Nýja dagblaðið - 14.08.1938, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 14.08.1938, Blaðsíða 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Er mjúk sem rjómi og hefir yndislegan rósailm. Fæst í öllum verslunum, sem leggja áherslu á vöru- gæði. VERÐ VIÐTÆKJA ER LÆGRA HER A LANDI, EN I ÖÐRUM LÖNDUM ALF- UNNAR. Vlðtækjaverzlunln veitir kaupendum viðtækja meiri tryggingu um hagkvæm vlðskiptl en nokkur önnur verzlun mundi gera, þegar bilanlr koma fram i tskj- unum eða óhðpp bera að höndum. Ágóða Vlðtækjaverzlunarinnar er lögum samkvæmt eingöngu varið til roksturs útvarpsins, almennrar út- breiðslu þest og tll hagsbóta útvarpsnotendum. Takmarkii er: Viðtækl inn á hvert kelmlli. Víðtækjaverzlun ríkísíns Lækjargötu 10 B. Sími 3823. Réykíd VIRG1N1A CIGARETIGR 20 stk Pakkínn ffþslcir kr.l-35 Reykfavík - Akureyrí Næsta öraðferð um Akraues til Ak- ureyrar er á máuudag Bifrei&astöð Steindórs. Sími 1580. / ■ ::::::;| • § M;;;; ! i ■ 11 "■ Gula bandið er bezta og údýrasta smjörlíklð. f heildsölu hjá Samband ísl. samvinnufélaga Sími 1080. Mámsferill einvaldanna Því hefir löngum verið haldið fram, að þeir menn, sem á efri árum komust hátt í valdastiganum, hefðu oft og ein- att verið fremur lélegir námsmenn á skólaárum sínum. í eftirfarandi grein er rætt um námsferil fjögra einvalda, og virðist hann í samræmi við þessa kenningu. Mussolini var uppvöðslusamur og latur, Stalin stundaði nám sitt vel, unz hann var rekinn úr skóla fyrir byltingaáróður, Hitler var latur og áhugalaus við nám, og Francisco Franco var veik- geðja, en vildi verða herforingi og harðnaði með aldrinum. í vetur urðu um það umrœður í enska þinginu, hvort ástœðan vœri til þess, að konur tœkjust prédikunarstörf á hendur. Dr. W. R. Matthews, höfuð- prestur i St. Paulskirkju, lét orð falla á þessa leið: — Eg legg enga sérstaka merkingu í þá staðreynd, að allir postularnir voru karlmenn. — Þjóðfélagsástandið var þannig á þeim dögum, aö annað var ó- hugsandi. Mér finnst þessi staöreynd vera mjög hœpin rök fyrir því, aö um alla tíma skuli karlmenn einir vera prestar. Með jafn- miklum rétti mœtti krefjast þess að allir prestar hinnar kristnu kirkju skyldu vera Gyðingar, eins og postularnir voru. * Nýlega var forn regnhlíf seld á upphoði í Englandi fyrir 160 krónur. Það var fyrsta regn- hlífin, sem tíl Englands kom. Maður að nafni Jones Hanway, kom með hana frá Austurlöndum á slnum tíma og notaði hana heima í Englandi um þrjátíu ára skeði, áður en fólk tók almennt að nota regnhlifar. í herrans mörg ár var hann allra athlægi fyrir sérvizku sína. En sá hlœr bezt, sem síðast hlœr. Nú getur gamli maðurinn skellihlegið undir regnhlífinni sinni. * Ameriskur milljónamœringur kom nýlega til Evrópu á snekkju sinni. Hann hafði verið hrœði- lega sjóveikur á leiðinni og hafði alls ekki dug í sér til þess að leggja út á hafið að nýju. Hann settist því að hérna megin At- lantshafsins og œtlar að halda þar kyrru fyrir œfilangt. * Hinn svonefndi Julius Rosen- waldssjóður í Bandarikjunum, úthlutar árlega stórfé til hvítra og svartra manna, sem líklegir þykja til afreka í menningarlífi þjóðarinnar. í ár var úthlutað 85 þúsund dollurum og féllu þeir í hlut 34 svertingja og 18 hvitra manna. * Þekktur ameriskur flugmaður undirbýr flug í kringum hnött- inn, án þess að lenda nokkurn- tíma á leiðinni. Hann œtlar að láta flugvélar fœra sér benzín á nokkrum tilteknum stöðum. * Anthony Eden hefir verið beð- inn að koma í fyrirlestraferð til Bandarlkjanna og voru honum boðnar 6000 kr. fyrir hvern fyrir- lestur og auk