Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 8
Vél: Fimm strokkar, 2.460
rúmsentimetrar, 10 ventlar.
Afl: 174 hestöfl.
Tog: 400 Nm við 2.000
snúninga á mínútu.
Gírskipting: Sex þrepa
Tiptronic-sjálfskipting með
handskiptivali.
Drifkerfi: Sítengt 4XMotion.
Fjöðrun: Loftpúðafjöðrun.
Lengd: 4.754 mm.
Breidd: 1.938 mm.
Hæð: 1.726 mm.
Leyfð hámarksþyngd: 2.850
kg.
Hröðun: 12,9 sekúndur.
Staðalbúnaður: Sítengt fjór-
hjóladrif, 17" álfelgur, sex
þrepa sjálfskipting, ESP-
stöðugleikastýring, ASR-
spólvörn, ABS-hemlakerfi,
EBD-hemlajöfnunarkerfi, 6
loftpúðar, viðgerðarkerfi fyrir
hjólbarða, hraðastillir, loft-
frískunarbúnaður, regnskynj-
ari, þokuljós, opnanleg rúða á
afturhlera, upphituð fram-
sæti, rafdrifnar rúðuvindur,
fjöldiska geislaspilari.
Verð: 5.550.000 kr.
(5.885.000 kr. með loft-
púðafjöðrun).
Umboð: Hekla hf.
VW Touareg R5
Þetta litla tæki í framrúðusyllunni er
radar sem fylgist með mið- og kant-
línum vegarins þannig að ef hann
nálgast línurnar lætur hann öku-
manninn vita með hljóðmerki.
NÝVERIÐtók flutningafyrirtækið
Auðbert og Vigfús Páll ehf. í notkun
nýjan flutningabíl sem búinn er nýj-
asta tæknibúnaði til að auka öryggi og
þægindi í akstri.
Bíllinn var fluttur inn frá Þýskalandi
en þar hafði hann verið sýningarbíll hjá
Mercedes Benz í München. Vigfús
fann bílinn á Netinu í haust þegar um-
boðið setti hann á sölulista hjá Truck
store vefsíðunni, www.truckstore.de
Bíllinn er Mercedes Bens Actros
2646 2003 árgerð og var kosinn
vörubíll ársins í Evrópu 2004.
Íbílnum er umferðar-radar sem
fylgist með umferðinni fyrir framan
bílinn og sér til þess að alltaf haldist
ákveðin fjarlægð milli ökutækja.
Ef ökutækið á undan bremsar
snögglega bregst flutningabíllinn sam-
stundis við og bremsar líka. Í bílnum er
annar radar sem fylgist með mið- og
kantlínum vegarins þannig að ef hann
nálgast línurnar lætur hann ökumann-
inn vita með hljóðmerki frá hægri eða
vinstri eftir því yfir hvora línuna verið
er að fara. Ef ökumaðurinn sofnar ætti
hann því að vakna við hljóðmerkið.
Bíllinn er með tölvustýrðri sjálf-
skiptingu og „retarder-gírkassa“
bremsu sem gerir notkun á hefð-
bundnum bremsum nánast óþarfa. Þá
er bíllinn búinn tölvustýrðu loftfjöðr-
unarkerfi sem sér til þess að bíllinn
vaggi ekki og taki ekki dýfur á ójöfnum
vegi. Þetta kemur sér vel fyrir öku-
manninn og farm flutningabílsins.
Vigt á hverjum ás
Í aksturstölvu bílsins getur öku-
maðurinn fylgst með hver meðalol-
íueyðslan er á hverjum tíma, hvað
hann er búinn að aka marga kílómetra
í ferðinni og hve marga klukkutíma
hann hefur ekið yfir daginn. Vigt er á
hverjum ás bílsins þannig að ökumað-
urinn veit nákvæmlega hvað hver ás er
þungur og hver heildarþungi bílsins er
áveginum. Allur stjórnbúnaður fyrir
aksturstölvu, útvarp og gsm-síma
bílsins er í stýrinu. Þar með er t.d.
hægt að fá upp á skjá í mælaborði bíls-
ins númeraminni gsm-símans sem er
að öllu leyti handfrjáls.
