Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Side 15

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1976, Side 15
kappi, fyrsta áriö undir yfirstjórn Jóns Þorlákssonar verkfræöings, siöar ráö- herra. Mikil vöntun var á hæfum mönnum i fyrstu til verkstjórnar á þessu sviöi þvi menn voru slikum störfum óvanir. Sigurgrimur geröist strax fyrirliöi vinnuflokks og fórst þaö mjög vel úr hendi. Kynntist hann þá Jóni Þorlákssyni, sem fékk mikiö álit á hinum unga verkstjóra og taldi hann I fremstu röð ungra manna þá hér á Suöurlandi. Var slikur vitnisburöur mikils viröi frá svo mætum manni. Seinna á ævinni haföi svo Sigurgrimur nokkur afskipti af Flóaáveitufélaginu og var endurskoöandi þess um skeiö. I framhaldi af Flóaáveitu fram- kvæmdunum stofnuöu Flóamenn til félagsskapar um mjólkurbú á áveitu- svæöinu og nefndu þaö Mjólkurbú Plóamanna eins og þaö heitir enn i dag. Fljótlega var þessum samtökum breytti opiö samvinnufélag og spennir nU yfir allt Suöurlandsundirlendið eins °g kunnugt er. Á fyrsta aöalfundi MjólkurbUsins 1929 var Sigurgrímur kosinn istjórn þess og sat síðan óslitiö f henni þar til hann dró sig I hlé 1973. Voru þá liöin 44 ár. bar af var hann formaöur 7 siöustu árin. Frá upphafi Mjólkursamsölunnar i Reykjavik skipaöi Sigurgrimur varamannssæti i stjórn hennar og viö fráfail Egils Thorarensens 1961 tók hann sæti sem aðalmaöur i stjórninni og skipaöi þaö til 1972er hann dró sig i hlé. Formaður Samsölunnar var hann i 3 ár. Sigur- grimur lagöi mikla alUÖ viö störf sin á þessu sviöi eins og reyndar alls staöar Þarsem hann var þátttakandi. Ég geri ráö fyrir þvi aö fáir bændur, sem notið hafa starfa Sigurgrims aö þessum málum, hafi gert sér grein fyrir þvi, aö samanlagt mun hann hafa eytt nokkr- urn á^uraaf ævi sinni i þáguM.B.F. og Samsölunnar, ef dagafjöldinn er lagö- ur saman, sem i þetta hafa fariö. Heima I sveit sinni var hann lengi for- maöur bUnaöarfélagsins og sat um hratugi flesta aöalfundi BUnaöarsam- bands Suöurlands oftast fundarstjóri. PulltrUi var hann og á þremur BUnaöarþingum. BUfjárkynbætur lét Sigurgrimur sig varöa og var formaöur nautgriparæktarfélags um tima og eftirlitsmaöur meö skýrslugerö bænda. Þegar Kaupfélag Árnesinga var stofnaö var hann einn af þeim er sátu stofnfundinn og siöar var hann alloft fulltrUi féiagsins á aöalfundum S.l.S. ^á var hann iengi fulltrUi á aöalfund- Um Sláturfélags Suöurlands. Ahuga- niaöur var Sigurgrimur um stofnun Stéttarsambands bænda og var nokkr- um sinnum fulltrúi á fundum Stéttar- sambandsins. Arin 1938-1942 var Sigurgrimur formaöur fasteignamats- islendingaþættir nefndar Arnessýsluogaftur var hann i nefndinni 1965-1972, auk þess oft skipaður til aö framkvæma ýmis möt, yfirúttekt jaröa og landskipti. Oft hefur i ræöu og riti veriö vitnaö til fundar, sem Sunnlendingar héldu aö Þjórsártúni 19. janúar 1916 til undir- búnings Alþingiskosningum, sem áttu aö fara fram þá um voriö þaö ár. Fundur þessi er talinn hafa valdiö þáttaskilum i flokkaskipan og stjórn- málaþróun hér á landi, og aö þar hafi verið lagöur grundvöilur aö stofnun Framsóknarflokksins. A þessum merka og sögulega fundi var Sigur- grfinuri Holtistaddur, liklega yngstur fundarmanna —tæplega tvitugur — og er nú sennilega sá eini, sem er á lifi þeirra er þar voru. Frá þeim degi hef- ur hann verið Framsóknarmaöur og var lengi i fremstu röö forystumanna flokksins heima i héraði, átti sæti I stjórn Framsóknarfélags Arnessýslu og hefur setiö flest flokksþing Fram- sóknarflokksins. Hér hafa nú veriö rakin aö nokkru félagsmálastörf Sigurgrims og er þó ekki allttaliö. Ekki þarforöum um það aö fara hér hvers trausts hann hefur notiö samtlðarmanna sinna, þvi aö án þessheföu öll hin mörgu trúnaöarstörf ekki veriö honum falin. Eins og geta má nærri reyndi mjög á konu hans og