Nýja dagblaðið - 31.08.1938, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 31.08.1938, Blaðsíða 1
f V erðbréf abaiikiim. Austurstr. 3. Sími 3652. Opið *kl. 11—12 og 1—3. Annast öll verðbréfaviðskipti. (^^11 ^ID/^GfIBI/’MÐIHÐ 6. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 31. ágúst 1938. 199. blað ANN ÁLL 243. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 5,07. Sólarlag kl. 7,47. — Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 9,10. Veðurútlit í Reykjavík: Stillt og bjart veður. Næturlæknir er í nótt Gísli Pálsson, Laugavegi 15, sími 2474. — Næturvörður er í Ingólfs- apóteki og Laugavegs apóteki. Dagskrá útvarpsins: Kl. 10,00 Veðurfr. 12,00 Hádegisút- varp. 15,00 Veðurfr. 19,10 Veðurfr. 19,20 Hljómlötur: Lög leikin á bíó-orgel. 19,40 Augl. 19,50 Préttir. 20,15 Útvarps- sagan („Októberdagur", eftir Sigurd Hoel). 20,45 Hljómplötur: a) „Gifting- in“, tónverk eftir Stravinsky. b) (21,15) íslenzk lög. c) Lög leikin á ýms hljóð- færi. 22,00 Dagskrárlok. Listasafn Einars Jónssonar er frá 1. september opið sunnudaga og miðvikudaga kl. 1—3. Póstferðir á morgun. Frá Rvík: Mosfellssv.-, Kjalamess-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnarnes. Þrasta- lundur, Ljósafoss, bílpóstur að norðan, Laugarvatn, Þykkvabæjarpóstur, Pagra nes til Akraness, Laxfoss til Akraness og Borgarness, Þingvellir. Til Rvíkur: Mosfellssv.-, Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnarnes. Þrasta- lundur, Þingvellir, Breiðafjarðarpóstur, Laugarvatn, Ljósafoss bílpóstur að noröan, Dalapóstur Austanóstur, Barðastrandarpóstur, Fagranes frá Akranesi, Laxfoss frá Borgarnesi og Akrariesi. Svargrein hefir Nýja dagblaöinu borizt frá Að- alsteini Sigmundssyni við grein Sigur- jóns Péturssonar hér í blaðinu í gær. Grein Aðalsteins mun birtast í blaðinu á morgun. Stefán Þórarinsson frá Valþjófsstað, starfsmaður í Áfengisverzlun ríkisins, andaðist á Landsspítalanum aðfaranótt mánu- dagsins. Vestfjarðaför ráðgerir Ferðafélag íslands n. k. laugardag, kl. 6 e. h., með Gullfoss. Viðdvöl á Bildudal mestan hluta sunnudags. Verður þá gengið upp á Bíld eða önnur nálæg fjöll, ef veður og útsýni leyfir. Nánari upplýsingar á skrifstofu Kristjáns Skagfjörð, Tún- götu 5. Hringferð um Grafninginn. Ferðafél. íslands ráðgerir að fara skemmtiferð um Grafning n. k. föstud. Lagt á stað kl. 8 árd. frá Steindórsstöð. Ekið austur að Þingvallavatni og með- fram vatninu um Hestvík, Nesjavelli og Hagavík suður undir Úlfljótsvatn. Þá niöur með Sogi og suður með Álfta- vatninu „bjarta“ og Ingólfsfjalli um Ölves og Hellisheiði til Reykjavíkur. — í Grafningnum veröur farið í berjamó. Ferðin verður ódýr. Farmiðar seldir á skrifstofu Kr. Ó. Skagfjörðs, Túngötu 5, til kl. 7 á fimmtudagskvöld. Skipafréttir. Gullfoss kom frá útlöndum seint í gærkvöldi. Goðafoss fór vestur og norð- ur í gærkvöldi. Brúarfoss var í gær á leiö til Grimsby frá Vestmannaeyjum. Dettifoss er í Hamborg. Lagarfoss var í