NT - 18.08.1984, Síða 4
Laugardagur 18. ágúst 1984
Bandaríski ísbrjóturinn:
„Norðanvindur“ í
Reykjavíkurhöfn
■ í byrjun vikunnar sigldi
hafrannsóknarskip banda-
rísku strandgæslunnar, US
CGG Northwind, inn til
Reykjavíkurhafnar. Var
skipið að koma úr rannsókn-
arleiðangrf á norðurslóðum
og mun það dvelja hér fram
til sautjánda ágúst. Á meðan
skipið liggur við landfestar
hyggst áhöfnin bregða undir
sig betri fætinum og keppa
við íslensk fótbolta- og
körfuboltalið.
Stúdentaráð:
Málaferli Fyrsta umboð Arnarflugs
ritstjóra? fyrir erlent flugfélag
Annar ráðinn í hans stað
■ Fyrrverandi ritstjóri
Stúdentablaðsins, Einar
Guðjónsson, hefur nú hót-
að Stúdentaráði Háskóla
íslands málsókn vegna ó-
greiddra launa fyrir síð-
asta mánuð starfstímabils-
ins síns. Að sögn for-
manns Stúdentaráðs.Stef-
áns Kalmanssonar, er hér
um túlkunaratriði starfs-
samnings að ræða en Ein-
ari var sagt upp störfum á
vormánuðum og blað það
sem hann hafði þá undir
höndum tekið af honum
og vinnslu þess lokið af
Stúdentaráðsmeðlimum.
Þá hefur Stúdentráð kraf-
ist þess að Einar geri upp
fyrir auglýsingar sem hann
aflaði í bíaðið og eru deil-
ur Stúdentaráðs og Einars
nú í höndum lögfræðinga.
Kvaðst Stefán vonast til
þess að málið leystist án
þess að til málaferla kæmi
en ekki tókst að ná í Einar
Guðjónsson og herma
heimildir blaðsins að hann
dvelji erlendis.
Á síðasta fundi Stúd-
entaráðs var gengið frá
ráðningu nýs ritstjóra
Stúdentablaðsins. Tveir
umsækjendur voru um
stöðuna og var ráðinn
Kristinn Sigurbjörnsson.
Hann hefur áður verið
sumarafleysingamaður á
Morgunblaðinu og fengist
við útgáfustarf í mennta-
skóla. Fyrsta tölublað
Kristins er væntanlegt um
miðjan næsta mánuð.
Northwind mun einkum
vera notað til alhliða rann-
sókna á norðurslóðum og við
suðurheimskautslandið.
Heimahöfn Northwind er
Wilmington í Norður-Karó-
línu, skipið hefur nokkrum
sinnum komið til Reykjavík-
ur áður.
Nyr prestur
á Dalvik
■ Séra Jón Helgi Þórar-
insson hlaut lögmæta
kosningu til Dalvíkur-
prestakalls í prestskosn-
ingunum þar um helgina.
Þegar atkvæði voru talin á
biskupsstofu í gær kom í
Ijós að Jón Helgi hafði
hlotið 527 atkvæði á móti
349 atkvæðum mótfram-
bjóðandans, Jóns Þor-
steinssonar. Séra Jón
Helgi Þórarinsson hefur
að undanförnu verið
prestur við Fríkirkju-
söfnuðinn í Hafnarfirði.
ísbrjóturinn „Norðanvindur“ í Reykjavíkurhöfn. NT-mynd: Róbert
Þann fimmtánda ágúst
gekk í gildi samningur sem
KLM og Arnarflug hafa gert
með sér um aðalumboð þess
síðarnefnda fyrir KLM á
íslandi. Verður starf Arnar-
flugs aðallega í kynningu og
sölu á ferðum með hollenska
félaginu. Er þetta fyrsti um-
boðssamningur Arnarflugs
við erlent flugfélag.
„Þessi samningur þýðir að
við látum meira að okkur
kveða en áður á markaðnum
hér. Við treystum nú á Amar-
flug með að verja hagsmuni
okkar á íslandi. Og svo von-
umst við eftir auknu sam-
starfi við Arnarflug í kjölfar
samningsins um flutninga á
vörum, þjálfun starfsmanna
þeirra, og tölvuþjónustu,“
sagði Richard Roberts, sem
stjórnar skipulagningu og
þróum markaðsmála KLM,
á fundi með fréttamönnum í
tilefni af gildistöku umboðs-
samningsins.
Robert sagði, að frá um
1960 hefði KLM haft al-
mennan sölusamning við
Flugfélag íslands og síðar
Flugleiðir á íslandi. En nú
væri umboðið fært yfir til
Amarflugs. Ástæðan væri sú
að forsendur hefðu breyst;
nú væru það ekki Flugleiðir
heldur Arnarflug sem flýgju
til Amsterdam til Sciphol,
heimaflugvallar KLM.
