Nýja dagblaðið - 03.09.1938, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 03.09.1938, Blaðsíða 4
REYKJAVÍK, 3. SEPT. 1938 NYJA DAGBLAÐIÐ 6. ÁRGANGUR — 202. BLAÐ I dag er næstsíðasii endurnýjuna rdagur í 7. ilokki. HAPPDRÆTTIÐ, G A M L A BlÓ Reimleikarnir á herra- gfarðinum Fjörugr og fyndin sænsk gamanmynd. Aðalhlutverkið leikur hinn góðkunni sænski skop- leikari, Adolf Jahr. M.s. Dronning Alexandríne fer mánudaginn 5. þ. m. kl. 6 síðd. til ísafjarðar, Siglufjarð- ar, Akureyrar. Þaðan sömu leið til baka. Farþegar sæki farseðla fyrir hádegi á laugardag. Fylgibréf yfir vörur komi fyrir hádegi á laugardag. Skipaafgfreiðsla Jes Zímsen Tryggvagötu. Sími 3025. Flótti amerískra fanga (Frh. af 2. síðu.) hentugum vopnum. Oft hafa fangarnir fundið upp hin mestu snjallræði í því skyni að ná í vopn og stundum hefir ekki tek- izt að upplýsa hvaðan þeim hafa borizt þau. í þessu tilfelli, sem hér hefir verið frá sagt, sannað- ist það: Fangi, er látinn hafði verið laus smyglaði þeim inn í fangelsið, undir palli gamals vörubíls, er flutti vistir til fangelsisins. Bróð- ir eins flóttamannsins galt hon- um 100 dollara fyrir vikið. Þarna undir vörupallinum höfðu vopn- in legið í fjórtán daga, áður en fangi, sem naut meira frelsis en aðrir, vegna góðrar framkomu, tókst að ná þeim. Litlu síðar var flóttatilraunin gerð. 1800 kennarai* flæmd- ir frá störfum á ftalíu. ítalska stjórnin kom saman á fund í gærmorgun og voru teknar frekari ákvarðanir um ráðstafanir til þess að flæma Gyðinga frá öllum skólum, sem ítalska ríkið stendur að. Er talið, að þær ráðstafanir, sem ákvarðanir voru teknar um, nái til 1800 kennara og 8000 barna. — FÚ. ESxixt f æst það í öllum helstu verzlunum bæjarins Hólsf jallahangíkjötið marglofaða. Garðvrkjusvningin opin í dag irá kl. 10 f. h. til kl. 11 e. h. Hljómleíkar frá kl. 5 til 6 og frá kl. 8 e. h. Kvikmyndin sýnd kl. 5, kl. 8 og kl. 10 e.h. Komið og reynið grænmetis- réttína. Garðyrkjusýningm (Framhald af 1. siðu.) og sýndur munur á uppskeru- magni úr kartöfluakri, sem hlot- ið hefir mismunandi áburð. Úr áburðarlausum garði hefir feng- izt sem svarar 104 tn. úr ha., en sem svarar 260 tn. þar sem heppilegasta áburðarblandan var notuð. Upp á veggnum er línurit, er sýnir þörf nokkurra algengustu garðjurta á kali, fosfórsýru og köfnunarefni. í suðausturhorninu eru sýnd allskonar garðyrkjuverkfæri og skammt þaðan eru blómapottar gerðir úr vikri frá Heklu. Við suðurvegginn eru til sýnis garðjurtir, sem haldnar eru sjúkdómum. Þar eru kartöflu- grös, sem eru aðframkomin af tiglaveiki, stöngulsýki og blað- vefjusýki, kál, sem er sundurétið af sniglum, trjágreinar, sem rauðar vörtur hafa sezt á, kláða- veikar kartöflur og fleira. Eru jafnframt greind helztu varnar- ráð gegn þessum sjúkdómum. — Uppi á veggnum eru myndir af illgresi. — Er þetta allt mjög lærdómsríkt. í horninu fast við þessa sjúk- dómadeild sýningarinnar er gróðurhús í heilu lagi, og verður dregið um það, að sýningunni lokinni, því að aðgöngumiöarnir, sem sýningargestirnir kaupa á eina krónu, eru jafnframt happ- drættismiðar. Gróðurhús þetta kostar um þúsund krónur og hafa allmargir einstaklingar og félög lagt saman 1 það. í norðvesturhorni salsins eru framreiddir ýmsir réttir úr græn meti, sem sýningargestir eiga kost á að bragða. Er það ungfrú Helga Sigurðardóttir, sem stend- ur