Ökumannshúsið er mjög vel búið.
Ökumanns- og farþegastólarnir eru
loftfjaðrandi og upphitaðir. Í bílnum er
olíumiðstöð, ísskápur og svefnaðstaða
fyrir tvo, einnig er sérstök næturakst-
urslýsing sem lýsir allt upp inni í bíln-
um án þess að glampi innan á rúður.
Aðalljós bílsins eru xenon-
dagsbirtuljós. Flutningakassi bílsins er
íslensk smíði, einangraður plastkassi
frá Vögnum og Þjónustu.
Auðbert og Vigfús Páll eru með af-
greiðslu á Flytjanda (www.flytjandi.is) í
Reykjavík og dreifa vörum þaðan dag-
lega á Vík og Klaustur.
Einn tækni-
væddasti
flutningabíll
landsins
Framan á bílnum er umferðarradar
sem fylgist með umferðinni fyrir fram-
an bílinn og sér til þess að alltaf haldist
ákveðin fjarlægð milli ökutækja.
Vigfús Páll undir stýri á Mercedes-
Benz Actros.
Bíll Vigfúsar er einn sá tæknivædd-
asti í flutningabílaflotanum.
8 B MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
480 8000
SELFOSSI
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000
Toyota Landcruiser 100 TDI
38", árg. 2002, sjálfsk., ek.
43 þús., Dana 60 framan,
loftlæstur. Einn með öllu.
Verð 7.500 þús.
Toyota Landcruiser 100 TDI
38", árg. 1999, sjálfsk., ek.
108 þús. Stærra framdrif.
Bakkskynjarar. Toppeintak.
Verð 4.390 þús.
Lexus IS 200 Sport, árg.
2001, sjálfsk., ek. 61 þús.,
krómpakki, plastkitt
framan/aftan/hliðar.
Verð 2.490 þús.
Toyota Landcruiser 100
TDI, árg. 2004, sjálfsk., ek. 6
þús. Einn með öllu.
Verð 7.350 þús.
Toyota Landcruiser 90 GX,
árg. 1999, sjálfsk., ek. 160
þús., topplúga, dráttarkúla.
Áhv. 1200 þús. Afb. 30 þús.
Verð 2.590 þús.
Nissan Patrol GR SE+ 33",
árg. 1998, 5 gíra, ek. 198
þús., ek. 40 þús. á vél, topp
viðhald.
Tilboð 2.000 þús. stgr.
TOUAREG er fyrsti jeppi Volks-
wagen og kom á markað haustið 2002.
Hann er nú söluhæsti bíllinn í flokki
lúxusjeppa í Evrópu og er fáanlegur
með fjórum vélargerðum. Við höfum
áður prófað þrjár þeirra, V6- og V8-
bensínvélarnar og V10-dísilvélina en
sú, sem líklega einna mest á upp á
pallborðið hérlendis, þó ekki væri
nema vegna verðsins, var reynd á
dögunum. Þetta er 2,5 lítra dísilvélin
með pumpuinnsprautun, sem er út-
gáfa VW af samrásarinnsprautun.
Touareg er 4,75 metrar á lengd og
því fullvaxinn borgarjeppi. Hann er
ekki með jafn áberandi jeppalag og
margir keppinautanna því þakhæðin
er talsvert minni og útlitið sportlegra
fyrir vikið. Bíllinn er með sambyggða
yfirbyggingu og burðargrind. Hann
er hannaður með tillititi til góðra
aksturseiginleika í borginni og þar er
hann líka á heimavelli. R5-bíllinn fæst
bæði með gormafjöðrun og loftpúða-
fjöðrun og var prófaður með þeirri
síðarnefndu. Kostir loftpúðafjöðrun-
arinnar er t.d. minna viðhald og betri
ending en einnig stillanleiki kerfisins.
Þannig er hægt að stilla veghæðina
frá því að vera 16 cm, t.d. þegar verið
er að hlaða bílinn, og upp í 30 cm, sem
er kjörið við erfiðustu aðstæður utan
vega. Við venjulegan akstur er veg-
hæðin 21,5 cm en bíllinn lækkar sig
sjálfkrafa niður í 18 cm við 125 km
hraða.