börn vegna hinna tiðu heimanferða og fjærvista við erindarekstur i al- menningsþágu, en góða forsjá haföi Sigurgrimur jafnan og forsögn fyrir búi sinu og störfum þar og fjölskyldan var öll samtaka. Þótt Sigurgrimur hafi alltaf veriö mikill félagshyggjumaöur þá hefur hann ekki alltaf bundiö bagga sina sömu hnútum og aðrir samferöamenn. Þaöþóttit.d. alleinkennUegt uppátæki af honum þegar hin svokaUaöa Breta- vinna hófst i Kaldaðarnesi snemma á árum seinni heimsstyrjaldarinnar og þangaö streymdifólkhvaöanæva aö Ur nágranna sveitum tU aö gripa lang- þráö tækifæri tU aö komast I vel borg- aöa vinnu, aö þá sinnti Sigurgrimur, — sem þó var þurfandi fyrir auknar tekj- ur handa heimili sinu — þessari pen- ingalind ekki fyrir syni sina, sem þó voru komnir á vinnualdur, heldur fór hann fram hjá öllu setuUöi meö þrjú börn sin I Héraðsskólann á Laugar- vatni. Þetta þótti ýmsum aUskritiö og einn vinur hans i sveitinni fann aö sliku ráðlagi, aö ekki skyldi gripiö tækifæriö og strákamir i Holti heldur látnir sækja peninga í Bretavinnu en aö fara i skóla og stofna þannig tU nýrra útgjalda. Sigurgrimur fór auö- vitaö sinu fram og sér ekki eftir þvi. Ariö 1955 lagöi Sigurgrimur þá til- lögu fyrir þrjá af sonum sinum, sem hug höföu á þvi aö veröa bændur, aö þeir stofnuðu meö sér félagsbú i Holti, byggöu þar allt upp aö nýju, og reyndu aö fá nokkrar eyöijaröir I nágrenninu keyptar ogleggja þær viö Holtiö. Þetta varö aö ráöi og hefur vel gengið. BUiö er rekiö eins og venja er aö rekp fyrir- tæki, þar sem allar tekjur, hvort sem þær koma frá búinu eöa eru fengnar meö störfum Ut á viö, renna i sam- eiginlegan sjóö og slöan fær hver bóndi greitt sitt kaup eftir þvi sem tekjur hrökkva til. Sigurgrimurkveðststrax i upphafi hafa gert sjálfum sér og son- um sinum þaöljóst, aö fyrsta boröorð I sliku félagsbúi væri fullkominn heiðarleiki. Þetta hefur gengið vel, og ég er viss um þaö, aö hingaö er hægt aö sækja fyrirmynd aö félagsbúskap eftir 20 ára góöa reynslu. NU hefur Sigur- grimur hætt þátttöku i búskapnum og selt sonum sinum hiö fagra höfuöból, sem þeir feðgarhafa i góðri samvinnu gert aö einni af beztu bújöröum lands- ins. A meöan heilsan endist mun hinn gifturiki bændahöföingi áfram sitja I Holti. Þar nýtur hann góörar um- hyggju, vináttu og viröingar samtiöar- manna, barna sinna, tengdabarna og barnabarna. Margs konar heiöurs- og vináttumerki hafa honum veriö veitt meöal annars fyrir nokkrum árum hin Islenzka Fálkaoröa. Ég inni Sigurgrim eftir þvi hvernig honum segihugur um framtiö lands og þjóðar. Hann segir þjóöfélagiö ólikt þvinú.og þaövará hansuppvaxtarár- um, en sér sýnistfólkið efniiegtog allt muni geta fariö vel ef fólkiö gæti hófs gagnvart landi sinu og þjóöfélagi. Hann segir einnig, aö þó honum svo öldruöum sé ljóst, aö hann sé aö ganga á vit hins ókunna, þá blasi ævikvöldið vel viö sér og vænst þyki honum um þessa setningu: „Guösriki erhiö innra meö yöur”. Þaö er komiö nær miönætti þegar ég stend upp og kveö þennan lifsreynda, vitra og bjartsýna mann. Þegar ég ek Ur hlaði stendur Sigurgrimur á dyra- þrepi og lyftir hendi i kveöjuskyni. Fólkiö er aö ganga til náöa eftir góöan vinnudag. Hér er mikiö starfaö og enn sækja margir ráö að Holti, þvi aö einn af bændunum er oddviti hreppsins, annar er formaöur búnaöarfélagsins og i stjórn Mjólkurbús Flóamanna og enn fleira er hér sýslað viö félagsmál samhliöa strangri vinnu á höfuöbólinu. Mér er þakklæti i huga til Sigur- grims fyrir langa og góöa viökynn- ingu. Fyrir öll árin, sem viö störfuöum saman aö félagsmálum og fyrir vin- samlega afstööu til mln á meöan ég fór meö umboö á Alþingi. Aö endingu vil ég óska Sigurgrimi þess, aö hann megi njóta góörar elli glaöur og reifur til hinzta dags. Agúst Þorvaldsson 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.