fyrir matreiðslunni. Réttir þessir eru hver öðrum Ijúffeng- ari og bera góðan vott um færni hennar á þessu sviði. Rétt- irnir eru búnir til samkvæmt uppskriftum, sem hún hefir birt opinberlega, eða nýjum upp- skriftum, sem hægt er að fá þarna á sýningunni. Fólk ætti ekki að láta undir höfuð leggjast að bragða græn- metisréttina og eignast upp- skriftir ungfrú Helgu Sigurðar- dóttur. Ef nokkuð getur komið íslendingum til að verða eins miklar grænmetisætur eins og þeir ættu að vera, þá verður það hin góða þekking hennar í mat- reiðslu grænmetis. Af ungfrú Helgu er einnig hægt að fræðast um nýjustu að- ferðir í geymslu grænmetis, einkum niðursuðu þess. Séu þær aðferðir viðhafðar um niðursuð- una, sem nýjustu tilraunir í þess- um efnum hafa sýnt að eru bezt- ar, er hægt að geyma grænmetið um tveggja ára bil, án þess að vitamininnihald þess rýrni að nokkru. Að öllu samanlögðu er sýning þessi svo stórmerkileg, að enginn hugsandí maður ætti að láta hjá líða að koma þangað. Ársþfng ifjálpræðislierslns verður haldið hér í Reykjavik 5.—12. sept. Ofursti O. Hovde, aðalritari Hjálpræðishersins í Noregi, sem stjórnar ársþinginu, er Norðmaður og hefir starfað á ýmsum stöðum, bæði í heima- landi sínu og nokkur ár í Eng- landi og síðustu fimm árin i Finnlandi, sem næstæðsti yfir- maður Hersins þar, og kom heim til Noregs í vor til að taka við hinni ábyrgðarmiklu aðalritara- stöðu, af Myklebust, komman- dörlt. Ofurstinn er velþekktur og mikils metinn alstaðar þar sem hann hefir starfað, sem öruggur og sannorður þjónn Drottins og eldheitur boðberi Orðsins. Þegar Viðræður Henlein og Hitlers (Framhald af 1. síðu.) Núrnberg, þar sem flokksþing nazista verður haldið. Prá Prag er símað, að Benes ríkis- forseti hafi átt viðræður í gær við tvo leiðtoga Súdeta. Var annar þeirra Kundt, sem hefir verið aðalsamninga- maður af hálfu Sudeta. Stóð viðræðu- fundurinn tvær klukkustundir og er talið, að Kundt hafi skýrt ríkisforset- anum nákvæmlega frá fundi þeir, sem leiðtogar Sudeta áttu með sér í fyrra- dag, til þess að ræða seinustu tillögur ríkisstjórnarinnar, sem menn ætla, að Sudetar muni samþykkja með fyrir- vara. Hitler kallar styrjaldir „hræðileg mistök“ Parisarblaðið „Le Journale" birti í gærmorgun viðtal viá Hitler. í viðtal- inu ræddi Hitler um nauðsyn þess, að koma á varanlegum friði þjóða á milli og sambúð Prakka og Þjóðverja, en um hana sagði Hitler, að þrátt fyrir erfið- leika í sambúð þeirra, væri sannleik- urinn sá, að þeir væru bræður og bæru gagnkvæma aödáun í brjósti. Hvatti Hitler mjög til aukinnar viðskiptalegr- ar samvinnu og ræddi um hinn nýja anda samvinnunnar, sem þyrfti að verða rikjandi, til þess að erfiði þjóð- anna mætti koma þeim að sem mestum notum. Styrjaldir talaði hann um sem hræðileg mistök. — FÚ. ofurstinn syngur eða talar á samkomum, verður maður þess fljótt var, að hann þjónar Drottni af öllum huga og sál. Foringjarnir frá hinum ýmsu stöðum á íslandi og Færeyjum taka þátt í þinginu, sem byrjar á mánudagskvöld, með opinberri fagnaðarsamkomu. H. N Ý I A B í Ó Spaða ásinn | Síðari hluti af | 1 Dularfnllu 1 | flugsveitinni | | sýndur í kvöld. | ?? Börn fá ekki aðgang. « I matínn: Nýslátrað DILKAKJÖT og IVAUTAKJÖT Frosnu dilUahjötið læhhuð. Kjötbúðirnar. Beztu kolin Súnar: 1964 og 4017.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.