gærmorgun á leið til Óspakseyrar frá Borðeyri. Selfoss fór frá Hamborg í fyrradag áleiðis til Antwerpen. Súðin var á Akureyri í gærkvöldi. Esja er í Reykjavík. í Raufarhöfn hafa frá því á laugardagskvöld og til hádegis í gær 35 skip lagt á land um 10.000 mál af síld. Sildin veiddist út af Melrakkasléttu. — Á laugardagskvöld gerði norðaustanlands norðvestanstorm og stórsjó, sem hefir haldizt síðan. Skipin hafa því legið inni í höfn og í landvari. Nokkur skip fóru á veiðar i Tékkar sýna lofs- verða stillíngu Vaxandi árásir á Tékka og ensku stjórnina í pýzkum blöðum LONDON: Ríkisstjórnin í Tékkóslóvakíu hefir hvatt Tékka til þesss að forðast árekstra við Súdeta og koma fram af stillingu og gætni í hvívetna og hefir þjóðin farið að þessari bendingu. Segir fréttaritari Reuters í Prag, að það sé aðdáunarvert af hve mikilli stillingu Tékkar komi fram eins og horfurnar séu alvarlegar og hætt við æsingum, vegna hinna sífeldu árása þýzkra blaða. Þýzka ríkisstjórnin hefir mót- mælt því við tékknesku stjórnina, að blað þar í landi hefir birt greinar um grimmdarverk þýzkra hermanna i heimsstyrj öldinni. Þýzk blöð halda einnig áfram árás- um sínum á Breta og í hinu opinbera málgagni þýzku stjórnarinnar er talað um „ónafngreint stórveldi", sem með afskiptum sínum af deilum Súdeta og Tékka hafi valdið nýjum erfiðleikum. í þýzkum blöðum kemur fram óánægja út af hinum nýju tillögum um skipt- ingu Tékkóslóvakíu í kantónur og tal- ið, að þar kenni brezkra áhrifa. Þýzkum hermönnum, sem áttu að losna úr herþjónustu í september, hefir verið tilkynnt, að þeir fái ekki heim- fararleyfi að svo stöddu, og hefir her- skyldutími þeirra verið framlengdur til 22. október. Helztu ráðherrarnir í stjórn Tékkó- slóvakíu komu saman á fund í gær, en af því hefir ekki orðið, sem boðað var, að Benez ríkisforseti og Henlein leiðtogi Súdeta, ræddust við i gær. Runciman lávarður hefir rætt við Hodza og Benez og er almennt litið svo á, að mikilvægar ákvarðanir hafi verið ræddar, en opinberar tilkynning- ar hafa ekki verið birtar um þessa við- ræðufundi. Fundur ensku stjórnarinnar. Brezka stjórnin kom saman á fund í bústað forsætisráðherra, nr. 10 Dow- ning Street, árdegis í gær, til þess að hlýða á skýrslu Halifax lávarðar utan- ríkismálaráðherra, um samkomulags- umleitanir í Tékkóslóvakíu og horf- urnar þar. Sir Neville Hendersen, sendiherra Breta í Berlín var á fund- inum. Hann mun fara aftur til Berlín í dag, en Chamberlain forsætisráðherra fer til Balmoral-kastala í Skotlandi, þar sem Georg VI. konungur dvelst um þessar mundir. Ráðherrarnir lýstu sig allir fylgjandi stefnu stjórnarinnar í þeim málum, sem rædd voru á fundinum. Það hefir verið tilkynnt, að ráðherrarnir muni allir verða við því búnir, að koma til London með mjög litlum fyrirvara, ef nýr ráðherrafundur skyldi verða boð- aður í skyndi. Ameriski sendiherrann í London hef- ir átt viðtal við Halifax lávarð. FÚ. fyrrinótt og sáu síld skammt