Íslendingaþættir Tímans - 14.07.1979, Blaðsíða 8

Íslendingaþættir Tímans - 14.07.1979, Blaðsíða 8
100 ÁRA MINNING Lárus Rist Fæddur 19. júnl 1879 Dáinn 10. október 1964 19. júni voru liöin hundraö ár frá fæö- ingu Lárusar J. Rist, eins helsta braut- ryöjanda likamsræktar og ungmennafé- lagshreyfingar á Islandi. Lárus var þjóö- kunnur fyrir margháttuö störf sin og þvl er gild ástæöa til aö minnast hans af þessu tilefni. Lárus var sonur Jóhanns Rist Svein- bjarnarsonar og konu hans Ingibjargar Jakobsdóttur ljósmóöur, sem lést þegar Lárus var tæpra þriggja ára. Eftir lát Ingibjargar fluttust þeir feögar frá Valdastööum I Kjós noröur i Eyjafjörö og settust fyrst aö á Stokkahlööum. Faöir Lárusar kvæntist siöar ööru sinni og reisti hann þá bú á Botni i Hrafnagilshreppi ásamt konu sinni Þóru Þorkelsdóttur. Viö þann staö tók Lárus miklu ástfóstri og þegar hann eignaöist jöröina gaf hann Akureyrarbæ hana til skógræktar. Lárus stundaöi nám viö Mööruvalla- skóla 1897—1899. Hugur hans stefndi til meiranámsogþvihélt hann, þótt fátækur væri, til Noregs og var þar eitt ár við nám i vefjaraiön. Aftur hélt Lárus utan áriö 1903 og þá til Askov I Danmörku. Aö loknu tveggja ára námi þar fór hann til Kaup- mannahafnar og nam eitt ár viö Statens Gymnastik Institut og lauk þaöan leik- fimi-ogsundkennaraprófi voriö 1906. Var hann annar Islendingurinn sem tók slík próf. Lárus hélt til Akureyrar eftir dvölina í Danmörku og hóf þegar aö kenna leikfimi og sund. Viö Gagnfræöaskóla Akureyrar var hann siöan leikfimikennari um aldar- fjóröungs skeiö eöa allt til ársins 1932. Sund kenndi hann ár hvert á Akureyri og víöar á árunum 1907—1922. Ariö 1937 fluttist Lárus til Hverageröis og kenndi þar sund um nokkurt skeiö. Lárus fékkst nokkuö viö ritstörf, eink- um á efri árum og skrifaöi m.a. æviminn- ingar si'nar „Synda eöa sökkva” sem son- ur hans, Sigurjón, gaf út áriö 1947. Lárus kvæntist Margréti Sigurjónsdóttur frá Sörlastööumáriö 1911 en missti hana eftir 10 ára sambúö. Þau eignuöust 7 börn. Hann lést 10. október 1964 og var jarö- sunginn á Akureyri. Lárus þótti meö kempulegustu mönnum sinnar samtlöar. Hann var garpslegur I útliti og framgöngu, teinréttur og her- mannlegur. Andlitiö mikilúölegt og stór- skoriö. I allri framkomu sinni var Lárus nánast persónugervingur þeirra lifs- og uppeldishugsjóna sem hann kynntist á námsárum sfnum I Danmörku. Kjarni þessara hugsjóna var trúin á manninn, 8 manngildiö og mannkærleikann. I huga hans var þaö skylda hvers manns aö vera maöur og þá fyrst og fremst batnandi maður. Þessum lifsskoöunum slnum var Lárus trúr allt til æviloka. Þaö kom; ekki slst fram I þvl trausti sem hann bar til æskunnar sem hann helgaði krafta slna af mikilli fórnfýsi. Mikilvægur þáttur I uppeldishugsjónum Lárusar var likamsræktin. Á henni hafði hann óbilandi trú. 1 æviminningum sínum segir hann á einum staö: ,,En ég haföi sannfærst um þaö á námsárum mlnum I Danmörku, aö einna mikilvægast fyrir uppeldi æskunnar væri, aö vel tækist til meö leikfimikennsluna. Þaö er leikfimi- kennarinn öörum kennurum fremur, sem hefur llkamlegan þroska nemendanna I hendi sér auk ýmissa hinna þýöingar- mestu þátta I sálarlifinu. Þaö er hans: aö rétta þá úr kútnum, kenna þeim aö bera höfuöiö hátt og laga þá svo I sniöum, aö þeir geti öölast djarflega framgöngu. Þaö er hann, sem öllum kennurum fremur getur meö æfingavali sínu og framkomu örvaö framtak nemendanna, mótaö skap- geröina og eflt viljaþrekið.” Þaö var I samræmi viö trú Lárusar á manninn aö hann vildi aö nemendur sinir