Nýja dagblaðið - 03.09.1938, Page 3

Nýja dagblaðið - 03.09.1938, Page 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 Héðinn Yaldimarsson og skípti hans við Framsóknarílokkínn XÝJA DAGBLAÐH) Útgefandi: Blaðaútgáfan h.f. Rltitjórt: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. RitstJ ómarskriístof umar: Lindarg. 1 D. Simar 4373 og 2353. Afgr. og auglýslngaskriístoía: Lindargötu XD. Slmi 2323. Eftlr kl. B: Simi 3048. Askriftarrerð kr. 2,00 á mánuðl. í lausasölu 10 aura eintakið. Prentsmiðjan Edda h.f. Simar 3048 og 3720. Rannsókn á f átækra- málum Reykjavíkur Þeir, sem nokkurn áhuga hafa fyrir fjárhagslegri afkomu Reykjavíkur og ekki vilja stefna bænum í fullkomiö öngþveiti, munu taka eindregiö undir til- lögu Sigurðar Jónassonar á sein- asta bæjarstjórnarfundi um skip un rannsóknarnefndar til aö at- huga fátækramálin. Fátækraframfærið hefir stöð- ugt farið vaxandi á undanförn- um árum. Á þessu ári er útlit fyrir að hinn beini fátækra- kostnaður verði hátt á þriðju miljón króna, en þar við bætist svo atvinnubótavinnan, sem er raunverulega ekkert annað en f átækraf ramfæri Bærinn hefir ekki á undan- förnum árum getaö staðið straum af þessum miklu út- gjöldum með árlegum tekjum sínum, enda þótt útsvörin hafi stöðugt farið hækkandi. Hann hefir hingað til getað mætt.hall- anum með söfnun lausaskulda. Þær nema nú orðið á fimmtu miljón kr. Það virðist enginn möguleiki fyrir bæinn að geta greitt þær af hinum venjulegu tekjum sínum á næstu árum og ennþá síður, ef þær halda áfram að vaxa. Aðallánardrottinn mun vera Landsbankinn. Þó hann vilji gjarnan hjálpa bænum verður hann að gæta þess að það fé, sem hann lánar, sé nægilega vel tryggt og sem þjóðbanka ber honum skylda til þess, að beina fénu frekar til framleiðsl- unnar en óarðbærrar eyðslu hinna og þessarra fyrirtækja. Það hlýtur því að koma mjög fljótlega til þess að bænum lok- ast möguleikar til söfnunar lausaskulda á svipaðan hátt og að undanförnu. Hvað tekur þá við? Hvernig á bærinn þá að mæta hinum vaxandi fátækragjöld- um? Kannske með því að hækka útsvörin eða fá heimild til ein- hverra nýrra skattalágninga á skattgreiðendur og framleiðslu bæjarins? Eru þær álögur, sem þessir aðilar bera nú, þó ekki orönar það þungar að vissulega sé ekki á þær bætandi? Nei, sú lelð er heldur ekki fær. Það verður því ekki nema um tvær leiðir að velja: Fjárhagsleg uppgjöf bæjarins ellegar að sýna öfluga viðleitni til sparnaðar og bætts skipulags á útgjöldum bæjarins. Og það er vissulega hægt. Það er hægt að stórlækka fá- tækraframfærið, án þess að gengið sé ranglega á hlut styrk- þeganna. Til þess eru mörg ráð Meðal þeirra er að koma upp innkaupa- stofnun fyrir þurfamenn og al- menningseldhúsi. Það verður einnig að athuga vel þann mögu leika, hvort ekki sé hægt að koma hinum vinnufæru styrk- þegum burt. úr bænum og eitt- hvað þangað, sem þeir geta unnið fyrir sér við arðgæf störf í stað iðjuleysis eða klakahöggs hér á vetrum. Það þarf einnig að rannsaka vel þann möguleika hvort rekstur stórra dagheimila fyrir börn og jafnvel gamal- mennahælis gæti ekki borgað sig fjárhagslega fyrir bæinn, jafnframt sem það myndi geta stórbætt kjör fjölmargra slíkra þurfamanna. Aðalblað