Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 14.07.1979, Qupperneq 4

Íslendingaþættir Tímans - 14.07.1979, Qupperneq 4
Magnús G. Þórðarson varðstjóri F. 25. júni 1929 D. 1. júni 1979 „Menn halda stundum skammt á leikinn liöiö, og lifiö dregur tjaldiö fyrir sviöiö, og drottnar þar hin djúpa þögn”. D.St. Fyrir stuttu siöan þegar voriö fór aö taka völdin kom kaldur gustur dauöans skyndilega inn á heimili fjölskyldunnar aö Efstasundi 79 hér i borg. Húsbóndinn Magnús Gisli Þóröarson varö bráökvadd- ur aö kvöldi dags 1. júni. Þannig er lif vort. Fáir vita hvenær tjald lifsins fellur. Magnús var fæddur á Grænumýri á Sel- tjarnarnesi 25. júni 1929. Foreldrar hans voru þau Guörún Gisladóttir og Þóröur Magnússon sjómaöur og vélstjóri. Magnús kynntist snemma haröri vinnu foreldranna og þeim kjörum, sem fátækt verkafólk bjó viö á fyrri helming þessarar aldar. A sextánda ári byrjar hann aö vinna hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur og er stuttu siöar oröinn fastráðinn starfsmaöur. Hjá þeirri stofnun vann hann siöan alla tiö til dauöadags. Magnús kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Erlu Guörúnu Siguröardóttur, plpu- lagningameistara Jóhannssonar, 17. nóvember 1951. Þeim varð f jögurra barna auðiö. Þau eru: Siguröur Rúnar, póstbifreiöastjóri, kvæntur Ingibjörgu Kr. Einarsdóttur, rit- ara. Guörún Þóra, bankaritari gift Erni ísleifssyni sölumanni. Þóröur Axel vinnur hjá Rafmagnsveitu Reykjavikurborgar, og Guöni Karl, nemandi i skóla. Þannig er i örstuttu máli lifsferill Magnúsar Þóröarsonar. Þegar fjölskyldur okkar tengdust fyrir fimm árum siðan kom hann mér fyrir sjónir sem hlédrægt prúömenni. Sú mynd breyttist ekki viö nánari kynni en viö bættust ýmsir aðrir eiginleikar, sem ég mat mikils svo sem glaöværö hjálpsemi og traustleiki. Sambúð þeirra hjóna var meö þvi fegursta og besta sem ég hefi kynnst og var I hvivetna til fyrirmyndar. Ung aö ár- um bundust þau þeim tryggðum, sem aldrei síöar bar skugga á. Um þaö bar heimili þeirra fagurt vitni. Aöur en þau eignuöust húsnæöiö að Efstasundi 79 áttu þau litiö hús inn i Blesugróf. Þar mun margur gestur hafa glaðst viö komu sina er hann sá hversu hagar hendur húsbændanna og meöfædd 4 snyrtimennska höföu skapaö hlýlegt og snoturt heimili f litlu plássi. Já, þaö sannast oft aö auöæfin mestu er manngildiö sjálft en hvorki varan né gull- iö. Ungur aö árum mun Magnús hafa þráð meiri menntun I sinni starfsgrein. Það uröu — eins og hjá fleirum á fyrri árum — að nægja námskeiö til aö ná starfsréttind- um. Hins vegar tókst honum á fjórða tug ára aö vinna hin mikilsverðu þjónustu- störf á vegum Rafmagnsveitu Reykja- víkurborgar með þeim hætti aö hann hlaut traust og viröingu sinna samstarfs- manna. Nú viö leiöarlok vil ég fyrir hönd fjöl- skyldu minnar þakka honum hjartanlega samfylgdina. Viö vottum eftirlifandi eiginkonu hans og börnum þeirra innilega samúð okkar og biöjum þeim allrar blessunar. Hvaö er sorg — hvaö er gleði á lifsandans leið? Er ei lff vort sem veikbyggðust rós? — Eitt er vist — þegar dimmir og dagsljós vort þver dvin ei eilifa Guösneistans ljós. Einar Kristjánsson Það er ekki ætlun okkar aö skrifa langa grein, heldur aöeins aö minnast elsku Magga i nokkrum oröum, sem var börn- um sinum og tengdabörnum ekki aöeins góöur faöir, heldur einnig mætur félagi. Vandamál okkar barnanna voru einnig hans vandamál alltaf var hann reiðubúinn aö hjálpa og veita leiösögn. Viö munum seint gleyma þvi liösinni sem hann veitti okkur, þegar viö vorum aö byrja búskap. Sú einlæga ást sem hann sýndi barna- börnum sinum þegar þau fæddust og uxu úr grasi verður til þess aö þaö er okkur foreldrunum erfitt að útskýra fyrir þeim hvers vegna afa Magga nýtur ekki lengur við. Þau munu eiga I framtíöinni óljósa mynd af manni sem tók þau á kné sér og hampaöi þeim og átti þá huggun sem af- anum er einum lagið. En viö eigum margar dýrmætar minn- ingar um þennan mæta mann, og viö trú- um þvi aö Guö gefi honum styrk og ljós i hjarta til þess aö mæta nýjum heimkynn- um. Siggi, Inga, Gunna og örn Aldrei finnur maöur eins til vanmáttar sins og smæöar, og aldrei veröur eins er- fitt aö átta sig á lögmálum lifsins eins og þegar menn sem maöur telur aö enn eigi mikiö dagsverk eftir eru skyndilega I burtu kallaðir. Þannig er okkur vinnufélögum Magnús- ar Gisla Þóröarsonar innanbrjósts þegar við kveöjum hann Magnús hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur I jarðlinudeild áriö 1945. Ariö 1974 var hann ráöinn sem vaktmaður við húsveituvaktina og sem varöstjóri var hann ráðinn 1977. öll störf sin vann hann með stakri prýöi og samviskusemi, hver sem þau voru. Það er skarð fyrir skildi, þegar slikir menn falla frá fyrir aldur fram. Magnús haföi átt viö vanheilsu aö striöa að undanförnu, en fáir hafa sjálfsagt gert sér grein fyrir þvi, hversu alvarleg eðlis veikindi hans voru, þar sem Magnús var ekki sá, sem kveinkaði sér við aöra en bar sig alltaf jafnvel og var alltaf sama prúö- menniö á hverju sem gekk. Viö vinnufélagar Magnúsar viljum meö þessum fátæklegu orðum þakka honum samfylgdina sem hvergi bar skugga á. Fjölskyldu hans sendum viö okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Kveöja frá vinnufélögum Góður drengur er nú látinn. Glaölyndi hans og viömót var allt meö einsdæmum. Er viö mágkonur hans kveöjum hann nú Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.