þess 10.000 kr. fyrir útvarpserindi. Hann hefir hafn- að boðinu. Þetta þykir benda til þess að hann sé i miklu aliti í Bandaríkjunum. T. d. fœr H. G. Wells ekki nema 2000 kr. fyrir útvarpserindi þar og Bernard Shaw 3000 kr. * TIL ATHUGUNAR: Konum er ekki svo mjög á móti skapi að vera misþyrmt, þvl að þeirra beittasta vopn er að leika píslarvopn. Bernhard Shaw. Þaö er mjög algengt hér í heimi, að þeir, sem á fullorðins- árunum vei'Öa á einhvern hátt afburöamenn, hafa ekki verið framúrskarandi á neinn hátt, þegar þeir voru í skóla. Mörgum verður á að hugsa um, hvernig þessu muni varið með einræðis- herra vorra tíma. Um skólaveru einvaldsherr- anna eru ekki til nema fremur ónákvæmar frásagnir, en af þeim frásögnum, sem til eru, sézt glöggt, að þeir hafa ekki á neinn hátt gefið til kynna á skólaár- unum, hvað í þeim byggi. Mussolini var mörg ár í skóla, bæði sem nemandi og síðar sem kennari. Faðir hans var smiður í smábænum Dovia, og hann vildi auðvitað, að sonur sinn, Benito, en hann var skírður það eftir mexikanska uppreistarmannin- um Benito Juarez — skyldi hafa smíðar að lífsstarfi. Benito litli stefndi hærra sjálfur og vildi verða kennari. Móðir hans var kennslukona við þorpsskólann, og hún var einnig þeirrar skoð- unar, að Benito litli væri borinn til einhvers „æðri“ starfa en smíðanna. Hún kenndi í stofu yfir smiðjunni, svo að hamars- höggin blönduðust hávaðanum í kennslustofunni. Benito fær sínu framgengt og faðir hans ekur honum í asna- kerru til Faenza, og þar er hon- um komið fyrir á skóla Salesian- er-reglunnar. Mussolini var erfiður nemandi ekki sízt vegna þess, hve gjarn hann var á að láta hnefana skera úr um ýms deilumál milli sín og skólabræðranna. Hann hafði þó lært dálítið í latínu áð- ur en skólastjórinn missti þolin- mæðina og vísaði honum heim aftur. Mussolini gafst ekki upp við þenna mótblástur. Honum tókst að komast í kennaraskólann í Forlimpopoli. Hann skaraði ekki fram úr þar í neinni grein, og engan af félögum hans grunaði að meðal þeirra væri sá maður, er síðar yrði einvaldur á Ítalíu. Mussolini var ekki gefinn fyrir spurningar, og notfærðí sér gjarna, ef þess var kostur, að fela sig að baki félaganna; Hann var oft að athuga pólitísk blöð og bæklinga í kennslustundun- um. Það, sem einkum bar á í fari hans, var hvað hann hafði mikla ánægju af hljóðfæraslætti og hann lét þess oftar en einu sinni getið við félaga sína, að; hann vildi heldur missa annan- hvorn fótinn, en heyrnina. Stundum kom þaö fyrir, aö hann kom kennurunum alveg á óvart. Einu sinni var til dæmis borin upp spurning, sem hann svaraði með klukkutíma ræðu um efnið. Mælskan, sem Musso- lini sýndi þannig, varð til þess að hann fékk að halda nokkrar ræður við hátíðleg tækifæri. Þegar hann var útskrifaður af kennaraskólanum, sótti hann um skrifarastarf í fæðingarbæ sínum. En þar sem hann var að- eins 18 ára gamall, þótti hann allt of ungur fil starfans. Hann fékk kennarastöðu skömmu síð- ar. Þeir, sem kenndu með hon- um, segja, að hann hafi, sem kennari, verið ákaflega hæglát- ur, en gagnrýnt þó einstöku sinnum yfirstjórn skólans. í heilbrigðis- og agaskýrslum frá kennsluárum hans, finnast eftir- farandi athugasemdir m. a.: „Eg hefi ætíð verið þess megnuguur, að hafa góðan aga með lifandi og hrífandi kennslu. Sá agi, sem næst með þvingunum, er í sjálfu sér enginn agi,“ í þessu efni virðast þeir kenn- arinn Mussolini og einvaldurinn Mussolini vera næsta ólíkir í skoðunum. En þetta er ekki eina (Framh. á 4. slSu.)

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.