NT - 18.08.1984, Side 1
I
' ■.....................................................................
Stúdentaráð:
Vill byggja íbúðir
fyrir 150 námsmenn
U Stúdentaráð Háskóla ís-
lands hefur skrifað borgar-
ráði bréf og lýst þar hug-
myndum um byggingu náms-
mannaíbúða (hjónagarða)
fyrirháskólastúdenta. „Þetta
hefur verið til umræðu lengi,
en við teljum að með nýjum
lögum um húsnæðisstofnun
ríkisins opnist möguleikar á
lánum frá stofnuninni á sömu
kjörum og verkamannabú-
staðir njóta,“ sagði Stefán
Kalntannsson forntaður
stúdentaráðs í samtali við
blaðið í gær.
Verkamannabústaðir fá
eins og kunnugt er lán fyrir
80% kostnaðar til langs tíma,
og sagði Stefán að margar
hugmyndir væru uppi um
hvernig fjármagna mætti af-
ganginn, þar litu ntenn til
banka, jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga og fleiri leiðir væru
í athugun.
„Við erurn með í huga 150
tveggja og þriggja herbergja
íbúðir,“ sagði Stefán og bætti
við að hér væri um hags-
munamál fyrir Reykjavíkur-
borg að ræða, þar sern léttast
myndi þrýstingur á hinunt
mettaða leigumarkaði borg-
arinnar, ef hinir nýju garðar
yrðu að veruleika.
Karl hafnaði í þriðja sæti:
Náði nú öðrum
áfanga alþjóð-
legs meistara
■ „Ég er mjög ánægður, ég gat ekki gert mér vonir um
betri árangur,“ sagði Karl Þorsteins þegar NT talaði við
hann í gærkvöldi. Jafntefli í 70 leikja skák við Rússann 011
í síðustu umferð heimsmeistaramóts unglinga í skák
tryggði honum 3. sætið og annan áfanga Karls að titli
alþjóðlegs meistara.
Karl tefldi af miklu öryggi
framan af mótinu og var í efsta
sæti eftir 6 umferðir. En tvær
tapskákir í röð gegn Dananum
Curt Hansen og Rússanum Dre-
ev gerðu það að verkum að
hann hrapaði niður, en góður
endasprettur tryggði honum
þriðja sæti.
Heimsmeistari unglinga í
skák varð Daninn Curt Hansen,
sem að sögn Karls er frábær
skákmaður. Hansen er um þess-
ar mundir helsta vonarstjarna
Dana sem arftaki Bent Larsen.
Annar í röðinni varð svo Rúss-
inn Dreev.
■ Gnmdíirðingar, ungir sem aldnir, sem vettlingi gátu valdið létu sig ekki muna um að
bretta upp ermar til að bjarga hinum óvænta afla á land sem var að veltast í fjöruborðinu hjá
þeim í gærmorgun. NT myndir: Bxrrng í icíKmiii
Hvalreki í beituleysinu:
Kolkrabbi gengur á
land í Grundarfirði
Reykjavík:
Ölvun og
árekstrar
- rólegtannarsstaðar
■ Um flmmleytið í gær höfðu
orðið 12 árekstrar í Revkjavík
og ekið var á gamlan mann eins
og greinir frá í blaðinu í dag.
Þá sagði lögreglan að mikið
hefði verið um ölvun í borginni,
bæði í heimahúsum og í mið-
bænum.
Annars staðar á landinu var
rólegt.
Á Austfjörðum fór umferð
minnkandi eftir annasaman
ferðamannatíma, og umferð var
lítil á Suðurlandi, að sögn lög-
reglunnar á Hvolsvelli.
Borga vinnuveit-
endur 3% þrátt
fyrir uppsagnir?
■ Munu atvinnurekendur
greiða félagsmönnum í þeim
félögum sem sagt hafa upp
samningum 3% kauphækk-
un 1. september, eins og
þeim sem ekki hafa sagt
upp? Þessi spuming kom m.a.
fram á miðstjórnarfundi
ASÍ, sem lauk í gær.
Karvel Pálmason alþing-
ismaður, sem sæti á í mið-
stjórn ASÍ sagi við NT í gær
að honum kæmi alls ekkert á
óvart þó þessi 3% yrðu
greidd. Aðspurður sagði
Karvel að þessi skoðun væri
fyrst og fremst byggð á til-
finningu. Spurður um hvort
menn væru að semja sagði
Karvel: „Pað er augljóst að
menn hafa rætt samninga
bak við tjöldin, en ég tel ekki
að út úr því hafi komið
nokkuð ákveðið, enda er of
snemmt að spá í þessa hluti
fyrr en Verkamannasam-
bandið hefur byrjað við-
ræður við sína viðsemjend-
ur.“
Tóku upp 15 tunnur af
lifandi smokkfiski
■ Grundfirðingar ruku upp til handa og fóta í
gærmorgun er það fréttist að sjórinn í fjörunni á
milli bryggjanna þar væri fuilur af lifandi
kolkrabba og háfuðu menn þar upp 15 tunnur af
lifandi kolkrabba á örstuttum tíma.
Það var skipstjórinn á
Haukabergi, sem varð var við
eitthvað torkennilegt í flæðar-
málinu er hann var að fara til
skips að útbúa næstu veiðiferð.
Þegar nánar var að gætt var
sjórinn fullur af kolkrabba sem
var að ganga á land. Hljóp
hann til ásamt áhöfn sinni með
öll tiltæk ílát og þótti það hinn
mesti hvalreki að fá svona
glænýjan kolkrabba, eða
smokkfisk eins og hann er nú
yfirleitt kallaður, til beitu.
Ekki vita menn á Grundar-
firði hvers vegna kolkrabbinn
gengur svona á land en þykir
þetta góður fengur í beituleys-
inu. Eru þeir hinir bjartsýn-
ustu á að þetta haldist áfram
og mun svipaður atburður
reyndar hafa átt sér stað fyrir
einum 17 árum síðan.
Kolkrabbinn virðist að auki
hafa fært Grundfirðingum
veðursæld, því meðan verið
var að landa þessu búsílagi
birti til og sá til sólar en síðan
dró ský fyrir að nýju. Munu
nú Grundfirðingar bíða í of-
væni eftir næstu kolkrabba-
hrotu og meira sólskini!