landi með 1500 smálestir af fiski og
sem átti að vera komið til Marseille á
Frakklandi 24. júlí, hafi verið tekið í
Miðjarðarhafi af flugvélum í þjónustu
Fi-ancos og skipað að halda til Ceiita.
Norska utanríkismálaráðuneytið hefir
þegar mótmælt þessu athæfi við stjórn-
ina í Burgos og krefur fullkominna
skaðabóta fyrir skipstökuna. — FÚ.
urrískar ríkisskuldir.
* LONDON:
Samkomulagsumleitunum, sem stað-
ið hafa yfir undanfarna 2 mánuði,
milli Frakka og Þjóðverja, um greiðslu
á lánum sem Frakkar veittu Austur-
ríki, er nú lokið. Náðist algert sam-
komulag um greiðslu skuldanna. Þýzk
blöð fagna þessu samkomulagi og
segja, að allir samningar á sviði al-
þjóðlegra viðskipta sé spor í rétta átt
og sérstakt fagnaðarefni á jafn við-
sjárverðum tímum og nú eru. — FÚ.
Mörg skip
komu með full-
fermi til Siglu-
fjarðar í gær
Mikil síld fyrir öllu
Norðurlandi.
Fjöldi skipa kom til Siglu-
fjarðar í gær og fyrrinótt
með fullfermi. Er nú mikil
síld fyrir öllu Norðurlandi
og veiðiveður hefir verið
betra en nokkru sinni fyrr
í sumar. Er útlit fyrir að það
muni haldast.
Um kl. 8 í gærkvöldi biðu 20
skip eftir afgreiðslu hjá ríkis-
verksmiðjunum á Siglufirði. Hin-
ar verksmiðjurnar áttu líka
nokkur skip eftir óafgreidd. í
gærkvöldi var von á fleiri skip-
um.
Sum skipin hafa verið mjög
stuttan tíma úti. T. d. kom Jón
Þorláksson inn með fullfermi
um hádegi í fyrradag og var
kominn inn aftur með fullfermi
í gærkvöldi. Hafði hann náð í
síldartorfur rétt utan við fjarð-
armynnið.
Siglufirði, í gær. — FÚ.
Til Ríkisverksmiðjanna í
Siglufirði komu frá því um
nón í gær til nóns í dag 50
skip, með samtals 23.000 mál, en
27 skip bíða afgreiðslu. Mest hef-
ir veiðzt á svæðinu frá Tjörnesi
til Haganessvíkur. Mikil síld var
víðast hvar á því svæði og veiði-
veður ágætt. Flugvélin Örn kom
til Siglufjarðar kl. 13.25 úr síld-
arleit. Sá hún allmikla síld vest-
an Málmeyjar, við Ásbúðasker
að Múlaey. Einnig sá hún miklar
torfur vestan Hafnarbúða,
Kálfshamarsvíkur og Skaga-
strandar, tvo til fjóra kílómetra
frá landi. Þá sá hún og mikla
síld begg|ja megin Vatnsness.
Örfá skip voru þó að veiðum í
Skagafirði og Húnaflóa. Um kl.
15 óö síld allt í kringum Gríms-
fey. Hiti á veiðisvæðinu er 14 til
16 stig. Söltun í gær var 3649
tunnur — þar af 976 matjessíld.
í dag var mjög lítið saltaö, eink-
um af matjessíld. Síldin er mjög
misstór og misfeit og þykir ill-
fært að greina hana sundur til
matjessöltunar. Fitumagn er 13
til 18 af hundraði, en þó mun
minna af feitu síldinni. Rekneta-
veiði er að glæðast, í dag hefir
veiði á bát komizt upp í 50 tunn-
ur. Aðrar verksmiðjur í Siglu-
firði en ríkisverksmiðjurnar,
fengu um 2000 mál síldar á síð-
asta sólarhring.
Bliicher
vill stríð
Fjöldi rússneskra her-
manna hef ír veríð flutt-
ur til Austur-Síberíu
seínustu mánuðína
Dómar heimsblaðanna um
það, hvort hinar nýju landa-
mæraþrætur Japana og
Rússa muni leiða til styrj-
aldar, eru mjög skiptir.
Yfirleitt ber þeim saman um
að Japanir óski ekki eftir styrj-
öld við Rússa eins og sakir
standa. Hinsvegar fullyrða mörg
þeirra, að Rússar, sem eigi upp-
tök þessara óeirða, telji að styrj-
öld við Japani verði ekki umflúin
og nú séu kringumstæðurnar
einna heppilegastar fyrir Rússa,
þar sem Japanir verði að hafa
mikið af her sínum í Kína og
Kínastyrjöldin hafi leitt i ljós að
þeir séu ekki eins hernaðarlega
sterkir og áður var haldið. Önn-
ur telja að Rússar ætli raun-
verulega ekki í styrjöld að þessu
sinni, heldur sé þetta bragð af
þeirra hálfu, gert til þess að Jap-
anir þori ekki að flytja meira
herlið frá Manchukuo til Kína,
en þess hafa þeir mikla þörf, ef
sókn þeirra þar á að heppnast.
Reynslan ein sker úr því, hvor
tilgátan er réttari.
Sérfræðingur í hernaðarmál-
um, sem ferðazt hefir í sumar
um Sibiriu með leyfi rússnesku
stjórnarinnar, hefir í viðtali, sem
birzt hefir í ýmsum Norður-
landablöðum, látið eftirfarandi
álit í ljósi:
Fyrir ári síðan óskuðu hvorki
Japan eða Rússland eftir styrj-
öld. Þau létu aö vísu ófriðlega
við landamærin, skiptust á harð-
orðum orðsendingum, en án
verulegrar alvöru. Eg hygg að
Rússland óski ekki eftir styrjöld
nú, en það óttast hana heldur
ekki. Japan vill hinsvegar um-
fram allt komast hjá styrjöld.
Úrslitavaldið liggur raunveru-
lega í höndum Blúchers, yfir-
hershöfðingja Rússa í Austur-
Asíu. Hann er valdamesti mað-
urinn í Sibiriu og hann vill styrj-
öld. Hann mun einskis láta ó-
freistað til að koma fram þeim
vilja sínum, því hann veit vel
að tíminn nú er eins óhentugur
fyrir Japani og hann getur
nokkru sinni verið.
Rússneski herinn í Sibiriu get-
ur barizt í eitt ár, án þess að fá
hjálp frá Moskva. Rússland
sjálft hefir ekkert að óttast, þótt
styrjöld geysi í Austur-Sibiriu.
Her Blúchers er áætlaður um 900
þúsundir manna, auk varaliðs.
Menn grunar það yfirleitt ekki í
(Framh. á 4. síðu.)