Fjöðrunin er líka stillanleg, allt frá
því að vera sportleg, venjuleg („norm-
al“) og þægileg (mýkri í „comfort“).
Kosturinn við þetta er að sjálfsögðu
sá að menn geta valið sér stillingu eft-
ir eigin óskum og þörfum hverju
sinni. Bíllinn hefur mikla vegviðloðun
og yfirbyggingin virkar stíf og veltur
lítið í beygjum. Sem sagt fyrirtaks
aksturseiginleikar.
Það sem meira er þá er Touareg
einnig vel vígur til utanvegaaksturs.
Drifkerfið, sem kallast 4XMotion, er
sítengt fjórhjóladrif, afar hátækni-
vætt. Í venjulegum akstri er öllu afl-
inu dreift jafnt á milli öxla, 50/50. Í
miðri drifrásinni er mismunadrifslæs-
ing sem flytur drifafl sjálfvirkt til öxl-
anna eftir þörfum og læsir þeim einn-
ig eftir þörfum hverju sinni, alveg frá
engri læsingu upp í 100% læsingu.
Hljóðlát vél
Það sem fyrst vekur athygli við
þessa vél er hve hljóðlát hún er. Þetta
á reyndar við um aðrar vélar í Toua-
reg-fjölskyldunni, og verður ekki
skýrt með öðrum hætti en nútíma-
legri vélarhönnun ásamt fyrsta flokks
hljóðeinangrun frá vél. Vélin er fimm
strokka og slagrýmið er 2.460 rúm-
sentimetrar. Hestaflatalan er 174.
Upptakið er alveg viðunandi en að
sjálfsögðu ekki sportlegt, en togið er
það sem skiptir máli í þessum bíl. Vél-
in togar 400 Nm við 2.000 snúninga á
mínútu og þetta gerir bílinn mjög
meðfærilegan í borgarumferð. Það
hlýtur líka að teljast kostur við þessa
nýju fimm strokka dísilvél að hún
eyðir ekki nema um 10 lítrum í blönd-
uðum akstri og um 13 lítrum innan-
bæjar, ef marka má tölur frá fram-
leiðanda.
Grunnverð á Touareg R5 með sex
þrepa Tiptronic-skiptingu er
5.550.000 kr. Þetta verð segir þó ekki
alla söguna því um leið og bætt er við
ýmsum búnaði, sem fylgdi t.d. próf-
unarbílnum, hækkar það umtalsvert.
Þannig var í bílnum loftpúðafjöðrun,
loftkæling, leðuráklæði, xenon-ljós,
lyklalaust aðgengi, fjölrofa stýrishjól
og krómlistapakki, búnaður sem í
flestum tilfellum fylgir V8 og V10-
gerðunum, en hleypir verðinu á R5
upp í 6.714.000 kr. Bíllinn keppir við
t.d. Toyota Land Cruiser 90, sem
kostar frá 4.320.000 kr. sjálfskiptur,
Volvo XC90, sem kostar frá 5.770.000
kr. sjálfskiptur eða jafnvel Porsche
Cayenne með V6-bensínvél sem kost-
ar nálægt 6,8 milljónum kr. sjálfskipt-
ur.
Morgunblaðið/Ásdís
VW Touareg er nú fáanlegur með fimm strokka dísilvél en myndin er af V10-bíl
á stærri felgum og með krómpakka.
Touareg – nú
með 5 strokka
dísilvél
REYNSLUAKSTUR
Touareg
Guðjón Guðmundsson
Innanrýmið er vandað í Touareg - leðurklæðning og fjölrofastýri er aukabúnaður.
gugu@mbl.is
GULLFALLEG LÚXUSBIFREIÐ TIL SÖLU
Volvo V70 T5 skr. 11-01, ek. 35 þ., 250 hp, leður, rafmagn í öllu,
krókur, hljóðkerfi, 17" álfelgur, ssk., hlaðinn aukabúnaði. Verð að-
eins 2.950 þ. Áhv. lán. Uppl. í síma 862 3608.