Íslendingaþættir Tímans - 20.09.1968, Síða 10
Valgeir Árnason - Valgeir Stefánsson
i.
Gáta lífs og dauða mun vist flest
um torráðin. Margir hafa spreytt
sig á að leysa hana, en mér vitan-
lega hefur engum tekizt það til
fullnustu. Frammi fyrir dómi og
kalli dauðans standa a.m.k. allir
jafnir. Sjaldan háfa þau sannindi
birzt skýrar en á þessu heiða
sumri norðanlands Fráfall tveggja
góðra vina, annars ungs manns og
hins öldungs, Valgeirs Stefánsson-
ar og Valgeirs Árnasonar, hefur
minnt á hið fornkveðna, að eng-
inn ræður sínum næturstað.
Valgeir Arnason í Auðbrekku
var aldraður rnaður og farinn að
líkamshreysti. Hann hafði lokið
ævistarfi sínu og gat glaðzt yfir
því að fá að njóta hvíldar. En Val-
geir Stefánsson var á þeini aldri,
sem allir vildu vera, tvítugur mað-
ur, stæltur á líkama og sterkur til
sálar, óvenju hugþekkur og drengi
legur piltur, sem tengdar voru við
miklar vonir. Þessir tveir menn,
nafnar og nánir frændur, áttu allt
j)að sameiginlegt, sem góðir menn
eiga, runnir af sömu rót, fæddir
á sama stað og tengdir ástvina-
böndum slíkum sem nánust verða.
En þó finnst okkur jarðarbörnum
sem nokkurrar skýringar sé vant,
þegar þessir tveir vinir okkar fá
skapadóm sinn nær samstundis.
Þrátt fyrir allt það, sem þá tengdi,
var þó aldursmunurinn, kynslóða-
bilið, nokkuð, sem fjarlægði þá í
tíma. Annar hafði runnið langt
æviskeið á enda, hinn var við upp-
■haf ævibrautar.
n.
Valgeir Ámason var fæddur í
Auðbrekku 10. des. 1884, sonur
Árna, bónda í Auðbrekku, Jóna-
tansso'nar og konu hans, Guðrún-
ar Jónsdóttur, hreppstjóra í Auð-
brekku, Snorrasonar frá Böggvis-
stöðum. Valgeir 61 ailan aldur
sinn í Auðbrekku í bókstaflegum
skilningi þess orðs. Þar óx hann
úr grasi í fjölmennum systkina-
hópi, vann foreldrum sínum á
yngri árum, tók við búsforráðum
síðar og bjó þar búi sínu, þar til
synir hans settust að búi fyrir all-
mörgum árum. Valgeir lézt að
heimili sínu í Auðbrekku 9. ágúst
s.l., og var jarðsunginn frá Möðru-
vallakirkju að viðstöddu fjölmenni
Kona Valgeirs eftirlifandi er Anna
Einarsdóttir frá Borgarfirði eystra,
framtakssöm dugnaðarkona, sem
á efri árum sínum verður að þola
heilsubrest og sáran ástvinamissi.
Hjónaband þeirra hafði staðið fulla
hálfa öld, þegar Valgeir féll frá
Synir þeirra hjóna eru fjórir:
1. Stefán, f. 20.11. 1918, alþingis-
maður og bóndi í Auðbrekku, kv.
Fjólu Guðmundsdóttur. 2. Þor-
steinn, f. 25.3. 1921, starfsmaður
hjá verzluninni Hagkaup í Reykja-
vík. 3. Þórir, f. 20.6. 1922, kv
Höllu Halldórsdóttur, bóndi í Auð-
brekku. 4. Guðmundur, f. 11.11.
1923, kv. Jónu Pedersen, nú starf-
andi í Reykjavík. Fimmti sonur
Valgeirs, fæddur fyrir hjónaband,
er Ilermann, bóndi í Lönguhlíð,
f. 16.10. 1912. Kvæntur er Her-
mann Valgeirsson Þuríði Péturs-
dóttur búfræðings og bónda á
Gautlöndum, Jónssonar frá Reykja
hlíð, Péturssonar. Er Þuríður því
dótturdóttir Péturs ráðherra Jóns-
sonar.
Valgeir Árnason var kurteis og
ur og dagfarsprúður og söttist ekki
eftir metorðum eða mannvirðing-
um svonefndum. í eðli sínu var
hann meira hneigður til andlegra
starfa en búsumstangs. Hann mun
hafa þráð að ganga menntaveg,
sem kallað er, þegar hann var
ungur, en aðstæður hömluðu því.
Varð þess þó ekki vart, að hann
harmaði hlutskipti sitt í llfinu,
nema síður væri. Valgeir Árnason
var húmoristi, annað orð lýsir hon
um ekki betur, og slíkum mönn-
um er efcki andlega hætt, þótt
eitthvað fari á annan veg en óskir
standa til. Vel er hann hagmælt-
ur sem frændur hans fleiri (Bald-
vin skáldi var föðurbróðir hans),
en hafði ekki hátt um þessa gáfu
sína. — Valgeir Árnason skilur
eftir sig hlýja minningu hjá þeim,
sem honurn kynntust.
III.
Valgeir Stefánsson var fæddur
í Auðbrekku 10. júní 1948, sonur
hjónanna Stefáns alþm. Valgeirs-
sonar og Fjólu Guðmundsdóttur
frá Böðmóðsstöðum í Laugardal.
Var hann elztur 6 barna peirra
hjóna. Hann ólst upp hjá foreldr-
um sínum ýmist í Keflavík, þar
sem faðir hans starfaði um skeið,
eða í Auðbrekku, sem kalla mætti
ættarjörð nú orðið, þvi að þar- vex
nú upp fjórði ættliður mann fram
af manni frá Jóni hreppstjóra
Snorrasyni, sem í Auðbrekku bjó
fyrir u.þ.b. 100 árum.
Valgeir yngri stundaði nám i
GagnfræðaSkóla Akureyrar og
lauk þaðan gagnfræðaprófi vorið
1966. Hann hafði ákveðið ævistarf
sitt og bjó sig undir það af stakri
kostgæfni. Ætlun hans var að ger-
ast atvinnuflugmaður, og hafði
fcann, er hann féll frá, lokið bók-
legu námi og blindflugsprófi, en
átti eftir að ávinna sér tilskilda
flugtíma, til þess að öðlast atvinnu
flugmannsréttindi. Naut Valgeir
mikils álits sem flugmannsefni,
enda gæddur þeim kostum, sem
prýða mega mann í svo ábyrgðar-
mikilli og vandasamri stöðu, mjög
reglusamur í líferni, m.a. alger
bindindismaður á vín og tóbak, að
gætinn og greindur, einstakt prúð
menni og laginn í meðferð hvers
kyns véla og tækja. Kom það m.a.
fram í leikni hans í stjórn vinnu-
véla, sem greinilegast birtist í því,
að hann hlaut verðlaun fyrir starfs
íþróttir á landsmótum ungmenna
félaganna. Hann var einnig á fleiri
sviðum vel íþróttum búinn, eink-
um góður glímumaður og tók þátt
í kappglimum heima i héraði og
víðar.
Eftirlifandi eiginkona Valgeirs
Stefánssonar er Sólrún Hafsteins-
dóttir frá Reykjum í Fnjóskadal.
Þau eignuðust eina dóttur, Gunn-
hildi Fjólu, sem aðeins er fárra
mánaða gömul.
Af fréttum útvarps og blaða
þekkir almenningur tildrög hins
skyndilega fráfaMs Valgeirs Stef-
10
iSLENDINGAÞÆTTIR