undan, en veður var ófært til veiða. Eitt skip, Þor- steinn, náði um 150 málum. — Síld sást í gærmorgun við Langanes, og útlit er fyrir, að mikil sild sé nú í Þistilfirði. Frá Sauðárkróki hefir engin bræðslusild borizt síðastl. sólarhring. Saltaðar hafa verið 1.135 tunnur, mestallt reknetasíld, matjes- síld 430 tunnur. — í gærmorgun sást si,ld úti fyrir Skaga, Siglufirði og Gjögrum og einnig allmikil síld við Flatey. Þar voru allmörg skip við dá- góða veiði og ágætt veiðiveður. FÚ. V estur f ör Jónasar Jónssonar íslenzk og ensk blöð ræða heimsókn hans og Íslendíngar vestan hafs fagna komu hans hjartanlega Jónas Jónsson ferðast nú um byggðir íslendinga vest- an hafs og er hvarvetna fagnað hið bezta og verður Vesturheimsblöðunum ís- lenzku ekki um annað tíð- ræddara en heimsókn hans og dvöl þar vestra. Ensk blöð, þar á meðal stórblaðið Winnipeg Tribune- hafa og flutt greinar um vesturför hans. 28. júlí efndi John Queen, borgarstjóri í Winnipeg til veizlu í vinsemdarskyni og virðingar við hinn góða gest. Sátu þetta hóf flestir bæjarráðsmenn í Winnipeg, ásamt nokkurum ís- lendingum. Er borgarstjórinn í Winnipeg allkunnur íslands- vinur. Þenna sama dag veitti Jónas Jónsson móttöku á heimili Rögn valdar Péturssonar þeim íslend- ingum, sem fýstu að færa honum kveðju sína, en eigi höfðu hitt hann áður. Komu um 300 manns í heimsókn til hans frá kl. 4—6 og 7—9 þenna dag. Á íslendingadeginum á Hnaus- um í norðanverðu Nýja íslandi 30. júlí, flutti hann ávarp til há- tíðargestanna, sem alls voru um 2000 manns og fleiri heldur en nokkurru sinni áður. Ræddi Samveldislöndín styðja ensku stjórnina Yfírlýsing frá stjórn- um Canada og Arabíu LONDON: Lyons, forsætisráðherra Ástralíu, hefir haldið ræðu og gert að umtals- efni horfur í alþjóðamálum og tilraun- ir brezku stjórnarinnar til þess að koma því til leiðar, að ekki brjótist út styrjöld vegna Tékkóslóvakíu. Lyons kvað vonandi, að hinum viturlegu ráð- um brezku stjórnarinnar yrði fylgt, og mundi þá ekki koma til styrjaldar. Landvarnarráðherra Kanada hefir einnig haldiö ræðu og gerði hann einn- ig að umtalsefni hinar ískyggilegu horfur í Evrópu. Brýndi hann fyrir Kanadamönnum að gera sér ljóst hvert stefndi og styðja brezku stjórnina í hvívetna. Ræður beggja þessara stjórnmála- manna eru taldar nýr vottur samúðar og stuðnings Ástralíumanna og Kan- adamanna i garð Bretlands. FÚ. JÓNASJÓNSSON hann þar mjög um andlegt sam- band íslendinga vestan hafs og austan. Á íslendingadeginum að Gimli, sem sóttur var af hátt á fjórða þúsund íslendingum víðsvegar að, frá Winnipeg, úr byggðum Nýja íslands og sunnan úr Bandaríkjum. Þar flutti Jónas Jónsson hugðnæma kveðju frá löndunum austan hafs. Á þessari hátíð færði A. S. Bardal, fyrrum stórtemplar í Manitoba, Jónasi hring góðan að gjöf sem vott þakklætis og viðurkenningar frá templurum þar vestra fyrir frammistöðu hans árið 1930, er tekið var fyrir vínsölu alla meðan þúsund ára afmæli Alþingis var