Íslendingaþættir Tímans - 27.10.1979, Side 5

Íslendingaþættir Tímans - 27.10.1979, Side 5
Þórarinn Jónsson frá Starmýri í Álftafirði F. 28. 1. 1887 D. 27. 8. 1979 Jarðarför Þórarins Jónssonar, frá Star- mýri, fór fram 3/9 1979. Þórarinn var fæddur að Rannveigarstööum, i Alftafirði eystra. Foreldrar hans voru Jón Björns- son og Vilborg Jónsdóttir. Þeim hjónum, Jóni og Vilborgu, var sjö barna auðiö. Foreldrar Þórarins bjuggu á ýmsum stöðum eystra: Rannveigarstööum, Hofi, I Álftafirði (eystra) Hálsi i Hamarsfirði og Teigarhorni við Berufjörö. Frá Teigar- horni fluttist Þórarinn aö Starmýri, sem fyrr er getið. A Starmýri kynntist Þórar- inn Stefaniu Brynjólfsdóttur og giftust þau áriö 1914. Þórarinn var með hærri mönnum og vörpuleguraðvallarsýn. Ég kynntist Þór- arni sem háöldruðum manni, hátt á ni- ræðisaldri. Enn var gamli maðurinn hress og bar aldurinn vel. Þegar þarna var komiö sögu var hann þó oröinn sjón- dapur. Einnig bagaði hann að heyrnin var farin aö bila nokkuö. Ég er ævisögu nafna mlns litt kunnugur og mun hún þvi ekki rakin hér. Orfáum svipmyndum bregöur fyrir hugskotssjónum minninganna. Ég kynntist Þórarni háöldruöum manni, sem fyrr segir. Fróölegt var við hann að tala, málfarið skýrt, röddin þrótt- mikil og minnið frábært. Ég heimsótti nafna minn oft þann stutta tima sem kynning okkar varaöi. Minningarnar eru hver annarri likar, hvað þetta snerti. Hann sat og vann við eitt og annað, meðan sjónin leyfði. Allt, sem hann lagði hönd aö, bar merki um handlagni og vand- virkni. Konan hans, hún Stefanla, sat I stólnum sinum og prjónaöi vettlinga, marglita, þar sem saman fór smekkvisi og listhæfni. Nú er hann horfinn af sjónar- sviöinu, hann nafni minn, og Stefania orð- in ekkja. Þeim hjónum varð þriggja barna auð- ið, áður en Stefanla fékk lömunarveikina, ung — i blóma llfsins. Börn þeirra eru: Ells, kvæntur Þor- geröi Karlsdóttur, frá Múla, I Alftafiröi (eystra) Þau eru búsett á Djúpavogi og EHs er hreppstjóri þar. Oddný, gift Her- manni Guðbrandssyni, og Vilborg, gift Siguröi Eirikssyni, (Vilborg dó 4/6 1979) Ekki er unnt að rita þessi minningar- orö, án þess að kona Þórarins komi þar Islendingaþættir viö sögu. Minningarnar hennar Stefaniu, konu hans, get ég ekki rakiö og myndi ekki gera, þótt ég gæti, en reisn hennar, ekkjunnar, sem ég heimsótti daginn eftir jarðarförina, sýndi mér kvenhetju. Þarna sat hún, Istólnum slnum, mild og hlý. Það var eins og hún sæi inn I eillfðina. Ástin, þessi guðdómlegi geislandi máttur, virtist sveipa konuna og bjart var yfir svipnum. Vafalaust var hún að hugsa um horfna ástvininn sinn, sem var henni samhuga langan hjónabandsferil (65 ár). Hún sjálf oröin háöldruö. Hér skyggði ekkert á, heimkoman yrði góð. Ég hverf frá þessum hugrenningum minum og bregð upp svipmyndum, eins og ég hugsa mér þær. Ég sé Þórarin ungan aö árum vinna aö búi slnu viö öflun heyja, sem þá var unniö aö með handverkfærum, orfi, ljá og hrlfu. Ég sé hann sem ungan og þróttmikinn mann ganga að slætti og konu hans raka heyiö saman I flekki. Mörg urðu ljáförin, nafni minn og mörg uröu einnig hrifuför konunnar þinnar. Ég sé hann I haustgöngum, smala sam- an sauöfé, i brattlendi austfirskra fjalla. Sauðkindin er brattsækin og kjarngresið vlða I dölum og hvömmum fjallanna. Inni á hálendinu er öræfaauönin, sem einnig þurfti að kanna. En hvar sem hann starfaöi, hann Þórarinn vinur minn, hvort heldur var til fjalla, eða stranda þá einkenndi hann hin prúöa framkoma og hógværðin, sem hon- um var I blóö borin. — Svo kom mótlætiö mikla. Konan lamaðist og varð óvinnu- fær. Þau báru bæði þá byrði I sameiningu án þess aö kvarta. Þórarinn veitti konu sinni alúð og um- hyggju I einu og öllu, sem best hann gat. Hún tók á móti umhyggjunni, I smáu og stóru, með sínu hlýja brosi. Aldrei hraut óánægjuorð af vörum, þeirra á milli. Slikt mun fágætt. Sagt er aö ástin (kærleikur- inn) þroskist mest og best við mótlæti og barning reynslunnar. Þetta mun vera staöreynd og sannaðist þarna vel á við- buröarikri og margþættri reynslu á löng- um æviferli. Ég kveö þig, nafni minn og þakka góö kynni. Guð blessi þig. Eftirlifandi ástvin- um — konu, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum vinum og kunn- ingjum, bið ég blessunar. Þórarinn Elis Jónsson. Þórarinn Jónsson, frá Starmýri, i Alfta- firði, eystra. Kveöja, frá konu, börnum og öörum tengdum hinum látna. Horfinn ertu heimi þessum af heiðri vafinn, minningin sem traf. Minning kæra okkur gafst I arf, til eftirbreytni, dyggð við hvert eittstarf. Minning þin er vafin dáð og dyggð, drenglund, hógværð, vináttu og tryggð, tendrar ljós, er lýsir hug og sál. Ljósið dyggða tjáir hjartans mál. Besti faðir kær, við kveöjum nú kæran vin, I ljóssins von og trú. Kveðjum þig og þökkum, eitt og allt. Engum varð i návist þinni kalt. Tengdabörnin einnig trútt þér tjá trúnaöinn, þér gott að vera hjá. Allt I kringum þig svo kyrrt og hljótt, að kyrröin snerti alla, milt og rótt. Þér, afi, sendum einnig kveðju-koss, kærleikur þinn er vort besta hnoss. Fyrirmynd, hve góö og göfug lund gleður, vermir, hlýtt, á kveðjustund. Kveðju þinnar konu trútt mun tjá trúa hjartaö hennar milda þrá. Þar um orðin eigi segja neitt. Að eins kærleikurinn fær það veitt. Þ.E.J. 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.