Tíminn Sunnudagsblað - 07.02.1971, Side 2

Tíminn Sunnudagsblað - 07.02.1971, Side 2
 ★★ ÞaS er margt dæmalaust fallegt í afmælisgreinum, dánar minningum, útfararræðum og skálaræðum, ef menn bara gefa því gaum. Þar getum við kom izt að raun um, hve márgt við eigum gamla fólkinu að þakka. Það tók, góðir hálsar, við land- inu óræktuðu og langníddu á myrkum öldum. Húsakosturinn var ósköp bágborinn, kaupstað- irnir ekki annað en aumleg þorp þurrabúðarmanna. í bernsku þessa fólks voru engar hafnir, engar rafstöðvar, engir vegir, örfáar brýr, nauðafáir skólar. Þá voru ekki til neinar vélar, sem tækju fram tað- kvörn, og þá áttu landsmenn engar fleytur, nema seglskútur og árabáta. En sjá: Berum hönd um lagði sú kynslóð, sem nú er orðin ellilúin, til atlögu og reisti allt frá grunni, og á herðum hennar stöndum við sigri hrósandi með borgir og hallir og ekrur, orkuver og verksmiðjur, skipaflota og flugvelli, frystihús, sæðingar- stöðvar og minkabú, þrjátíu þúsund bíla, sjö ráðherra, ó- teljandi bankastjóra og vísinda- menn og sérfræðinga á hverj- um fingri. Við sláum út báðum höndum: Ó, hve mikla skuld við eigum þér að gjalda, öldn um fiskimanninum, sem rerir í Víkinni, forðum daga, stóðst á endalausu skaki við öldustokk inn á Selvogsbanka og komst lífs að landi, þó að gamli kola- togarinn ykkar lægi sólarhring á hliðinni í hafrótinu í Halaveðr inu forðum. Skál! (Sækir þú strax um vist á Hrafnistu og lifir enn nokkur árin, eru all- ar líkur til, að þú fáir þar inni að síðustu). Og þú, bóndinn gamli — eða verkaniaðurinn: Mörg var líka ykkar dáð — þið lengi lifið! Og ekki að gleyma þér, hvíthærða kona, sem varst sól heimilisins — þiggðu koss á vangann, sem einu sinni var rjóður. Friður guðs sé með þér lífs og lið- inni. ★★ Við tæmum glösin, kveikj um í vindlunum og gerum okk ur elskuleg í framan. Því að okkur hefur bæði sagzt vel og farizt vel. Við erum góð og hugsunarsöm, og við borgum þessu aldraða fólki ellilaun, sem það getur vitjað einu sinni í mánuði. Og við skerum þau ekki við nögl. Mánaðartillagið er svipað og læknirinn, sem hyggur að heilsufari þess, eða kaupmaðurinn, sem selur því kaffið og sykurinn, borgaði í fyrrasumar fyrir heimild til þess að norpa einn dag með stöng við dágóða veiðiá. Verð- ur er verkamaðurinn launanna. En þar að auki nýtur aldurhnig ið fólk sums staðar fríðinda — jafnvel til sveitarfélög, þar sem ekki er lagt útsvar á ellilaun- in. í Reykjavík er því auðveld að öðrum fremur að komast leiðar sinnar. Það getur fengið fleiri strætisvagnamiða fyrir peningana sína en aðrir. Þeir, sem eru á góðum starfsaldri, fá tuttugu og sex farmiða fyrir tvö hundruð krónur, en gamla fólkið tvöfalt fleiri — eða jafnmarga fyrir helmingi færri krónur. Þessa miða verður það að vísu að sækja inn á Hlemm (eða niður á Hlemm, eftir því hvar það á heima í bænum). En við það stendur það sig, því að það kostar ekki nema tvo aukamiðanna. Þessir öldur mennismiðar gilda raunar ekki fyrr en klukkan hálf-tiu á morgnana, enda hæfir bezt, að gamalt fólk sé hvíldrækið, og ekki heldur frá klukkan fjög- ur til sjö á daginn. Að sönnu eru allar líkur til þess, að þeir, sem ganga til læknis — og það gerir roskið fólk alloft —, séu einmitt á heimleið á þeim tíma. En það verður ekki við öllu séð. Þegar svo stendur á, verður gamla fólkið annað tveggja að hafa meðferðis far- miða, sem keyptir hafa verið fullu verði, eða borga farið með peningum. Og er þá þess að gæta, að kerfið færi allt á ring ulreið, ef afsláttarmiðarnir væru reiknaðir til verðs og aukið aurum við. Þess vegna verður allt fargjaldið að reið- ast af höndum í peningum, ef ekki eni tiltækir farmiðar, sem hæfa þessum stundum dagsins. En rausn er það samt, hve þjóðfélagið greiðir fallega fyrir því, að þetta aldurhnigna fólk, sem varla sá göfugri ökutæki en hjólbörur í bernsku sinni, geti komizt leiðar sinnar í strætisvögnum um stórborgina, sem það hóf til vegs. Skál, aldna hetja — þú lengi lifir! ★★ Annars eru margir af þessum rosknu mönnum léttir upp á fótinn. Þetta veit þjóð félagið líka. Þess vegna er það ekki nema eðlileg og verðug verkaskipting, að þeim standi einna helzt til boða ein- hvers konar sendilsstörf, ef þeir vilja ekki láta sér nægja ellilaunin — innheimta ýmis konar reikninga og félags- gjalda, fyrir þá, sem fuUfrísk ir eru til veigamikilla kontór- starfa eða kaupsýslu, og út- burður rita og plagga og jafnvel blaöa. Þessu fylgir reyndar, að þeir verða að vera á ferli, gömlu mennirnir, hvernig sem færi er og hvemig sem viðrar, og starfsmatinu í mannfélag- inu er þannig háttað, að kaupið er ekki sérlega hátt. En það þurfa þeir náttúrlega ekki að setýi fyrir sig. Þetta ramb og norp og slabb er áreynslulítið og ekki vinna handa neinum, sem fæddist eftir að hala- stjarna Halleys fór hjá. Nema Framhald á 117. síSo 98 fíHlNN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.