hátiðlegt haldið. Að afstaðinni hátíðinni á Gimli lagði Jónas af stað vestur til Wynyard í Saskatchewan og var þá ráðið, að hann flytti að- alræðuna á íslendingadegi Wyn- yardbúa. Voru dr. Rögnvaldur Pétursson og frú hans í för með honum. Síðar hafði Jónas 1 hyggju að ferðast víðar meðal íslendinga í Saskatchewan og Alberta-fylki og flytja þar fyrirlestra og loks var förinni heitið alla leið vestur að Kyrrahafi. Til Winnipeg var Jónas vænt- anlegur aftur nú litlu fyrir mán- aðamótin. Meistaramótíð í gærkvöldi var keppt í boðhlaupi, 4x100 m., og 10 km. kappgöngu. í boðhlaupinu kepptu þrjár sveitir. Fyrst varð sveit K. R. á 47,7 sek. Önnur varð sveit Ármanns á 48,1 sek. Þriðja varð sveit Hafnfirðinganna á 48,8 sek. í kappgöngunni voru skráðir fjórir Garðyrkjusýníngin í Markaðsskálanum Hið ísl. garðyrkjuiélag opnar athyglisvcrða og fjölbreytta garðyrkju- sýningu 2. p. m. Hið íslenzka garðyrkjufélag gengst fyrir því að haldin verður garðyrkjusýning í Markaðsskál- anum við Ingólfsstræti, dagana 2., 3. og 4. sept. n. k. Á sýningu þessari verður meðal anr.ars sýnt mikið af allskonar blómum, margar tegundir matjurta og ávaxta, svo sem: tómatar, agúrkur, melónur. vínber o. fl. o. fl. í sambandi við sýningu þessa fer fram sýningarmatreiðsla á ýmsum grænmetisréttum, sem sýningargestirnir fá tækifæri til að reyna á staðnum, og hefir ungfrú Helga Sigurðardóttir matreiðslukona, umsjón þessar- ar matreiðslusýningar á hendi. Margt verður gert til þess að skreyta salinn, þ. á m. komið fyr- ir grasflötum, gosbrunni o. fl. Kvikmynd sú, er félagið hefir látið taka af garðyrkju og ýms- um fögrum stöðum á landinu, verður sýnd á staðnum alla dag- ana. Þá verða og veitingar á staðnum og hljómleikar á kvöldin. Ýmsar verzlanir munu sýna þarna áhöld, fræ og annað er að garðyrkju lýtur. Svo munu og blómaverzlanir hafa þar sérsýn- ingar. Á sýningunni verður einnig komið fyrir gróðurhúsi, 3X5 m. að stærð, útbúnu eins og venja er til um slik hús i notkun. Er gróðurhús þetta vinningur í happdræti, og gilda aðgöngu- miðar að garðyrkjusýningunni einnig sem happdrættirmiðar í því. Stærð hússins er mjög hentug og má auðveldlega koma því fyr- ir í litlum garði. Hús þetta mun kosta um 1 þús. kr. uppkomið. Garðyrkjufélagið hefir lagt sig mjög fram til þess að sýning þessi geti orðið hin glæsilegasta, og á það þakkir skilið fyrir. Almenningur ætti því að sækja sýninguna vel, enda mun hún verða mjög lærdómsrík, og gefa gott yfirlit yfir hvað hægt er að rækta hér á landi, af mat- jurtum, bæði utan húss og inn- an, við jarðhita og án hans, þegar kunnátta og hagsýni hald- ast í hendur. kependur. Hafnfirðingurinn kom ekki til leiks og Oddgeir Sveinsson K. R. gekk úr leik, þegar hann hafði lokið cá. þremur hringum. Göngunni luku því aðeins tveir keppendur. Haukur Einarsson gekk vegalengdina á 54 mín. 59 sek. Magnús Guðbjörnsson var 1 klst. 12 mín. 17,7 sek.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.