Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 07.02.1971, Qupperneq 15

Tíminn Sunnudagsblað - 07.02.1971, Qupperneq 15
Klakkeyjar — á þessum slóðum bjó Eiríkur rauði ski p sitt, er hann fór a'ð leita Grænlands. SIGURÐUR GUNNARSSON: Hugleiðing um Græn- land og Grænlendinga i. Kynnisferð sú til Kúlúsuk, sem sagt var frá með nokkrum orðum í fyrri grein, hefur vakið umhugs- un um margt og orðið beinlínis til þess að rifja upp sitt af hverju í sambandi við Grænland og sögu þess. í þessum síðara þætti verða í sem stytztu máli dregin fram nokfcur fróðleiksatriði um Græn- land og íbúa þess, sem nú nefnast almennt Grænlendingar. En fyrst og fremst mun ég rifja upp þann merka, sögulega atburð, er Eirík- ur rauði fann Grænland, landnám íslendinga þar og afdrif þeirra eft- ir meira en fjögurra alda búse+u. Er sú saga öll mjög forvitnilegt ransóknarefni. Grænland, stærsta eyja jarðar- innar, er heimskautaland. Frá norðri til suðurs nær það yfir rúm 23 x/2 breiddarstig, frá Hvarfi (Kap Farvel) á 59. stigi 46. mínútu nbr. til Kap Morris Jesup á 83. stigi 37. minútu nbr. Vegalengdin milli nyrzta og syðsta oddans er því um það bil 2650 fcm., eða álíka mikil og frá íslandi til Spánar. Breiddin er um það bil 1000 fcm., þar sem landið er breiðast. Að flatarmáli er það talið vera 2.182.000 ferkílómetrar, nærri 22 sinnum stærra en ísland. Milli íslands og Grænlands er tæp- lega 300 fcm. breitt sund, Græn- landshafið eða Danmerkursundif sem tengir Atlantshaf við Norðui íshaf. Suðaustur- og suðurströnd Grænlands liggur að Atlantshafi. Að vestan skilur Davíðssund, Baff- insflói, Smithsund og fleiri smá- sund það frá Ameríku og eyjum þeim, sem norður af henni liggja. Norður- og norðausturströndin liggur að Norður-íshafinu. Mestur hluti þessa víðáttumikla lands er jökli hulinn. eða rétt um 1/7 hlutar þess. Það eru aðeins smá- ar landspildur með ströndum fram — strandlendið — ,sem jökulgadd- urinn heldur efcki í heljarklóm sín- um. Breidd strandlendisins er mjög mismunandi. Sums staðar nær jökullinn alveg út að hafi. en á vesturströndinni nær strandlend ið allt að 180 km. breidd. Margar kynjasögur hafa gengið um hina miklu jökulbreiðu, sem hylur landið. Eskimóar töldu fyrr á tímum, að þar fyndust grösugir og fagrir dalir, jöklum girtir á alla vegu, og þar byggju risavaxn ir menn, sem lifðu á hreindýra veiðum. Minna hugmyndir þeirr um þetta mjög á ýmsar útilegu mannasögur okkar. Danir vorv vitaskuld fyrr á tímum smeykir við jökulinn, sem von var til. Það var ek'ki fyrr en árið 1878, að danskur maður, Jensen að nafni, með nesti og nýja skó, brennivín og fritt föruneyti, hætti sér dálit- SíÐARI HLUTI FRÁSAGNAR T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 111

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.