bæjarstjórnarmeiri- hlutans, Morgunblaðið, hefir einnig bent á það, að hægt myndi að stórspara fátækrafram færið með betri stjórn fátækra- málanna, t. d. með því að fela yfirstjórnina einum manni, sem legði metnað sinn í það, að koma á betra skipulagi. En með þessu er það líka játað í aðal- blaði bæjarstjórnarmeirihlutans að þessi mál séu nú í ólagi og stjórn þeirra gæti verið miklu betri en hún er. Meirihluti bæjarstjórnar felldi tillögu Sigurðar Jónassonar um skipun rannsóknarnefndar. — Hann viröist heldur kjósa að láta bæinn sökkva fjárhagslega en nokkuð sé hróflað við þessum málum til endurbóta. Ástæðan er sú, að hann byggir orðið völd sín að verulegu leyti á atkvæð- um þurfamanna og óttast að all- ar breytingar, sem þurfamönn- um kunna að mislíka í taili, enda þótt þær myndu margar verða þeim jafnframt til hagræðis um leið og þær spöruðu bænum fé. En bæjarstjórnarmeirihlutinn má vera viss um að mál þetta er ekki þar með fallið úr sög- unni. Skattgreiðendurnir í Rvík óska orðið gagngerðra endurbóta og líta ekki þannig á, að útsvör- in, sem þeir greiða bænum, eigi að notast eins og kosningafé í- haldsins. Og þetta er ekki lengur mál Reykjavíkur einnar. Þetta er orðið landsmál. Óstjórnin í þessum málum er orðin þungur baggi á framleiðslunni og keppir við hana um vinnuaflið. Hún hefir jafnframt margskonar sið- ferðislega vanþroskun í för með sér. Þjóðbankinn á orðið stór- fé hjá bænum vegna þessarar óstjórnar og vill hafa tryggingu fyrir skilvísri greiðslu. Þetta mál er þess vegna orðið stærra og yfirgripsmeira en svo; að það skipti bæjarstjórnina eina. Hér eiga fleiri aðilar orðið stóran hlut að máli og þeir verða að láta til sín taka fyrst bæjarstjórnina skortir djörfung og framsýni til að hefja endurbæturnar sjálf. KAUPENDUR NÝJA DAGBLAÐSLXS eru vinsamlega beðnir að tilkynna afgr. tafarlaust öll vanskil af hálfu blaðs- ins. —i Kauptð og lesið XÝJA DAGBLAÐIÐ XIV. Á undanförnum áxum hafa margir athugulir menn leitt hugann að því, að framkoma H. V. gæti haft nokkuð óvenju- lega þýðingu í íslenzkum stjórn- málum. Hún gat orðið til að styrkja hina lýðræðislegu um- bótaþróun, sem er lífsnauðsyn fyrir fátæka þjóð, sem vildi geta lifað frjálsu menningarlífi. En framkoma hans gat líka haft gagnstæð áhrif, orðið til að dreifa og veikja hin skapandi öfl í landinu. Það má þó ekki skilja þá menn, sem þannig líta á málin, svo sem þeir telji H. V. nokkra sérstaka tegund af yfir- burðamanni. En þeir líta á að- stöðu hans í flokki fjölmennrar stéttar. Um mörg ár var hann næstur Jóni Baldvinssyni um forustu og áhrif í hinum skipu- lögðu verkamannasamtökum. Þessi samtök voru nauðsynleg og eðlileg í menningarbaráttu hinnar nýju öreigastéttar í þétt- býlinu við sjóinn. Verkamanna- samtökin voru eins og áhald, sem mátti nota til ills eða góðs. í höndum manna eins og Jóns Baldvinssonar urðu verkamanna félögin verulegur þáttur í heil- brigðri þjóðlífsþróun. í höndum kommúnista urðu hin sömu fé- lög eins og voði í greipum óvita. í H. V. var nokxuð af eðli beggja. Fyrst á síðastliðnu ári kastaði hann teningunum og gekk að minnsta kosti um stundarsakir, í fullkomið bandalag við bylting- arflokk, sem er verkfæri í hönd- um erlendra valdhafa. Og