Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 07.02.1971, Qupperneq 8

Tíminn Sunnudagsblað - 07.02.1971, Qupperneq 8
Erkibiskup Svía, Ruben Jostfsson, { fullum ekrúða. Sænski erkibiskupinn um kíutverk kLrkjunn- ar á jörbu nibri Kirkjan hefur oft verið sökuð um íhaldssemi. Hún hefur verið köJJuð hækja og haldreipi þeirra, sem hafa auð og völd, og henni hefur verið borið á brýn, að hún leitaðist við að sætta fólk við rang- læti og yfirtroðslur, eymd og ör- birgð. Hún hefur legið undir því ámæli, að ún léti sig litlu skipta kjör fólks þessa heims, og trúar- brögðin hafa verið kölluð ópíum fyrir fólkið. í bréfi til Láru komst Þórbergur Þórðarson svo að orði árið 1924: ,,Klerkarnir ræða sjaldan mál- efni sem snerta daglegt líf fólks- ins. Ræðuefni þeirra er venju- iega loðnar útleggingar á biblíu- textum og orðamælgi upp í skýj- unum. Þeir tala sjaldan um þjóð- félagsástandið, og þá sjaldan þeir minnast á það, gera þeir það svo meinleysislega og óljóst, að engum dettur í hug að taka neitt mark á því. Þeir ræða ekki orsak- ir örbirgð'arinnar. Þeir benda aldr- ei á neina skynsamlega leið út úr þjóðfélagsógöngunum. Þeir víta aldrei skaðlegar kjailaraíbúðir. Þeir rísa aldrei gegn ómannúð- legri meðferð þjóðfélagsins á þurfalingum. Þeir láta kaup- gjaidsmál afskiptalaus. Þeir átelja sjaldan illa meðferð á dýrum. Þeim er yfirleitt illa við nýja þekkingu. Ræð- ur þeirra eru mjög sjaldan frumlegar eða fræðandi. Þeir þora ekki að berjast fyrir nýjum kenn ingum.“ Svo mörg eru þau orð, að vísu sögð fyrir hálfum fimrnta áratug og bera þess að nokkru merki. En hvernig er þessu nú farið? Er klerkastéttin enn jafntómlát um jarðneska velferð fólks? Þegar svo er spurt, minnumst við kannski hjálparstarfsemi kirkj- unnar á síðustu árum og aðildar íslendinga að því starfi. Hún hef- ur að vísu aðeins náð til takmark- aðra svæða, þar sem miklar hörm- ungar hafa gengið yfir fólk. En af ýmsu rná ráða, að í sumurn lönd- um muni kirkjan innan skamms láta til sín taka á m.iklu breiðari grundvelli. Erkibiskup Svía heitir Ruben Josefsson. Ræða, sem hann flutti í dónikirkjunni í Uppsölum, iiefur vakið verulega athygli sökum þess, að hún þ.ykir boða eindregua afstöðu á vettvangi, þar sem kirkjan hefur ek!ki svo mjög látið til sín taka til skamms tíma. Mega íslend- ingar gjarna heyra erkibisk- ups boðskap og það kannski með öðrum huga en Jón Lol'ts’son forð- um, er ráðinn var að hafa hann að engu. Enda er erkibiskupsboð- skapurinn annar en á hans dög- um. í þessari ræðu sagði erkibiskup- inn sænski meðal annars: ,Það er sagt, að kirkjan standi höllum fæti. Því fólki fjölgar, sem hættir að spyrja um guð. Það er eflaust rétt. Og kannski ekki vert að fjargviðrast yfir því. Því að fleiri og i'leiri eru í staðinn farn- ir að spyrja um manninn. Alls staðar þar, sem fólk hitt- ist er guð nálægur. Hvar sem vinátta tekst með mönnum, hvar sem eitthvað það gerist, sem styrkir mannlegt samfélag, þar er guð nálægur. Einnig, þótt þeir séu ekki kristnir, er í hendur tak- ast. Ég man, að ég fékk talsverð- ar snuprur, þegar ég sagði, að guð gæti einnig verið nálægur í Kína.“ t viðtali við blaðamann frá hinu fjöllesna tímariti sænsku sam- vinnufélaganna sagði erkibiskup- inn: „Djöfullinn d-ulbýr sig ævinlega og tekur á sig hvert gervið af öðru. Hann getur verið einræðisherra eins og Franco, herforingjakiika í líkingu við þá, sem drottnar i 104 TlMINN - SUNNUDAGSBLAB

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.