Íslendingaþættir Tímans - 14.03.1981, Síða 2

Íslendingaþættir Tímans - 14.03.1981, Síða 2
stjónarsamur. Hann fór á námskeiö á Hvanneyri til aB læra meöferö og stjórn jarövinnsluvéla. Ariö 1950 keypti Ræktunarsamband Breiödals og Beruneshrepps fyrstu jarö- ýtu si'na og var Jónas ráöinn til aö vinna meö henni. Hann vann hjá ræktunarsam- bandinu til 1956, aö hann geröist flokks- stjóri og siöar verkstjóri hjá Vegagerö rikisins. Hjá ræktunarsambandinu þótti Jónas mjög góöur starfsmaður, verklag- inn og hagsýnn ýtustjóri, samviskusamur og samvinnuþýöur viö þá sem hann vann fyrir, glaövær og skemmtilegur maöur. Eftir aö hann hóf störf hjá vegageröinni helgaöi hann henni alla sina krafta. Hann var mjög áhugasamur i þvi starfi, eins og öðru sem hann tók sér fyrir hendur og til fyrirmyndar var góö umgengni hans og snyrtimennska f þvi starfi, enda var Jónas aö eölisfari hiö mesta snyrtimenni. Hann var mjög vinsæll maöur og sem dæmi má nefna aö sömu mennirnir unnu hjá honum um langt skeiö i vegagerðinni. bá var hann og þau hjón bæöi gestrisin svo af bar. Oft var likara aö þar væri greiöasöluhUs en venjulegt heimili, svo mjög hændist fólk aö þeim báöum. Mér fannst til dæmis eins og húsiö i Hlið væri mitt annaö heimili og fjölskyldu minnar og vilég nota þetta tækifæri til aö þakka af alúð þær hlýju og góöu móttökur sem við áttum þar alltaf aö mæta. Ariö 1956 kvæntist Jónas eftirlifandi konu sinni, Guöbjörgu Steinsdóttur frá Dölum f Fásknlðsfirði og eignuöust þau fjögur börn, þrjá syni og eina dóttur. Barnabörnin eru oröin tvö. Jónasféllfrá langt um aldur fram og er vissulega skarð fyrir skildi i svo litlu byggöarlagi, enda kom þaö glöggt i ljós er Utför hans var gerð 6.desember frá Ey- dalakirkju. Þar var samankomiö mikiö fjöimenni Ur Breiödalshreppi og mörgum nærliggjandi byggðarlögum, auk syst- kina hans sem eru bUsett á ýmsum stöö- um á landinu, en aöeins tvö þeirra gátu ekki fylgt honum siöasta spölinn. Jónas unni æskuheimili sinu, Þorvalds- stööum, og sýnir þaö glöggt hve hann unni þeim staö, aö hann kaus aö leggjast til hinstu hvfldar f heimagrafreit sem þar er, ai áður höföu aöeins foreldrar hans veriö grafnir þar. Viö hjónin viljum alveg sér- staklega votta konu hans, börnum og barnabörnum, okkar dýpstu samUÖ og biöjum góöan guö aö gefa þeim þrek og styrk til aö bera þessa djUpu sörg án þess aö bugast. Heimili þeirra stóð okkur og fjölskyldu okkar alltaf opiö eins og svo mörgum öör- um og viljum viö flytja heimilisfólkinu f Hlfö okkar innilegustu þakkir og óska þvi blessunar guös. Ekki get ég lokiö þessum fátæklegu orö- um svo, aö ég minnist ekki á þann ein- staka og frábæra kærleika sem Didda, en svo var Guöbjörg jafnan kölluð, sýndi manni sínum i öllum hans veikindum. HUn fylgdi honum alltaf ef hann þurfti á 1 sjUkrahUs og vék ekki frá honum nótt eða dag f hinni löngu og erfiöu banalegu. Slíkt er hverjum manni alveg ómetanlegt þeg- ar hann þjáist og veikindastriðið virðist vonlítiö eöa vonlaust. En þaö þarf mikinn kærleika og einstaka fórnarlund til að halda slfkt Ut, enda er Didda alveg einstök mannkostakona. Kæri Jónas, viö hjónin þökkum þér inni- lega fyrir alla velvild, alla greiðasemi og alltgott sem þU gerðir fyrir okkur. Farðu i friöi, friöur guös þig blessi. Við munum minnast þín meöan við lifum. Gilsá 9.12. 