Íslendingaþættir Tímans - 14.07.1979, Qupperneq 3
Sigurður Sigvaldason
En margur er drengur Ur göngunni geng-
inn
og getur ei komist á fætur.
St.G.
1896— 1979
Minningarorö
Þessi árvakri starfsmaður andaöist 22.
apríl 1979, eftir langan og nytsaman æfi-
dag 1 þágu heimilis sins og sveitunga.
Hann var 82 ára og 5 mánuðum betur.
Hann var um allt lánsamur, þvi að hann
var ánægður með sitt hlutskipti, tök þvi
sem aðhöndum bar meö rólyndi og bjart-
sýni.en æðraðist ekki. Hann naut mikilla
starfskrafta nær þvl fram á siöustu
stundu og þótt líkamskraftarnir dvínuöu
siðustu vikurnar, var áhuginn og lifsgleð-
in óbreytt. Foreldrar Sigurðar voru þau
hjónin Sigvaldi Jóhannesson Einarsson
bónda að Gröf á Vatnsnesi og Ingibjörg
MagnUsdóttir Isleifssonar á Bálkastöðum
við Hrútafjörð. Þau námu land 3 1/2 milu
suövestur af Gimli og nefndu Grund. Þar
fæddist Sigurður 29. nóv. 1896. Hann naut
kennslu i barnaskóla á Gimli þó stopult
væri og siöar einn vetur við bilnaöarskól-
ann í Manitoba. Ariö 1904 fóru eldri bræð-
ur hans þrirnorður og numu lönd i Viöir-
byggð, sem þá var að myndast. Ariö 1913
seldi Sigvaldi heimili sitt við Gimli og
fldtti einnig til Vfðir. Þá var Sigurður
aöeins 15 ára og tók hann strax ástfóstri
við hið nýja umhverfi og varði siðan
kröftum sinum i þágu heimilis sins og
byggðar sinnar.
Eins og flestir jafnaldrar gegndi hann
herþjónustu i Kanadaher 1917-1919 og var
jafnan i lögregluliöi hersins. Aö lokinni
herþjónustu sneri hann heim aftur og
settist að bUi foreldra sinna. En 29. mai
1920 giftist Siguröur og gekk aö eiga
Eggertinu, dóttur landnámshjóna i Viðir-
byggö, Þorleifs Sveinssonar Kristófers-
sonar frá Enni i Refasveit og GuðrUnar
Eggertsdóttur bónda I Vatnshverfi. Þau
reistu þegar bU á eignarjörð Sigurðar
skammt frá heimilum foreldra sinna og
vegnaöi vel, enda samhent og kappsöm.
Ekki leið á löngu aö ungu h jónin fóru að
taka virkan þátt ifélagslifi sveitar sinnar.
Sigurður gekk strax i bændafélagið, en
konan var þegar komin i kvenfélagiö, sem
hUn starfaði við með dugnaði i 60 ár.
Eggertlna andaðist 18. nóv. 1978.
En þaö urðu fleiri mál sem Siguröur
hafði með höndum. Hann var snemma
kosinn i skólaráö og starfaöi i þvl sam-
fleytt í 25 ár, ýmist forseti eða skrifari og
féhirðir. 1 22 ár var hann i framkvæmda-
nefnd North Star Coop Creamery,
formaöur þeirrar nefndar i fjölda mörg
ár. Hann rækti þessi störf með áhuga og
dugnaöi, jafnframt þvi sem hann rak all-
stórt bU, oghafði oftast margt fólk i heim-
ili. I byrjun árs 1950 tók hann við starfi i
sveitarráöi héraðs sins sem meðráða-
maður (Counsillor) og var hann kosinn
gagnsóknarlaust. Það er til marks um
vinsældir hansaðhannhélt þviembætti 13
kjörtlmabil, eöa full 27 ár og lét af störf-
umviðárslok 1977þá81árs. Þaðersenni-
lega algjört met aö maður sitji svo lengi I
þvi embætti og vera aldrei kosinn með
almennri atkvæöagreiðslu.
Sigurður vann öll sin störf, heima og
heiman, meðstakrialUðog árvekni. Hann
var samvinnugóður, hélt vel á máli slnu
og þó kappsamur, en hann var algjörlega
laus við persónulega óvild f garð þeirra
sem ekki litu sömu augum á málin og
hann. NU þegar hann er allur söknum viö
samferöafólkið hressilegs og vingjarnlegs
viömóts, áhuga og gleöi f starfi. Gaman-
sagna og fyndni sem krydduðu mál hans.
Sveitin sem hann unni er einum frum-
herja og forystumanni fátækari.
Sigurður og Eggertína bjuggu saman i
ástriku hjónabandi i full 58 ár. Þau voru
sérlega vel til forustu fallin. Heimili
þeirra varð nokkurs konar miðstöö. Þar
var bæði verslun og pósthUs um árabil.
SamkomuhUs byggöarbUa, reisuleg og
traust bygging, var sett á landareign
þeirra og voru þaö ekkifá dagsverkin sem
þau vörðu viö byggingu og til viöhalds þvi
hUsi.sem er þeim og öllum byggöarbUum
til sóma.
Þeim hjónunum varð 5 barna auöið sem
öll lifa og syrgja nU foreldra sina sem
burtkölluðust með aðeins 5 mánaöa milli-
bili. Ingibjörg (Mrs. Elinhirst) fyrrum
kennari nU hUsfrU við Carberry,
Manitoba. Arleif (Mrs. Calvert) einnig
kennari, en nU hUsfrU nálægt Carberry.
Lilja (Mrs. Erikson) hUsfrU, Coquittam
B.C. Sveinn. byggingameistari,
Coquittam. Elln (Mrs. Moore), banka-
gjaldkeri Vancouver B.C.
Sigurður andaðist 22. april 1979 að
heimili Arleifar dóttur sinnar og var lagð-
ur til hinstu hvildar við hlið konu sinnar i
Vföirreitnum, þar sem flest samstarfs- og
samferöafólk þeirra hvilir. Útförin var
gerð frá samkomuhUsinu að viðstöddu
fjöknenni sem fylgdi honum siöasta
áfangann. Sóknarprestur Ardalssafnaðar
stjórnaði athöfninni.
Sjálfsagt koma nU fram ungir menn og
konur að taka við starfi þessara föllnu
foringja.þviekki skortir ágæta liösmenn i
Viðirbyggðinni. En þaösitur eftir hjá okk-
ur samstarfsmönnunum eldri, eins og
skáldiðkvað: „Eftirsjónin slfkra manna.
Atgjörvisins allir sakna”.
Margrét
Magnúsdóttir
f. 02.04 1969
d. 20.06 1979
NU héöan á burt i friði ég fer,
ó, faðir, að vilja þinum:
1 hug er mér rótt og hjartaö er
af harminum læknaö sinum.
Sem hést þu mér, Drottinn, hægan blund
ég hlýt nú i dauða minum.
(höf. Helgi Hálfdánarson)
Foreldrum, systur og öllum aðstandend-
um sendum við okkar innilegustu sam-
Uöarkveöjur, um leiö og viö öll þökkum
þær samverustundir, sem við fengum aö
eiga meö þér, Dobba okkar.
Sæll ert þu, er saklaus réðir
sofna snemma dauöans blund,
eins og litið blóm i beöi
bliknaö fellur vors um stund.
Blessað héðan barn þU gekkst,
betri vist á himni fékkst,
fyrr en náöu vonska og villa
viti þinu og hjarta spilla.
(höf. sr. ólafur Indriöason)
Starfsfólk ogbörn
sumardvalarinnar I Húsabakkaskóla.
islendingaþættir
3