Tíminn Sunnudagsblað - 07.02.1971, Page 5

Tíminn Sunnudagsblað - 07.02.1971, Page 5
sjö af hverju liundraöt hýzkra elg- inkvenna, sem eíga hrjótandi karla, töldu sig vel geta þolað svefnlæti þeirra, tuttugu og sex af hundraði sögðu þær fjarskalega hvimleiðar, en langflestar, sextíu og sjö af hundraði, kváðust varla geta afborið þetta lengur. Algengt er, að fólk verði and- vaka vegna svefnláta annarra. Ell- efu af hundraði þeirra, sem við þetta búa, missa að jafnaði klukku- tíma svefn á nóttu, en aðrir miklu meira. Tíundí hver aðili taldi sig hreint engan svefnfrið hafa. Það er skiljanlega hjartans ósk þessa •hrjáða fólks að fá sérherbergi til þess að sofa í, en þar strandar víða á efnahagnum, því að ekki eru all- ir ríkir í útlöndom. Jafnvel þýzka efnahagsundrið hefur ekki leyst þann vanda. Enska tímaritið Family Doctor beindi svipuðum spurningum til lesenda sinna. Fimm þúsund hjóna í fjölda landa tóku þátt í þeirri könnun. Meðal annars var leitað eftir því, hvernig fólk lægi, þegar það hryti, hvort þetta væri reyk- ingafólk eða togleðursjórtrarar, á hvaða aldri hroturnar hefðu byrj- að og þar fram eftir götunum. Sumir, sem spurðir voru, sögð- ust hrjóta svo hátt á köflum, að þeir hrykkju upp við það sjálfir. Kona í Torontó, sem hefur búið við næturkonserta manns síns í tuttugu og sjö ár, sagðist ekki koma auga á aðra lækningu en ráða hann af dögum, þó að lands- lög bönnuðu raunar svo skörulegt úrræði. Gömul kona gerði þá játningu, að hún hefði aidrei þor- að að giftast vegna svefnlátanna í sér. Skozk móðir sagði: Sonur minn heyrir hroturnar í mér alla leið út á götu, þegar hann kemur út úr strætisvagninum á kvöldin, ef ég er soínuð. Þessi enska könnun leiddi í ljós, að mörg hjónabönd, sem byrjuðu með ofurheitri ást og dýrlegum blæjubríma, hefðu farið í hundana á skömmum tima vegna svefnláta. Iíroturnar yfirbuguðu ástina. Enski læknirinn lan Robin, nef-, háls- og eyrnasérfræðingur, gizkar á, að fast að milljón hjónabanda í Stóra-Bretlandi sé í hættu af þess- um orsökum. - í Bandaríkjunum liggur við, að það sé að verða jafnsjálfsagt sjálfu hjúskaparheitinu, að brúður og brúðgumi leggi fram vottfest skil ríki, þar sem þau heita góðu um það að hrjóta ekki i hjðnabandinu. En kannski gefa hinir tíðu hjóna- skilnaðir í Bandaríkjunum bend- ingu um, að þau heit efnist illa. Einhver skollinn er þar að minnsta kosti í spilinu, þótt þetta sé guðs eigið land. Ekki liafa forfeður okkar hér verið barnanna beztir, því að sums staðar í fornsögum er þess einmitt getið, að þeir hafi látið illa í svefni. Það gerði til dæmis Án hrísmagi, svo sem frægt hefur orðið. Einn ágætasti listamaður okkar á þess- ari öld gat ekki sofið í sama her- bergi og kona hans, því að hún var undir þá sök seld að hrjóta, og á ferðalögum urðu þau jafnan að fá tvö svefnherbergi, ef vel átti að vera. í orðabók Árna Böðvarssonar er sögnin að hrjóta skilgreind á þenn an hátt: „Umi viss svefnhljóð, mynduð af titringi á úfnum“. í Bandaríkjunum hafa visindamenn rnælt þennan titring. Það voru há- skólastúdentar, sem valdir voru til þeirra tilrauna. Hijóðstyrkurinn reyndist vera á milli fjörutíu og sextíu og níu fon. Hávaði frá þrýsti bor, sejn er í gangi, er sjötíu til níutíu fon, mælt í rösklega þriggja metra fjarlægð. Japaninn, sem við nefndum áð- an, — íkematsú, — tók hrotur og önnur svefnlæti upp á segulbönd, svo að hann gæti flokkað þessi fyrirbæri. Ifann komst að raun um, að tilbreytnin er mikil. Svefn- lætin gátu líkzt öskri vilidýra á mörkinni, þungum fossniði í fjarska, skrölti í sporvagni, holumi híjómi sprunginnar kirkjuklukku, suði í mýflugnasveimi, stunum særðrar manneskju, gnauði í vindbörðu tré. Sumum svefnhljóðum líkti hann líka við, er dropar falla einn og einn, froskar kvaka, vélbyssa geltir eða bifhjól er sett í gang. í fáum orðum sagt: Hann er þeirr- ar skoðunar, að fá hljóð séu þekkt á jörðinni, er ekki eigi sér líkingu í svefnhljóðum einhvers manns, ef atómspi’engingar eru undanþegnar. Þrátt fyrir rækilega rannsókn hefur honum ekki tekizt að leiða nein rök að því, að þjóð- ir eða stéttir eigi sér neinn sér- stakan hrotustíl. Honum hefur ekki lieppnazt að finna mun á hrotum .Japana. Englendinga og Spánverja. En mesti hljóðstvrk- ur, sem hann hefur mælt á tólf árum, nam hundrað og tíu fon- um — viðlíka og þegar bifhjól er T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 101

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.