NT - 27.08.1984, Page 7
ms7 Mánudagur 27. ágúst 1984 7
_ uJj Fréttír
: ■ > ... >.:j. :>
'
Akureyrarbær með í þróunarverkefni í Tansaníu:
Hugmyndir um framkvæmdir
enn mjög í lausu lofti
■ „Pað var nú ekki tekið allt
of vel í þessa hugrriynd," sagði
Sigríður Þorsteinsdóttir forseti
bæjarstjórnar Akureyrar við
NT en hún sat nýlega vinabæja-
mót í Lathi í Finnlandi þar sem
Finnar komu frarn með þá
hugmynd að vinabæirnir, Lathi,
Akureyri, Álasund, Vesterás,
og Randers, ættu að standa fyrir
þróunarstarfi í bænum Mbeya í
Tansaníu.
Þau andmæli komu fram á
vinabæjamótinu að slík verkefni
ættu að vera á vegurn ríkis-
stjórna landanna en hugmyndir
Lathimanna munu ganga út á
að láta unglinga vinna ákveðin
störf í sjálfboðavinnu sem geti
komið á auknum skilningi milli
þjóða í heiminum, eins og það
er orðað í tillögunni.
Sagði Sigríður að á Akureyri
yrði séð til hverju yrði hægt að
koma á stað heimafyrir en síðan
ntyndu rnenn bera saman bækur
sínar næsta sumar. Kvað hún
allar hugmyndir um þetta starf
enn vera mjög í lausu lofti en
það væri vilji fyrir hendi til að
koma málinu á rekspöl.
Ástralskir
íslendingar
fagna á lýð-
veldisafmælinu
■ {tilefni af 40 ára lýðveldisafmæli íslands,
boðaði íslendingafélagið í New South
Wales, Ástralíu til lýðveldisfagnaðar á
þjóðhátíðardaginn. Á hátíðinni kom Fjall-
konan í fyrsta skipti fram og ávarpaði gesti
af miklum myndugleik. Við þetta tækifæri
var félaginu fært að gjöf skjaldarmerki
landsins sem ungur Islendingur, Gísli
Bergmann málaði og var merkið afhjúpað á
hátíðinni.
SVFÍ:
Hef ur 2073 menn
í viðbragðsstöðu
155 björguðust úr lífsháska
á síðasta ári, segir í Árbók
Slysavarnafélags íslands
■ Deildir Slysavarnafélags íslands geta
kvatt til björgunarstarfa, með litlum fyrir-
vara, 2073 menn.
Þetta kemur fram í Árbók Slysavarnafé-
lagsins 1984, sem er nýkomin út.
í bókinni er einnig greint frá Myndbanka
sjómanna, en hann var stofnaður í mars
1983. Bankinn hefur nú yfir að ráða 350
spólum, með fimmtán titlum. Fjalla spól-
urnar aðallega um öryggismál sjómanna, og
er dreift um borð í sícip.
Árbókin er 268 bls. að stærð, og er í henni
greint frá starfsemi slysavarnafélaganna á
sl. ári. Þar er m.a. fjallað um Kampen-slysið
og birt viðtal Árna Johnsen við Guðlaug
Friðþórsson, skipverja á Hellisey VE 503
sem fórst 11. mars sl., en Guðlaugur komst
einn manna af.
Þá er einnig minnst 50 ára afmæla fjöl-
margra slysavarnadeilda kvenna.
í bókinni kemur fram að bjarganir úr
lífsháska voru 155 á síðasta ári, en 64 létust
af slysförum.
Þá kemur fram að slys í heimahúsum eru
ákaflega tíð, en lítið unnið að fyrirbyggjandi
aðgerðum. Nú munu Slysavarnafélag ís-
lands og Slysavarnadeildin Ingólfur, í sam-
ráði við landlækni, ætla að gefa út handbók
um slys í heimahúsum, og hvernig sé unnt
að afstýra þeim.
Forseti Slysavarnafélagsins er Haraldur
Henrýsson en framkvæmdastjóri er Hannes
Hafstein.
Gufubaðið:
Hönnuð í Fín-
pússningunni
■ Gufubaðstækin sem greint var frá í NT
fyrir skömmu, eru hönnuð af Hannesi
Agústssyni, eiganda Fínpússningarinnar.
Hann sagði að honum hefði dottið í hug
hvort þetta væri hægt, og svo látið verða af
því að prófa.
Gufan myndast þegar heitu vatni er þrýst
út um spíssa undir þrýstingi.
Hannes sagði að Vaxtarræktin, sem selur
tækin, hefði þróað hugmyndina og hefði
það verið í fullu samráði við hann.
Ehh
HÆKKUM V/tÐ
IhhLÁIÍSVEKTI
V/axtabreytingar frá 27. ágúst:
fjparireikningar með 18 mán. uppsögn_hækka í 25%, ársávöxtun 26,6%
Innlánsskírteini 6 mánaða____________hækka í 24,5%, ársávöxtun 26%
V/erðtryggðir sparireikn. 3ja mánaða binding hækka í 3%
V/erðtryggðir sparireikn. 6 mánaða binding hækka í 6,5%
Tékkareikningar______________________hækka í 10%
Aðrir vextir eru óbreyttir frá 13. ágúst 5.1.
HÆ5TU
BAhHAV/EHTIRhlR!
5parireikningar Búnaðarbankans með 18 mánaða uppsögn
bera 26,6% ávöxtun á ári.
Þetta eru hæstu bankavextir sem bjóðast.
Búnaðarbankinn mun ávallt leitast við að veita sparifjáreigendum
hæstu vexti 5em í boði eru hverju sinni.
fjfBlJNAÐARBANKI
\Cy ÍSLANDS