1980. Sigurður Lárusson. t Jónas Jónsson frá Þorvaidsstöðum. Heim þU kaust að haida bróðir, hugur bar þig vegu langa flutti þig á fornar sióöir, fyrr en varir endar ganga. Að endingu I umsjá traustri ennþá móts við gömul kynni. Bak viö fjöilin biáu I austri bjó hiö háifa af sálu þinni. Göngulúnum gafst i náðum gieði sú að mega blunda Austurlands i örmum þráðum við yl og minning fyrri stunda. Með þökk og samúöarkveðjum. Þorey Jónasdóttir. t Mig langar að minnast Jónasar örfáum oröum og þakka þau góðu kynni, sem ég og min fjölskylda höfðu af honum. Hann var fæddur 6. april 1926 að Þorvaldsstööum i Breiðdal, sonur hjón- anna. Jóns Björgólfssonar og Guðnýjar Jónasdóttur. Var hann einn 13 barna þeirra hjóna, 8 bræöra og 5 systra. Þar ólst hann upp i þessum stóra systkina- hópi. Hann fór ungur i héraðsskólann i Reykholti, og sfðar lágu leiðir hans uöur á land i atvinnuleit, eins og flestra ungra manna og kvenna á þeim árum. Þegar Ræktunarfélag Breiödals og Berufjaröar fékk jarðýtu rést Jónas til ræktunar- starfa meöhana. og var með hana nokkur sumur. 1956 byrjar hann að vinna hjá Vegagerö rikisins, fyrst i 12 sumur á svæöi sunnan Breiödals i Berufirði og Álftafirði. 1967 tekur hann við verkstjórn á svæöi frá Fáskriíösfiröi til Breiðdals. Þar var hann verkstjóri upp frá þvi. Jónas var ákaflega vel látinn i verkstjórastarfi sinu, sem og öðru er hann starfaði við. Hann var mjög samvisku- samur við hvað eina. Viðmót hans og dag- leg umgengni var öll meö sama hætti. Hann var gæddur rikri kimnigáfu, sá oftast bjartari hliöina á málunum. Jónas kvæntist 1956 Guðbjörgu Steinsdóttur frá Dölum i FáskrUðsfirði. Voru þau fyrst til heimilis á Þorvalds- stöðum. 1958 kaupa þau litiö hús á Breiðdalsvik, Hlið, og þar var heimili þeirra frá þvi. Þau eignuðust 4 börn, Stein Björgvin f. 1956 maki Maria óskarsdóttir frá Fáskrúösfirði. Þau eiga einn son Jónas Friörik og eru búsett á Fáskrúðsfirði. Guðnýju f. 1958 hún býr heima I hlið. Hún á einn son, Jónas Fjalar Kristjánsson. Jón f. 1959 einnig heima i Hlið, og yngstur er Vilberg Marinó. Jónas var einstaklega umhyggjusamur eigin- maður og faðir og litlu drengirnir, barnabörnin voru hans yndi. Það má reyndar segja að öll börn sem Jónas umgekkst hafi oröið umhyggju hans aðnjótandi, þvi hann var sérlega barn- góður. Fyrir 12 árum stækkuðu þau Jónas og Didda ibúöarhúsiö i Hlið og um sama leyti komu þau upp fögrum garði i kring- um húsiö. Þau hjónin voru mjög samhent um að búa heimili sitt sem bezt úr garði, jafnt innandyra sem utan. Þar naut smekkvisi og vandvirkni Jónaar sin. Hann átti mikiö safn af fögrum steinum. Margir þeirra prýða garðinn, þar sem þeir njóta sin vel innan um gróðurinn Jónas var mikill áhugamaður um Iþróttir, enda vel liðtækur iþróttamaöur. Sérstak- lega var það knattspyrnan, sem hann lagði stund á, en knattspyrna var mikið iðkuð i Breiðadal er Jónas var ungur. Voru þeir Þorvaldsstaða-bræður allir góðir knattspyrnumenn. Fyrir 5 árum kenndi Jóns þess sjúkdóms sem dó hann til dauða. i janúar 1976 gekkst hann undir mikla skurðað- gerð. Náði hann nokkurri heilsu á ný og gat stundað sina vinnu. En i febrúar á siöasta ári veiktist hann aftur, og kom þá i ljós að ekkert var hægt aðgera til hjálpar. 1 júlibyrjun siðastliðinn lagðist hann á Borgarspitalann i Reykjavik. Naut hann þareinstakrar umönnunar starfsfólks á deild A-6 og A-7. Didda vék aldrei frá honum. Hún var hjá honum nótt og dag- Veikindi sin bar Jónas með sérstakri stillingu og æðruleysi. Þaö var alveg ómetanlegt fyrir þau að mágkona Diddu, Þóra Kristjánsdóttir útvegaði þeim ibúð, sem Sigriður ólafsdóttir lánaði þeim, (en Sigriður var þá sjúklingur á Reykja- lundi). Gátu börn þeirra verið hjá þeim fyrir,sunnan i sumarleyfum sinum. Einn- ig voru þau Jónas og Didda þar i mánað- artima i haust, en þá var Jónas það betri að hann gat verið heima. Austur þráði hann að komast, þvi þar var hugurinn all- ur. Þau komu austur i Egilsstaði, þar sem Jónas lést á heimili Vilborgar tengda- móður sinnar og manns hennar Marinós Guðfinnssonar. Útför hans fór fram frá Heydalakirkjú- Hann var lagöur til hinstu hvildar við hlið , foreldra sinna i heimagrafreit á Þorvaldsstöðum. Með innilegri samúðar- kveðjum. Sigrún Steinsdóttir. íslentlingaþðe^'r

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.