eftir nálega tuttugu ára starf Ólafs Friðrikssonar, Jóns Baldvinssonar og fjölmargra annara einlægra verkamanna- leiðtoga, er ástand hinna „stétt- vísu“ verkamaana hið ömurleg- asta. Þeir eru skiptir í tvær höfuðdeildir, liðsafla Jóns Bald- vinssonar og byltingarliðið. En á milli þessara liðssveita svífur H. V. svo að segja í lausu lofti með nokkuð af verkamönnum, er fylgja honum enn af mismun- andi ástæðum. Allar þessar þrjár sveitir berast á banaspjótum, með stórkostlegum illindum og orðbragði, sem myndu nægja, ef tekið væri trúanlegt, til að sanna að leiðtogar allra þessara verk- lýðsdeilda væru í einu meirihátt- ar heimskingjar, en þó sér í lagi illfúsir og hneigðir til skaðsemd- ar. Alþýðublaðið, sem H. V. hefir átt mikinn þátt í að skapa, hellir svo að segja daglega úr skálum reiði sinnar yfir höfuð hans, og hann lýsir sínum gömlu sam- herjum á hinn ömurlegasta hátt í sinu litla og áhrifalausa blaði. H. V. hefir verið rekinn úr Al- þýðuflokknum. Jón Baldvinsson hefir verið rekinn úr Dagsbrún með herfilegum ruddaskap. Skömmu siðar andaðist Jón Baldvinsson, slitinn af látlausu erfiði við að manna og halda saman liðsafla verkamanna, og saddur lífdaga eins og að hon- um hafði verið búið af þeim, sem áttu honum mest að þakka. Litlu síðar bíður H. V. sjálfur, mjög á móti von sinni, stórkostlegan ósigur i Dagsbrún, þar sem hinir rólegu og gætnu verkamenn reyndust trúir síðasta verki hins látna foringja. Áður en Jón Baldvinsson gekk frá Dagsbrún- arfundinum með fulla vissu um að nú væri hans baráttu lokið, lýsti hann glöggt stefnu sinni um að hin friðsama þróun væri eini færi vegurinn fyrir verka- mannastétt á íslandi. Samhliða þessu stendur yfir þráleit og ó- fýsileg barátta um fasteignir og blað Alþýðuflokksins, þar sem H. V. og kommúnistar standa saman um að ná valdi yfir þess- um þýðingarmiklu sameignum Alþýðuflokksins. Framundan sýnist vera langvinnt kapp- hlaup milli þessarra þriggja liðsveita um hver geti boðið hæst í fylgi verkamanna við kjörborð- ið, en allt á kostnað framleiðsl- unnar, sem þó er rekin með tekjuhalla eins og er. H. V. á mesta sök á því, í hvert óefni er komið með málefni verkamanna. Hann hefir ekki borið gæfu til að leggja lóð sitt á hina réttu vogarskál. XV. Þó undarlegt sé getur H. V. að verulegu leyti ásakað aðra um það, sem kalla má pólitískt giftuleysi hans. Að vísu liggur frumorsökin óneitanlega í með- fæddum eiginleikum hans: Mik- illi sjálfselsku og óbilgjarnri skapgerð. En hve undarlega hef- ir viljað til, að H. V. varð fyrir rás viðburðanna, hið óþekka og óstýriláta eftirlætisbarn allra þriggja landsmálaflokkanna. Samherjar hans, keppinautar hans og andstæðingar hans hafa i þeim efnum unnið saman, án þess að vita og án þess að ætl- ast til að þeir voru að veikja að- stöðu manns, sem gat haft all- verulega almenna þýðingu til gagns eða ógagns fyrir samtíð sína. Þegar H. V. hafði lokið hag- fræðiprófi í Khöfn seint á stríðs- árunum hafði Jón heitinn Magn ússon veitt honum lítilfjörlegt og illa launað starf á Hagstofunni. Framsóknarmenn voru þá ný- teknir við mannaforráðum í landstjórninni. Þeir gátu ekki notað hina stirðu og útdauðu skrifstofumenn, sem fyrri stjórn in hafði skilið eftir svo