Tíminn Sunnudagsblað - 30.08.1970, Page 13

Tíminn Sunnudagsblað - 30.08.1970, Page 13
nróti Höfn. Og þá væri það að Játa, að efkki eru sedrusskógar í Skálatindi eins og Líbanonshlíðum né neðanjarðarvötn í Laxárdalnum eins og við Hundaána eða neinit gnæfandi krossar á hornfirzfcum hnútoum í likingu við krossinn á Korkóvadó. En skyldi ekki Öræfa- jökull vera á við einn kiappar- koll með krossi og Jökulsárlónið jafnoki einnar Hundaár? Eftir á að hyggja, þá er Höfn tæpast orðin borg enn, því að íbúarnir eru ekki nema éitthvað um níu hundruð. En þess verður varla Iangt að bíða, að þeir kom ist að minnsta kosti á annað þús- undið, og óneitanlega er það þó spor í áttina. Mér virtust vera þrjá tíu til fjörutíu einbýlishús í smíð- um og hreint ekki af verri endan um. Og hvern furðar á því? Höfn er einhver mesti uppgangsstaður á landinu — ekki síður en Grinda vík og Bolungarvík. Þar er frysti- hús, sem aldrei er á tap, og atvinna í bezta lagi, og það má mikið vera, ef ekki er þjóðráð að senda þang að i verknám nokkrar spyrður af hagræðingarsérfræðingum og stjórnmálagörpum til þess að læra að stjórna og hagræða. Satt er það, að uppgangur Hafn- ar- var ekki ýkjahraður lengi vel. Þar var byrjað að verzla árið 1897, og fjörutíu árum síðar var fólkið á Höfn innan við hálft þriðja hundrað. Én skriðurinn hefur ver ið drjúgur hin síðari ár, og ég hef þá trú, að þarna verði kom inn einn af álitlegri kaupstöðum landsins, þegar minnzt verður hundrað ára afmælis byggðar á Höfn. Það er bara hálfgert synd, hversu yndislegt gróðurlendi fer undir hús, torg og stræti, þegar Höfn gerist slifcur staður, að við verðum að fara að nefna Kaup mannahöfn fullu nafni, svo að ekki hljótist af misskilningur. Það brestur nú helzt á, að stór- skip geti siglt inn Hornafjarðarós og heitt vatn finnist í viðhlítandi nálægð. En kannski getur hvort tveggja veitzt. Ofaukið er herstöð inni á Stokksnesi, og þess orðið langt að bíða, að jötunninn, sem stendur með járnstaf í hendi jafn- an við Lómagnúp, taki á ný við landvörnum í Skaftafellssýslum. En hvað um það: Nú dettur eng um framar í hug að láta sér þykja lítið til Hornafjarðarmánans koma. Hann er þvert á móti að verða með virðulegustu himintunglum og ekki betra undir öðrum að lifa. Og bezt gæti ég trúað þvi, að tarfarn- ir um Nes og Mýrar gæfu stóra nautinu, sem maðurinn sá á Korp úlfsstöðum hér á árunum, lítið eft ir, ef grannt er að gáð. Frá fornu fari hafa verið á þess- um slóðum smiðir miklir. Þar kann tvennt að hafa komið til, að meðfæddir hæfileiktr Skaftfell inga koðnuðu ekki niður: Mörg. byggðarlög voru þar einangruð, jafnveT enn frekar en aðrar af- skekktar byggðir landsins, svo að menn urðu að treysta á sjálfa sig, og svo blessaði guð héraðið með því að láta skip villast upp á sand ana, og þar fékkst efniviður í smíð- ar. í ritum þeirra Eggerts Ólafs sonar og Bjarna Pálssonar og Sveins Pálssonar er sagt frá Einari í Skaftafelli og sonum hans. Einar var uppi, þegar Eggert og Bjarni gerðu ferð sína um landið, o>g hann var slíkur smiður, að hann hafði jafnvel smíðað byssur án nokkurrar aðstoðar eða tilsagnar og þar með sjálf verkfærin, er hann notaði við smíðar sínar. Um daga Sveins var Jón Einarséon tek inn við búi í Skaftafelli, og var „naumast hans líki meðal alþýðu“. Hann var listamaður á tré og málm, hafði smíðað byssu að dæmi föður síns og fjórhjóla vagn í sam- lögum við Iátinm bróður sinn, meira að segja búinn segli til þess að létta hann í drætti, þegar svo hagaði vindi. Þar á ofan hafði hann ungur lært latneska, gríska og hebreska málfræði af sjálfs dáð um, var ágætlega að sér í dönsku og þýzku, hafði kynnt sér læknis- TÍMINN SUNNUDAGSBLAÐ I 637

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.