Tíminn Sunnudagsblað - 08.09.1968, Síða 3

Tíminn Sunnudagsblað - 08.09.1968, Síða 3
:^;Cr Lfir£.'—3 M ■.nv -r-ii piiiipii MP gwtwí O* Í-.WB-ÍW í.l Aw '■<¥ HVwiAVr^S. SBSBjl Nhlf. Gaukshjónin leggja sig fram um það í sameiningu að ginna væntan lega fósturforeldra frá hreiðri þeirra, svo að frúin geti orpið i það. Þetta eru fuglar, sem verpa hvitum eggjum eins og gaukurinn. Unginn kemur úr egginu með hvassa sýla fremst í goggi. Með þeim deyðir hann aðra unga í hreiðrinu. Foreldrarn ir draga skrokkana burt, og aðskota- unginn er einn eftir. Eftir Hu daga detta morðvopnin úr skolti hans. Hinn óboðni gestur er nú einn um hituna og étur allt hvað af tekur. Sé hann í hreiðri fugla, sem mlnni eru en kyn hans sjálfs, gerist fljótt þröngt um hann. Fóstnrforeldrarnir verða þá að stækka hreiðrið. Litli hunangsgaukurinn er viðsjárverður *ugl. Heim- kynni hans er í Afríku sunnan Saharaeyðimerkurinnar. Raunar er þetta ekki gaukur, því að fuglinn er af spætukyni. En hann verpir í hreiður annarra fugla eins og gaukurinn og lætur þá fóstra afkvæmin. Hunangsgaukurinn er skordýraæta, sólginn í býflugur og býflugnavax. Hann er þess þó ekki umkominn að brjótast inn í bú villibýflugna og þess vegna hefur hann gert eins konar bandalag við mennlna. Har.n kallar þá á vettvang með því að steypa sér yfir búin og láta öllum illum látum. Hátterni hans vísar blökkumönnum leið. Þegar þeir nálgast, tekur fugl- inn að fljúga hvern hringinn af öðr- um kringum búið. Síðan setzt hann þegjandi á grein: Hjálpin er komin. Komumenn geta gengið rakleitt að réttu tré. Þeir rjúfa búið og hirða úr þvi hunangið, hvernig sem býflugurn- ar láta. Fengurinn er oft mikill — allt að átta pund af hunangi. Að lokum taka þeir vsxköku og leggja á jörðina. Hana gefa þeir fuglinum í þakklætisskyni. Fái hunangsgaukurinn ekki slíka umb- un, segir þjóðtrúin, að næst vísi hann mönnunum á eiturslöngu. T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 675

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.