temdu sér aö horfa hátt og hugsa hátt: vera djarflegir I framgöngu. I huga Lárusar átti leikfimin, llkams- ræktin, aö þjóna háleitustu markmiöum en ekki aö vera hjómiö eitt. Þetta kemur fram á öörum staö I æviminningum hans þar sem segir frá eintali sálarinnar um gildi leikfiminnar og hrotttaskap gllm- unnar og hnefaleikanna, sem ekki áttu uppá pallboröiö hjá honum: ,,. . . stööugt hvíslaöi aö mér innri rödd, sem sagði: „þinni leikfimi og þeim íþróttum sem þú velur, veröur aö fylgja sú siömenning — kultur — sem skólarnir vilja og eiga aö halda uppi I landinu. Þú þarft aö kunna skil á, hvaösé göfgandi og grópi inn I hug- ann mannkærleik, háttprýöi og prúð- mennsku, og hve langt megi ganga I hverri Iþróttagrein, svoekki hljótist verra af. Hver kennslustund ætti að skilja eftir neista af þeim eldi, sem skírast skal loga á arni framtiöarinnar — eldi hugsjóna og bræöralags. Glimum og hnefaleikum fylgja bæði hugsunarháttur og oröaval, sem vinna I gagnstæöa átt. Mundi nokkur vilja halda því fram, aö orö eins og fella, bregöa, slá.þjarmaaö, svo fátt sé taliö af þeim grúa „hreystiyrða”, sem notaöur er I sambandi viö þessar Iþróttir, hafi engin áhrif I þjóöfelaginu?” Sundiö var Lárusi kærast allra íþrótta. Þá iþrótt læröi hann ungur I Eyiafiröi. Eins og fram hefur komiö starfaöi Lárus aö sundkennslu meöan kraftar leyföu, fyrst á Akureyri og viöar og síöan I Hverageröi. Þegar Lárus kom til Hvera- geröis tók hann til óspilltra málanna og reisti þar sundlaug meö hjálp ungmenna- félaga og margra annarra sem hann hreif meö sér meö dugnaöi sinum og atorku. Siöar var þessi laug stækkuö og gerö enn veglegri. Nokkrueftir aö lauginhaföi ver- iö reist, gat Lárus veriö stoltur yfir þvl aö allir unglingarnir I sveitinni voru orönir vel syndir og börn I Hverageröi allt niöur I 6 ára aldur. Lárus varö þjóökunnur fyrir að synda yfir Eyjafjörö áriö 1907, en hann haföi strengt þess heit á fundi i Ungmennafé- lagi Akureyrar I ársbyrjun „ . . . aö synda yfir Eyjafjörö innan jafnlengdar, al- klæddur og I sjófötum, á bilinu frá Glerár- ósum inn aö Leiru, en áskil mér rétt til þess aö kasta klæöum á sundinu, ella minni maöur heita.” Sundiö vakti mikla athygli um allt landiö og átti ekki lltinn þátt I þeirri sundvakningu sem átti sér staö á árunum á eftir. En Lárus vildi meö sundinu annaö og meira en aö afla sér frægöar. Hann vildi meö þvi sýna aö sundkunnátta væri hverjum og einum nauösyn en ekki slst sjómönnum, þvl margir héldu þvl fram á þeim árum, aö þeir sem i sjóinn féllu drukknuöu, jafnt hvort þeir væru syndir eöa ekki. Þegar Lárus kom til Akureyrar frá námi I Danmörku gekk hann strax til liös viö ungmennafélágshreyfinguna, sem þá haföi skotiö rótum og átti eftir aö breiöa úr sér um landiö á fáum árum. Lárus tók virkan þátt I starfi Ungmennafélags Akureyrar ognaut alla tiö slöan mikillar viröingar innan hreyfingarinnar. Fyrir atbeina hans stóð félagiö aö þvl aö reisa stóra sundlaug i Grófargili og sumariö 1909 stóö hann aö íþróttamóti ungmenna- félaganna á Akureyri. Þetta mót var fyrsta meiriháttar iþróttamótið á Islandi og af mörgum er þaö taliö fyrsta Lands- mót UMFÍ. A móti þessu var keppt I nokkrum iþróttagreinum I fyrsta sinn á Islandi, svo sem kappgöngu og knatt- spyrnu. Lárus Rist lagöi fram stóran skerf til likamsræktar og Iþrótta á Islandi á fyrri hluta aldarinnar. FVrir þaö á hann þakkir skildar. Iþróttakennarar minnast hans sem eins helsta likamsræktarfrömuöar þjóöarinnar. Ingimar Jónsson. Islendingaþættír

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.