Íslendingaþættir Tímans - 24.03.1982, Blaðsíða 3

Íslendingaþættir Tímans - 24.03.1982, Blaðsíða 3
stafar jafnan birta frá vel unnu verki sem lýsir þeim sem á eftir fára. 1 viötali við Baldur sem birtist i siðustu leikskrá Handknattleiksdeildar segir hann að fyrstu kynni sin af Fylki hafi verið gegnum krakkana sina við æfingar °g keppni. En Baldur var ekki lengi aöeins áhorfandi, hann gerðist fljótt lið- tækur starfsmaður og leiðbeinandi, sem - tók frumkvæðið i sinar hendur. Handknattleiksdeild Fylkis, sem átti 10 ára afmæli nýlega, var ekki nema tveggja ára þegar Baldur gerðist formaður hennar og siðan hefur hann lagt sig allan fram til að stuöla að framgangi hennar og ell starfsemi Fylkis hefur átt hug hans. ®g mun ekki hér tiunda frekar störf Bald- árs fyrir Fylki, um þau vita allir sem áhuga hafa á félaginu og með honum hafa unnið og nafn hans mun tengjast Fylki um langa framtið. En hvernig var svo maðurinn fyrir utan þann félagslega ramma sem hér hefur - verið afmarkaður, um það tel ég mig einnig geta dæmt. Hann var traustur vinur i raun, tillitssamur og tilbúinn að leysa hvers manns vanda, ef svo bar undir. Hann hafði fastmótaðar skoðanir á Þeim málum, sem hann hafði afskipti af °g lét ekki af sannfæringu sinni, ef i odda skarst, en þó jafnframt fús til málamiðl- unar, ef það gat leitt til lausnar. Hann var glaðsinna og hrókur alls fagnaðar I vina- hópi 0g þrátt fyrir, aö hann eyddi miklu af sinum fritima til félagsstarfa þá bar hann ^uikla virðingu fyrir fjölskyldulifi og lagði Jafnan áherslu á að tengja fjölskyldu og feiagslif saman. Það er mikill missir að - slikum athafnamanni sem Baldur var, en aÖ sjálfsögðu er það þó fjölskyldan, sem missir mest, þegar eiginmaöur og faðir hverfur af sjónarsviöinu á miðjum aldri. Haldur átti þvi láni að fagna, aö eiga mikilhæfa konu og mannvænleg börn, og Þá má ekki undanskilja barnabörnin, sem hann hafði mikið dálæti á, enda veittu þau honum margar ánægjustundir siöastliðið ^r. Þessi fjölskylda hefur öll lagt sitt af uiörkum fyrir starfsemi Fylkis og haldið uierki félagsins á lofti með sæmd. Ef einhverjum bæri sæmdarheitið Eylkisfjölskyldan þá ætti hún heima i Glæsibæ 3. Ég votta eiginkonu, börnum og öðrum nánum ættingjum samúö mina og minnar fjölskyldu og óska þeim alls góðs i fram- tiðinni. Hjálmar Jónsson + I dag er útfarardagur Baldurs Kristins- sonar. Það er mikið áfall fyrir alla sem þekktu hann að sjá á eftir honum á besta aldri. Engum átti þó að koma lát Baldurs islendingaþættir á óvart vegna þeirrar vanheilsu sem hann átti við að striða að undanförnu. Okkar leiðir lágu saman þegar Iþrótta- félagið Fylkir var i mótun i Arbæjar- hverfinu. Baldur vann ómetanleg störf i þágu félagsins bæði sem formaður Hand- knattleiksdeildar og liðsstjóri meistara- flokks karla i mörg ár. Þaö var ekki að ástæöulausu að leikmenn kölluðu hann „pabba” og sýndi þaö vel hvern hug þeir báru til hans. Baldur átti fimm dætur sem allar kepptu með meistaraflokki kvenna og einn son sem keppir með meistaraflokki karla I handknattleik. Baldur hafði óbil- andi áhuga á handknattleik og mætti ávallt á leiki fram á sfðasta dag. Oft þyngdist brúnin á honum þegar illa gekk en gleðin leyndi sér ekki i andliti hans þegar Fylki tókst vel upp. Mér verður alltaf minnisstæður sá atburður þegar við tókum á móti Baldri og meistaraflokki karla á Reykjavikurflugvelli sem sigur- vegurum i II. deild. Sá sigur ásamt mörgum öðrum voru ekki hvað sist Baldri að þakka. Ég votta eiginkonu, börnum og öðrum ættingjum dýpstu samúð og þakka vini mlnum Baldri Kristinssyni ógleyman- legar samverustundir viö sameiginleg áhugamál. Theódór Óskarsson f Hinn 4. mars siöastliöinn lést Baldur Kristinsson fyrrv. form. handknattleiks- deildar Fylkis, aöeins 49 ára að aldri. Baldur kom til starfa hjá Fylki upp úr 1970 og vann mest að málefnum hand- knattleiksdeildar félagsins, sem for- maður og siöar liösstjóri meistaraflokks. Baldur var þó fyrst og fremst Fylkis- maður og vildi hag félagsins i heild sem bestan á öllum sviðum. En ég leyfi mér að fullyrða að eina ósk átti Baldur ofar öllum öðrum félagi sinu til handa, en það er nýtt Iþróttahús I fullri stærð og vænti ég þess aö okkur takist á næstu árum að láta þennan draum hans og okkar allra rætast. Ég veit, að sá róður veröur þungur, en við munum ná settu marki, ef við berum gæfu til að tileinka okkur þá atorku og ósérhlifni og þann sanna félagsanda sem einkenndu öll störf okkar látna félaga, sem viö nú kveðjum hinstu kveðju i dag. Um leið og ég þakka honum frábært starf fyrir Fylki flyt ég öllum aðstand- endum hans samúöarkveöjur félagsins, megi minningin um góðan dreng verða ykkur léttir i sorg ykkar. Með Iþróttakveðju f.h. tþróttafélagsins Fylkis Jóhannes Óli Garðarsson formaður. + Það var haustið 1974 að Baldur Krist- insson kom til min og spurði mig hvort ég væri tilleiðanlegur aö taka að mér þjálfun 3.fl. karla i handbolta hjá Fylki ég hváði við og sagði eins og satt var aö ég hefði enga þekkingu á handbolta til að miðla öðrum. Hann sagði aö þaö skipti ekki öllu máli, við myndum leysa það mál i sam- einingu. Þannig hófst okkar samstarf að handboltamálum i Arbæjarhverfi, sem staðið hefur nær óslitið fram á siðasta dag. A þessum stutta tima sem okkar kynni voru er margs að minnast frá sam- eiginlegu áhugamáli sem handboltinn var. Mörg mál komu upp sem þurfti að leysa og var það oft hlutverk Baldurs að leysa þau, jafnvel með stuttum fyrirvara og má segja að hæfileikar hans hafi komiö skýrast i ljós þá. Hann var oft i forustuhlutverki á þessum tima, en það skipti ekki öllu máli þvi hann var alltaf boðinn og búinn að leysa þau mál sem til hans var leitaö með og var það ómældur styrkur fyrir hand- boltann I Fylki, að hafa mann sem Baldur var innan sinna raöa. Auk þess að starfa nær linnulaust frá árinu 1974 að hand- boltamálum Fylkis átti hann sex börn sem samtimis æfðu og kepptu meö meist- araflokkum félagsins. Sem dæmi um áhuga hans á félaginu og þá sérstaklega 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.