Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Blaðsíða 10

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Blaðsíða 10
Kári Samúelsson Þann 23. marz s.l. lézt að heimili sinu, Fjarðarstræti 21, Isafirði, föður- bróðir minn Kári Samúelsson. Vil ég með nokkrum orðum minnast hans og þakka öll árin, sem hann dvaldi á heimili foreldra minna, en þar var hann frá þvi þau hófu búskap 1921 og þar til hann gifti sig og stofnaði eigið heimili fimmtugur að aldri. Kári var fæddur i Skjaldabjarnarvik i Strandasýslu 4. nóv. 1903 og var þriðji yngstur af 15 börnum hjónanna Samú- els Hallgrimssonar og Jóhönnu Bjarnadóttur. Er aðeins eitt systkin- anna, Sigriður frá Vonarlandi, enn á lifi. Þegar Kári var 6 ára dó faðir hans, og sundraðist þá fjölskyldan. Eldri systkinin tóku þau yngri að sér. Faðir minn, Ólafur Samúelsson, sem þá var tvitugur, tók Kára með sér og var hann á hans vegum öll uppvaxtarárin. Nokkur ár var hann sem smali hjá Bæring Einarssyni og Vagnfriði Vagnsdóttur á Höfðaströnd. Þegar faðir minn gifti sig árið 1921 og hóf búskap i Reykjarfirði i Grunnavikur- hreppi, en þar bjuggu foreldrar minir 6 fyrstu búskaparár sin, flutti Kári til þeirra og átti þar heimili eins og áður sagði. Það var oft glatt á hjalla i efri bænum i Furufirði, þegar ég var að alast upp og við systkinin öll heima. Átti Kári ekki sizt þar hlut að máli, þvi hann var jafnan hrókur alls fagnaðar, þar sem nokkrir voru saman komnir. En lifið var ekki alltaf dans á rósum i þá daga, og fór hann ekki varhluta af erfiði og vosbúð við sjóróðra, bjargsig og önnur búskaparstörf, i torfæru og harðbýlu héraði. Mörg ferðin var farin yfir heiðar með bagga á bakinu, oft i misjöfnum veðrum og lá þá stundum við að menn kæmustekkiá leiðarenda. Sérstaklega man ég eftir einu atviki, er hann var nærri orðinn úti. Þá var hann að koma yfir Skorarheiði ásamt Kristinu systur minni, sem þá var 19 ára, og annarri stúlku á fermingaraldri. Þetta var seint um haust og kominn mikill snjór. Þau voru á skiðum og gekk ferðin sæmilega til að byrja með, en svo skall Guðmundur Kr. Framhald af bls. 9. ræddi þá sérstaklega við hann um kirkjusöngsstarf hans. Svar Guðmundar var á þá leið, að hann hafi sungið i Dómkirkjukórnum fjörutiu og þrjú ár og með Fóstbræðr- um þrjátiu og átta ár. Hann segir, að Sigfús Einarsson hafi hvatt sig til að læra meira og helga sig söngnum, helzt eingöngu. En hann hefði svarað honum, að hann vildi eingöngu syngja i fristundum sinum, sjálfum sér til skemmtunar, og ef það gæti orðið öðr- um til ánægju, — og i félagsskap við aðra, þvi góðan félagsskap mæti hann mikils. Helgi spyr Guðm. hvernig það hafi atvikazt, að hann fór i Dómkirkjukór- inn — Guðmundur svarar þvi á þann hátt, að hann hafi sungið „Hátt ég kalla”, eftir Sigfús Einarsson. Bless- aður Sigfús hafi faðmað sig að söngn- um loknum. Fáum dögum siðar hafi Sigfús komið heim til hans og fengið hann til að koma i Dómkirkjukórinn. önnur minnisstæð atvik úr kirkju- söng hjá Guðmundi eru, þear hann söng undir stjórn Sveinbjörns Svein- björnssonar þegar fyrst var æft lagið „Páskamorgunn”, eftir Sveinbjörn. Þetta lag var sungið i Frikirkjunni. Og i annað sinn, er hann söng með söng- flokki Dómkirkjunnar, þjóðsöng ls- lands undir stjórn Friðriks siðar Danakonungs. Sá söngur fór fram i Al- þingishúsinu, þegar konungur var enn krónprins. Hann hafði farið fram á það 10 við Sigfús Einarsson, að fá að stjórna „Ó, Guð vors lands”, og tekizt það mjög vel. Undir stjórn þriggja söngstjóra hef- ur Guðmundur lengst sungið, þeirra Jóns Halldórssonar, Sigfúsar Einars- sonar og Páls Isólfssoriar. Aðspurður af Helga Tryggvasyni, hvort hann hafi aldrei orðið ieiður á að syngja áratugum saman, sömu kirkju- sálmalögin, svaraði Guðmundur á eft- irfarandi hátt: „Nei, nei, þetta er alltaf nýtt fyrir manni, eins og boðskapurinn er allt af nýr. Hann er númer eitt — undirstaðan undir lifinu. — Trúin er það, sem ekki bregzt. Að flytja þennan boðskap hefur verið mér lifsfylling, hefur byggt mig upp andlega, og ég má þakka góðum Guði fyrir að hafa gefið mér söngrödd og heilsu til þess að geta orðið ein- hverjum að liði á þessu sviði”. Um jarðarfarasönginn fórust Guð- mundi orð, meðal annars, á þessa leið: „Maður hefur séð margar örlaga- stundir, oft þungbærar, — en bæði gleði- og tárastundirnar eru örlagarík- ar. Þar eru sálmarnir okkar ákveðin leiðarmerki. Fagur sálmur flytur allt- af sama boðskap, hvenær sem hann er sunginn, ef það er gert af áhuga og alúð. „Að tengja saman tón og brag, tekst oft snilldarlega. Harpan skær og hennar lag hljóma guðdómlega”, segir Guðmundur að lokum. Ekki þótti Guðmundi það neitt til- takanlega óþægilegt né bindandi, þótt hann þyrfti að mæta i tveim messum á helgidögum i Dómkirkjunni og stund- um jafnvel þrem, ef lika var um að ræða messugerð á erlendu tungumáli, þvi að hans góða kona hefði ætið hvatt sig til að stunda sönginn. A meðan ég var að rita þessar linur um ævistarf og söngferil Guðmundar, varð hann fyrir þeirri sáru sorg, að þurfa að fylgja sinni ástkæru konu til hinztu hvildar, eftir langvarandi og kvalafulla legu. Ekkert hafði verið honum kærara en konan, börnin og barnabörnin. Vegna þessa sorgiega atburðar i lifi Guðmundar hafi ég dregið i heilt ár að birta linur þessar. Enda þótt yngri kynslóðirnar minn- ist ekki lengur Gisla heitins Guð- mundssonar, þá má þó telja vist, að varla fyrirfinnist sá Reykvikingur, milli fermingar og tvitugs, hvað þá þeir, sem eldri eru, sem ekki hafi kynnzt Guðmundi Simonarsyni, sér- staklega meðan hann gegndi störfum i Zimsenverzlun. Nú er Guðmundur farinn að nálgast áttunda áratuginn. Enn er hann glaður og reifur og léttur á fæti. Þó tel ég vis t, að söngröddin sé eitthvað farin að láta sig. Vonandi hefur útvarpið tekið rödd hans á plötu fyrir nokkru. Margvislegar viðurkenningar hefur hann hlotið fyrir söng og söngiðkanir. Stórkostlegasta viðurkenningin i eigu Guðmundar mun vera frá meistara Kjarval. Ég þakka Guðmundi góða viðkynn- ingu á liðnum áratugum og óska hon- um farsældar á ólifuðum árum. Einnig flyt ég honum árnaðaróskir frá konu minni. Jón Þórðarson. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.