Íslendingaþættir Tímans - 06.09.1973, Qupperneq 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Fimmtudagur 6. september 50. tbl. 6. árg. nr. 135. Tin/IAIMS
Þrír forustumenn fallnir frá
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
Kristján Karl Júlíusson
Olafur Elías Einarsson
Gu&mundur Ragnar Guðmundsson
lézt 7. mai s.l. 73 ára að aldri. Guð-
mundur var einn af 13 systkinum,
fæddur og uppalinn Strandamaður.
Hann var alla ævi einn af þeim dug-
miklu útvörðum islenzkrar byggðar.
Guðmundur lærði ungur að sækja
björg i bú, bæði til lands og sjávar, oft i
fang óbliðrar náttúru.
Guðmundur tók við búi að Bæ i Kald-
rananeshreppi eftir föður sinn. Með
ódrepandi dug ræktaði hann jörðina og
byggði, svo að til sérstakrar fyrir-
myndar þótti. Guðmundur var þannig
forustumaður á meðal bænda.
Guðmundur var einlægur félags-
málamaður, og vann Framsóknar-
flokknum ávallt allt það gagn, sem
hann mátti.
Til Guðmundar var ánægjulegt að
koma. Sérstaklega var fróðlegt að
hlýða á frásögn hans af ýmsum atvik-
um frá langri og atburðarikri ævi.
Þegar ég nú lit til baka sakna ég ekki
sizt þess að hafa ekki fræðst oftar og
betur af Guðmundi.
Kristján Karl Júliusson lézt 6. júni
s.l. aðeins 59 ára að aldri. Kristján var
kennari að ævistarfi. Hann var góður
kennari og kær sinum nemendum,
enda lét hann sér afar annt um velferð
þeirra.
A þessu sumri hefur verið höggið
djúpt skarð i sveit forustumanna i
Vestfjarðakjördæmi. Með skömmu
millibili hafa fallið frá Guðmundur
Ragnar Guðmundsson frá Bæ i Kald-
rananeshreppi, Kristján Karl Július-
son frá Bolungavik og Ólafur Elias
Einarsson frá bórustöðum i Bitru.
Það er ekki ætiun min að skrá ævi-
sögu þessara mætu manna. Aðrir hafa
gert það. Með þessum fáu orðum vil ég
fyrst og fremst freista þess að rekja
lauslega mikilvæg ábyrgðarstörf þess-
ara forustumanna og þakka þeim ó-
metanlegt samstarf á undanförnum
árum.