Flugleiðir sögðu í fyrra
upp samningi sínum við
KLM um umboðssölu í Hol-
landi.
KLM er sjöunda stærsta
flugfélagið í heimi, en jafn-
■ Stefán Halldórsson, forstöðumaður kynningardeildar Arnar-
flugs, Richard Roberts, markaðsþróunarstjóri KLM, og Magnús
Oddsson, markaðsstjóri Arnarflugs.
NT-mynd: Sverrir
framt það elsta. Félagið hef-
ur 18.600 starfsmenn, og
fíýgur til 75 landa. Vélar
þess eru aðallega af gerðinni
Airbus A310, Boeing 747,
DC9 og DC10.
Friðarvika í
Félagsstofnun
■ Dagana 22.-26. ágúst gangast
fjölmörg friðarsamtök fýrir Friðar-
dögum í Félagsstofnun stúdenta
við Hringbraut. Þar verður sýning
á verkum nokkurra þekktustu graf-
íklistamanna Finnlands, Svíþjóð-
ar og Danmerkur. Meðal þeirra
sem sýna eru Palle Nielsen Dan-
mörku, Ulla Rantancn, Finnl-
andi.Nils Stenquist, Svíþjóð, og
Björn Willi Mortensen, Noregi.
Sýningin verður opnuð kl. 17.00 á
miðvikudaginn og um kvöldið
verða tónleikar. Dr. Jan Williams
lífefnafræðingur flytur erindi auk
fleiri dagskráratriða.
Á föstudags- og sunnudags-
kvöld flytur svo sænski leikarinn
og grínistinn Jan Bergquist leikrit
sitt Síðasta viðtalið, The Last Talk
Show, fyrra kvöldið á ensku og
seinna kvöldið á sænsku. Friðardag-
arnir eru í tengslum við ráðstefnu1
Friðarsambands norðurhafa, sem
hefst á Hótel Loftleiðum föstudag-
inn 23. ágúst.
Stór íslensk
hörpudiskperla
Gróft siðabrot:
Gæsir drepn
ar í sárum
■ Skotveiðifélag íslands
vill-vekja athygli á því að
þessa dagana eru gæsir í
sárum eða farnar í felli. Þá
getur fuglinn ekki flogið og
á sér fáa griðastaði fyrir
skotglöðum veiðihröppum.
Hafa fregnir borist af því að
menn drepi gæsir í sárum í
verulegum mæli og noti til
þess hraðbáta, háfa og ífær-
ur. Veiðar af þessu tagi eru
hinsvegar bannaðar með
lögum á meðan gæsir eru í
sárum og skotveiðifélagið
fordæmir auk þess fugladráp
algjörlega. Kveðst félagið
umsvifalaust munu kæra alla
þá sem staðnir verða að
drápi gæsa í felli enda sé þar
um að ræða gróft lögbrot og
siðabrot. Skorar félagið á
hvern þann' sem kann að
verða var við ólöglegt athæfi
af þessu tagi, að koma upp-
lýsingum um það áleiðis til
stjórnar Skotvís eða til
næstu löggæsluyfirvalda.
Niræð á
morgun
■ Á morgun 19. ágúst
verður 90 ára Guðlaug Ei-
ríksdóttir, áður húsfreyja á
Ormsstöðum Breiðdalsvík.
Mann sinn, Brynjólf Guð-
mundsson, missti hún árið
1975. Guðlaug dvelst nú hjá
dóttur sinni Guðrúnu að
Heiðarvegi 11 Reyðarfirði.
■ Perlan sem við sögðum
frá í blaðinu á fimmtudag er
greinilega ekki sú eina sem
fundist hefur hér við land.
Ungur maður í Reykjavík,
Ólafur Torfason . kerfis-
fræðingur hafði samband við
blaðið og sýndi okkur 7 milli-
metra perlu sem hann fann í
hörpudiski fyrir um 12 árum.
Á þeim tíma vann Ólaf-
ur í Bæjarútgerðinni og
var þar í hörpudiskvinnslu
begar einn daginn þessum
ágæta grip skolaði í hendurn-
ar á honum úr einni skelinni.
Síðan fékk hann gullsmið
hér í borg til þess að smíða
utan um perluna og um leið
að verðleggja gripinn en
hvað hann sló á mundi Ólaf-
ur ekki lengur. „Það var
eitthvað í gömlum krónum,
- en þetta er fyrst og fremst
svona áhugaverður hlutur að
eiga,“ sagði Ólafur og hér til
hliðar sjáuni við perluna
góðu greypta í krossinn.
■ Hér sjáum við hörpudiskperluna og ef þú lesandi góður leggur
tíeyringinn þinn ofan á okkar á myndinni sérðu að hún er hér í um
það bil réttri stærð. Ólafur kvaðst hafa mælt hana og fengið út 7
millimetra á langveginn og um 5 í „mittismál“. NT-mynd: s»cmr