Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Blaðsíða 6

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Blaðsíða 6
Guðrún Jónsdóttir Mýrum Fædd 17. mai 1895. Dáin 7. október 1975. „Gæfa var aö samfylgd þinni”. Þessi setning er mér efst I huga nú er ég rita nokkur minningarorð um vinkonu mina Guðrúnu Jónsdóttur, Mýrum. Á vegferð okkar gegnum lifið njótum við ávalltgóöra eiginda samferðafólksins. Þannig öðlumst við dýpra og raun- særra lifsmat i samskiptum við heil- steypt og hreingeðja fólk, sem ekki bregst þegar á reynir, né stendur hjá þegar liösinnis er þörf, en gengur fram með höfðingslund, sem hvorki spyr um mannaforráðné viðurkenningu, reynir aðeins að leysa sitt hlutverk af hendi meö vönduðu hugarfari. Slík hygg ég aö persónuáhrif Guðrúnar hafi verið, þarna fór traust og hjartahlý kona, sem gott var að eiga samfyigd meö. Og þó hún hyrfi okkur sjónum, háöldr- uö#var sem staldra þyrfti við til þess að átta sig á aö hún væri öll. Hún var okkur tákn þess að aldur viröist auka- atriði þegar lifað er og hrærzt i dagsins önn fram undir þaö slðasta, og ávallt, sem veitandi fremur en þiggjandi. Guðrún var fædd i Sauðeyjum á Breiðafirði 17. mai 1895. Munu að ættum hennar hafa staðið sterkir stofnar. Hún ólst upp i eyjunum við alla algenga vinnu, sem þar var stund- uö til sjós og lands. Það er alkunna hve lifsbarátta eyjafólksins var ströng og oft þurfti að heyja tvisýnt striö við óbliönáttúruöfl. Það lætur að likum að þroskaár i sliku umhverfi hafi verið Guðrúnu harður og lærdómsrikur skóli enda mun hún snemma i æsku hafa mótazt af atorku og skapfestu. Ariö 1923 giftist Guörún eftirlifandi manni sinum Gisla Vagnssyni frá Hallsteinsnesi i Gufudalssveit. Voru ungu hjónin 2 ár I húsmennsku að Rauðsstöðum i Arnarfirði. En hófu siðan búskap aö Gljúfurá i sömu sveit og bjuggu þar i 11 ár. Það blandast engum hugur um, sem leið á fram hjá Gljúfurá, sem nú er eyöijörð, hve erfiö skilyrði hafa verið þar til búsetu og þurft mikinn kjark og manndóm til þess aö ala þar önn fyrir sjórum barnahópi. Gisli mun þá þegar hafa kennt vanheilsu og auk þess þurft að sækja sjó fjarri heimili. Reyndi þvi mjög á þrek og dugnað Guðrúnar viö 6 að sjá um bú og börn. Arið 1936 réðust þau Guðrún og Gísli I að festa kaup á höfuðbólinu Mýrum i Dýrafirði. Efni voru lítil og fjölskyldan stór. Börnin voru orðin 7, öll i ómegð,að auki fóstur- sonur og aldraðir foreldrar Gisla. Þrátt fyrir þetta brást ekki bjartsýni þeirra hjóna. Við jarðarkaupin munu þau hafa notið aðstoðar hins mæta manns Björns Guðmundssonar á Núpi með iánafyrirgreiðslu. Það voru gæfu- spor stigin, er þau Guðrún og Gisli fluttust að Mýrum. Ekki aðeins fyrir þau og börn þeirra, heldur einnig fyrir sveitina, sem á þeim svo margt gott að gjalda. A Mýrum var miðstöð sveitar- innar til mannfunda og allskyns félagsstarfa. Þar er þinghús hrepps- ins. Einnig er þar kirkjustaður. Fljótt kom I ljós að Mýrahjón voru þeim vanda vaxin að bregðast með velvild og skilningi við félagslegum þörfum þeirra, sem þar knúðu svo oft dyra. Ekki þarf að fjölyrða hve stór þáttur húsfreyju hefur verið á þessum vett- vangi. Þrátt fyrir fjölmennt heimili, stóðu ávallt opnar dyr til þess að ljá hverskyns góðum málefnum lið, hvort sem voru saman komin ungmenni með söng og gleðskap, eða setið var og þingað um sveitar— og héraðsmál. Alltaf brást Guörún við öllu sliku með risnu og drenglund. Guðrún var mikil á heimilinu og aldrei talað um vand- kvæði þó marga bæri að garði bæði langt og skammt að. Guðrún var vin- föst kona,trygglynd og hjálpsöm með afbrigðum. Hún var ein af stofnendum Kvenfélags Mýrahrepps og starfaði þar af lif og sál alla tið. Þaö ber hugarþeli Mýrarhjóna vitni að þau tóku á heimili sitt umkomu- lausan fávita og önnuðust hann um tvo áratugi. Maður þessi var flogaveikur og þurfti mikla umönnun, var hún látin I té af allri fjölskyldunni með æöru- leysi og ástúð. Guörún og Gisli eignuðust 9 börn og eru 8 á lífi. Einnig ólu þau upp bróður- son Gísla. Börn þeirra eru: Einar búsettur i Reykjavik. Þuriður húsfreyja Kirkjubóli i Bjarnardal. Arndis, sem er látin, en var húsfreyja i Hjarðardal. Una, búsett á Hvolsvelli Alfheiöur búsett I Reykjavfk. Jón járnsmiður, búsettur i Garðabæ. Valdimar bóndi og hreppstjóri á Mýrum. Bergsveinn bóndi á Mýrum, og Davið læknir i Sviþjóð. A Mýrum er æöarvarp, sem nú mun eitt hið stærsta á landinu. Hafði þaö að einhverju verið nytjað áður en Guðrún og Gisli fluttust að Mýrum. Guðrún kunni þar vel til verka, enda alizt upp við hirðingu varplanda i breiðfirzku eyjunum. óx varpið og dafnaði fljót- lega undir handleiðslu hennar og kunnáttusemi. Ótalin spor átti Guörún I æðarvarpið og dvaldi hún þar oft dag- lega á vorin meðan starfsþrek leyföi- Þegar linur þessar eru ritaðar er hækkandi sól og vorblær i lofti. Þá er gott að minnast Guðrúnar á Mýrum. Það var i anda hennar að ganga von- glöð mót sólarátt og þannig mun hún nú stárfa Guðs um geim. Guðrún andaðist á sjúkrahúsi Isa- fjarðar 7. okt. á s.l. hausti eftir erfiöa sjúkdómslegu. Jarðarför hennar var gerð frá Mýrum 17. sama mán. að viö- stöddu fjölmenni. Þar var kvödd höföingskona, sem skipaði viröingar— og vináttusess i hjörtum sveitunga sinna. Guð blessi minningu hennar. Asiaug Jensdóttir, Núpi- islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.