að segja í hverri ábyrgðarstöðu. Framsókn armenn vissu að þeir voru að skapa nýtt tímabil og stórfellda umbótaöldu. Þeir urðu að gripa til ungra manna á mjög mörgum sviðum, þó að þá vantaði oft æskilega lífsreynslu og æfingu. Þeir fóru þá að og fara enn að eins og þjóð, sem hefir nýlokið frelsisstríði og getur ekki kom- ist hjá að fela nýjum mönnum óvenjuleg og oít mjög stór verk- efni. Enginn ílokkur á íslandi hefir nokkurn tíma falið jafn mörgum ungum mönnum vanda- söm verkefni, eins og Framsókn- armenn. Venjulega hefir það gefizt vel, en að sjálfsögðu hafa við og við orðið mistök. Það þarf menn með mjög stælta og styrka skapgerð til að rísa skjótt til mikilla mannvirðinga, án þess að hafa sýnt í verki með undan- gengnu starfi að þeir séu til þess hæfir; annmarkamennirnir þola ekki skjóta upphefð og brotna undan ábyrgðinni. Framsóknarmenn tóku H. V. frá prófborðinu og settu hann yfir landsverzlunina, þar sem hann hafði þreföld laun á við það, sem hann mundi hafa haft í Hagstofunni. Var í því efni fylgt gamalli og nýrri óvenju að borga störf við fésýslu hærra en aðra vinnu. H. V. fékk nú þegar óvenjulega mikla peninga milli handa. Litlu síðar útvegaði Sam- bandið lykilinn að olíuverzlun við B. P. Þegar ihaldið lagði landsverzlun með olíu niður 1924 stofnaði M. Kr. Olíuverzlun ís- lands og setti H. V. þar til yfir- stjórnar, en hann lagði síðan stund á að fá meirihlutayfirráð í félaginu og gera fyrirtækið per- sónulega arðvænlegt fyrir sig. Hefir hann nú af olíunni sér til handa jafnmiklar árstekjur og ríkið borgar þrem ráðhexrum, þar með talin risna forsætisráð- herra. Að vísu ganga tveir fimmtu af þessari upphæð í skatta til ríkis og bæjar, en þó er nóg eftir til að H. V. hafi meiri tekjur heldur en hentugt er fyrir leiðtoga öreiganna í fá- tæku landi. Framsóknarmenn hafa þannig hvað eftir annað falið H. V. mik- inn trúnað í þágu almennings, en úr þeim trúnaði hefir hann gert meiri háttar silfurskeið sér til persónulegra afnota. Hann fékk of ungur tiltölulega mikið fé handa á milli, og þessi fjár- ráð gerðu hann ósjálfrátt aö „burgeis“ í hugsunarhætti. Hefir það komið í ljós í sviptingum hans við liðsmenn Jóns Bald- vinssonar að hann beitir pen- ingalegri aðstöðu sinni til hins ítrasta til að beygja gamla sam- herja. Svo sem þegar hann sagði upp ábyrgðinni fyrir flokksblað- ið, meðan hann taldi sig þó í flokknum, eingöngu í því skyni að lama gamla samherja með auðvaldsbr ögð um. Það er lítill vafi á, að fyrir H. V. eins og hann er skapi farinn, myndi hafa verið hollt að byrja starfslífið á sultarlaunum með löngum vinnutíma í Hagstofunni og lifa og starfa eins og fátækl- ingur við hlið öreiganna. sem hann tók að starfa með. Þá gat vel svo fariö, að í stað þess að gerast olíuburgeis hefði hann notað krafta sína til að standa fyrir kaupfélagi verkamanna í bænum og eftir þeim línum vinna móti dýrtíðinni, sem þjak- ar fátæklingana mest allra stétta. En nú fór sem fór. Það tækifæri, sem Framsóknarfl. gaf H. V. í því skyni, að hann starf- aði til almenningsheilla, gerði hann tvískiptan, að þjóni pen- inganna annarsvegar, en bar- áttumanni öreiganna hinsvegar. Framhald

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.